Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1999, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 1999
Fréttir
Stuttar fréttir iov
Sjómenn í Norður-Noregi uggandi vegna smáfiskadráps Rússa í Barentshafi:
Norðmenn vilja að-
stoð íslendinga
- veiðar Rússanna verri en Smuguveiðarnar, segir framkvæmdastjóri sjómannafélagsins í Troms
DV, Tromsö:
„Smáfískadráp Rússa í Barents-
hafi verður ekki stöðvað nema sam-
komulag náist um alþjóðlegt bann
við kaupum á undirmálsfiski af
þeim. Við þurfum að koma slíku
banni á hér í Noregi og það er eðli-
legt að norskir sjómenn biðji íslend-
inga að hætta líka að kaupa þennan
Fisk,“ segri Arvid Ahlquist, fram-
kvæmdastjóri sjómannafélagins í
Tromsfylki, við DV.
Arvid sagði að sjómenn i Norður-
Noregi væru nú mjög uggandi um
framtíð þorskveiðanna í Barents-
hafi. Stórþorskur sjáist varla en
rússneskir togarar moki upp smá-
fiski sem þeir selji svo á niðursettu
verði til allra sem kaupa vilja. Norð-
menn sjálfir séu komnir í alvarlega
klípu vegna veiða Rússanna því
margar fiskvinnslur í Troms og
Finnmörku séu háðar löndunum
þeirra. Um helmingur aflans sem
landað er í Norður-Noregi er úr
rússneskum togurum.
„Það er verkefni norskra stjórn-
valda að ná alþjóðlegu samkomulagi
um bann við kaupum á undirmáls-
fiski. Við sjómenn getum bara beðið
kaupendur í öðrum löndum að neita
að taka við þessum fiski og við verð-
um fyrst að koma slíku banni á hér
í Noregi. Það er hræðilegt til þess að
vita að fiskverkendur hér kaupa
núna smáfisk sem hagstæðast hefði
verið að veiða eftir fimm til tíu ár.
Þetta er ótrúleg skammsýni,“ sagði
Arvid.
Vandi Norðmanna kemur einnig
fram í því að þeir reyna að fylgja
eftir af hörku löndunarbanni á fiski
úr togurum sem áður hafa veitt í
Smugunni. Rússar hafa keypt
nokkra þessara togara og einstaka
byggðir eiga líf sitt undir því að fá
fisk úr gömlum Smugutogurum.
Peter Angelsen, sjávarútvegsráð-
herra Noregs, neitar að gefa eftir
þótt atvinnuleysi blasi við í byggð-
um sem samið hafa um kaup á fiski
úr gömlum Smugutogurum.
„Við sjómenn styðjum stefnu
Fiskvinnsia í Norður-Noregi er háð löndunum Rússa. Nú hafa Rússar ekki annað að bjóða en smáfiskinn sem Norð-
menn ætluðu að veiða sem rígaþorsk eftir fimm til tíu ár.
DV-myndir Gísli Kristjánsson
Angelsens. Hann
gerir það eina
sem rétt er. Bann
við kaupum á
fiski úr gömlum
Smugutogurum
er eina ráð okkar
til að stöðva
Smuguveiðarnar.
Fiskvinnslur sem
hafa samið um
kaup á fiski úr
þessum togurum
verða bara að
taka afleiðingum
gerða sinna. Það
var vitað fyrir-
fram að löndun-
arbann yrði sett
á gömlu Smugu-
togarana í vet-
ur,“ segir Arvid.
Hann lýsir
ástandinu þó svo
að Smuguveiðar
Arvid Ahlquist, framkvæmdastjóri
sjómannafélagsins í Tromsfylki,
dregur upp dökka mynd af útlitinu í
norskum sjávarútvegi. Smáfiska-
dráp Rússa segir hann verra en
Smuguveiðar íslendinga.
