Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1999, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999
Keppt verður í orfaslætti á sveita-
hátíðinni.
Sveitahátíð
áSelfossi
í gær hófst á Selfossi sveitahá-
tíð sem stendur til sunnudagsins
11. júlí. Þetta er í annað skipti
sem slík hátíð er haldin á Selfossi
og nú sem fyrr á vegum Sumars á
Selfossi. Dagskráin er fjölbreytt
og hófst á fostudeginum með bú-
vélasýningu frá Búvélum sem
stendur til sunnudags. Tívolí og
leiktæki frá voru sett upp í gær. í
dag kl. 13-17 verða aðalhátíðar-
Skemmtanir Sníoí
----------------fara þau
fram á túninu gegnt Fossnesti.
Þar verður dýragarður og hesta-
leiga i gangi allan daginn. Kl.
14.00 hefst skemmtidagskrá á því
að heiðurgesturinn Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra kemur
akandi á fornri dráttarvél á svæð-
ið með sláttumennina og kaupa-
konurnar í skrúðgöngu. Þá hefst
íslandsmeistaramót í orfaslætti
og mun hver sláttumaður slá af-
markað svæði. Veitt verða vegleg
verðlaun, m.a. Eylandsljárinn.
Knásta kaupakonan verður síðan
valin úr hópi þeirra kvenna sem á
eftir fara og raka og binda á klakk
upp á gamla mátann og fær hún
hinn eftirsóknarverða hrífubikar.
Á morgun er íslenski safnadag-
urinn í Árborg og þá verður mik-
ið um að vera á söfnum sveitarfé-
lagsins. Dagskráin er fjölbrcytt og
mun m.a. fara fram í Rjómabúinu
á Baugsstöðum, í Þuríðarbúð á
Stokkseyri, í Húsinu og á Sjó-
minjasafninu á Eyrarbakka og í
Listasafni Árnesinga.
FornbOar
á Árbæjarsafni
Hin árlega sýning Fornbíia-
klúbbs íslands og Árbæjarsafns
verður á morgun kl. 13-17. Bílun-
um verður ekið inn á safnsvæðið
kl. 13 og mun þeim síðan verða
stillt upp við gömlu húsin í safn-
inu. Elstu bílamir eru frá því
snemma á þriðja áratugnum og
verða eigendur bílanna á staðnum.
Þeir ræða við gesti og svara fyrir-
spurnum. Jafnvel verður einn gam-
—»—;--------all vörubíll í ferð-
Utivera um um safnsvæðið
------------og gefst þá gestum
tækifæri til að fara rúnt um safn-
svæðið á vörubílspaili.
Að venju verður heitt á könn-
unni í DÚlonshúsi og handverks-
fólk verður við iðju sína i ýmsum
húsum. Ágústa og Snæbjörg verða
á baðstofuloftinu í Árbæ við
prjónaskap og roðskógerð og Stein-
ar Axelsson hnýtir net við Ný-
lendu. Við Kornhús verða ýmis
leiktæki fyrir börnin, meðal annars
kassabilar, sippubönd, húlahringir
og skeljar og í safnbúðinni verður
kynning á rósaleppaprjóni frá
Fitjakoti kl. 13-17.
dagsönn & ■
Bjart veöur austanlands
Veðriö kl. 12 á hádegi í gær:
Suðvestan 8-13 m/s og skúrir
vestan til á landinu en víða bjart
veður austanlands. Hiti 10-20 stig,
hlýjast norðaustanlands.
Sólarlag í Reykjavík: 23.39
Sólarupprás á morgun: 3.28
Síðdegisflóð í Reykjavík: 16.08
Árdegisflóð á morgun: 4.34
Akureyri skýjað 15
Bergsstaðir skýjað 14
Bolungarvík skýjað 14
Egilsstaðir 16
Kirkjubœjarkl. rigning 11
Keflavíkurflv. skýjað 11
Raufarhöfn moldr. eða sandf. 18
Reykjavík súld á síð. kls. 11
Stórhöfói súld 10
Bergen léttskýjað 19
Helsinki hálfskýjað 23
Kaupmhöfn léttskýjað 23
Ósló léttskýjaö 25
Stokkhólmur 26
Þórshöfn skýjað 11
Þrándheimur úrkoma í grennd 14
Algarve þokumóða 23
Amsterdam skýjaö 21
Berlín léttskýjaó 23
Chicago þokumóöa 24
Dublin léttskýjað 25
Halifax léttskýjað 17
Frankfurt skýjað 22
Hamborg léttskýjað 24
Jan Mayen þoka 6
London skýjað 23
Lúxemborg hálfskýjað 23
Mallorca léttskýjað 20
Montreal heiðskírt 18
Narssarssuaq alskýjaö 7
New York skýjaö 24
Orlando þokumóóa 26
París léttskýjaö 25
Veðríð í dag
Marlene Dietrich í tali og tónum í Kaffileikhúsinu:
Blái engillinn
Sif Ragnhildardóttir syngur lög Marlene Dietrich.
:
IHún var talin ein kynþokka-
fyllsta kona aldarinnar - fagur-
skapaðir fótleggir hennar, tælandi
röddin og jafnvel kinnbeinin
komu róti á hug og hjarta karl-
manna um víða veröld; hún fékk
blóðið til að þjóta örar um æðar
ráðherra í ríkisstjóm íslands í
Trípólibiói, fékk virðulega gagn-
rýnendur til að reyta hár sitt af
!S hrifningu á Signubökkum, banda-
ríska hermenn til að gleyma ógn-
um stríðsins á vígvöllunum: Hún
hét Marlene Dietrich.
