Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1999, Page 51
1 1~V' LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1999
myndbönd »•
urlögum nasistanna. Það kom þó
ekki í veg fyrir að Raiders of the
Lost Ark yrði vinsælasta mynd árs-
ins 1984 og hlyti óskarsverðlaunatil-
nefningu sem besta mynd.
Musteri óhugnaðar
Spielberg ætlaði upphaflega öðr-
um að leikstýra framhaldinu en
Lucas lagði hart að honum að gera
það sjálfur. Spielberg viðurkenndi
einnig að hann gæti hreinlega ekki
hugsað sér að annar leikstjóri færi
að fikta við draumaverkefni hans.
Paramount var óhrætt við að dæla
peningum í myndina eftir velgengni
fyrri myndarinnar. Gerði það Spiel-
berg og Lucas kleift að nota atriði
sem upphaflega höfðu átt að vera í
henni en voru felld úr vegna of mik-
ils kostnaðar. Tökur gengu nú'al-
mennt mjög vel þótt víða væri farið
enda var nær sami mannskapur og
gerði fyrstu myndina með í för.
Indiana Jones and the Temple of
Doom var þó frábrugðin fyrstu
myndinni og lagði Spielberg áherslu
á að nú væri um hreina rússí-
banareið að ræða en lítið væri lagt
upp úr trúverðugleika. Einkum var
þó deilt á myndina fyrir að velta sér
upp úr hvers konar viðbjóði.
Síðasta krossferðin?
Bæði Harrison Ford og Steven
Spielberg samþykktu síðar þau sjón-
armið að The Temple hefði verið of
myrk, of grimm og of hryllileg.
Óhætt er að segja að félagamir hafi
passað sig á þvi að endurtaka ekki
þau „mistök" Eillar götur síðan (því
miður). Það var því ákveðið að snúa
aftur til upphafsins en nýjabmmið
fólst i persónu Henry Jones, föður
Indy. Þegar haft er í huga að James
Bond var ein helsta fyrirmyndin að
Indy var einkar viðeigandi að Sean
Connery léki Henry. Og nú hitti Spi-
elberg aftur á fonnúluna sína og
gagnrýnendur jafnt sem áhorfendur
tóku Indiana Jones and the Last
Crusade fagnandi. Orðrómur er enn
á ferð um að fjórða myndin sé vænt-
anleg.
-bæn
Framhöld og framhjáhöld
Indiana Jones and the Temple
of Doom (1984)
Hetjan eina sanna
kemur fátækum íbúum
indversks þorps til bjargar.
Djöflasöfnuður nokkur rænir börn-
um þeirra og notar í þrælkunar-
vinnu. Kate Capshaw lék heimsku
ljóskuna sem Indy þarf að bjarga
hvað eftir annað, en hún giftist
stuttu síðar Spielberg. Vanmetn-
asta Indy-myndin, en hún er jafnan
talin síöri hinum myndunum.
Romancing the Stone (1984)
Joan Wilder (Kathleen
Tumer), höfundur róman-
tiskra skáldsagna, heldur til Suð-
ur-Ameríku í von um að bjarga
systur sinni úr höndum mannræn-
ingja. Hún lendir strax í vandræð-
um við komuna, en Indy-legur
Kani, Jack Colton (Michael Dou-
glas) bjargar henni á siðustu
stundu. Þau halda síðan saman út
í frumskóginn og lenda þar í fjöl-
mörgum ævintýrum.
TheJewel ofthe Nile (1985)
Óbeint framhald myndar-
innar Romancing the Stone.
Joan fer til Austurlanda í heim-
sókn en er rænt. Jack heldur að
sjálfsögðu á eftir henni í von um að
bjarga henni. Jack Colton er ágæt-
is karakter en hefur ekki roð í
Indiana Jones.
King Salamons Mines (1985)
■. Jesse Huston (Sharon Sto-
'' r ne) fær Allan Quatermain
(Richard Chamberlain) til að að-
stoða sig við leit að föður hennar í
fmmskógum Afriku. Þótt rekja
megi upprana þessarar kvikmynd-
ar til Indiana Jones er rétt að hafa
í huga að hún er gerö eftir skáld-
sögu H. Rider Haggards frá árinu
1885. Indy er jú sjálfur ekki svo
ýkja frumlegur.
Allan Quatermain and the
Lost City of Gold (1987)
Stone og Chamberlain
endurtaka leikinn með
„hrikalegum“ afleiðingum. Líklega
hefur þessi mynd átt nokkurn þátt
í því að menn slökuðu á Indiana
Jones stælingum. Stone sýnir
versta leik sinn á ferlinum sem
Jesse Huston, þótt hafa verði í
huga að kvenhetjur Indy eða
hermimyndanna hafa almennt ver-
ið lítt spennandi hlutverk.
Indiana Jones and the Last
Crusade (1989)
Indy er enn að angra
nasista sem að þessu
sinni era á höttunum eftir hinu
heilaga „grali“. Sean Connery lék
fööurinn en River Phoenix heitinn
lék Indy á hans yngri ámm. Auk
framhaldsmyndanna tveggja hefúr
Lucasfilm framleitt fjöldann allan
af Indy-söluvarningi, t.d. tölvuleik-
inn Indiana Jones and the Fate of
Atlantis en þar heimsækir hetjan
ögrum skorið ísland.