íslendinga
hefðu verið
skömminni
skárri en veið-
ar Rússa nú. í
Smugunni
hefði þó verið
reynt að forð-
ast smáfiskinn
en Rússar
tækju bara allt
sem fengist og
engin leið virt-
ist vera að
koma stjórn á
veiðamar.
„Þessar veið-
ar geta hæg-
lega leitt til
þess að þorsk-
stofninn í
Barentshafi
hrynur. Það
virðist vera lít-
ið af fiski á
miðunum og stórþorskurinn hefur
enn ekki látið sjá sig. Það er þegar
búið að skera þorskkvóta þessa árs
niður um 150 þúsund tonn og það
kann að fara svo að kvótamir
verði minnkaðir enn í ár,“ sagði
Arvid.
Og það er ekki nóg með að Rúss-
ar moki upp smáþorskinum. Nýj-
ustu talningar sýna að selum fjölg-
ar mjög ört í Barentshafinu og sjó-
menn óttast sannkallaða selaplágu.
Sérfræðingamar segja að 2,2 millj-
ónir sela séu nú í Barentshafi,
þrisvar sinnum fleiri en talið var.
„Útlitið er allt annað en bjart.
Það þarf að stórauka selveiðamar
og það þarf að koma stjórn á veið-
ar Rússanna og loka Smugunni
endanlega. Að öðrum kosti er
byggðin hér norður frá í hættu,“
sagði Arvid og viðurkennir að nú
hefði verið kostur að geta átt betra
samstarf við íslendinga í sjávarút-
vegsmálum en verið hefur. -GK
Það er bannað að auglýsa bjór
skv. Hæstarétti og því breyttist
Egill sterki í maltöl f gær.
* 1 Bfi M w
□ urTíi i»1r X \ \ 8* m í^*jÆ
Eskifjörður:
Einhver framsókn-
arflensa að ganga
- en góugleði eldri borgara heppnaðist þó með ágætum
DV, EskdÐrði:
Góugleði eldri borgara á Eski-
firði var haldin á laugardagskvöld-
ið í slysavarnahúsinu. Fimmtíu
manns mættu sem er óvenjufátt.
Það er einhver framsóknarpest að
ganga, yfirleitt koma 80 til 100
manns á skemmtunina. Allar kon-
ur fengu rauðar rósir, sem okkur
þótti vænt um. Maturinn var frá-
bær hjá honum Þorleifi Guðjóns-
syni, hótelstjóra í Öskju, þeim
góða dreng. Jón Ólafsson, formað-
ur félags eldri borgara, setti sam-
komuna.
Allir sem töluðu fluttu skemmti-
legar ræður og voru í sólskins-
skapi. En alveg bar hún af hún Að-
alheiður Ingimarsdóttir, ómenntuð
en ófeimin Strandakona sem hefur
aldrei látið.á sér.bera fyur- en núna
í starfi eldri borgara að hún heldur
glaðværðinni uppi.
Séra Davíð Baldursson stjórnaði
almennum söng af mikilli list. Og
það var gott að hlusta á Valdísi Ár-
mannsdóttur söngkonu. Það er mik-
ils virði að eiga prest eins og hann
Davíð og það vildi ég að allir prest-
ar væru eins fjölhæfir og mikilhæf-
ir og séra Davíð. Þá væri margt
öðruvísi í okkar þjóðfélagi. Hann
kemur til okkar á elliheimilið á
þriggja vikna fresti og maður er
annar og betri maður eftir að hiusta
á hann. Hann var með okkur allt
kvöldið sem og hans góða kona,
sýslumaðurinn okkar á Eskifirði,
hún Inger Jónsdóttir, en þau eiga
þrjú böm.
Gleðskapurinn stóð yfir til mið-
nættis og allir fóru heim með
ánægju út að eyrmn. . - . -Regína
Vill endurskoðun
Hjálmar Árna-
son, þingmaður
Framsóknar-
flokksins, hóf ut-
andagskrárum-
ræðu á þingi í
gær um söluna á
Áburðarverk-
smiðjunni. Verk-
smiðjan væri forsenda að stofnun
vetnissamfélags á íslandi með þátt-
töku erlendra stórfyrirtækja. Nú
væm blikur á lofti því verksmiðjan
hefði verið seld án skilyrða.
