Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1999, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANUAR 1999
7
sandkorn
Fréttir
Leynilöggur
Orðrómur er á kreiki um að vændi
þrífist í tengslum við þá mörgu staöi
sem sýna nektardans. Þrátt fyrir að eig-
endur staðannna þræti leynt og ljóst
fyrir þetta mun hin
harðsnúna lögregla 1
Reykjavík hafa ákveðið
að kanna málið ræki-
lega. Þannig hafi þeir
brugðið á það ráð að
fara borgaralega
klæddir á einhveija
staði undir því yfir-
skini að á ferð væru karlmenn
sem næmir væru á kvenlega fegurð.
Sandkom hefur heimildir fyrir því að
einkennilegt tríó miðaldra manna hafa
dúkkað upp á veitingastaðnum Bóhem
hvar konur dansa gjarnan fáklæddar á
sviði. Þetta voru vörpulegir og bláedrú
kappar sem fengu sér sæti á besta út-
sýnisstað og drukku kaffi. Mennirnir
vöktu óskipta athygli gesta enda sat í
miðjunni samkvæmt sömu heimildum
sá þjóðþekkti yflrlögregluþjónn Geir
Jón Þórisson . Sagan segir að allt hafi
farið afar vel fram og dansarar verið
siðprúðir í hvívetna sem endranær...
Þórarinn þreyttur
Þórarinn V. Þórarinsson , fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasambands
íslands, hefur lengi viljað draga sig í hlé
og er talið að hann vilji ganga frá sínum
málum fyrir lok þessa
árs ef ekki fyrr. Þá gefst
nýjum manni nokkur
tími til að átta sig á að-
stæðum en enginn nú-
verandi starfsmanna
VSÍ er talinn vera inni
í myndinni sem fram-
kvæmdastjóri. Spurn-
ing er hins vegar hvað Þórarinn
æflar að fara að gera. Sagt er að hann
hafi viljað Nýsköpunarsjóð en ekki feng-
ið þegar Páll Kr. Pálsson var ráðinn.
Hann er hins vegar nú stjómarformað-
ur Landssímans og sagður taka allar
meiri háttar ákvarðanir. Vangaveltur
em um hvort hann verði stjómarfor-
maður í fullu starií en því éru margir
sagðir andsnúnir, meðal annars Davíð
Oddsson forsætisráðherra...
Gettu betur
Logi Bergmann Eiðsson, sá létt-
leikandi sjónvarpsfréttamaður, hefur
stigið sín fyrstu skref sem stjómandi
Gettu betur og Illugi Jökulsson sem
dómari. Fyrstu liðin
kepptu á fóstudagskvöld
og sluppu menn áfalla-
lítið frá þeirri lotu. Þó
var svo að heyra að
stjórnandinn, sem var
í Reykjavík, vissi ekki
um tíma hvar á land-
inu liðin væru.
Þannig ávarpaði hann keppnislið
Sauðkrækinga og vfldi vita hvort þeir
væra ekki við góða heilsu á Akureyri.
Honum var þá vinsamlega bent á að
þeir væra í stúdíói i sínu heimahéraði
á Sauðárkróki. Ekki tók betra við þeg-
ar hann spurði Homfirðinga hvort
ekki færi vel um þá á Egilsstöðum. Þeir
bentu honum á að þeir væra sömuleið-
is i sínu heimahéraði. Fyrsta lota
keppninnar gekk sem sagt út á það að
finna út hvar liðin væru á landinu...
Mörður klókur
Nú er allt komið á fulla ferð í próf-
kjöri Samfylkingar í Reykjavík. t hólfi
AJþýðuflokksins er saman komin nokk-
ur þungavigt allrahanda krata sem
vilja vegtyllur. Um helg-
ina opnaði Össur
Skai-phéðinsson kosn-
ingamiðstöð i Reykja-
vik og mætti mikið
fiölmenni til að fagna
með honum. Athygli
vakti að allt krata-
hólfið mætti til
arins, að undanskilinni Jóhönnu Sig-
urðardóttur sem berst við Össur hinn
skegglausa um efsta sætið. Þar mátti
m.a. sjá Mörð Árnason íslenskufræð-
ing sem vill öraggt sæti. Mörður er ná-
inn samstarfsmaður Jóhönnu og víst er
að takist honum að tryggja sér góðvild
Össurar munu fylkingamar sameigin-
lega fleyta honum í öraggt sæti...
Umsjórt Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is
Samfylkingin riölast á Noröurlandi eystra:
Konurnar ekki með
- mótmæltu því að fá ekki eitt af þremur efstu sætunum og gengu út
DV, Akureyri:
Samfylkingin svokallaða hefur
riðlast á Norðurlandi eystra með
þeim afleiðingum að Kvennalistinn
tekur ekki þátt í framboðinu. Þetta
varð ljóst um helgina þegar ekki
náðist samkomulag milli A-flokk-
anna annars vegar og Kvennalista
hins vegar um fyrirkomulag próf-
kjörs sem fram á að fara 6. febrúar.
Konumar lögðu til að öllum aðilun-
um þremur yrði tryggt eitt af þrem-
ur efstu sætunum en því var hafnað
og einnig tillögu kvennanna um
„girðingarlaust" prófkjör. A-flokk-
arnir samþykktu hins vegar að próf-
kjörið verði bindandi varðandi 4
efstu sætin og eina „girðingin" er
sú að sami flokkur
getur ekki fengið
bæði 1. og 2. sætið.
