Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Blaðsíða 16
16
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ1999
-------------nmmm------------
Jóhann Páll Valdimarsson var andvaka og grúskaði á Netinu:
Ferðalagid ódýrara
- tilboð á vefnum í ferðir, gistingu og bílaleigubíl
„Ég er nýkominn frá Frakklandi
og nú ætla ég aö fara til Mílanó og
vera við Gardavatnið í viku. Ég sá
allt sem tengist þessum ferðum og
pantaði á Netinu,“ segir Jóhann
Páll Valdimarsson, starfsmaður hjá
Máli og menningu. Jóhann er einn
þeirra sem nýta Netið mjög mikið
þegar kemur að ferðalögum. „Ég er
í netklúbbi Flugleiða og þar eru
mörg tilboð á ferðum. Það eru lausu
sætin í vélunum hjá þeim en mér
flnnst mjög gott verð á þeim auk
þess að oft fær maður að vita þetta
með góðum fyr-
irvara. Ég hélt fyrst að fyrirvarinn
væri mjög lítill en þarna er oft eins
til tveggja vikna fyrirvari, t.d. viku
fyrirvari fyrir Mílanó-ferðina. Ég
var samt nýkominn frá Frakklandi
þannig að ég ætlaði ekki að fara
neitt meira í sumar. Mér leist rosa-
lega vel á ferðina en fyrst ætlaði ég
ekki að fara neitt.
Gat ekki sofnað
Svo náði ég ekki að sofna eitt
kvöld þannig að ég fór upp og
kveikti á tölvimni
til að skoða svæðið
i kringum Mílanó
á Netinu. Þegar ég
fór að sofa var ég
búinn að leita eft-
ir tilboðum frá
nokkrum hótel-
um við Garda-
vatnið og athuga
með bílaleigubíl.
Svo vaknaði ég
um morguninn
og þá voru
nokkur hótel
búin að
svara. Ég ákvað að panta gistingu í
gömlum kastala á svæðinu og nótt-
in kostaði með hálfu fæði 5000 krón-
ur fyrir okkur hjónin. Sjálf ferðin
kostar 16.000 krónur en dýrasta far-
gjald til Egilsstaða er um 15.000
krónur þannig að ekki er þetta dýrt.
Við hjónin ákváðum að skella okk-
ur, þetta var of freistandi til þess að
sleppa því,“ segir Jóhann Páll.
Ferða-
forrit
„Ég pant-
aði forrit á
geisladisk
sem heitir
Autoroad
Euroupa.
Forritið sýnir
alla Evrópu
og er með kort
af öllu svæðinu.
Þetta hjálpar
manni að ferðast.
Maður slær
bcira inn upp-
hafsstað og á
stetnir a,
hvaða stöðum stoppað er á og hvað
maður vill stoppa lengi á hverjum
stað. Forritð flnnur þá bestu leiðina
og segir upp á hár hvemig er best
að ferðast. Hægt er að prenta út kort
og texta sem gerir þetta nokkurn
veginn imbahelt. Ég sló inn leiðina
frá MOanó tU Gardavatnsins og þá
kom tölvan með kort af leiðinni og
sagði í texta hvað ég ætti að fara
langt á hverjum vegi. Það er ekki
hægt að klúðra þessu. Ég athugaði
með að láta discount-taxi (afsláttar-
leigubíll) frá MUanó keyra okkur
fram og tU baka en það var ódýr-
ara að taka bílaleigubíl. Ég
fann hann auðvitað á Netinu,"
segir Jóhann.
„Ég hef aldrei lent í neinum
vandræðum með neitt af
þeim ferðum sem ég hef
pantað af Netinu. Ég nota
líka Netið til þess að
lesa mér til um
stað-
ina og sögu þeirra. Ég panta líka
bækur um staðina af Netinu. Frakk-
landsferðin sem ég fór í síðast var
mjög skemmtileg. Ég var rétt hjá
landamærum Spánar og Frakklands
og er þetta einn skemmtilegasti
hluti Frakklands. Ég hafði pantað
gistinguna á Netinu en ég fór líka á
veitingastaöi sem ég hafði lesið um
og séð á Netinu. Það eru mörg
skemmtileg svæði sem ekki eru inn-
an alfaraleiðar en eru mjög
skemmtileg engu að síður. Það er
enginn vandi orðið að skoða svæði
sem þessi auk þess að hægt er að
panta gistingu og fleira í gegnum
Netið.