Annað kvöld mun Sif Ragnhild-
ardóttir flytja nokkur frægustu lög
Marlene í KafFileikhúsinu - eins
Skemmtanir
og henni einni er lagið. Um undir-
leik sjá tónlistarmennirnir Jó-
hann Kristinsson og Tómas R.
Einarsson. Serimóniumeistari og
kynnir kvöldsins er Arthúr Björg-
vin Bollason en hann mun á sinn
Sþjóðkunna hátt fjalla um ævi Mar-
lene sem, eins og allir vita, var
ákaflega viðburðarík. Sif hefur við
nokkur tækifæri heiðrað minn-
ingu Marlene með því að syngja
nokkur helstu lög hennar við frá-
bærar undirtektir. Flutti hún dag-
skrá þessa i KafFileikhúsinu 1. maí
við mikla hrifningu og á hana
mættu allnokkrir erlendir þýsku-
mælandi gestir sem voru stór-
hrifnir. Skemmtunin hefst kl. 21.
Áður er boðið upp á ljúffengan
kvöldverð.
Dauðasveit Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði
Omar Einarsson feikur á Jóm
frúnni, úti eða inni, eftir því hvern-
ig viðrar.
Sumardjass á
Jómfrúnni
Djasstónleikaröð veitingahúss-
ins Jómfrúarinnar við Lækjar-
götu heldur áfram í dag kl. 16. Á
sjöttu tónleikunum kemur fram
tríó gítarleikarans Ómars Einars-
sonar. Með Ómari leika að þessu
sinni Sigurður Flosason, saxó-
fónn, og Jón Rafnsson, bassi. Tón-
leikarnir fara fram utandyra á
Jómfrúartorginu ef veður leyfir,
annars inni á Jómfrúnni. Aðgang-
ur er ókeypis.
Tónleikar á Kirkjulistahátíð
Á morgun kl. 20.30 heldur þýski
organistinn Gúnter Eumann tón-
leika í Hallgrímskirkju. Tónleik-
ar þessir eru sjöttu tónleikar *
Kirkjulistahátíðar 1999. Á efnis-
skránni eru Prelúdía og fúga í C-
dúr eftir Johann Sebastian Bach,
Koma drottningarinnar af Saba
úr óratóríunni Solomon eftir Ge-
org Friedrich Handel, Fantasía í
A-dúr eftir César Franck, Átta
stutt verk eftir Sigfrid Karg-Elert,
Söngur um frið úr Níu verkum
eftir Jean Langlais og Toccata
russica eftir Georgi Alexander
Muschel.
Gúnter Eumann stundaði nám
í kirkjutónlist, stærðfræði og *
heimspeki í---------------------
Köln. Hann Tónleikar
starfar sem yfir-_______________
maður orgel- og klukknaspils-
deildar Evangelísku kirkjunnar í
Rínarlöndum auk þess sem hann
kennir stærðfræði og tónlist í
menntaskóla. Hann hefur unnið
við Vesturþýska útvarpið í Köln
auk þess sem hann hefur komið
fram sem organisti víða um lönd.
Sumartónleikar í Stykkishólmi
Á morgun kl. 17 verða haldnir
þriðju tónleikarnir í árlegri sum-
artónleikaröð. Nú er röðin komin
að Guðrúnu Jóhönnu Jónsdóttur
sópran og Guðríði St. Sigurðar- ^
dóttm- píanóleikara. Guðrún Jó-
hanna er ung og upprennandi
söngkona sem um þessar mundir
dvelur í London við nám og störf.
Guðrún St. Sigurðardóttir píanó-
leikari hefur komið víða fram á
tónleikum í Bandarikjunum,
Þýskalandi, Sviss og á flestum
Norðurlandanna, ýmist sem ein-
leikari eða með öðrum tónlistar-
mönnum. Hún er píanókennari
við Tónskóla Sigursveins og Tón-
listarskólann í Reykjavík. Á efnis-
skránni eru eingöngu íslensk og
spænsk verk, verk eftir íslensku
tónskáldin Pál ísólfsson, Sigvalda
Kaldalóns, Sigfús Iiinarsson og
Jón Þórarinsson auk verka eftir
Manuel de Falla, Guridi, Montes- ''
alvatge og Turina.
Gengið
Almennt gengi LÍ 09. 07. 1999 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 75,190 75,570 74,320
Pund 116,790 117,390 117,600
Kan. dollar 51,100 51,410 50,740
Dönsk kr. 10,2960 10,3520 10,3860
Norsk kr 9,4460 9,4980 9,4890
Sænsk kr. 8,7870 8,8350 8,8190
Fi. mark 12,8802 12,9576 12,9856
Fra. franki 11,6749 11,7451 11,7704
Belg. franki 1,8984 1,9098 1,9139
Sviss. franki 47,6700 47,9300 48,2800
Holl. gyllini 34,7516 34,9604 35,0359
Þýskt mark 39,1560 39,3913 39,4763
it. lira 0,039550 0,03979 0,039870
Aust. sch. 5,5655 5,5989 5,6110
Port. escudo 0,3820 0,3843 0,3851
Spá. peseti 0,4603 0,4630 0,4640
Jap. yen 0,613500 0,61720 0,613200
Irskt pund 97,239 97,824 98,035
SDR 99,640000 100,24000 99,470000
ECU 76,5800 77,0400 77,2100
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 ^