Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1999, Blaðsíða 19
18
31 A.
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 1999
ÞRIÐJUDAGUR 1. JUNI 1999
Sport
Sport
Sigurfor
Attundu ólympíuleik-
um smáþjóða í Evrópu
lauk í Liechtenstein um
helgina og það er óhætt
að segja að íslenski hóp-
urinn hafi rækilega sleg-
ið i gegn. íslenska keppn-
isfólkið vann margra
glæsta sigra á keppnis-
vellinum og hlaut lang-
flest verðlaun þeirra átta
þjóða sem áttu fulltrúa á
leikunum.
Þetta voru glæsilegir
fulltrúar íslands, ekki
bara inni á keppnisvell-
inum heldur líka utan
hans. Prúðmennska,
metnaður, samstaða og
sigurvilji voru aðalvopn
íslenska keppnisliðsins
og eftir að hafa umgeng-
ist þennan friða hóp
fyllist maður bjartsýni.
Oft hefur verið dregin upp
dökk mynd af íslenskri
æsku en í þessum hópi
sem keppti fyrir
hönd íslands á
leikunum
var ungt f j|
og þrótt-
mikið
íþrótta-
fólk í
meiri-
hluta. Allt
þetta I
íþróttafólk • |
lagðist á eitt 'V.
um að gera sitt
besta og það var mjög
ánægjulegt að sjá sam-
stöðuna sem ríkti í ís-
lenska keppnisliðinu.
Árangur íslensku kepp-
endanna vakti verðskuld-
aða athygli hjá öllum
þeim sem fylgdust með
leikunum og í þeim
.....-- j, hópi voru er-
lendir
blaða- og
' \ frétta-
menn,
prins-
1 ar og
Iþróttaljós
, fursta-
flp frúr og
ekki
síst aðrir
keppend-
ur. Það var
mikið ævintýri
að fá að fylgjast með
þessum leikum sem tók-
ust einstaklega vel hjá
heimamönmun.
Umgjörðin var glæsi-
leg og öll aðstaða til fyr-
irmyndar. Smáþjóðaleik-
ar eru ekki vettvangur
þeirra stærstu og bestu
heldur keppir íþróttafólk
frá átta smáþjóðum í
Evrópu á jafnréttis-
grundvelli.
Allar götiu- frá því
leikunum var fyrst
hleypt af stokkunum árið
1985 hafa íslendingar
verið sigursælir og leik-
amir hafa oftar en ekki
verið stökkpallur fyrir
stærri og betri afrek. ís-
lenska þjóðin má vera
stolt af íþróttamönnum
sínum sem unnu glæsi-
leg afrek jafnt innan sem
utan vallar og fóru
sannkallaða sigurfor til
Liechtenstein.
Blcand i poka
Ólafur Sigurjónsson og Lárus
ivarsson, báöir í GR, sigruöu á opna
Schweepers-móti Golfklúbbs Reykja-
víkur um helgina en leiknar voru 18
holur þar sem tveir voru saman í liði.
Hólmar Freyr Christiansson og
Stefán Már Stefánsson, GR, uröu I
öðru sæti og Hans Guómundsson og
Reynir Jónsson, GR, í þriðja sæti.
KR-ingar veröa með hópferð á leik
sinna manna gegn Grindavik í kvöld.
Farið verður frá Eiöstorgi klukkan
18.45. Handhafar KR-klúbbsskírteina
fá fria rútuferö en aðrir greiða 500
krónur. Nauðsynlegt er að skrá sig
fyrir klukkan 18 hjá KR-klúbbnum á
Eiðstorgi.
Daninn Ebbe Skovdal, þjálfari
Bröndby, var í gær ráðinn fram-
kvæmdastjóri skoska úrvalsdeildar-
liösins Aberdeen. Skovdal gerði
tveggja ára samning við Aberdeen og
verður fjórði þjálfari liösins á síðasta
einu og hálfa ári.
Brian Laudrup tilkynnti í gær að
hann ætlaöi að hætta að leika með FC
Köbenhavn eftir tímabiliö aðeins 6
mánuðum eftir að hann gerði tveggja
og hálfs árs samning við félagið.