Margir ferðaklúbbar
Ferðaklúbbar á Netinu eru mjög
margir og ég. er meðlimur í net-
klúbbi Flugleiða. Ég er lika i ferða-
klúbbi í New York sem er gríðar-
lega stór. Þar er hægt að nálgast tU-
boðsferðir margfalt ódýrara heldur
en boðið er hér heima. Ef maður
fær póst frá netklúbbi Flugleiða og
þar er ódýrt flug tU New York get
ég athugað heimasíðu ferða-
klúbbsins i New York og fundið
góð tflboð. Þar er ávaUt mikið
af ódýrum ferðum hingað og
þangað, t.d. er hægt að fara í
mjög ódýra skemmtisiglingu á
Karíbahafinu. Allt snýst þetta
um að reyna að fá fólk tU þess
að panta í rými sem ekki hef-
ur selst og því er oft útsölu-
i ■ verð,“ segir Jóhann PáU
- EIS
Jóhann Páll Valdimarsson
notar Netið mikið þegar
hann ferðast. Hann er ný-
kominn frá Frakklandi en
hann skipulagði alla þá
ferð í gegnum Netið.
Núna er hann að fara til
Ítalíu og allt sem tengist
ferðinni hefur hann
pantað í gegnum Net-
ið. DV-mynd E.ÓI.
Tilboð I allt ferða-
tengt á Netinu
Flugfargjöld eru ódýrust þegar pantað er í gegnum Netið. Samt þarf að panta
með skömmum fyrirvara sem hentar ekki öllum.
Ferðaskrifstofum á Internetinu
hefur tjölgaö gríðarlega undanfarin
ár. Margar ferðaskrifstofur starfa
eingöngu á Netinu og margar stórar
eru famar að færa sig mikið inn á
Netið. Ferðir sem ekki seljast eru
oft boðnar netverjum á margfalt
lægra verði heldur en almennt er en
oft er skammur fyrirvari til þess að
panta. Flugleiðir er með sér net-
klúbb þar sem meðlimir fá tölvu-
póst með ýmsum tilboðum. Um er
að ræða sæti sem ekki er búið
að panta í og eru þetta oft ekki
skipulagðar ferðir. Ekki þarf að
borga neitt fyrir að vera í
klúbbnum en þaö þarf að skrá
sig á Netinu.
íslensk
netferðaskrif-
stofa
íslensk ferðaskrifstofa,
Norðurferðir, starfar eingöngu
á Netinu. Hóf ferðaskrifstofan
starfsemi fyrir rúmum tveimur
árum. Var upphaflega hug-
myndin sú að sameina allt í
sambandi við stangveiði á einn stað
en það hefur undið upp á sig og er
nat.is risavefur með á milli fimm til
sex þúsund síður. Vefurinn hefur
allar ferðaupplýsingar um allt sem
tengist ferðalögum á íslandi. Hægt
er að velja bæjarnöfn og þar kemur
upp allt sem tengist bænum. Tökum
Vestmannaeyjar sem dæmi. Ef valið
er Vestmannaeyjar koma upp ýms-
ar valmyndir eins og hótel, afþrey-
ing, söfn og hvað eina sem kemur
Eyjum við. Einnig er hægt að fá
upplýsingar um allar ferðir til og
frá Eyjum hvort sem er með flugvél
eða Herjólfi. Hægt er að nálgast
tímaáætlanir auk þess að hægt er
að bóka flug.
Tilbúnar
ferðaáætlanir
Nat.is er einnig á ensku. Hægt er
að panta flug með Flugleiðum í
gegnum Netið hvaðan sem menn
eru. Það er hægt að nálgast ferðaá-
ætlanir fyrir útlendinga og t.d. er
hægt að finna áætlun um hvemig
hægt sé að keyra hringveginn á 10
dögum. Dögunum er lýst og hvað sé
hægt að gera á hverjum degi. Hægt
er að finna ýmsa afþreyingarmögu-
leika á Netinu og fólk erlendis get-
ur pantað ýmsa afþreyingu ásamt
gistingu í gegnum tölvupóst.
„Hundruð heim-
sókna daglega"
„Við fáum mörg hundruð manns
daglega í heimsókn á síðurnar okk-
ar. Sumir eru bara að forvitnast
meðan aðrir gera heilu ferðaáætlan-
imar og panta feröir, gistingar og
fleira,“ segir Birgir Sumarliðason.
„Hægt er að fá kort af öllum stöðum
og fólki er ráðlagt hvaða beita virk-
ar best í hverju vatni, svo nákvæm-
ur er vefurinn. Þetta er samt í þró-
un og margt á eftir að verða enn
betra. Við eram komnir með til-
boðssíðu þar sem mörg fyrirtæki
bjóða upp á ferðir, þjónustu og ýms-
ar vörar á mjög góðum kjörum. Viö
höfum allt sem til þarf á síðunni
okkar. Fólk þarf bara að fara á
www.nat.is og þar er hægt að finna
allt sem tengist ferðamálum," segir
Birgir, sem ætlar sér stóra hluti
með Veflnn í framtíðinni. -EIS
_iðHriBBnvm
Frá Mývatni.