Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1999, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1999, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1999 39 FERÐIR TIL UTLANDA i Notfærðu þér 800 númerin, gjaldfrjáls þjónustunúmer fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka. S í M I N N Jarðvegsskipti eiga sér nú stað við norðurhlið Skakka turnsins og ef vel tekst til verður turninn orðinn lóðréttur fyrir vorið. Símamynd Reuter Fimm flugfélög í eina sæng í næstu viku munu flugfélög- in American Airlines, British I Airways, Cathay Pacific, Cana- f dian Airlines og Quantas í Ástr- : alíu heija formlegt samstarf sem Ifelur m.a. i sér sameiginlega sölu farmiða. Frípunktakerfi flugfélaganna fimm verður sam- | ræmt og tengiílug endurskipu- !!! lagt til hagræðingar fyrir far- þega. Seinna á árinu mun finnska tlugfélagið Finnair væntanlega hefja samstarf við flugfélögin fimm. Hæst dánartíðni í Kaliforníu Það er sorgleg staðreynd að 57 manns létu lífið í skemmtigörð- um Bandarikjanna á árunum 1973 til 1997. Mestur mannfjöldi heimsækir jafnan skemmti- garða 1 Flórída en þar var hins vegar ekkert dauðsfall skráð. Kalifomía kemur næst á eftir hvað snertir vinsældir og þar létust ljórtán manns á tímabil- inu. Kalifornía er eitt fjórtán ríkja sem ekki fer að samræmd- um öryggisreglum á borð við þær sem skemmtigarðar í Flór- ída framfylgja. Bretar varaðir við , Breska utanríkisráðuneytið hefur sent frá sér viðvöran þar ;í sem Bretum er ráðlagt að hætta < við ferðalög til Jemen. Fiölda ferðamanna hefur verið rænt í landinu að undanförnu og þar af hafa þrír látið líflð þegar her- menn landsins hafa freistað þess að frelsa ferðamenn sem haldiö er í gíslingu. Hermenn vemda túrista Þær fregnir berast nú frá Jamaíku að þarlend yfirvöld hyggist senda hersveitir á sólar- strendumar. Hermönnunum er ætlað að ferðast á reiðhjólum og gæta öryggis sóldýrkenda. I Ferðaþjónustan er afar mikil- væg Jamaíkum og um tvær i milljónir manna heimsóttu landið í fyrra. Á síðasta ári voru skráð 185 alvarleg tilfelli þar sem glæpamenn veittust að l'erðamönnum með einum eða öðrum hætti. Það þykir há tala þótt hún sé talsvert lægri en tveimur árum fyrr en þá voru i; skráðir glæpir gegn ferðamönn- l um sex hundruð. Feneyingar flýja og ferðamenn flykkjast til borgarinnar: Síðustu forvöð að sjá Skakka turninn halla undir flatt: Lóðréttur í sumar Síðastliðinn þriðjudag hófst síð- asti áfangi björgunaðgerða sem ætl- að er að bjarga einum frægasta kirkjutumi heims, Skakka tumin- um í Pisa, frá því að falla til jarðar. í desember var stálvfrum komið fyr- ir allt í kringum turninn og nú hafa tólf stálrör verið sett upp við norð- urhlið hans. Þar ætla menn að grafa djúpt í jörðu og skipta algerlega um jarðveg. Verkið er erfitt í fram- kvæmd, enda tuminn 150 þúsund tonn að þyngd. Það var listamaðurinn Bonanno Pisano sem hleypti byggingu tums- ins af stokkunum árið 1194 en þegar smiðimir vora komnir tvær hæðir upp voru framkvæmdir stöðvaðar. Heimildir herma að þá þegar hafi menn greint skekkju í tuminum. Það var svo ekki fyrr en tæpri öld síðar, árið 1274, sem þriðju hæðinni var bætt við og tuminn var fullbú- inn árið 1350. í gegnum aldirnar hafa menn deilt um hvort skekkjuna megi rekja til hönnunarinnar eða lélegrar undirstöðu. Komið hefur á daginn að síðarnefnda ástæðan er sú rétta og þess vegna ráðast menn í jarð- vegsframkvæmdirnar nú. Það mun vafalaust gleðja margan ferðamanninn í sumar að mega þramma upp 294 tröppurnar í dimmum hringstiga sivalningsins en turninn hefur verið lokaður af öryggisástæðum frá árinu 1990. Af efstu hæð tumsins er afburða