Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1999, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1999, Blaðsíða 40
Vinningstölur laugardaginn: 20 22 32 Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphœð 1. 5af 5 0 3.210.740 2. 4af5+9® 1 85.020 3. 4 af 5 50 5.860 4. 3 af 5 1.502 530 Jókertölur vikunnar: > o Q *=> LU s o ■z> S Lf3 < 2 crs o £lfl > S LT3 FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1999 Eurovision 1999: Selma til ísraels Selma Bjöms- dóttir, söngvari og dansari, fer til ísraels í vor og tek- ur þátt í Eurovision söng- lagakeppninni fyr- ir íslands hönd. Ríkisútvarpiö og Selma hafa ekki skrifað undir samninga en það mun verða gert í dag eða næstu daga. Selma hefur rætt við Sigurð Val- geirsson, dagskrárstjóra Sjónvarpsins, einu sinni en Sigurður sagði í gær að fram undan væru samningar. í kjölfar- ið verður samiö íslenskt Eurovisionlag og texti og sviðsframkoman æfð. Selma hefur vakið mikla athygli fyr- ir frammistöðu sína í Grease og þar áður í Ó-inu í sjónvarpinu. Islendingar vora ekki með í fyrra í keppninni í Birmingham en fá tæki- færi núna að nýju. Sigurvegari í fyrra var Dana Intemational, ísraelsk drag- drottning. -JBP Selma Björnsdóttir. Það er ekki verra að eiga hugmyndaríkan pabba þegar snjóþotan finnst ekki, eða er kannski biluð. Pabbinn nær þá í gamla bílslöngu í geymslunni. Þær renna enn hraðar. Þessir feðgar voru á fleygiferð niður Breiðhoitshálendið í gærdag. Sá stutti unir sér vel og geislar af ánægju en pabbinn er, ja, dálítið hugsi yfir hraðanum. DV-mynd ÞÖK Breiðdalsvík: Nýtt félag og veiðiheimildir - efst á blaöi ráðamanna Stofnun félags um rekstur frysti- hússins á Breiðdalsvik og öflun veiðiheimilda eru efst á blaði for- ráðamanna staðarins í baráttu þeirra fyrir því að koma rekstri frystihússins af stað á nýjan leik, að sögn Rúnars Björgvinssonar sveit- arstjóra. Enginn afli berst nú til frystihússins á Breiðdalsvík þar sem forráðamenn Búlandstinds hf. vinna aOan afla fyrirtækisins á Djúpavogi. Frystihúsið hefúr ekki veriö starfrækt síðan um miðjan desember. Hreppsnefndin hélt í síðustu viku tO Reykjavikur þar sem hún hitti þingmenn kjördæmisins og gerði grein fyrir stöðunni.„Það er verið að fara yfir aOa þætti málsins og það ætti að skýrast í byrjun vikunn- ar,“ sagði Rúnar við DV í gærkvöld. Guðmundur Hallvarðsson óhress með tillögu sjávarútvegsnefndar en samþykkir þó: Þingmenn brugðust - og endalaust brask fram undan, segir Hálfdán Kristjánsson trillusjómaður Þingstörfin í vetur: Kjördæmamálið langstærst Kjördæmahreyting- in verður langstærsta málið sem Alþingi hefur til meðferðar eftir þinghlé, að sögn Ólafs G. Einarssonar, forseta Alþingis. Sjávarútvegsfrum- varpið kemur tO um- ræðu í þinginu í dag. Er gert ráð fyrir að Alþingi afgreiði það annað kvöld. Að því búnu verður gert tveggja vikna hlé á þingstörfum. Ólafur sagði að sér væri ekki kunn- ugt um nein stór mál sem enn væru ókomin frá ríkisstjóminni. Ailmörg mál hefðu verið í þingnefndum og kæmu tO meðferðar, en engin flokk- uðust undir stór mál. Fyrirhugað er að ljúka þingstörfum 10. mars. -JSS Guðmundur HaOvarðsson alþing- ismaður í meirihluta sjávarútvegs- nefndar þar sem sitja sjö stjómar- liðar og tveir úr minnOOuta segist ekki hafa verið talsmaður þess að aflaheimOdir væru framseljanlegar og þjóðareignin þannig gerð að verslunarvöru. Hann er engu að síð- ur í meirihluta sjávarútvegsnefhdar og afgreiðir málin að því er virðist gegn betri vitund. „Ég hef sagt mönnum að þetta sé alveg í andstöðu við mína hugsun í þessum efnum. Og ég tala nú ekki um þegar á líka að láta