Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Qupperneq 22
22
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
Iþróttir
Skíðagönguátakið:
Skíðadagur
í Stafdal
Síðustu daga hefur Skíðasam-
bandið verið að kenna skíða-
göngu á Austurlandi og hefur
veður sett nokkurt strik í reikn-
inginn.
Samt sem áður halda menn
sínu striki og áður auglýst dag-
skrá er í gildi.
Næstkomandi laugardag verð-
ur haldinn skíðadagur í Stafdal
og á sunnudeginum verður
kennt á skíðadegi á Egilsstöðum.
Til þessa hafa um 1600 manns
tekið þátt og kennsla í grunn-
skólum vítt og breitt um landið
hefur gengið mjög vel. Hefur
þessi nýbreytni víðast hvar
mælst mjög vel fyrir, enda ágæt-
is tilbreyting.
Skíðasambandsmenn eru þeg-
ar farnir að vonast eftir snjó á
höfuðborgarsvæðinu svo unnt
verði að halda Skíðahelgina í
Laugardal 20.-21. febrúar næst-
komandi eins og stefnt er að.
Dagskráin nœstu vikuna:
4. febrúar .....Seyðisfjörður 20.00
6. febrúar Skíöadagur i Stafdal 13.00
7. febrúar...........Skiðadagur á
.................Egilsstöðum 13.00
8. febrúar .......Norðfjörður 20.00
9. febrúar..........Eskifjörður og
................Reyðarfjörður 20.00
10. febrúar . . . Fáskrúðsfjörður 20.00
-SK
Dregið í deilda-
bikarnum í
knattspyrnu
Dregið hefur verið í riðla fyrir
deildabikarkeppni KSl, sem hefst
12. mars í karlaflokki og 12. apríl i
kvennaflokki. Riðlamir eru þannig:
Karlar:
A-riðill: Leiftur, ÍR, FH, KS, Sel-
foss og Afturelding.
B-riðill: Fram, Þróttur R., KA,
Víðír, Völsungur og Haukar.
C-riðilI: KR, Breiðablik, Stjam-
an, Leiknir R., Léttir og Reynir S.
D-riðiIl: ÍA, Víkingur R., Fylkir,
Tindastóll, Fjölnir og Hvöt.
E-riðill: ÍBV, Grindavík, Skalla-
grímur, Dalvík, Þór A. og Njarðvík.
F-riðill: Keflavík, Valur, KVA,
HK, Ægir og Sindri.
Tvö efstu lið úr hverjum riðli
komast áfram og fjögur lið sem eru
með besta útkomu í þriðja sæti.
Konur:
A-riðill: Valur, Stjaman, Haukar
ogFH.
B-riðill: Breiðablik, ÍA, Grinda-
vik og RKV.
C-riðill: KR, ÍBV, Fjölnir og
Þór/KA. -VS
^ Handknattleikur kvenna í gærkvöld:
Ovænt mótspyrna
- þegar Fram maröi sigur á ÍR og skaust á toppinn
Þau vom þung sporin sem FH-
stúlkur stigu í Kaplakrika í gær
gegn Valsstúlkum. Hinn ótrúlegi
undanúrslitaleikur bikarsins sat í
liðinu og þær náðu aldrei að sýna
sitt rétta andlit í leiknum. Valur
vann leikinn því nokkuð öragglega.
Valsliðið er fljótt að refsa andstæð-
ingunum fyrir mistök í sókninni og
í gær gerðu þær 10 mörk af 24 úr
hraðaupphlaupum. Það réð líka
miklu um framhald leiksins eftir
hlé að Valur skoraði tvö síðustu
mörk fyrri hálfleiks á síðustu min-
útu hálfleiksins. Þannig fóra FH-
ingar inn í hlé 3 mörkum undir,
9-12. Valur byrjaði seinni hálfleik-
inn líka vel, skoraði þrjú fyrstu
mörkin og komst í 9-15. Fjögur
mörk FH í röð komu muninum nið-
ur í 18-20 en Valur hélt út og vann
loks 24-21.
Mörk FH: Þórdís Brynjólfsdóttir
6/4, Guðrún Hólmgeirsdóttir 5,
Drífa Skúladóttir 2, Hafdís Hinriks-
dóttir 2, Hildur Erlingsdóttir 2,
Hulda Pálsdóttir 2, Gunnur Sveins-
dóttir 1. Jolanta Slapikieni varði 16
skot og skoraöi eitt mark.