Laudrup sagði persónulegar ástæður
liggja að baki þessari ákvöröun en
ekki það að mikil vandræði hafa ver-
ið hjá félaginu innan sem utan vallar.
Sögusagnir hafa verið í gangi að
Laudrup sé á leið til franska liösins
Paris SG.
Þýski knattspymumaðurinn Thomas
Hássler gerði í gær tveggja ára
samning við 1860 Múnchen en hann
fékk ffjálsa sölu frá Dortmund.
Hássler er 32 ára gamall og gekk í
raðir Dortmund ffá Karlsruhe fyrir
nýliöið tímabil en fékk hins vegar fá
tækifæri með Dortmund á leiktíð-
inni.
Skotinn Colin Montgomerie tryggði
sér í gær sigur á breska PGA-mótinu
í golfí annað áriö I röð. Montgomerie
lék síðasta hringinn á 64 höggum eða
átta höggum undir pari vallarins.
Hann lék samtals á 270 höggum, 18
höggum undir parinu og varð fimm
höggum á undan Bretanum Mark
James sem lék á 275 höggum. t þriðja
sæti varð Paul Eales á 276 höggum.
ivar Jónsson, miðjumaðurinn öflugi
úr Fram, er
handarbrotinn
og missir af
næstu leikjum
liðsins í úrvals-
deildinni í knatt-
spymu. Þetta er
áfall fyrir Fram-
ara þvi ívar hef-
ur verið einn
lykilmanna þeirra í vor.
Alexander Högnason, fyrirliði ÍA,
missti af leik liösins viö Fram í gær-
kvöld vegna meiðsla.
FH sigraöi Fylki, 1-4, f Árbænum í
1. deild kvenna í knattspymu í gær-
kvöld. Hafnarfjaröarliöið hefur farið
vel af stað og unniö tvo fyrstu leiki
sína í deildinni.
ACMilan vann Bayem Múnchen,
3-2, í vináttuleik ítölsku og þýsku
meistaranna i Mainz í Þýskalandi í
gærkvöld. -GH/VS
„ Isbjörn “
Brynjar frábær meö Örgryte
Brynjar Bjöm Gunnarsson, lands-
liðsmaður í knattspymu, var kallað-
ur „ísbjöminn" í blaði í
Gautaborg í gær. Mikið
var fjallað um hann og
hversu mikill fengur
hann væri fyrir lið Ör-
gryte.
í gærkvöld átti hann
svo enn einn stórleikinn í
vöm Örgryte þegar liðið
vann Frölunda, 4-0, í átt-
unda umferð A-deildar-
innar og með sigrinum
náði Örgryte þriggja stiga
forystu í deildinni.
„Ég er ofsalega kátur með þessi
úrslit og næst er það landsleikurinn
gegn Armenum á laugardag. Ég
hlakka mikið til hans,“ sagði Brynj-
hann
Brynjar Björn Gunn-
arsson spilar mjög
vel með Örgryte.
ar við DV eftir leikinn en
flaug til íslands í morgun.
EinarBrekkan lagði upp
sigurmark Örebro sem
vann Trelleborg, 1-0.
Hann lék allan leikinn og
fékk góða dóma í sænska
sjónvarpinu.
Þórður Þórðarson var
varamarkvörður Norr-
köping annan leikinn í
röð þegar lið hans malaði
Gautaborg, 3-0.
Loks vann Djurgárden
sigur á Hammarby, 1-0.
Örgryte er efst með 18
stig en Helsingborg og Kalmar
koma næst með 15 og Halmstad og
Trelleborg era með 14.
-EH/VS
Joensen ekki til Leifturs?
GÍ vill milHónir
Litlar líkur eru á að færeyski
landsliðsmaðurinn Sámal Joensen
leiki með Leiftri í úrvalsdeildinni
i knattspymu í sumar.
Félag hans í Færeyj-
um, Gí frá Götu, hefur
ekki viljað gefa eftir fé-
lagaskiptin og vill fá
háar upphæðir frá
Ólafsfirðingum. Þær töl-
ur hafa ekki verið stað-
festar en samkvæmt
heimildum DV hafa
Færeyingamir krafist hátt í 10
milljóna króna fyrir Joensen.
