Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1999, Side 18
18
FIMMTUDAGUR 25. MARS 1999
Naumur MH-sigur
Lið Menníaskólans við Hamra-
hlíð sigraði lið Menntaskólans við
Sund í leik liðanna í undanúrslit-
um síðasta fbstudag. Margir höfðu
búist við öruggum sigri MH-inga
en þeir höfðu sigur á elleftu stundu
og sigruðu með 34 stigum gegn 31.
Liðin höföu hvort um sig 31 stig
þegar síðasta spumingin, þríþraut-
in, var eftir. Spurt var um nafh og
fæðingarstað þriggja fyrirsæta sem
birtust á skjánum. MH varð á und-
an að hringja bjöllunni og þar meö
náði liðið sér í þau þijú stig sem
skildu að í leikslok. Spennandi
keppni það, en svekkjandi fyrir
MS-inga sem koma eflaust sterkari
til leiks að ári...
Sjöundi MR-sigurinn?
Það verða því Menntaskólinn i
Reykjavík og Menntaskólinn við
Hamrahlið sem keppa til úrslita
um Hljóðnemann, sigurlaun keppn-
innar, í þriðja sinn í röð. Hljóðnem-
inn varfyrst gefinn sigurvegurum
keppninnar árið 1987 og hefur fylgt
henni síðan. MR-ingar hafa borið
sigurorð af MH-ingum siðustu tvö
árin og hafa að sama skapi sigrað
i keppninni alls sex sinnum i röð.
Laugardalshöll.
Það verður því í sjöunda skiptið í
röð sem þeir hampa Hljóðneman-
um, takist þeim að sigra. MH-ingar
hafa hins vegar aldrei sigrað í
keppninni, en slóu MR-inga út úr
keppninni árið 1992...
Beint úr Valsheimilinu
Keppnin á morgun verðrn- í
beinni útsendingu frá Valsheimil-
inu og hefst kl. 21.30. Það ættu þvi
allir að komast á keppnina sem
vilja, en undanfarin ár hefúr hús-
fyllir orðið löngu áður en keppnin
er hafin, með þeim afleiðingum að
margir hafa þurft frá að hverfa.
Heiðursgestur keppninnar verður
sem í fyrra Bjöm Bjamason
menntamálaráðherra og mim hann
afhenda sigurliðinu Hljóðnemann.
Að auki munu fulltrúar Sjónvarps-
ins afhenda fulltrúum nemendafé-
laga þeirra átta skóla sem komust í
sjónvarpskeppnina, glæsilega i-Mac
tölvu að gjöf. Þá fær sigurliðið
viku ferð til Barcelona auk bóka-
gjafa...
Björn Bjarnason heiöursgestur kvöldsins:
Keppnin eykur
áhuga á þekkingu
Bjöm Bjamason menntamálaráð-
herra verður heiðursgestur keppn-
innar á morgun. Hann sagði í sam-
tali við DV, aðspurður um þýðingu
keppni sem þessarar fyrir menntun
í landinu, að hvers kyns keppni
hefði góð áhrif innan skólakerfisins.
„Hún eykur samheldni innan skóla
og stuðlar að metnaðarfullri sam-
keppni milli þeirra. Spurninga-
keppni hvetur einnig til þess að
nemendur þjálfi sig í þeirri þekk-
ingarsnerpu sem er nauðsynleg til
að ná árangri undir miklu álagi á
keppnisstað, einkum þegar keppt er
fyrir framan sjónvarpsmyndavél-
amar. Áhrif keppninnar á menntun
í landinu eru frekar óbein en bein,“
sagði Björn.
Teluröu aó hún auki
áhuga á menntun og
almennri þekkingu?
