Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1999, Qupperneq 20
20
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999
Wðtal
Hver er besti íþróttamaðurinn fyrr og síðar?
Jón Arnar og Gunnar á Hlíðarenda
nærri 300 atkvæði af 456
þeirra sem tóku afstöðu.
Þeir sem eru hættir
íþróttum fengu innan
við helming þess at-
kvæðamagns.
600 manns voru spurðir
spurningarinnar: Hver er
besti íþróttamaður íslands
fyrr og síðar?
í ljós kom að 45,5%, 201
maður, taldi að það væri Jón
Arnar Magnússon, tugþraut-
armaður frá Sauðárkróki. Af
hópnum voru 105 óá-
kveðnir og 54 svör-
uðu ekki, eða
26,5%. Alls komu
fram nöfn 53
íþróttamanna, 47
menn
eru yfirleitt út-
brunnir um þrí-
tugt. Hann keppti
með fjórum félög-
um. Ásgeir segir
að hann hafi gott
samband við gömlu
félagana sína.
Hann fari til dæmis
24. maí til Stuttgart
og kveðji Júrgen
Klinsmann sem er að
hætta. Ætlunin er að
gamlir félagar hans í
Stuttgart leiki gegn úr-
vali leikmanna liða sem
Klinsmann lék með.
Ásgeir lætur sér nægja
Það kemur 1 ljós þegar gerð er
skoðanakönnun um mestu íþrótta-
menn íslendinga fyrr og síðar að
ekki fennir cdveg í spor margra
kappa íslandssögunnar. Þúsund
ára afrek, sem skjalfest eru í ís-
lendingasögunum, fengu nokkur
atkvæði í könnuninni. En greini-
legt er þó að nýjustu afrek íþrótta-
manna sitja efst í vitund manna.
Virkir íþróttamenn í dag fengu
allt og allt og vildi engu breyta,“
sagði Vilhjálmur í samtali við DV.
Ásgeir Sigurvinsson er vel að
þriðja sætinu kominn, hann hætti
fyrir nokkrum árum í knatt-
spyrnu eftir 17 ára feril í atvinnu-
mennsku,
sem er
óvenjulega
langur tími,
Mesti íþróttamaður íslands fyrr og síðar samkvæmt skoðanakönnun DV, Jón
Arnar Magnússon.
karla og 6 íþróttakvenna, þar af
eru 12 látnir, en um tuttugu munu
hættir íþróttaiðkun til viðbótar.
Liðlega 20 sem fengu atkvæði eru
enn í fuliri þjálfun og keppni.
Jón Arnar sá langbesti,
menn muna Vilhjalm
Jón Amar er mikill iþróttamað-
ur og góð fyrirmynd annarra, kát-
ur og skemmtilegur strákur og
mikil kempa á íþróttavelli, gædd-
ur afbragðskeppnisskapi. Afrek
hans í tugþraut er eitt hið besta í
heiminum og hann er ævinlega
meðal þeirra allra bestu í keppni
og blandar sér oftast í verðlauna-
baráttuna. Jón Amar verður þrí-
tugur í sumar og hefur ekki sagt
sitt síðasta. Hann er nú staddur
erlendis og ekki tókst að ná sam-
bandi við hann.
Vilhjálmur Einarsson er 64 ára
og fyrrverandi skólameistari
Menntaskólans á Egilsstöðum.
Hann var liðlega tvítugur þegar
hann fór á Ólympíuleikana í Mel-
bourne ásamt Hilmari Þorbjörns-
syni heitnum. Vilhjálmur, öllum á
óvart, stökk 16,26 metra, bætti sig
um hálfan metra og var fyrstur
þar til í næstsíðustu umferð þegar
Brasilíumaðurinn DaSilva fór
fram úr honum og hreppti ólymp-
íugull. Vilhjálmi var fagnað eins
og þjóðhöfðingja af miklu fjöl-
menni á Reykjavíkurflugvelli rétt
fyrir jólin 1956.
