Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1999, Side 36
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 3Z>"V rm •«. t eiga að mörkin „Jóhanna Össur munu. skora mörkin fyrir i okkur. Og það er 1 eölilegt að stað- næmast við nafn Jóhönnu Sigurðar- dóttur þegar hugað f er að talsmanni á 1 landsvísu." f Mörður Árnason, í Morgun- blaðinu. Skæruliðinn „Jóhanna uppsker nú sem skæruliði í íslenskum stjómmál- um. Hún er þekkt sem óþekka, heimtufreka stelpan, sem var að gera stóra strákana í heimspóli- tíkinni brjálaða, eða þráhyggju þingmaður á aftasta bekk úti í homi með eilifðar frammíköll á nautnaseggina í bankakerfmu." Stefán Jón Hafstein, í Degi. Mosavaxnir í stólnum „Yfirstjóm ráðuneyta, ráðu- neytisstjórar og æðstu embættis- menn eiga að vera hreyfanlegir í kerf- inu en ekki mosa- vaxnir á sama stólnum áratug- um saman.“ Guðmundur Árni Stef- ánsson alþingismaður, í DV. Bill Hlið og Mikrómjúkt „Samkomulagið við „Bill Hlið“ er því miöur staðreynd og óhagg- anleg. „Bill Hlið“ tekur að sér að íslenska sitt eigið forrit yfir í Mikrómjúkt í gluggum og Bjöm j Bjamason að passa það að við stelum því ekki jafnóöum." Njáll Harðarson framkvæmda- stjóri, i DV. Múlband ríkis- stjórnarinnar „Enda þótt menn séu á því að stuttar og markviss- ar umræður séu betri en langdregnar; umræður þá er vert að leiða hugann að því að mál era yfir- leitt afgreidd á skjótan hátt. Það era hinar hápólitísku deil- ur sem tekur lengri tima að af- greiða. Það sem ríkisstjómin vill gera núna er að setja múlband á stjórnarandstöðuna." Ögmundur Jónasson alþingis- maður, í Degi. Viljum meira „Eftir því sem peningarnir aukast er ljóst að átökin um þá \ aukast og við í knattspymuhreyf- I ingunni teljum okkur fá allt, allt of lítið af peningum, sem eru til ; úthlutunar í íþróttalífinu." Eggert Magnússon, formaður KSI, í DV. Bjöm Steinar Sólbergsson leikur einleik í orgelkonsert Jóns Leifs: Mikil bomba og erfiðasta verk sem ég hef tekist á við í kvöld verður fluttur í fyrsta sinn á íslandi Orgelkonsert Jóns Leifs. Einleikari er Bjöm Steinar Sólbergsson, organisti og kórstjóri við Akureyrarkirkju. í stuttu spjalli var hann fyrst spurður hvort hann hefði spilað konsertinn áður. „Það hafa aðeins tveir orgelleikar í heim- inum flutt konsertinn, sem _______ var frumfluttur 1935, og ég er sá þriðji. Ég hef verið að kynna mér þennan glæsilega ------- konsert síðastliðin tvö ár sem er eitt af mestu og erfiðustu verkum Jóns Leifs og það er mjög spennandi fyr- ir mig að fá tækifæri til að flytja hann um leið og þetta er erfiðasta verk sem ég hef tekist á við. Ástæð- an fyrir því að konsertinn hefur ekki verið fluttur hér á lcmdi áður er aðallega sú að það var ekki til nógu stórt orgel. Nú er sú fyrirstaða ekki fyrir hendi, hið stórkostlega orgel í Hallgrímskirkju fullnægir öllum þeim kröfum sem konsertinn gerir til hljóðfærisins. Það gengur mikiö á meðan hann er fluttur og óhætt að segja að konsertinn er mikil bomba." Bjöm Steinar fékk listamanna- laun í fyrra og það gaf honum tæki- færi til að einbeita sér að konsertin- um: „Síðustu sex mánuði hef ég nánast eingöngu helgað mig þessum konserti: „Þar sem listamannalaun- in gerðu það að verkum að ég gat tekið mér frí frá störfum mínum á Akureyri þá flutti ég til Cambridge og var þar að undirbúa mig. Auk þess sem konsertinn verður tekinn upp fyrir Ríkisútvarpið mun Stöð tvö taka hann upp fyrir sjónvarp og á fostudag verður konsertinn síðan tekinn upp fyrir sænsku plötuútgáf- una BIS sem hefur það á stefhuskrá hjá sér að gefa út öll verk Jón Leifs.“ Auk starfs sins á Akureyri er Bjöm Steinar eftirsóttur einleikari og hefúr áður flutt verk með Sinfón- Maður dagsins íunni: „Ég flutti með Sinfóníuhljóm- sveit íslands orgelkonsert eftir Pou- lanc, sem er einn vinsælasti orgel- konsertinn, og hef víða haldið einleik hér á landi og erlendis. Framundan eru tónleikar á Seyðisfirði og Danmörku og Þýskalandi í júní og júlí. Þá er að koma út geisla- plata í næsta mánuði þar sem ég og Mar- grét Bóasdóttir söng- kona flytjum is- lenska kirkjutónlist og þar á meðal flytjum við þrjú kirkjulög og Fað- ir vor eftir Jón Leifs.