„Ég er viss um að
keppnin vekur áhuga
á almennri þekkingu,
ef spumingar eru
þannig úr garði gerðar
að fleiri en þeir sem
sitja fyrir svörum,
finna að leikurinn
reynir einnig á kunn-
áttu þeirra. Það er
mikið vandaverk að
semja spurningar af
þessu tagi. Ég ólst upp
við að Ólafur Hansson
menntaskólakennari
var dómari og höfund-
ur spurninga í flestum
útvarpsþáttum af
þessu tagi. Hann
kenndi mér sögu í
Menntaskólanum í
Reykjavík og beitti
gjarnan þeirri aðferð
við kennslu að leggja
spumingar fyrir okk-
ur nemendur. Jók það
áhuga minn á sögu og
hefur gagnast mér vel
í ýmsu tilliti."
Finnst þér sjálfum
skemmtilegt aó fylgjast
meó keppninni?
„Já, mér finnst
þeirri stund ágætlega
varið fyrir framan
sjónvarpið að horfa á þessa keppni.“
Hefóiróu haft áhuga á aö taka
þátt í svona keppni ef hún heföi ver-
ið
til þegar þú gekkst í menntaskóla?
„Ætli mig hefði ekki skort sjálfs-
traust til þess á þeim árum að bjóða
fram krafta mína í slíka keppni. ís-
lenska sjónvarpið var þá ekki kom-
ið til sögunnar og framhaldsskóla-
nemar höfðu þá líklega fæstir hug-
myndaflug til að ímynda sér að
spumingaþáttur með aðild þeirra
yrði eitthvert vinsælasta efnið í
þeim miðli. Ég dáist oft að kappsemi
og viljastyrk þeirra nemenda sem
sitja þama fyrir svönun, sérstak-
lega þeirra sem eiga undir högg að
sækja,“ sagði Björn.
ARttARÞÖn i.%
HJAíTíSU/ER
Spurningalið MR.
ÞÖfíA
HJALAR
JOH Aflfíi
Spurningalið MH.
Leið MR og MH í úrslitin
MH 34
'F\r-4a
8 liða.úrslit
iVfrt—15.
MH 39
Undanúrslit
MH 34
TWS—31
MR 27
MR 25
"VK44
MR 42
'FSÍK22.
MH
MR
DV
Úrslitaleikur Gettu betur annaö kvöld:
Barátta stóru skólanna
Menntaskólinn í Reykjavík hefúr
haft tögl og hagldir í Gettu betin
spumingakeppninni undanfarin 6
ár. Liðið hefur unnið hvem sigur-
inn á fætur öðrum og sigraði síðast
lið Menntaskólans við Hamrahlíð
sem og árið þar áður. í fyrstu um-
ferð keppninnar sátu MR-ingar hjá
og MH-ingar kepptu ekki heldur þar
sem Bændaskólinn á Hvanneyri gaf
viðureignina gegn liðinu. Það var
því ekki fyrr en í annarri umferð á
Rás 2 sem liðin hófu keppni og voru
MH-ingar á undan í röðinni. Þeir
sigruðu lið Framhaldsskóla Vest-
fjarða, ísafirði, með 34 stigum gegn
10 en MR-ingar sigruðu Borgar-
holtsskóla með 27 stigum gegn 20.
Átta liða úrslit hófust i sjónvarpinu
5. mars en tveimur vikum síðar
gjörsigraði MH lið MK, 39-15. Viku
síðar mættust svo Verzlunarskóli
íslands og MR og fór MR með sigur
af hólmi, 25-13. Undanúrslitin hófust
svo 12. mars með því að MR-ingar
gjörsigmðu Fjölbrautaskóla Suður-
lands, Selfossi, 42-22 og nú síðast
sigraði MH lið Menntaskólans við
Sund, eins og sagt er frá annars
staðar á síðunni. Það verða því MR
og MH sem mætast á morgun eins
og einhverjir höfðu eflaust gert ráð
fyrir áður en keppnin hófst í vetur.
Ekki verður leikið um þriðja sætið í
keppninni einhverra hluta vegna.
-hb