Mörk Vals: Alla Gokorian 7,
Gerður Beta Jóhannsdóttir 7/2,
Anna Halldórsdóttir 4, Þóra B.
Helgadóttir 3, Sonja Jónsdóttir 2,
Sigurlaug Rúnarsdóttir 1. Larrissa
Zoubar varði 19/1 skot.
Framarar fengu óvænta mót-
spyrnu frá ÍR
ÍR-stúlkur veittu Fram óvænta
keppni og fór svo að Fram marði
sigur, 23-22, i Framhúsinu. Leikur-
inn var lengstum i jafnvægi en í
hálfleik var staðan 12-10 fyrir Fram.
Þetta var einn besti leikur ÍR-liðs-
ins í deildinni í vetur en liðinu hef-
ur ekki til þessa tekist að vinna
leik. Þær hafa nú tapað tveimur
leikjum í röð með aðeins einu
marki og er liðið greinilega á hraðri
uppleið, víst til að fara að hirða stig
af öðrum liðum í deildinni.
Mörk Fram: Marina Zovela 10,
Steinunn Tómasdóttir 5, Díana Guð-
jónsdóttir 3, Olga Prohovova 3, Sara
Smart 1, Signý Sigurvinsdóttir 1.
Mörk ÍR: Ingibjörg Jóhannsdóttir
7, Katrin Guðmundsdóttir 7, Elín
Sveinsdóttir 4, Hrand Scheving 2,
Heiða Guðmundsdóttir 1, Inga Jóna
Ingimundardóttir 1.
Haukasigur á Seltjarnesinu
gegn Gróttu/KR
Hauka-stúlkur gerðu góða ferð á
Olga Prokhorova svífur inn af línunni skorar eitt þriggja marka sinna gegn ÍR í Framhúsinu í gærkvöld. Samherji
hennar lengst til vinstri, Marina Zouela, hafði sent boltann inn á línuna. IR-stúlkurnar Inga Jóna Ingimundardóttir, til
vinstri og Heiða Guðmundsdóttir vita ekki sitt rjúkandi ráð. DV-mynd Hilmar Þór
Seltjamames þegar þær sigraðu
Gróttu/KR, 25-28, eftir að staðan í
hálfleik var, 11-15, fyrir Hauka.
Leikurinn var jafn framan af en í
stööunni 6-6 gerðu Haukar fjögur
mörk í röð. Mestur var munurinn
sex mörk en Gróttu/KR tókst að
laga stöðuna undir lokin,
Mörk Gróttu/KR: Ágústa Bjöms-
dóttir 6, Eva Björk Hlöðversdóttir 6,
Brynja Jónsdóttir 4, Helga Orms-
dóttir 2, Harpa María Ingólfsdóttir
2, Kristín Þórðardóttir 2, Anna
Steinsen 2, Edda Hrönn Kristins-
dóttir 1.
Þóra Hlíf Jónsdóttir varði 14 skot
og þrjú víti í marki Gróttu/KR.
Mörk Hauka: Thelma Ámadóttir
9, Judit Esztergal 4, Hanna Stefáns-
dóttir 4, Sandra Anulyte 3, Harpa
Melsteð 3, Hekla Daðadóttir 2, Björg
Gilsdóttir 1, Eva Loftsdóttir 1, Berg-
lind Sigurðardóttir 1.
Guðrún Agla Jónsdóttir varði 5
skot í marki Hauka og Vaiva Dril-
ingaite varði 4 skot.
Stórsigur Víkings gegn KA á
Akureyri
Víkingar höfðu mikla yfirburði á
Akureyri gegn KA. Lokatölur þar,
12-24, eftir að staðan í hálfleik var,
6-11.
Mörk KA: Ásdís Sigurðardóttir
5, Heiða Valgeirsdóttir 2, Þóra Atla-
dóttir 2, Martha Hermannsdóttir 1,
Ebba Særún Brynjarsdóttir 1, Klara
Stefánsdóttir 1.
Mörk Víkings: Kristín Guð-
mundsdóttir 6, Heiðrún Guðmunds-
dóttir 4, Anna Kristín Ámadóttir 3,
Svava Sigurðardóttir 2, Helga Bima
Brynjólfsdóttir 2, Ragnheiður Ás-
grímsdóttir 2, Vibeke Sinding
Larsen 1, Eva Halldórsdóttir 1.