Ljóst er að Leiftur fer ekki í slík
íjárútlát.
Leikmaðurinn sjálfur er mjög
óhress með félag sitt en hann taldi
sig hafa vilyrði fyrir því að fara til
Leifturs þrátt fyrir að vera samn-
ingsbundinn GÍ þetta
tímabil.
Leiftursmenn munu
vera að huga að leik-
manni í staðinn fyrir
Joensen. Leikmanna-
hópur þeirra er fulllít-
ill, ekki síst vegna þess
að Júlíus Tryggvason er
ekki fyllilega leikfær
vegna langvarandi meiðsla.
Leiftur mætir Keflavík í kvöld
og er það fyrsti leikur ársins í
Ólafsfirði. Völlurinn er loks leik-
fær en nokkuð blautur. -HJ/VS
San Antonio-Portland 2-0
- fyrsti ósigur Indiana í úrslitakeppninni
Þriggja stigakarfa frá Sean Elliott
tíu sekúndum fyrir leikslok tryggði
San Antonio Spurs sigurinn gegn
Portland, 86-85. Staðan að loknum
tveimur leikjum er, 2-0, fyrir San
Antonio en næstu tveir leikir fara
fram í Portland. Leikurinn í nótt var
æsispennandi en áður en fjórði leik-
hluti hófst var Portland með sjö stiga
forystu.
Hjá San Antonio var Tim Duncana
stigahæstur með 23 stig og Sean
Elliott gerði 22 stig. Sabonis skoraði
17 stig fyrir Portland og Stoudamire
16 stig.
New York vann fyrsta leikinn við
Indiana, 93-90, í úslitum Austurdeild-
ar NBA-deildarinnar. Leikurinn fór
fram á heimavelli Indiana í fyrrinótt
en þetta var fyrsta tap þeirra í úrshta-
keppninni í vetur og jafhffamt fýrsta
tap þeirra á heimavelli í úrslita-
keppni í 12 heimaleikjum. New York
hefur aftur á móti unnið 6 leiki í röð,
þar af 4 á útivelli.
Alan Houston var stigahæstur hjá
Knicks með 19 stig en næstir komu
þeir Patrick Ewing og LatreE, skor-
uðu 16 stig hvor. Hjá Indiana var
Reggie Miller atkvæðamestur með 19
stig og Antonio Davis skoraði 17 stig.
-JKS
KR borgar Fýlki
KR-ingar hafa greitt Fylkismönnum hátt í tvær milljónir
króna vegna félagaskipta Þórhalls Dan Jóhannssonar úr KR
yfir i Vejle í Danmörku fyrir tæpum tveimur árum.
Þórhallur Dan fór frá KR til Vejle í ágústbyrjun 1997 eftir
að hafa leikið í nokkra mánuði með vesturbæjarliðinu. Fylk-
ismenn töldu að þeir hefðu ekki fengið þann hlut af sölunni
sem þeim bar. Málið kom tO kasta félagaskiptanefndar KSÍ
sem úrskurðaði Fylki í hag og eftir nokkurt þóf hafa KR-ing-
ar nú gert upp við Árbæinga. -VS
Evrópumótið í snóker:
Þrír sigrar á mann
Jóhannes B. Jóhannesson hefur unnið þrjá af fjórum leikjum
sínum á Evrópumeistaramótinu í snóker sem nú stendur yfir í
Enschede í Hollandi. Hann tapaði sinum fyrsta leik í gær, 1-4,
fyrir Dermott McGlen en á undan vann hann góðan sigur á Jose
Pinto, 4-0.
Brynjar Valdimarsson vann í gær Reni Dikstra, 4-0, og hefur
unnið þrjá af fyrstu fimm leikjum sínum.
