Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1999, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDÁGUR 20. APRÍL 1999
Nokkur
S heilræði í
próflestrin-
um
S Þaö er óþarfi að fá hroll þeg-
ar minnst er á próflestur enda
margar góðar aðferðir við að
■ undirbúa sig vel undir próf.
Hér að neðan eru nokkur
heillaráð sem gott er að hafa
til hliðsjónar þegar próflestur-
inn hefst.
Gerðu þér ákveðna lestrará-
ætlun eða tímaplan þar sem
allir prófdagarnir eru skipu-
lagðir niður í námstíma, upp-
rifjanir og frístundir. Reyndu
að draga námsefni meira og
meira saman í færri atriði. Á
j endanum færðu heildarmynd
af öllum áfanganum.
Skráðu öll þýðingarmikil at-
| riði og gerðu tölusetta atriða-
skrá eða stuttan útdrátt úr
námsefninu.
Æfðu skipulega upprifjun
til dæmis með því að líta yfir
lykilorðin í glósunum. Próf-
aðu sjálfan þig með spurning-
um úr námsefninu. Líttu yfir
f gömul skyndipróf og verkefni.
Athugaðu þínar úrlausnir og
skoðaðu hvað þú gerðir rangt.
Kennarinn veiddur
Reyndu að veiða upp úr
kennaranum eins miklar upp-
| lýsingar um innihald, próf-
; form og lengd prófs og þú get-
ur. Reyndu að fá fram helstu
; áhersluatriðin og misstu ekki
af síðustu kennslustundinni
| fyrir próf.
Veldu óklárt efni til lesturs.
Ekki lesa eingöngu efni sem
þú ert góður í eins og mörgum
hættir til að gera. Athugaðu
ætíð það sem þú gerðir rangt á
fyrri prófum. Þú gerir
kannski alltaf sömu klaufavill-
urnar sem auðvelt er að laga.
Æfðu góðan vinnuhraða. Ef
Íþú ert vanur að lenda í tíma-
hraki í ákveðnum námsgrein-
um er gott að búa sér til svip-
aðar aðstæður og í prófi,
skammta sér tíma og þjálfa
hraðann.
Semdu líklegar spurningar
úr námsefninu. Hvernig getur
kennari spurt úr efninu?
| Æföu þig í að svara þeim.
Prófdagurinn
Farðu tímanlega á fætur,
líttu yfir námsefni sem þú
kannt mjög vel. Það eykur
ekki kunnáttuna en styrkir
sjálfstraustið. Mættu tíman-
lega í próf. Ekki spjalla um
námsefnið við bekkjarfélaga
áður en þú gengur í prófstofu.
Slíkt getur valdið óþarfa
kvíða.
25
Að lesa undir
þróf
Það styttist í vorprófin hjá þúsundum nem-
enda og kominn tími til hefja undirbúning af
alvöru. Það er samt alls ekki sama hvernig
lesið er undir próf eins og reyndustu menn
vita. Tilveran heimsótti námsráðgjafa á dög-
unum ogfékk að vita ýmislegt um skynsam-
legan próflestur og hvað er til ráða þegar
prófkvíði gerir vart við sig.
Dagný Erla Vilbergsdóttir námsráðgjafi:
Hvíldin er jafnmikilvæg lestrinum
T
Próftíminn er mikill álags-
tími og skipulag hefur þar
mikið að segja. Við upphaf
próflesturs er afar mikil-
vægt að gera lestraráætlun, skoða
námsefnið og skipta því niður.
Próflestur á auðvitað að vera upp-
rifjun á því sem lesið hefur verið á
misserinu og það veit aldrei á gott
að vera að frumlesa námsefni fyr-
ir próf. í báðum tilvikum gildir þó
að forgangsraða námsefninu og
ekki síst að greina aðalatriðin frá
aukaatriðunum,“ sagði Dagný
Erla Vilbergsdóttir, námsráðgjafi í
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
þegar Tilveran bað hana að gefa
þeim íjölmörgu nemendum sem
þreyta próf á næstunni góð ráð.
