Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1999, Page 8
e
Útlönd
Flugvélar NATO réöust á sígarettuverksmiðju:
NATO óttast eitur-
efnavopn Serba
Oveðursský yfir
50 ára afmælis-
fundi NATO
Óveöursskýin frá Kosovo
hrannast nú upp yfir 50 ára af-
mælisfundi leiðtoga ríkja Atlants-
hafshandalagsins (NATO) sem
hefst vestur í Washington á fóstu-
dag. Skipuleggjendur fundarins
hafa stytt opnunarathöfnina og
bætt við tveggja klukkustunda
umræðum um ástandið í Kosovo.
Hætt er við að leiðtogafundur-
inn verði ekki sú sólskinsstund
sem menn sáu fyrir sér þegar
undirbúningurinn var hafinn fyr-
ir átján mánuðum. Þá sáu menn
ekki annað fyrir en mikil kátína
og gleði myndi rikja á fundinum
með inngöngu þriggja nýrra ríkja
í NATO, Póllands, Ungverjalands
og Tékklands. Bandarísk stjórn-
völd reyna engu að síður að sjá
björtu hliðarnar.
Of hátt kólesteról ?
Var með það, en ekki lengur.
Jurtafæðan lagfærði það.
Persónuleg reynsla og árangur.
Frítt sýnishorn og ráðgjöf.
Póstkr./\/isa/Euro 30 daga skilafrestur
S. 562-2123 / 861-4577
Grunur leikur á að Slobodan
Milosevic Júgóslavíuforseti hafi út-
búið hersveitir sínar í Kosovo með
eiturefnavopnum. Forráðamenn
Atlantshcifsbandalagsins (NATO)
þora ekki að fyrirskipa árásir á
birgðageymslur þeirra af ótta við að
eiturgufur leki út.
Danska blaðið Jyllands-Posten
hefur þetta eftir mörgum heimildar-
mönnum vestan hafs. Segja heimild-
armennimir, bæði innan stjórnkerf-
isins og óháðir sérfræðingar, tæpast
leika nokkurn vafa á því að
serbneski herinn ráði yfir eiturefna-
vopnum.
Flugvélar NATO héldu loftárás-
um sínum á Júgóslavíu áfram í nótt
og létu sprengjum meðal annars
rigna yfir sígarettuverksmiðju i ná-
grenni borgarinnar Nis í sunnan-
verðri Serbíu. Árásimar virðast þó
ekki gagnast þeim hundraðum þús-
unda Albana í Kosovo sem
serbneski herinn hefur stökkt á
flótta eða eru i felum í skógum og
fjöllum héraðsins.
Á vergangi
Talsmenn NATO segja að um 850
þúsund manns séu nú á ferð í
Kosovo eftir árásir og hótanir
Serba.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna telja að fyrir apríllok kunni
átta hundruð þúsund flóttamenn til
viðbótar að fara til Albaníu, Svart-
fjallalands og Makedóníu.
Þá segja bandarísk stjórnvöld að
ekkert sé vitað um afdrif eitt hund-
rað þúsund til fimm hundruð þús-
und albanskra karlmanna frá
Kosovo. Óttast er að margir þeirra
hafi verið drepnir.
Vestrænir sérfræðingar áætla að
mikill meirihluti þeirra 1,8 milljón-
ar Albana sem bjuggu í Kosovo í
ársbyrjun 1998 hafi verið flæmdur
burt frá heimilum sínum. Flestir
hafa flúið á þeim 27 dögum sem
liðnir eru síðan NATO hóf loftárás-
ir sínar á Júgóslavíu til að knýja
Milosevic forseta til að ganga að
kröfum þjóða heims um framtíðar-
skipan í Kosovo.
Kannski féllu óbreyttir
Talsmenn NATO gerðu í gær
grein fyrir því sem fór úrskeiðis á
miðvikudag í síðustu viku þegar
loftárásir voru gerðar á bílalestir
flóttamanna í Kosovo. Júgóslavar
segja að 64 hafi fallið í árásunum.
Bandaríski flugliðsforinginn Dan
Leaf sagði að flugmenn NATO hefðu
varpað níu sprengjum á tvö svæði.
„Það er hugsanlegt að óbreyttir
borgarar hafi týnt lífi á báðum stöð-
um,“ sagði Leaf.
Ekki eru allir albanskir flóttamenn í Kosovo jafnheppnir, ef svo má að oröi komast, og þessi börn. Þau hafa að
minnsta kosti fengið húsaskjól í þorpinu Malina og reyna hvað þau geta til að halda á sér hita.
ELFA
R LEMMENS
HITABLÁSARAR
Fyrir verslanir - iðnað - lagera
Fyrir heitt vatn.