krókabátana selja fram hjá kvótaþingi. Svona gengur þetta fram og við tökum Guðmundur Hálfdán Hallvarðsson. Kristjánsson. þetta tO umræðu í þingflokknum á morgun. Við erum nokkrir sjálf- stæðismenn ekki yfir okkur hrifnir af framgangi þessara mála en við sjáum bara ekki aðra leið en þessa, sem er þó mjög óásættanleg," sagði Guðmundur í gærkvöldi. Jafnvel grásleppan er að verða verslunarvara. „Minnstu ekki á það. En ráðherra mun setja reglu- gerð um hvemig á því öOu verður haldið," sagði Guðmundur. „Eini ljósi punkturinn í öOu saman eru endurskoðunarákvæðin á lögunum. Maður treystir því bókstaflega að ráðherra setji fljótlega á fót starfs- hóp tO að fara yfir aOt sviðið. AOt er þetta orðið þvOíkt fenómen og vit- leysa að það háifa væri nóg. Hér rekur sig aOt á hvert annars horn. Væntanlega verður það ekki fyrr en eftir kosningar," sagði Guðmundur. „Fram undan er brask, endalaust brast. Og miðað við orð Einars Odds á fundi með okkur triOubátasjó- mönnum hér fyrir skemmstu er ég undrandi á hans afgreiðslu í sjávar- útvegsnefndinni. Og miðað við orð sem Kristinn H. Gunnarsson lagði fram á Alþingi í fyrra sem alþýðu- bandalagsmaður þá er ég stórund- andi á hans vinnubrögðum sem framsóknarmaður í sjávarútvegs- nefnd í dag. Þingmenn Vestfirðinga hafa í heild sinni gjörsamlega brugðist bátasjómönnum," sagði Hálfdán Kristjánsson, triOusjómað- ur á Flateyri, í gærkvöldi. Nánar á bls. 4. -JBP Ólafur G. Einarsson. Steingrímur með óspektir Aðfaramótt fóstudags þurfti lög- reglan á HvolsveOi aö fara að vistheimOinu Gunnarsholti og fjar- lægja þaðan Steingrím Njálsson, þann sem margsinnis hefur verið dæmdur fyrir kynferöisafbrot gegn ungum drengjum. Steingrímur hafði þar verið drukkinn og með óspektir en sem kunnugt er hýsir Gunnarsholt drykkjumenn sem ákveðið hafa að snúa af viOu síns vegar og er meðferð áfengis þar bönnuð. Lögreglan sótti Steingrím og flutti á Selfoss hvaðan hann tók leigubO til Reykjavíkur. Skoteldur að flugvél Farþegum og áhöfn fokkervélar Flugleiða var mjög brugðið í gær- kvöld þegar stór flugeldur, sem skotið var á loft úr miðbænum, sprakk meö látum hættulega ná- lægt vélinni. Flugvélin var i að- flugi, að koma frá Akureyri og var yfir Hljómskálagarðinum þegar flugeldurinn sprakk. Að áliti flug- manns vélarinnar er það vítavert gáleysi að skjóta upp flugeldum á þessum stað og segja sjónarvottar það mikla mOdi að ekki hlaust slys Ómar Ragnarsson, frétta- og flug- maður, var einn sjónarvotta. Hér skýrir hann lögreglumönnum frá því sem hann sá. DV-myndir HH af. Flugmenn eiga vitaskuld ekki von á slíku eftir þrettánd- ann. Enn hefur engin Fokkervélin lent á Reykjavíkurflugvelli. formleg kæra borist lögreglunni en að sögn eru starfs- menn flugturnsins mjög óhressir með málið. Varðstjóri lögreglunnar í Reykjavík sagði að nokkuð hefði verið um að skotið hefði verið upp flugeldum í miðbænum án tilskO- ins leyfis hina síðustu daga. Varð- stjóri sagði ennfremur að ekki væru tO nein skráð lög um hvenær ársins má skjóta á loft flugeldum en hefð væri fyrir því á íslandi að standa ekki í slíkri skothríð nema á gamlárskvöld og þrettánda. -þhs Veðrið á morgun: Kólnandi veður Á morgun verður hvöss norð- vestan- og vestanátt og snjó- koma norðan tO. É1 verða suð- vestan- og vestanlands en úr- komulítið suðaustanlands. Veð- ur fer kólnandi. Veðrið í dag er á bls. 45. Maggi -gœði, úrval og gott verð MERKILEGA MERKIVELIN brother PT-220 ný véi fslenskir stafir Taska fylgir 8 leturgeröir, 6 stærðir 6, 9, 12,18 mm boröar Prentar í 4 línur Aðeins kr. 10.925 □ Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.