Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1999, Page 36
44
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1999
nn
Ummæli
Deyfö vcgna góöæris I
„Það er deyfð yfir verkalýðs-f
forystunni sem kemur til vegna |
þess að allir trúa nú að góðæri
ríki i landinu - en því er að mínu
mati mjög misskipt."
Signý Jóhannesdóttir, form.
Verkalýðsfélagsins Vöku.
I
Óskiljanleg vitleysa I
„Okkur er óskiljanlegt aö
mönnum skuli detta
í hug að leggja til
sölu daga. Það er /
enn vitlausara en
að leigja megi eða
selja kvóta.“ I
Arthur Bogason.
form. smábátaeig-
enda, i DV.
Þjóðin vakni
„Ég held að íslensk þjóð verði :
vakinn einn daginn. Það mun eitt-
hvað vekja hana til umhugsunar,
fyrst og fremst til umhugsunar
um eigið ágæti. Kapitalisminn \
kemur kannski ekki tO að hrynja f
en vægi hlutabréfafíknar íslend-
inga kemur til með að minnka."
Kristján Hreinsson, skáld og tón-
listarmaður.
ú
SVFI
Árskógsströnd
Hjálparsveit
skáta, Akureyri
Dýrkeypt
samstarf 1
„Stjórnarsamstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn hefur oftast
reynst samstarfs- f
ílokkum hans dýr- j
i keypt eins og dæm-
in sanna. Það
stafar væntaniega
af þvi að almenn-
ingur hættir að
greina á milli
samstarfsflokkanna og
lítur svo á að vilji stærri flokks- j
ins, Sjálfstæðisflokksins, ráði í
einu og öllu.“
Alfreð Þorsteinsson borgarfull-
trúi, í DV.
Launamunurinn
„Launamunur er of mikill,
hvort sem hann er milli verka-
manna og þingmanna - eða verka- í
manna og Harðar í Eimskip."
Sigurður T. Sigurðsson, form.
Verkamannafélagsins Hlífar, i
Degi.
Ríka fólkiö og
fína fólkið
„Það er alkunna að þetta svo-
kallaða góðæri í þjóðfélaginu hef-f -------
ur aukið mun milli ríkra og fá- dv, Hóimavik:
tækra. Hér er að verða til auð-
mannastétt sem á fátt sameigin-
legt með kjörum alþýöunnar. Ef
íslenskir blaðamenn ætla að taka
þátt í þeirri þróun meö því að
fullyröa blákalt að ríka fólkið sé
líka „fina fólkið" þá er illa kom-
ið, og lífið óskemmtilegra."
Illugi Jökulsson, á rás 2.
Björgunarsveitir á
Norðurlandi eystra
C) SVFÍ
Raufarhöfn
SVFÍ SVFÍ,
Ólafsfirði Dalvík
Hjálparsveit skáta,
('s| SVFÍ
1—1 Kópaskeri
SVFI
Húsavíkl
ú
ú SVFÍ
Þórshöfn
SVFI
Kelduhverfi
✓N SVFÍ,
1__| Hrísey
úQ
SVFI
Grenivík
□
ÚHjálparsveit skáta,
Aðaldal
SVFÍ L—I SVFÍ
I—I Bárð-, Ljósav-, Mývatnssveit
Hálshreppi
r^SVFÍ
I—I Svalbaröseyri
[2]Hjálparsveit skáta,
Reykjadal
(^iSVFÍ
1—1 Flugbjörgunarsveitin,
Akureyri
Hjálparsveit skáta,,
Grímsstöðum
Ólafía Jónsdóttir ljósmóðir:
Sambandið nánara og traustið
meira á fámennum stöðum
„í raun og veru var það alveg
fjarri mér að læra til ljósmóður, t.d.
þegar mamma var að nefna það viö
mig. Ég sá aldrei þegar hún var að
taka á móti og kom ekki nálægt þeg-
ar tvíburar systur minnar fæddust
heima á Skriðnesenni. Svo atvikað-
ist það að ég var beðin að vinna hér
á sjúkraskýlinu sem ráðskona, sjá
um heimilisstörfin, annast um sæng-
urkonur og annað sem til féll. Þá var
hér ljósmóðir. Á þessum fjórum
mánuðum var ég viðstödd sex fæð-
ingar og þá fann ég fyrst hvað þetta
átti vel við mig,“ segir Ólafía Jóns-
dóttir, ljósmóðir á Hólmavík, sem er
að hætta eftir þrjátíu og sex ára far-
sælt starf. Ólafía fór í ljósmæðraskól-
ann haustið 1959 og
lauk prófi ári
seinna. Hún fór
Landspítalans og var þar þangað til í
desember 1961. Henni baust í fram-
haldinu að taka við sem forstöðu-
kona sjúkrahússins á Hólmavík og
gegna þar ljósmóðurstörfum. Hún
hóf þar störf 1. apríl 1962.