Afköst 10 -150 kw
Öflugustu blásararnir á
markaðnum, búnir
miðflóttaaflviftum og
ryksíum.
Betri hitadreifing - minni
uppsetningarkostnaður,
lægri rekstrarkostnaður.
Hagstætt verð
Einar
Farestveit & Co.hf.
Borgaitlini 28 P 562 2901 og 562 2900
pitt Ufer íþínum höndum.
Mitt lífí mínum.
Fyrirlestur um samskipti og sköpunarkraft
mannsins til að skapa eigið líf
verður haldinn í Gerðubergi í dag kl. 20.
Fyrirlesari er Vilhelmína Magnúsdóttir
Aðgangseyrir 1.000 kr.
Naglasprengjuárásin í London:
Hægriöfgamenn ábyrgir
Maður, sem kvaðst tilheyra
hægriöfgasamtökunum Combat 18,
hefur lýst yfir ábyrgð á nagla-
sprengjuárásinni í Brixton í London á
laugardaginn. Þrjátíu og níu manns
særðust í árásinni.
Breska lögreglan sagði að vanga-
veltur í Qölmiðlum um að árásin
tengdist striðinu í Kosovo ætti ekki
við rök að styðjast.
Combat 18-samtökin hafa staðið á
bak við nokkrar árásir í London und-
anfarin ár. Meðal annars voru íþrótta-
stjörnum, sem vora í sambandi við
fólk af blönduðum kynþætti, sendar
pakkasprengjur.
ÞRÍðJUÍ)AGÚr 20. ÁPRÍL 1999
Stuttar fréttir i>v
Endurvígsla
Þýska þingið var formlega flutt
frá Bonn til Berlínar í gær þegar
gamia þinghúsið, Reichstag, var
tekið í notkun á ný eftir breyting-
ar.
Fús til stjórnarmyndunar
Kongressflokkurinn á Indlandi,
undir stjórn Soniu Gandhi,
kvaðst í gær
reiöubúinn til
að mynda nýja
stjórn í stað
samsteypu-
stjórnarinnar
sem felld var á
laugardaginn.
Kveðst flokkur-
inn geta myndað stjórn með
flokkunum sem felldu stjórnina.
Fjöldaaftökur í Bagdad
Irösk stjórnarandstöðusamtök,
sem eru í útlegð, sökuðu í gær yf-
irvöld í írak um að hafa tekið af
lífi 106 pólitíska fanga i Bagdad í
janúar síðastliðnum.
Hagvöxtur í sjónmáli
Þróunarbankinn í Asíu býst við
talsverðum hagvexti í Asíu á
þessu ári og því næsta.
Erfiöar friöarviðræður
Ehginn árangur náðist í friðar-
viðræðunum á N-írlandi í gær. Er
enn deilt um afvopnun.Viðræður
hefjast á ný í næstu viku.
Myndar eigin flokk
Fyrrverandi forsætisráöherra
Alsírs, Moloud Hamrouche, ætlar
að stofna eigin flokk til höfuðs
Bouteflika, sigurvegara kosning-
anna í síðustu viku.
Krefst refsiaðgerða
Jose Ramos-Horta friðarverð-
launahafi krafðist þess að beitt
yrði alþjóðlegum refsiaðgerðum
gegn Indónesíu. Sagði hann
stjórnvöld hafa horft fram hjá til-
raunum harðlínumanna í hern-
um til að kynda undir ofbeldi á A-
Tímor.
Danska þingið rýmt
Vinna hófst á ný síðdegis í gær
á danska þinginu er sprengjuleit
lögreglunnar var lokið. Þingið
var rýmt í kjölfar sprengjuhótun-
ar sem barst um hádegi.
Clinton og Blair funda
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
og Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, funda ef til vill á
fimmtudag, daginn áður en leið-
togafundur NATO hefst í Was-
hington.
Ecevit íhugar samstarf
Tyrknesk dagblöð greindu frá
því í morgun að merki sæust um
að Bulent
Ecevit forsætis-
ráðherra væri
reiðubúinn að
ræða við flokk
þjóðernissinna
um myndun
samsteypu-
stjórnar. Óvænt
velgengni þjóðemissinna i kosn-
ingunum olli í gær óróa á mörk-
uðum í Tyrklandi.
Sumarhus
12 síðna aukablað um sumarhús fýlgir DV á morgun
Meðal efnis: Viðtöl við sumarhúsaeigendur, garðarkitekt
gefur góð ráð og hugmyndir um skipulag lóðar, ráðleggingar
frá byggingameistara, öryggisbúnaður og tryggingar,
sólpallar, heitir pottar o.fl.