Burt með ríkið
Stjóm Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna hvetur Alþingi í tilefni af
10 ára bjórafmælinu til að afnema
einkasölu ríkisins á áfengi.
15 vildu vinnuna
Fimmtán hjúkrunarfræðinemar á
lokaári hafa tekið tilboði Sjúkrahúss
Reykjavíkur um námsstyrk næstu
mánuði gegn því að ráða sig til
starfa hjá sjúkrahúsinu. Nemamir
fá 50 þúsund króna styrk á mánuði
til útskriftar og 5-6 þúsund krónum
hærri byrjunarlaun en boðist hafa
hingaö til. RÚV sagði frá.
Clayderman i Höllina
Píanóleikarinn Richard Clayder-
man heldur tónleika í LaugardaÉhöll
þann 3. apríl næstkomandi.
Ábyrgð könnuð
Héraðsráð Eyjaíjarðar lét kanna
lögfræðilega ábyrgð stjómar og
framkvæmdastjóra á tapi af Norður-
póls- og jólasveinaævintýrinu á Ak-
ureyri. Niðurstaðan varð sú ekki
væri skynsamlegt að fara með málið
til dómstóla.
Tryggingastofnun kærð
Einstæð móðir
hefur kært Trygg-
ingastofnun fyrir
að vera svipt
heimilisuppbót
vegna þess að
böm hennar búa
þjá henni. Arnór
Pétursson, for-
maður Sjálfsbjargar, segir viö Dag að
fátækt ríki meðal öryrkja.
Verður í gæslu
Hæstiréttur staðfesti í gær gæslu-
varðhaldsúrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir Nígeríumanni sem
grunaður er um fjárglæframennsku
hér á landi undanfama mánuði.
Hann verður því í gæsluvarðhaldi til
4. mars.
Yfirtaka stenst
Samkeppnisstofnun hefur komist
að þeirri niðurstöðu að yfirtaka fyr-
irtækisins Coca-Cola, Nordic
Beverages á Vífilfelli hf. hafi verið í
samræmi við samkeppnislög. Fyrir-
tækið er í eigu Carlsberg og Coca-
Cola í Bandaríkjunum, en lögmaður
þess bar yfirtökuna undir sam-
keppnisyfirvöld.
Stjórnmálasamband
Fastafúiltrúar íslands og Filipps-
eyja undirrituðu 24. febrúar sameig-
inlega yfirlýsingu um stofnun
stjómmálasambands milli ríkjanna.
Þorvaldur hættir
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson
hefur hætt sem framkvæmdastjóri
Kaupþings Norðurlands og flyst í
starf hjá Kaupþingi í Reykjavík. Um-
skiptin tengjast kaupum Sparisjóðs
Norðlendinga á meirihluta hlutafjár
í Kaupþingi Norðurlands.
Bitist um jarðgöng
Páll Pétursson
félagsmálaráð-
herra telur að
bora eigi næstu
jarðgöng á land-
inu á milli Siglu-
íjarðar og Ólafs-
fjarðar. Halldór
Blöndal sam-
gönguráðherra er sama sinnis, en
Halldór Ásgrimsson og Jón Krist-
jánsson, þingmenn Framsóknar-
flokksins á Austfjörðum, vilja að
næstu göng verði bomð á Austfjörð-
um. RÚV sagði frá.
Ánægjuvísitala
Um næstu mánaðamót verður byij-
að að mæla hér á landi ánægju- og við-
skiptavinavisitölu. Slikar mælingar
tíðkast í Evrópu að sögn RÚV. -SÁ
• • 1 ; v » • 'i .í'* ■',~t i v r