„Maður var hálfdofinn eftir
þessa keppni en mjög ánægður
með silfrið. Ég sé ekki eftir að
taka þátt i íþróttunum þótt ég færi
illa út úr þeim fjárhagslega, ég
þurfti að fjármagna þetta sjálfur
að langmestu leyti. Ég var leigj-
andi langt fram eftir ævinni fyrir
bragðið, varð að hætta við arki-
tektanám í Bandaríkjunum og átti
nánast ekkert meðan skólafélag-
arnir fjárfestu grimmt í stein-
steypu. Á þessum árum var enga
styrki að fá, það var bannað að
þiggja slíkt. En ég er sáttur við
að sparka með Lunch United í há-
deginu, og fer einstöku sinnum á
DV-æfingar í hádeginu á föstudög-
um.
„Það er ánægjulegt að einhverj-
ir muna enn hvað ég var að gera,“
sagði Ásgeir í gær.
Hann segist finna meira að fólk
í Þýskalandi muni eftir sér, sem
sé eðlilegt því þar var hann lengi
og var mjög kunnur og dáður
íþróttamaður.
Ásgeir rekur fyrirtækið Sjólyst
í Reykjavík, selur siglingatæki.
Tvö kornung koma i næstu
tveim sætum, Vala Flosadóttir í 4.
sæti, sem án efa á eftir að ná tind-
inum í stangarstökki - að ekki sé
talað um hinn unga og galvaska
sundmann úr Hafnarfirði, Örn
Arnarson, sem gerði garðinn
frægan fyrir nokkru og varð Evr-
ópumeistari en er þó rétt að byrja.
Glæsileg afrek en sorglegt
einkalíf
í næstu fjórum sætum koma
fjórir látnir íþróttamenn. Jón Páll
Sigmarsson var frábær kraftlyft-
ingamaður, litríkur persónuleiki
og sterkasti maður heims. Hann
lést langt um aldur fram, aðeins
32 ára gamall. í 7. sæti kemur
kempan Gunnar Huseby. Saga
hans var köflótt - hún var glæsi-
leg og hún var sorgleg. Gunnar
var í hópi bestu kúluvarpara
heims upp úr 1950. Örfáir stóðu
honum framar. Gunnar varð Evr-
ópumeistari í tvígang, 1950 í Ósló
og 1954 í Brussel. Hann var þjóð-
hetja. Tólf manns í könnuninni
sögðu hann mesta afreksmann
okkar.
En veikleiki Gunnars lá í áfeng-
inu eins og hann margoft tjáði sig
um opinberlega, eftir að hann tók
að starfa innan AA-samtakanna.
Áfengið var ástæðan fyrir því að
hann var ekki með á Ólympíuleik-
um 1948 í London, 1952 í Helsinki
eða 1956 í Melbourne. Ferill hans
varð skrykkjóttur og á tímabili
Mestu íþróttamenn íslands:
Nafn Atkv.
1. Jón Arnar Magnússon, tugþraut 201
2. Vilhjálmur Einarsson, þrístökk 42
3. Ásgeir Sigurvinsson, knattspyrna 40
4. Vala Flosadóttir, stangarstökk 36
5. Örn Arnarson, sund 25
6. Jón Páll Sigmarsson, lyftingar 19
7. Gunnar Huseby, kúluvarp 12
8. Gunnar á Hlíðarenda Hámundarson 6
9. Albert Guðmundsson, knattspyrna 5
10. Bjarni Friðriksson, júdó 5
11. Einar Vilhjálmsson, spjótkast 5
12. Geir Hallsteinsson, handbolti 4
13. Sigurður Valur Sveinsson, handbolti 4
14. Örn Clausen, tugþraut 4
15. Geir Sveinsson, handbolti 3
16. Jóhannes Jósepss. á Borg, glímumaður 3
17. Kristján Arason, handbolti 3
18. Sigurbjörn Bárðarson, hestaíþróttir 3
SÆTI19-29
2 atkvæði fengu eftirtalin: Clausen-bræður (Örn og Haukur),
frjálsíþróttamenn, Broddi Kristjánsson, badmintonmaður, Krist-
inn Björnsson, skíðamaður, Egill Skallagrímsson, fornmaður,
Skúli Óskarsson, lyftingar, Haukur Clausen, spretthlaupari, Val-
björn Þorláksson, tugþraut, Kristín Rós, sundkona, Ríkharður
Jónsson, knattspyrnumaður, Magnús Ver Magnússon, lyftinga-
maður, Grettir Ásmundarson, fornmaður.