-VS
Watford í A-deildina
Watford tryggði sér í gær sæti í ensku A-deildinni í knattspymu
með því að leggja Bolton að velli, 2-0, í úrslitaleik á Wembley en
áður höföu Sunderland og Bradford unnið sér sæti í deild þeirra
bestu. Nick Wright skoraði fyrra markið á 38. mínútu og Allan
Smart það síðara á 87. mínútu. Eiður Smári Guðjohnsen lék allan
tímann með Bolton. Hann fékk tvö bestu færi liðsins í leiknum. í
fyrra skiptið skaut hann fram hjá af markteig og í seinna skiptið
varði markvörður Watford meistaralega gott skot hans. Guðni
Bergsson var alian tímann á varamannabekk Bolton en Jóhann B.
Guðmundsson var ekki í 14 manna hópi Watford. -GH
Æskilegt að hafa
þessi mál á hreinu
- segir Örn Magnússon hjá HSÍ
Eftirmáli leiks Islands og Sviss í
forkeppni Evrópumótsins í hand-
knattleik í Kaplakrika rennur ef-
laust öllum seint úr minni. íslend-
ingar stóðu í þeirri trú að þeir sætu
eftir en Sviss væri komið áfram.
Menn hefur fyrr greint á um reglu-
gerðir alþjóða handboltasambands-
ins og svo virðist sem þær séu ekki
nægilegar skýrar og því oft auðvelt
að mistúlka þær.
„Vissulega hefði það verið æski-
legt að vera með þessi mál á hreinu
fyrir leikinn gegn Sviss. Við vomm
bara svo vissir um að mörk skoruð
á útivelli myndu telja og aðrir
möguleikar vom ekki kannaðir. Það
má kannski segja að það hafi verið
mistök að gera það ekki. Staðreynd-
in er sú að á síðasta ári féllum við
út á markamun gegn Ungverjum og
í því dæmi var stuðst við hina svo-
kallaða 25% regla. Það er að segja
að lið, sem er í neðsta sæti, hefur
engin áhrif eins og Kýpur í þessu
tilfelli. Allir okkar reglugerðameist-
arar em búnir að vera með þessa
meinloku og það er ekki fyrr en eft-
ir leikinn í fýrrakvöld sem eftirlits-
dómarinn fer að velta þessu fyrir
sér og nefnir þetta við mig. í kjölfar-
ið fletti ég þessu upp og fer að leita
og þannig byrjaði þetta að rúlla. Það
er nefnilega setning í reglugerðinni
sem menn hafa ekki skilið rétt og
hún er á skjön við allt,“ sagði Öm
Magnússon, framkvæmdastjóri HSÍ,
í samtali við DV í gær.
Dæmi svipaðs eðlis hafa áður
komið upp. Er ekki brýnt að
skerpa línur og hafa reglumar á
hreinu í eitt skipti fyrir öll?
„Öryggið er alltaf að verða meira.
Reglugerðimar í handboltanum
hafa tekið miklum breytingum, sí-
fellt er verið að breyta keppnum og
þess háttar. Þessi keppni sem við
voram að taka þátt í er alveg ný af
nálinni og þetta ákvæði er því nýtt
og þess vegna var þetta ekki alveg á
tæra. Sem betur fer virðast þessi
mál vera að koma í betra form hjá
alþjóðahreyfingunni og Evrópusam-
bandinu. Maöur er því að vona að
losarabragurinn heyri brátt sög-
unni til,“ sagði Örn í samtalinu við
DV. -JKS
Dregið í Kaíró
-15. júní ræðst hver mótherjinn verður
Það kemur í ljós 15. júní hverjir
mótherjar íslenska landsliðsins í
handknattleik verða í undankeppni
Evrópumótsins en dregiö verður í
Kaíró meðan á heimsmeistara-
keppninni þar í landi stendur.
20 þjóðir verða í hattinum þegar
dregið verður, níu efstu þjóðimar
frá síðustu Evrópukeppni og ellefú
frá forkeppninni sem lauk sl.
sunnudag. Þjóðirnar 20 eru Spánn,
Þýskaland, Júgóslavía, Ungverja-
land, Frakkland, Danmörk, Noreg-
ur, Makedónía, Pólland, Slóvenia,
Úkraína, Island, Rúmenía, Portúgal,
Hvíta-Rússland, Ítalía, Tyrkland,
Georgía og Austurriki.