“ Bjöm Stein- ar ólst upp á Skaganum og nam fyrst orgelleik hjá Hauki Guð- laugssyni. Nú býr hann á Akureyri ásamt eiginkonu sinni Hrefnu Harðar- dóttur og tveimur dætrum. Ekki fer allur tími Bjöms í tónlistina. Þegar hann var spurður um áhugamál sagðist hann hafa mjög gaman á sumrin að veiða á flugu. -HK Sixties leika gömul og ný lög á Kaffi Reykjavík næstu þrjú kvöld. Bítlastemning á Kaffi Reykjavík í kvöld hefur hin vinsæla hljómsveit Sixties þriggja kvölda syrpu á hinum vin- sæla skemmtistað, Kaffi Reykjavík. Sixties hefur á nokkrum ámm skipað sér á bekk vinsælustu hljóm- sveita landsins og hafa lög af tveimur plötum hljóm- sveitarinnar mikið heyrst á öldum ljósvakans. Það má því búast við miklu fjöri í kvöld, annað kvöld og á laugardagskvöld á Kaffi Reykjavík. Á sunnudags- kvöld ætla síðan þau Rut Reginalds og Maggi að vera á rólegu nótunum. Skemmtanir Fógetinn í kvöld skemmta Banda- ríkjamennimir Paul Metsa og Sonny Earl frá Banda- ríkjunum á Fógetanum i Aðalstræti. Leika þeir blús og rokk og allt þar á milli. Um helgina er komið að stuðboltanum Bjama Tryggva og Helenu að halda uppi stuðinu á Fógetanum. Hrúðurkarlar Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi. Elva Ósk Ólafsdóttir f hlutverki Nóru. Brúðuheimilið Brúðuheimilið, sem Þjóðleik- húsið hefúr sýnt frá jólum, hefur fengið ákaflega góðar viðtökur bæði áhorfenda og gagnrýnenda. Leikritið er eitt þekktasta verk norska þjóðskáldsins Henriks Ibs- ens og var á sínum tíma gífurlega umdefit. Þótt verkið veki ef til vill ekki jafnsterk viðbrögð nú á dög- um á þessi sígilda perla engu að síður fullt erindi til okkar og kem- ur enn á óvart. Sögusviðið er heimfii velmegandi bankastjóra og fjölskyldu hans þar sem allt virðist leika í lyndi. Þegar gamall kröfuhafi knýr dyra heldur ógæf- an innreið sína og þá fyrst reynir á trúnaðartraust og samstöðu þeirra hjóna.________ Leikhús Leikarar em Elva Ósk Ólafs- dóttir, Baltasar Kormákur, Edda Heiðrún Backman, Pálmi Gests- son, Þröstur Leó Gunnarsson, Halldóra Bjömsdóttir og Margrét Guömundsdóttir. Þýðandi er Sveinn Einarsson. Höfundur leik- myndar er Þórunn Sigríður Þor- grímsdóttir, höfundar búninga Margrét Sigurðardóttir og Þórunn Sigríður, lýsingu hannar Bjöm Bergsteinn Guðmundsson. Leik- stjóri er Stefán Baldursson. Næsta sýning er i kvöld. Bridge Fjölmörg hressfieg skiptingarspil vom spfiuð á ísandsmótinu í para- sveitakeppni sem ffarn fór um síð- ustu helgi. Hér er eitt þeirra sem kom fyrir i 4. umferð mótsins. ! þessu spfii var austur gjafari og all- ir á hættu: 4 98 •* KG10872 ♦ K42 * 53 * ÁD10632 M . * D108765 * Á 4 - •* ÁD964 ♦ G * K1098762 Sagnir voru að vonum hressileg- ar á flestum borðum. Sex spaða er formsatriði að vinna á hendur AV en þeir vora ekki margir sem fengu að spila þann samning. NS komust að sjálfsögðu að því að þeir áttu góða samlegu í hjartanu og keyrðu yfirleitt í 7 hjörtu yfir sex spöðum enda kostar sú fóm í mesta lagi 500 niður. Reyndar var það svo á mörg- um borðum að sagnir stönsuðu í 6 hjörtum dobluð- um. Sá samning- ur á að fara einn niður en vömin verður reyndar að gæta að sér. Geram ráð fyrir að suður sé sagn- hafi. Segjum að útspilið sé spaði í upphafi, sagn- hafi trompar heima, spfiar hjarta- drottningu á kóng í blindum, tekur hjarta öðra sinni og spilar laufi. Austur fær á ásinn og verður nú að gjöra svo vel að spila tígli. Ef hann gerir það nær sagnhafi að fría lauf- litinn og kasta öllum tíglunum nið- ur í blindum. En þeir voru ekki margir sem fengu slíkar jólagjafir og spfiið olli víðast hvar ekki neinni sveiflu að ráði. ísak Öm Sigurðsson 4 KG754 53 4 Á93 * DG4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.