SÆTI 30-53
1 atkvæði hlutu eftirtalin: Teitur Örlygsson, körfubolti, Einar
Karl Hjartarson, hástökk, Hreinn Halldórsson, kúluvarp, Guð-
rún Arnardóttir, grindahlaup, Hreinn Hríngsson, knattspyrna,
Finnbjörn Þorvaldsson, spretthlaup, Torfi Bryngeirsson, stang-
arstökk / langstökk, Skarphéðinn Njálsson, fornmaður og
„langstökkvari", Pétur Ormslev, knattspyrna, Guðni Bergsson,
knattspyrna, Kristján Finnbogason, knattspyrna, Arnór
Guðjohnsen, knattspyrna, Kjartan Ólafsson, fornmaður, Friðrik
Ólafsson, skák, Helgi Tómasson, ballettdansari, Þórey Edda
Elísdóttir, stangarstökkvari, Halldór Ingólfsson, handbolti, Jón
Kaldal, langhlaupari, Kristín Guðmundsdóttir, Nína Björg, fim-
leikar, Alfreð Gíslason, handbolti, Haukur Gunnarsson, sprett-
hlaupari, Hörður Sigurgeirsson, Helgi Jónas Guðfinnsson,
körfubolti.
æfði hann og kastaði kúlu innan
girðingar á Litla-Hrauni vegna
áfloga sem hann hafði lent í og
meiðsla sem maður einn hafði
orðið fyrir hans vegna við það
tækifæri.
í 8. sæti kemur nafni hans, sjálf-
ur Gunnar Hámimdarson á Hlíð-
arenda í Fljótshlíð, sem fær 6 at-
kvæði. Gunnar er samkvæmt
Njálssögu mesti kappi landnáms-
aldar. Hann er einn fjögurra í
skoðanakönnun DV sem á óljósan
og ómældan feril. Keppnis-
mennska var ekki sú hin sama til
forna og nú. Aðrir fornir kappar
hlutu líka atkvæði, Egill Skalla-
grímsson og Grettir Ásmimdar-
son, glímumaður og sundmaður,
hlutu 2 atkvæði hvor, Skarphéð-
inn Njálsson, stökkvarinn mikli
og Kjartan Ólafsson sundmaður,
sitt atkvæðið hvor.
Albert Guðmundsson var án efa
einhver þekktasti íþróttamaður
íslands og var nafnfrægur víða
um Evrópu frá stríðslokum og
fram undir 1960. Hann er í 9.-11.
sæti á eftir kappanum á Hliðar-
enda með 5 atkvæði. Þórólfur
Beck, sem var þekkt nafn á Bret-
landseyjum á sjöunda áratugnum,
fékk hins vegar ekki atkvæði enda
þótt hann væri stórstjarna. Önnur
stórstjama frá sama tíma, sund-
kappinn Guðmundur Gíslason, er
hvergi á blaði og þannig má fleiri
telja.
Bjarni Friðriksson fær líka 5 at-
kvæði. Hann vann til bronsverð-
launa á Ólympíuleikunum í Los
Angeles 1988, deildi þeim með öðr-
mn keppanda.