-bæn
Myndband vikunnar
Raiders of the Lost Ark
★★★
SÆTI FYRRI i VIKA j j VIKUR Á LISTA j J J TITILL j ÚTGEF. j i. j TEG.
1 j 1 j 0 J L j Six Days Seven Nights j SamHyndbönd j Gaman j
2 j 2 j j i 2 J j J Godzilla j Skifan J j Spenna
3 NÝ 1 i J j 1 J Wrongfully Accused Sam Myndbönd j Gaman
4 NÝ j j i 1 i Senseless Skrfan J Gaman
5 i J 3 j' 3 i Sliding Doors j Myndform j Gaman
6 j í 4 j J J C J J b J J J 1 4 i Mercury Rising J j CIC Myndbönd J Spenna j .
7 j 5 Red Comer J WamerMyndir J Spenna
8 'j 6 j J J }. 5 i j J Lethal Weapon 4 j Warner Myndir J j Spenna
9 i io J 3 1 3 i HeGotGame j Bergvik j Drama
10 J 7 j j J J 4 J j J The Object Of My Affection j J Skrfan ) ‘ I j Gaman j
11 j 9 1 ? 1 j 3 j Phantoms j Skrfan j Spenna
12 j i 8 j j i 6 1 TheBigHit J j Skrfan J Spenna
13 j J 12 i 8 i The Man Who Knew Too Little J j Warner Myndir J j Gaman
14 i n j J J 7 J ) 7 J CityOf Angels J Wamer Myndir J Drama J J Spenna
15 13 J J j 7 j Hush J Skrfan
16 j J 16 j J J i 7 ! j i Twiligth j CIC Myndbönd J j Spenna j
17 j NÝ J 1 J 1 1 J Apostile j Skffan j Drama
, .J“í ? '■ J J Gaman J
18 Al J J i 13 i The Wedding Singer J J Myndform
19 ! 14 i 9 i Wild Things j Skrfan j Spenna
20 x.. Al j J J 11 1 11 i Martha Má Ég Kynna... J j Háskólabíó j 1 Gaman J
Vikan 12. - 18. jan.
Hetjan með hattinn og svipuna
Harrison Ford í hlutverki Indiana Jones.
Tveir fulltrúar frá
bandaríska hemum vitja
fomleifafræðingsins Indi-
ana Jones (Harrison Ford),
en þeir hafa komist inn í
boðsendingar nasista sem
grafa líkt og brjálaðir í
sandauðn nokkra í Egypta-
landi. Indy er fljótur að
átta sig á því að þeir em að
leita aö örkinni sem hefur
að geyma boðorðin tíu.
Hún á að búa yfir ógnvæn-
legum kröftum sem Hitler
hefur allan hug á að nálg-
ast. Indy er sendur út af /
eftir örkinni í von um að
verða á undan Þjóðverjun-
um. Hann þarf þó fyrst að
nálgast ákveðinn fomgrip
i Tíbet en það er gömul
vinkona hans, Marion
(Karen Allen), sem hefur
hann undir höndum.
Nasistamir renna í hlað á
sama tíma og þar með
hefst kapphlaupið um örk-
ina fyrir alvöra.
Fáum orðum þarf að
fara um frammistöðu Harrisons
Fords í aðalhlutverkinu. Hann er
stórgóður og Karen Allen er einnig
ágæt í sinu hlutverki, og ber af
Indy-meyjunum. Einkar vel er skip-
að í aukahlutverk, en Ronald Lacey
stelur senunni sem hinn grimmi
gestapó-pyntari. Um tónlist sá hinn
frægi John Williams (Star Wars og
Superman) og þekkja flestir kvik-
myndaáhugamenn hina frægu Indy-
laglínu. Snillingamir í Lucasfílm
sáu síðan um tæknibrellur. Allir
þessir þættir sameinuðust í að gera
Indiana Jones að einu vinsælasta
fyrirbæri seinni tíma.
Indy er án efa með skemmtileg-
ustu og eftirminnilegustu hetjum
kvikmyndasögunnar. Það er aftur á
móti spuming hversu vel myndin
Raiders of the Lost Ark hefur elst.
Slagsmála- og tækniatriði virka
eðlilega nokkuð gamaldags en þaö
er aukaatriöi. Verra er að myndin
skuli ekki sýna á sér nýja fleti með
breyttum tímum. Þetta er „sama
myndin” hversu oft sem horft er á
hana og hversu langur tími líður á
milli áhorfa og bendir það nú til
rýrs innihalds. Indy opnar því ekki
frekari víddir fyrr en við fáum hann
á tjaldið í nýrri mynd. Þeir kvik-
myndaáhugamenn sem muna aftur
á mót lítt eftir myndinni (eða
(yngri) áhorfendur sem hafa ekki
séð hana) geta þó gert margt vitlaus-
ara en að rifja upp hetjuna með
hattinn og svipuna.
»
Útgefandi: ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Steven Spielberg.
Aðalhlutverk: Harrison Ford, Karen
Allen, Paul Freeman, Ronald
Legacy, John Rhys-Davies og Den-
holm Elliott.
Bandarísk, 1981. Lengd: 101 mín.
Bönnuð innan 12 ára.
Bjöm Æ. Norðfjörð ^