1. DEILD KVENNA
Fram 15 12 1 2 395-332 25
Stjarnan 13 11 1 1 373-281 23
Haukar 14 9 2 3 327-300 20
Valur 14 9 1 4 313-270 19
Vlkingur 14 7 4 3 320-297 18
FH 14 5 2 7 318-286 12
ÍBV 13 5 1 7 297-299 11
Grótta/KR 14 4 2 8 296-311 10
KA 15 1 0 14 258-387 2
ÍR 14 0 0 14 232-366 0
í kvöld leika Stjaman og ÍBV klukkan 20
en leiknum hefur verið frestað í tvígang
vegna veðurs.
-JKS/ÓÓJ
Nóttin á 290 þúsund
- breskur ráðherra segir IOC ekki treystandi til að leiða baráttu gegn lyfianotkun
Ráöherrar íþróttamála í Bretlandi og Hollandi era sam-
mála um að Alþjóða Ólympíunefndinni sé ekki treystandi til
að leiða leiftursókn gegn lyfjanotkun íþróttamanna sem boð-
uð hefur verið á ráðstefnu Alþjóða Ólympíunefndarinnar,
IOC, sem lýkur í dag í Lausanne í Sviss.
Ekki er þetta uppörvandi dómur fyrir Juan Antonio Sam-
aranch, forseta nefndarinnar, sem enn þrjóskast við að segja
af sér embætti þrátt fyrir sannanir um ótrúlegar mútur, sukk
og svínarí.
Ekkert lát er á fréttum af spillingunni innan IOC. Nú er
komið á daginn, sem marga granaði, að fulltrúar japönsku
borgarinnar Nagano eyddu hundruðum milljóna króna í að
múta og skemmta fulltrúum IOC, í þeim eina tilgangi að fá at-
kvæöi þeirra í staðinn þegar kosið var um staðarval vetrar-
leikanna á síöasta ári. Skömm Japana er mikil og ekki bætir
stööu skákarinnar hjá þeim að allt bókhald leikanna brann á
báli skömmu eftir að leikunum lauk. Ekki átti að vera hægt
að rannsaka málið til botns ef mútumar kæmust upp.
Dýrt að hýsa forsetann
Juan Antonio Samaranch, forseti IOC, er á bólakafi í spill-
ingunni í Nagano. Hann virðist ekki hafa getað hallað sér í
borginni þegar hann var þar á ferð fyrir minna en 207 þús-
und krónur. Það kostaði nóttin á hóteli í Nagano þar sem
Samaranch gisti. Á þessu hóteli gisti Samaranch i 30 nætur á
meðan á vetrarleikunum stóð í Nagano í fyrra. Kostnaðurinn
samtals 633 þúsund krónur. Þegar Suður-Kóreumenn vora að
múta forsetanum fundu þeir handa honum hótel þar sem
nóttin kostaði gott betur en í Japan eða 290 þúsund krónur.
Þar gisti Samaranch i 17 ferðum sínum til Seoul á árunum
1985 til 1988.
Er ekki að undra að ráðherra íþróttamála í áðurnefndum
löndum flökri við því að slíkur maður leiöi baráttuna sem nú
er verið að skipuleggja í Lausanne gegn lyfjanotkun íþrótta-
manna. Það er einnig dapurleg staðreynd að aðilar hér á
landi skuli hafa lýst yflr stuðningi við slíkan „foringja".
Að auki hefur Samaranch þegið að gjöf sverð sem metið er
á 850 þúsund krónur og málverk að auki jafhdýrt sverðinu.
Rafmagnað andrúmsloft í Lausanne
Á lyfjaráðstefnu IOC í Lausanne hefur andrúmsloftið verið
rafmagnað. Gert er ráð fyrir að skipað verði sérstakt
„apparat" til að útrýma lyfjanotkun í heimi íþróttanna. Er-
lendir fjöhniðlar telja að spiílingarmálin innan IOC hafi mjög
truflað ráðstefnuna og skyldi engan undra.
Kröfur þess efnis að Samaranch segi af sér gerast háværari
með hverjum deginum sem líður. Yfirlýsing ráðherranna er
auðvitað dómur yfír Samaranch. Verst er að Samaranch
skilur ekki sendingima. Siðferðisþrek Spánverjans er slíkt
að líklegt er að hann sitji i embætti forseta eins lengi og hon-
um er mögulegt. -SK