Leikið verður heima og heiman
og verða leikimir 11. september og
18. september. Þaö lið sem hefur bet-
ur í þessum viðureignum tryggir
sér sæti í úrslitakeppninni sem
verður í Króatíu í janúar á næsta
ári. -JKS
Watford mætir KR
- Elton John boðið að koma með
Graham Taylor, sem í gær leiddi
Watford upp í ensku A-deildina í
knattspymu, hefur gefið KR-ingum
munnlegt samþykki um að koma til
íslands helgina 10.—11. júlí og spila
gegn þeim á Laugardalsvellinum í
tilefni af 100 ára afmæli KR.
KR-ingar hafa boðið poppstjöm-
unni Elton John að koma með lið-
inu en Elton er stjórnarformaður og
„æviforseti" Watford.
Það var Ólafur Garðarsson, FIFA-
umboðsmaður, sem kom leiknum í
kring en hann hefur verið í góðu
sambandi við stjórnarmenn
Watford. -VS
- enginn kvöldgalsi í mönnum í 0-0 jafntefli Fram og ÍA í gær
Yfir tólf hundrað áhorfendur í Laugar-
dalnum í gærkvöldi voru líklega ekki
mættir á leik Fram og ÍA til að fá vöggu-
vísu fyrir svefninn en hafa líklega verið
jafnsyfjaðir eftir leik og eins og ef svo
hefði verið þegar þeir yfirgáfú Dalinn.
Liðin skildu jöfn, 0-0, í daufum leik og
besta nafnið yfir þá íþrótt sem menn spil-
uðu í gær er kannski svefnbolti.
Áhyggjur Skagamanna aukast nú með
hverjum leik. Þrátt fyrir aö vera öllu
sókndjarfari í gær vantar þá enn allan
höggþunga í sóknir liðsins þrátt fyrir að
lofa góðu, enda oftast í lausum skotum
eða þá engum skotum.
En sér Logi Ólafsson þjálfari leiö út úr
þessu ástandi hjá Skagamönnum?
„Þetta er vandamál sem við verðum að
vinna okkur út úr og það er leið út úr
þessu. Við verðum að halda áfram að
skapa okkur færi og fara að ýta boltanum
yfir línuna. Þetta
hefúr líka verið
erfið byrjun með
3 útileikjum gegn
sterkum liðum
en við erum með
sterk bein og lát-
um ekki bugast.
Það hlakkar
kannski í mörg-
mn yfir árangri
okkar en á Akra-
nesi þola menn
mikið þó að við
fjarlægumst okkar markmiö að vera við
toppinn þegar stigin hverfa í burtu frá
okkur,“ sagði Logi Ólafsson, þjálfari ÍA,
Skoruðu Skagamenn mörkin ?
- eitt mark í Qórum leikjum
Skagmenn höfðu fyrir sumarið í ár
aldrei skorað færri en 3 mörk í fyrstu
4. umferðunum í 10 liða efstu deild.
Þeir léku annan markalausan leik sinn
í röð í gær gegn Fram og hafa aðeins
gert 1 mark í fyrstu 4 leikjum mótsins.
Félagsmetið var áður 3 mörk í fyrstu 4
leikjum og það var síðan 1982. -ÓÓJ
við DV eftir leikinn.
Framarar eru enn taplausir en tilkoma
Hollendingsins Marcels
Oerlemans átti þó örugg-
lega að setja meira bit í
sóknarleikinn. Oerlem-
ans getur þó ekki verið
dæmdur af þessum leik
því lengstum var hann
áhorfandi. Hann var
hreinlega of framarlega
fyrir Framspilið sem
náði ekki þangað sem
Hollendingurinn dvaldi
lengstum. Hann sýndi
annars ágætistækni og
hefúr spilið í sér og var tvisvar nálægt því
að spila félaga sína í gegn.
„Það var ekki mikið bit í okkar leik.