Maður dagsins
„Fyrstu árin var minna fylgst með
konum á meðgöngu en síðar varð. Á
þvi var engin regla, ekki heldur boð-
ið upp á það, enda engin heilsugæsla
komin. Það var ekki nema einstaka
kona sem lét eitthvað fylgjast með
sér og sumar þeirra sá ég ekki fyrr
en komið var
fast að fæð-
ingu.“
Margt
tók breyt-
ingum
næstu ára-
tugina og fæð-
ingar lögðust nán-
ast af úti á landi.
Ólafía segir það
ekki góða stefna
að allar konur
fæði á stórum
sjúkrahúsum.
Það sé
reyndar
aðeins að
breytast aftur
og konur fyrir
sunnan óski nú eftir
að fæða í heimahúsum.
Á sínum tima átti Ólafia
þess kost að halda áfram
vinnu syðra við ljósmóður-
störf en þetta hérað og ekki
sist sveitin togaði í hana.
„Þegar mér bauðst þetta starf
hér um árið fannst mér það áhuga-
vert. Á stað eins og þessum er allt
miklu persónulegra og maður nær
hverri manneskju en á stórum stofn-
unum. Sambandið verður nánara og
traust myndast milli þeirra sem um-
önnunina veitir og þeirra sem henn-
ar nýtur.
Ég hefði síður treyst mér til að
taka þetta að mér ef ég hefði ekki
fengið þjálfun þetta rúma ár syðra.
Fyrstu árin var þetta stundum erfitt,
ekki síst þegar læknislaust var.
Fyrstu fæðingu hverrar konu kveið
ég nokkuð, alltaf bað ég Guð að vera
í verki með mér. Ég veit að ég var
bænheyrð, fann svo vel að einhver
var hjá mér og þetta gekk allt bless-
unarlega".
Ólafia segist ekki beinlínis ósátt
við að fólk hætti störfum vegna ald-
urs en á meðan það hefur starfsþrek
og vilja til að vinna fyndist sér rétt-
látt að fólk hefði um það val hvort
það héldi áfram vinnu eða hætti.
Ólafia hefur leikið við kirkjulegar at-
hafnir í áratugi, segist þó ekki hafa
mikið lært til þess. Upphaflega hafi
hún aðeins ætlað að prófa þetta í eitt
ár en þetta sé nú orðið heldur langt.
Þegar hún var ung stúlka heima á
Skriðnesenni eignaðist hún gítar og
söng með systrum sínum og stúlkum
af næsta bæ, Bræðrabrekku. Þær
sungu oft á skemmtunum og einnig i
Ríkisútvarpið. Gítarinn á hún enn
og tekur hann stimdum upp. Hún
hefur farið á hverju vori heim i
sauðburðinn. „Að fara út á nóttinni
þegar sólin er að koma upp og fylgj-
ast með sauðburðinum kemur að
nokkru leyti í staðinn fyrir að taka á
móti börnum, það er alveg yndis-
legt,“ segir Ólafia Jónsdóttir ljós-
móðir. -GF
Sigrún Eðvaldsdóttir leikur
ásamt Snorra Sigfúsi Birg-
issyni í Tónlistarhúsi Kópa-
vogs í kvöld.
Sigrún og Snorri
í Salnum
Mikið og öflugt tónlistar-
líf hefur verið í Salnum í
Tónlistarhúsi Kópavogs allt
frá því hann var formlega
opnaðar. Nú stendur yfir
tónlistarhátíðin Myrkir
músíkdagar og á vegum há-
tíðarinnar verða tónleikar í
Salnum í kvöld þar sem
tveir af færustu tónlistar-
mönnum okkar, Sigrún Eð-
valdsdóttir og Snorri Sigfús
Birgisson, flytja nútíma-
verk. Sigrúnu og Snorra er
óþarfi að kynna nánar, þau
hafa verið áberandi í tón-
listarlífi íslendinga um
nokkurra ára skeið og eru
eftirsótt til tónleikahalds.