Þeir tveir sem næstir komu eru
hættir í íþróttum. En menn muna
þá engu að síður. Þetta eru þeir
Einar Vilhjálmsson spjótkastari í
9.-11. sæti með 5 stig, hann var í
fremstu röð í heiminum, og Geir
Hallsteinsson í 12.-14. sæti var
sannkallaður galdrakarl handbolt-
ans fyrir og eftir 1970.
Jafnmörg atkvæði og Geir hlýt-
ur Sigurður Valur Sveinsson,
skotharðasti handboltamaður
allra tíma að margra mati. Er það
við hæfi að hann hljóti töluna 13,
sem hefur lengi fylgt kappanum,
allt frá i Þrótti og til þessa dags í
HK. Siggi Sveins er að verða fer-
tugur, en skorar allra manna mest
af mörkum eigi að síður.
Deildu við íþróttaforystuna
í 12.-14. sæti er Örn Clausen
með 4 atkvæði. Þeir bræður,
Haukur og Örn, fá sameiginlega
tvö atkvæði til viðbótar og Hauk-
ur eitt atkvæði einn og sér. Þeir
voru án efa flottustu íþróttamenn
íslands, algjörir heimsklassa-
menn og prýddu forsíður stórra
blaða úti I heim. En sól þeirra
skein stutt. Vegna deilna við
íþróttahreyfinguna drógu þeir sig
í hlé kornungir og einbeittu sér
að háskólanámi sínu. Annar varð
tannlæknir, hinn lögfræðingur,
farsælir menn.
í 15.-18. sæti er Geir Sveinsson,
hinn öruggi landsliðsfyrirliði í
handbolta. Hann hefur inn árabil
verið burðarás I landsliðinu. Jafn-
mörg atkvæði hlýtur Jóhannes
Jósefsson sem byggði Hótel Borg,
fyrsta alvöruhótel íslands. Jó-
hannes var glímukóngur snemma
á öldinni, sýndi íslenska glímu
ásamt fleirum á Ólympíuleikun-
um 1908 í London en sneri síðan
að grísk-rómverskri glímukeppni
með góðum árangri. Eignaðist
hann þannig mikið fé og kom
hingað til lands vel fjáður.
Þeir Kristján Arason, hand-
boltakappi og atvinnumaður í
greininni um árabil, og Sigur-
björn Bárðarson hestaíþróttamað-
ur eru enn fremur með 3 atkvæði.
Þetta er aðallistinn, þeir 18
sem flest atkvæði hlutu í skoðana-
könnun DV. Tólf þeirra hafa hætt
keppni, sex eru enn að. Sex á list-
anum eru úr frjálsum íþróttum,
fjórir úr handbolta og tveir úr fót-
bolta. Einn forn frægðarmaður er
á aðallistanum, en fjórir forn-
kappar aðrir fengu atkvæði. Þá
fengu atkvæði þrír frjálsíþrótta-
menn frá gullöld frjálsíþróttanna
upp úr miðri öldinni. Þeir sem
hringt var í mundu líka eftir af-
reksmönnum fyrr á þessari öld.
Þar má nefna Jón Kaldal ljós-
myndara, sem var einn besti lang-
hlaupari Evrópu snemma á öld-
inni.
Upp úr miðri öldinni eignaðist
hið unga lýðveldi afburðaíþrótta-
menn, suma á heimsmælikvarða.
Margir sem inntir voru álits
mundu eftir þessum köppum,
Gunnari Huseby sem varð Evr-
ópumeistari tvisvar sinnum,
Clausen-bræðrum, Hauki og Erni,
sem fengu atkvæði hvor fyrir sig
en auk þess tvö atkvæði saman. í
þessum hópi eru lika Finnbjörn
Þorvaldsson og að maður tali ekki
um Torfa Bryngeirsson sem varð
Evrópumeistari í langstökki í
Brussel og hefði trúlega einnig
orðið meistari i sinni sérgrein
líka, stangarstökkinu, hefði sú
keppni ekki farið fram á sama
tíma og langstökkskeppnin.
-JBP