„í rauninni kom
þetta mér ekki á
óvart, ég er búin að
vera í viðræðum
við þessa menn
lengi. Það kom mér
þó örlítið á óvart
hvað þeir voru lítið
tilbúnir að koma til
móts við okkur. En
þetta vilja þeir, þótt ég telji að fram-
boðið verði veikara en ef við hefðum
orðið með,“ segir Sigrún Stefánsdótt-
ir sem tók þátt í viðræðunum fyrir
hönd Kvennalistans. Sigrún segir
niðurstöðuna klára þótt formlega
eigi eftir að sam-
þykkja hana í
flokksfélögum A-
flokkanna. Um það
hvort Kvennalist-
inn muni bjóða
fram á Norðurlandi
eystra segir Sigrún
að það verði ekki
gert, það sé ekki
raunhæft í ljósi
þess að Kvennalist-
inn víðs vegar um
land bjóði fram með A-flokkunum.
Þá sagði hún fréttir um að „vinstri
græningjar" hefðu boðið konunum
upp á samstarf væru ekki réttar,
ekkert formlegt tilboð hefði komið
fram um slíkt.
Enn hafa ekki nema þrír fram-
bjóðendur gefið sig fram vegna próf-
kjörs A-flokkanna. Það eru kratarn-
ir Sigbjörn Gunnarsson, sveitar-
stjóri i Mývatnssveit og fyrrverandi
alþingismaður, og Svanfríður Jón-
asdóttir alþingismaður og allaball-
inn Örlygur Hnefill Jónsson, lög-
maður á Húsavík. Ekki hafa margir
aðrir verið nefndir sem munu hugs-
anlega taka þátt, helst að nafn
Heimis Ingimarssonar, fyrrum bæj-
arfulltrúa Alþýðubandalsgsins,
heyrist og nafn Finns Birgissonar,
arkitekts og krata. Heimir hefur
ekkert gefið upp um sín áform og
Finnur segist ekki hafa tekið
ákvörðun en útiloki ekkert.
-gk
Svanfríður Jón-
asdóttir þing-
maður stefnir á
1. sætið.
Sigbjörn Gunn-
arsson. Tekst
honum að ná
1. sætinu.
Frá Neskaupstað.
Vatn í bensíni fyrir austan:
Sex stopp
„Ég er þegar búinn að hreinsa elds-
neytiskerfið í sex bílum sem voru
stopp. Ég bíð eftir framhaldinu," sagði
Helgi Magnússon, bifvélavirki í Nes-
kaupstað sem hefur haft í nógu að snú-
ast. Svð virðist sem eina bensínstöðin í
bænum hafi selt vatnsblandað bensín
með þessum afleiðingum.
„Þetta getur verið varasamt, sérstak-
lega fyrir nýja bfla með rafeindainn-
spýtingu. Það kostar tíu þúsund krónur
að hreinsa þetta,“ sagði Helgi.
Ekki liggur ljóst fyrir hvernig vatnið
komst í bensínið hjá Olis-stöðinni á
staðnum sem er sú eina í bænum. Pétur
Óskarsson stöðvarstjóri kemur af fiöllum:
„Ég veit ekkert. Þetta kemur ekki frá
mér.“
- Selur þú mikið af þessu bensíni?
„Milljón lítra á ári.“
Grunur leikur á að leki hafi komið
að bensínflutningabíl á leið austur.
Þanig hafi vatnið komist í tankinn. Bíl-
stjórar bera nú þær fregnir á milli
fiarða að ekki sé ólíklegt að vatnsbland-
aða bensínið sé einnig komið niður á
Eskifiörð og Reyðarfiörð.
„Ég sá mikið af kyrrstæðum bílum á
ólíklegustu stöðum," sagði austfirskur
bílstjóri við DV í gær. -EIR
0NOTAÐIR BÍLAR®
euro- raðgreiöslur
Skípti - Bílalán
Skuldabréf
Toyota Carina GLi station, árg. '93,
ek. 72 þús. km, ssk.
Verð 1.120 þús.
Suzuki Sidekick Sport 1800, árg. '98.
Nýr bíll, rauður, beinsk., rafdr. rúður.
Verð 1.950 þús.
Chrysler Caravan, árg. ‘90, 7 manna, Grand Cherokee Limited, árg. '93,
brúnn, ssk. svartur, ek. 77 þús. km.
Verð 850 þús. Verð 2.300 þús.
Dodge Dakota, árg. '93,
pickup m/veltigrind, blár, ek. 37 þús. km, 8 cyl. ssk.
Verð 1.550 þús.
Plymouth Grand Voyager LE, árg. '93,
7 manna, blár, ek. 95 þús. km, 4x4.
Verð 1.650 þús.
Plymouth Neon Sport, árg. '96, hvítur,
ssk., ek. 44 þús. milur.
Verð 1.250 þús.
Opel Astra 1,4, árg. '95, rauður, ssk., ek.
51 þús. km.
Verð 920 þús.
BMW 735i Shadow line, árg. '92,
steingrár, ek. 180 þús. km (þjóðvegaskstur
erlendis), allt rafdr., spólvörn, ABS,
tvívirk þakl.
Verð 2.200 þús.
Volvo 740, árg. 86, ek. 220 þús. km,
grænn, ssk., fallegur bíll.
Verð 320 þús.
EGILL VILHJÁLMSSON EHF.
SMIÐJUVEG11 KÓPAVOGI
Sími 564 5000