Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1999, Blaðsíða 26
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1999
26 #1gt fÓlk
Klukkan íjögur í dag verður
opnuð sýning á verkum Stefáns
Sigvalda Kristinssonar í Hinu hús-
inu. Stefán er rúmlega þrítugur og
fjölfatlaður. Hann er bundinn í
hjólastól og tjáir sig með hjálp
Blizz-kerfisins.
Þeir sem þekkja Stebba segja aö
hann sé mjög glaöur og oft ástfang-
inn. Kannski er þetta ein af stóru
ástunum.
Maöur og kona meö barn.
Þegar Stefán var lítill strákur
hafði hann ekki Blizz-kerfið til að
hjálpa sér og því lét móðir hans
hann fá penna og liti. Þannig tjáði
hann sig í gegnum myndirnar og
teiknaði það sem hann vantaði
hverju sinni. Stefán bæði teiknar
og málar með olíulitum og uppá-
haldsmálarinn hans er enginn
annar en Rembrandt.
Draumurinn að
komast til Hollands
Á sýningunni eru myndir af
fuglum og fólki mest áberandi.
Stefán segir að hann hafi mjög
gaman af því að teikna alls konar
dýr. Skemmtilegast er þó að
teikna báta en hann er mjög hrif-
inn af bátum eftir að hann var í
Hollandi þegar hann var yngri.
Þangað dreymir hann um að kom-
ast en segir að hann hafi ekki efni
á því núna. Aðspurður segist
hann ætla að selja mikið af mynd-
um svo hann komist örugglega í
heimsókn til vina sinna í
Hollandi. Stebbi er mjög ánægður
þegar hann segir frá því að lá-
varður í Hollandi hafi einu sinni
keypt af honum verk. Það verður
því væntanlega ekki langt í að
menn verði farnir að falsa verk
hans til að selja.
-sm
Hér sjáum viö konur á strönd og
bát, eftirlætisviöfangsefni Stebba, í
fjarska.
... í prófíl
Þóra Arnórs
stigavörður í
Gettu betur
Fulit nafn: Þóra Arnórsdóttir
Fæöingardagur og ár: 18. febrúar
1975
Maki: Nei
Börn: Nei
Starf: Dagskrárgerðarmaður á Rás 2,
stigavörður í Gettu betur og leið-
sögumaður í hjáverkum.
Skemmtilegast: Ferðalög, einkum
með Rósu.
Leiðinlegast: Að tapa.
Uppáhaldsmatur: Lasagna a la Maria
Uppáhaldsdrykkur: Vatn og rauði
bjórinn á Panteka.
Fallegasta manneskjan (fyrir utan
maka): Ari bróðir - hann er svo lík-
ur mér.
Fallegasta röddin: Eríitt fyrir út-
varpsmanneskju - hér koma margir
kollegar til greina. Broddi og Ari á
fréttastofunni eru flottir.
Uppáhaldslíkamshluti: Bakið - og
hárið.
Hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ríkis-
stjóminni: Pass.
Með hvaða teiknimyndapersónu
myndir þú vilja eyða
nótt:
Tinna - þó ekki væri nema til að
komast að kynhneigð hans. Ef það
gengi ekki, þá væri Calvin fullorðinn
spennandi kostur.
Uppáhaldsleikari: Hjalti Rögnvalds-
son.
Uppáhaldstónlistarmaður: Pino
Daniele og Cat Stevens.
Sætasti stjómmálamaðurinn: Jakob
Frímann.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Á ekki
sjónvarp. Sé samt stundum fréttir og
þætti eins og Öldina okkar. Síðan
auðvitað Gettu betur sem mun birt-
ast á skjánum innan tíðar.
Leiðinlegasta auglýsingin: Þær aug-
lýsingar sem segja þér „að spara á
kostnað skattsins“ eru vemmilegar.
Leiðinlegasta kvikmyndin: Æ. Lík-
lega er það Wayne’s world.
Sætasti sjónvarpsmaðurinn: Þó að
Logi Bergmann hafl fallið niður um
sæti í kjörinu um kynþokkafyllsta
mann ársins á Rás 2, þá held ég að
starfs míns vegna verði ég að út-
netha hann sem Herra Skjáfríðan.
Uppáhaldsskemmtistaður: La Pan-
teka í Genúa - hér heima enda ég yf-
irleitt á Sóloni.
Besta „pikköpp” línan: Engin
virkað á mig hingað
Ul.
Hvað ætl-
ar þú að verða þegar
þú verður stór?: Ég ætla aö verða af-
bragðs móðir og húsmóðir, eilífðar-
stúdent og líklega forseti.
Eitthvað að lokum: Já, engin af
spumingunum hæfði til að mæra Hl-
uga, svo ég geri það hér og nú: Hann
er bæði minn uppáhaldsdómari og
.dansherra.