Liðið var ekki að spila sérstaklega vel og
Hollendingiu’inn verður því ekki dæmdur
af þessum leik. Allt tekur sinn tíma en
við getum þó ekki verið áncegðir með að
gera bara jafiitefli,“ sagði Ásgeir Elías-
son, þjálfari Fram, eftir leik.
Tölfræði leiksins var heldur ekki
merkileg, hljóðaði upp á 13 skot, 5 hom
og 14 aukaspymur og taldist það þannig
til tiðinda þegar Skagamenn fengu sina
fyrstu aukaspymu á 40. mínútu leiksins.
Skaginn átti þau örfáu færi sem komu
í leiknum en takist þeim ekki að klára
sínar sóknir bíður þeirra ekkert annað en
basl í neðri hlutanum í sumar.
Þrátt fyrir að vera taplausir geta Fram-
arar heldur ekki verið sáttir. Upp á þeirra
leik vantar mikið og þeir geta ekki treyst
á lukku og jafntefli endalaust. -ÓÓJ
#9úrvalsdeild
ÍBV 3 2 1 0 7-1 7
KR 2 2 0 0 6-1 6
Fram 4 1 3 0 4-2 6
Breiðablik 3 1 l 1 3-2 4
Grindavík 3 1 1 1 3-3 4
Víkingur, R. 3 1 1 1 3-5 4
Keflavík 3 1 0 2 3-4 3
Leiftur 2 1 0 1 3-5 3
ÍA
Valur
4 0 2 2 1-4
3 0 12 1-7
Siöustu tvö sumur eru einsdæmi í
sögu ÍA í 10 liða efstu deild. Bæði
árin er Akranesliðið án sigurs eftir 4
fyrstu leikina en það hafði ekki áður
gerst á tuttugu sumrum liösins í 10
iiða efstu deild.
Framarar hafa ekki unnið Skaga-
menn á heimavelli síðan þeir voru
eina liðið til að vinna ÍA 1993. Síöan
þá hafa liðin leikið 7 deildarleiki í
Reykjavík og hafa Skagamenn unnið
4 af þeim og þrisvar hafa liðin skilið
jöfn.
Fjórir leikir fara fram i kvöld.
Breiðablik-ÍBV, Grindavík-KR, Val-
ur-Vikingur og Leiftur-Keflavík og
hefjast allir leikimir klukkan 20.00.
-ÓÓJ
Tommi traustur
Tómas Ingi Tómasson átti stóran þátt í
sigri AGF á AB, 3-1, í dönsku A-deildinni í
knattspymu í gær. Tómas Ingi lagði upp tvö
fyrri mörk Árósaliðsins, sem lyfti sér um
eitt sæti, upp í það níunda. Þegar tvær
umferðir era eftir getur AGF enn náð 5.
sæti deildarinnar. Tómas Ingi og Ólafur H.
Kristjánsson léku báðir allan leikinn með
AGF. -VS
FRAM0 - IAO
FRAM:
Ólafur Pétursson - Ásgeir Halldórsson, Jón Þ.
_________ Sveinsson, Sævar Pétursson - Freyr Karlsson,
Steinar Guðgeirsson Marcel Oerlemans, Ágúst Gylfason, Anton
Bjöm Markússon (Eggert Stefánsson 83.) - Valdimar K. Sigurðsson
(Halldór Hilmisson 62.), Ásmundur Amarsson (Haukur S. Hauksson
62.) Gult spjald: Sævar P.
Ólafur Þór Gunnarsson - Sturlaugur Haraldsson,
Reynir Leósson @, Gunnlaugur Jónsson, Kristján
Jóhannsson @ - Kári Steinn Reynisson (Baldur Aðalsteinsson 83.),
Pálmi Haraldsson, Jóhannes Harðarson @, Heimir Guðjónsson,
Jóhannes Gíslason - Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Gul spjöld: Kári Steinn og Jóhannes H.
Fram-ÍA Fram - ÍA
Markskot: 5 8 Völlur: Ágætur.
Horn: 1 4 Dómari: Bragi Bergmann.
Áhorfendur: 1.221 Enn slakari en liðin.
Maður leiksins: Steinar Gudgeirsson, Fram.
Vann vel og var nánast eini Frammarinn með lífsmarki.