út- sýni þar sem víðsýnt er yfír fjall- lendi og frjósamar sléttur hins fagra Toskanahéraðs. -Reuter Grímudansleikir og flugeldasýningar Kjötkveðjuhátíðin í Feneyjum hefst innan skamms. Þá streyma þúsundir ferðamanna til borgarinnar til þess að berja augum gríðarlegt sjónarspil há- tíðarinnar. Símamynd Reuter Nú styttist óðum í hina árlegu kjötkveðjuhátíð Feneyinga. Hátíðin verður sett með pompi og pragt þann 6. febrúar næstkomandi. Und- anfarin ár hafa þúsundir ferða- manna streymt til Feneyja til þess að upplifa magnaða stemningu há- tíðarinnar. Feneyjar eru í hugum margra Grímuklætt fólk setur sterkan svip á kjötkveðjuhátíðina í Feneyjum. Símamynd Reuter einn rómantískasti staður á jarð- ríki. Ferðaþjónusta hefur um langt skeið verið helsti drifkraftur borg- arinnar. Ferðamannatíminn nær hámarki yfir sumarið þegar gisti- rými eru yfirbókuð í borginni en kjötkveðjuhátíðin í febrúar slagar hátt upp í aðsókn sumarsins. Kjötkveðjuhátíðin í Feneyjum á sér langa sögu en hún var fyrst haldin snemma á 17. öld. Þá vora hátíðarhöldin jafnan í tvo mánuði; hófust á öðrum degi jóla og lauk ekki fyrr en daginn fyrir öskudag. Þegar leið á 19. öldina fóra vinsæld- ir kjötkveðjuhátíðarinnar þverr- andi samhliða því að hnignun borg- arinnar hófst. Minnstu munaði svo að hátíðin yrði með öllu afnumin í seinni heimsstyrjöldinni og var lít- ill bragur að henni allt til ársins 1979. Þá endurvakti hópur aðkomu- manna þessa fomu hátíð og síðan hafa vinsældir hennar aukist með hverju árinu. Grímuklæddir borgarbúar og ferðamenn era á hverju strái á með- an á hátíðinni stendur og áður fyrr var sagt að þetta væri eini tími árs- ins sem háir og lágir gætu haft sam- skipti á jafnræðisgrundvelli. Grímubúningamir og flugeldasýn- ingar sveipa borgina dulúð sem heillar ferðamenn. Nú þykir sum- um borgarbúum reyndar að kjöt- kveðjuhátíðin sé orðin fórnarlamb eigin árangurs. Því flýja æ fleiri innfæddir borgina og kjósa heldur að bregða sér i skíðaferð eða jafnvel fara á kjötkveðjuhátíð annars stað- ar á Ítalíu. Engir bílar en ferða- menn á hverju strái Feneyjar eru fyrst og fremst ferðamannaborg og íbúar lifa nær eingöngu af ferðaþjónustu. Feneyjar liggja fyrir botni Adríahafs og eru yfir hundrað smáeyjar með aðeins 75 þúsund íbúa. Mörgum ferða- manninum þykir borgin í dýrari kantinum og víst er að auðvelt er að eyða peningum í Feneyjum. Flesta ferðamenn dreymir sjálfsagt um að prófa hinn sérstæða samgöngumáta Feneyinga, gondólana, sem sigla um síkin. Slíkt ferðalag kostar þó vart undir fimm þúsund krónum og er fólki oftast ráðlagt að taka slíkan farkost aðeins einu sinni en nota vatnaleigubátana annars. Febrúar er háannatími í Feneyj- um en vanir ferðamenn segja þó skynsamlegast að heimsækja borg- ina annað hvort að vori eða hausti. Yfir sumarið er mannfjöldinn gríð- arlegur auk þess sem hitinn getur valdið óþægindum. Markúsartorgið er staður sem all- ir ferðamenn, sem á annað borð koma til Feneyja, heimsækja og sama gildir um markaðstorgið San Polo. Þar er afar skemmtilegt mann- líf og gaman að fylgjast með kaup- mönnunum sem flykkjast að með ferskan fisk og annan varning. Þeir sem vilja heimsækja söfn ættu að leggja leið sína i Castello-hverfið þar sem áður var miðstöð skipasmíða. Þá er kjörið að ganga um Santa Croce-hverfið ef menn vilja virða fyrir sér daglegt líf eyjarskeggja. Feneyjar hafa nefnilega þann góða kost að hægt er að fara fótgangandi til flestra áhugaverðra staða. Á slóðinni travele- urope.it/venezia.htm á Netinu er hægt að lesa sig betur til um hvað Feneyjar hafa að bjóða ferðamönn- um. -aþ/CNN V
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.