Lestrartíminn brotinn upp
Þegar lestraráætlun er
byggð upp er nauðsynlegt
að gera ráð fyrir hvíld-
artímum. „Við mæl-
um alltaf með því
að nemendur
brjóti upp lestrar-
tímann og það er
alltof algengt að
„ Það er býsna
algengt að fram-
haldsskólanemar
viti bara ekki
hvernig þeir eiga að
haga sér á próftíma-
bilinu,“ segir Dagný
Erla Vilbergsdóttir
námsráðgjafi.
hvíldin sé vanmetin, sérstaklega
hvað varðar reglulegan svefn, að
ég tali nú ekki um nægilegan
svefn nóttina fyrir próf. Hvíldin er
jafnmikilvæg lestrinum þvi sá sem
fer þreyttur í próf skilar ekki sín-
um besta árangri. Það er býsna al-
gengt að framhaldsskólanemar viti
bara ekki hvernig þeir eiga að
haga sér á próftímabilinu. Þeir fá
almennt litlar upplýsingar um
slíkt. Þá reynum við að koma til
hjálpar og benda nemendum á
hagnýtar vinnureglur," segir Dag-
ný Erla.
Slökun mikilvæg
Prófkvíði er vandamál sem
margir nemendur glíma við á
hverjum vetri. „Prófkviði tengist
bæði undirbúningi fyrir próf
og ekki síst líðaninni
þegar í prófið er
komið. Hjá flest-
um er próf-
kvíði já-
kvæður og
til þess
fallinn
a ð
halda fólki við efnið, því hóflegur
kvíði dregur úr kæruleysi og leið-
ir til meiri virkni. Kvíðinn getur
hins vegar orðið það mikill að
hann fari að hrjá nemendur og
hafa hamlandi áhrif. Þá er um að
gera að gripa i taumana og sem
betur fer eru til margar góðar að-
ferðir til að vinna bug á prófkvíð-
anum,“ segir Dagný Erla.
Skipulag og stefnufesta getur
slegið á mestu streituna,“ segir
Dagný Erla. „Enn fremur er mikil-
vægt að nemendur sem eiga við
prófkvíða að striða læri slökun.
Það sem nýtist prófkvíðnum nem-
endum hvað best þegar í próf er
komið er að hafa tileinkað sér
slökun sem losar um spennuna í
líkamanum því það er grundvöllur
þess að nemandinn geti
einbeitt sér.“
trú á eigin getu og tala við sjálfan
sig á uppbyggilegan hátt í stað
þess að rífa sig niður með nei-
kvæðum hugsunum og magna
þannig upp kvíðann. Það gildir
líka um prófin að æskilegt er að
lesa allt prófið i gegn og byrja síð-
an á því sem er léttast. Þá kunna
hlutir að rifjast upp sem nýtast í
erfiðari spumingum. Það ætti eng-
inn að líta á það sem heimsendi að
falla á prófi. Ýmislegt getur verið
þess valdandi að nemandi hafi
ekki náð að tileinka sér námsefni
eða að koma því til skila; fólk ger-
ir bara eins vel og það getur,“ seg-
ir Dagný Erla Vilbergsdóttir
námsráðgjafi.
-aþ
Enginn
heimsendir
Dagný Erla mælir
með því við nemendur
að draga andann
djúpt þegar sest er ,
að prófborði. ijg
„Nemandinn verð-
ur að hafa
■
. 100 HZ
• camfilt©!*
svwsswAía-
2s-Btócktnv.r ; 5Ó,,5lr á^klí
sasSj'.easRA-t
Heyrnartolsteny „krftj
I | i i ■■ ci,iár • Nicam
28” Black invar skja^ aðgerðir
iSSSSSJ*.á
u’ár • Nicam
iStÍSSSS*
leiðarvísir.
533 2800
UMBOOSMENN
I Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Vestfiröir: Geirseyjarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, ísafirði. Kf. Norðurland: V-Hún., Hvammstanga, Kf. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA Lónsbakka Akureyri.
Kf. Þingeyinga, Húsavik. Austurland: Vélsmiðjan Höfn. Suðurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Geisli, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn, Keflavik. Rafborg, Grindavik.
l