Tónleikar
Á tónlistardagskrá Sig-
rúnar og Snorra eru ein-
göngu íslensk verk: Cesili-
ana eftir Mist Þorkelsdótt-
ur, Trois Pices eftir Þórð
Magnússon, Þættir eftir
Finn Torfa Stefánsson,
Thor eftir Atla Heimi
Sveinsson, Mónetta eftir
Kjartan Ólafsson og G-svíta
eftir Þorkel Sigurbjörnsson.
Myndgátan
Athugar hvernig máli líður
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi.
Haukar leika við Þór í Þorlákshöfn
í kvöld.
Bikarkeppnin
í körfubolta
Eftir viðburðaríka helgi í
íþróttum, þar sem tekist var á í
mörgum íþróttagreinum, færist ró
yfir innlendar íþróttir í dag. Það
er þó einn leikur á dagskrá í Bik-
arkeppni Körfuboltasamhandsins.
Leikur sem átti að vera í gær en
var frestað þar til í kvöld. Er það
viðureign Hauka úr Hafnarfirði
og Þórs í Þorlákshöfn. Haukar
leika sem kunnugt er í úrvals-
deOdinni, en Þór leikur i 1. deild.
Haukarnir þurfa að gera sér ferð
til Þorlákshafnar og það ætti að
koma heimaliðinu til góða að
leika á heimaveOi og fá gestina
að. Leikurinn hefst kl. 20.
íþróttir
í kvöld eru einnig þrír leikir í
unglingaflokki í körfuboltanum, á
Akranesi leika ÍA-Afturelding, í
Fylkishúsi, Fylkir-Haukar. Þessir
tveir leikir hefjast kl. 20. Kl. 20.40
leika síðan Valur-Keflavik í Vals-
heimOinu. Á morgun er síðan
einn leikur í sama flokki, í Graf-
arvogi leika Fjölnir-UMFG. Á
fimmtudaginn verður síðan leikin
fjórtánda umferöin í úrvalsdeOd-
inni og þá er einnig leikið í 1.
deOd karla.
Brídge
Hálfslemma í hjarta er ekki
slæmur samningur á hendur NS.
Hún er aldrei verri en 50%, raunar
töluvert betri. Andstæðingarnir
geta komið með lauf út og hinir
hliðarlitimir gefa einnig mögiOeika.
Slemmunni er hægt að ná í eðlilegu
kerfi á tOtölulega einfaldan hátt:
* K987
»8742
•f Á6
* D93
* DG532
»93
* D97
* G65
* Á4
» ÁKDG10
* KG8
* K107
Suður Vestur Norður Austur
2 * pass 2 ♦ pass
2 grönd pass 3 * pass
3 » pass 3* pass
4 * 6 » pass p/h 4 ♦ pass
Tvö lauf er alkrafa, tveir tíglar
geta sýnt margs konar spO og tvö
grönd sýna 21-23 punkta jafnskipta
hendi. Þrjú lauf er „puppet-staym-
an“, spyr opnara hvort hann eigi 5
spO í hálit. 3 spaðar, 4 lauf og 4 tígl-
ar eru fyrirstöðusagnir. Sagnhafi
getur bætt vinningsmöguleika sina
eOítið yfir 50% með því að nýta sér
hliðarlitina eftir að hafa tekið
trompin af andstöðunni. Engin
ástæða er tO þess að fara strax í
lauflitinn. Betra er að taka strax á
ÁK í tígli tO að
sjá hvort drottn-
ingin faUi ekki.
Þó að hún komi
ekki er hægt að
skoða spaðalit-
inn. Verið getur
að annar hvor
andstæðinganna
eigi DG10 blankt
sem myndu einnig leysa vanda
sagnhafa. En vandvirkur spilari
myndi samt tapa á því að kanna
spaðann. Með því að taka ÁK í
spaða og trompa spaða væri sagn-
hafi hálfþartinn neyddur tO að fara
niður. Austur er líklegri tO að eiga
lauflengd (úr þvi hann á aðeins 2
spaða og 2 hjörtu) og sagnhafi væri
líkegur tO að spOa austur upp á
laufgosann. Sá sem sæi ekki mögu-
leikana í hliðarlitunum hefði hins
vegar um 50% möguleika á að hitta
í laufið. ísak Örn Sigurðsson