Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
Fréttir
Ekið yfir höfðalag
fólksins í tjaldi
- bílför upp á mæni - níðingsverk segir eigandinn, lögfræðingur í Reykjavík
„Ég fór með sambýliskonu minni,
bróður hennar og eiginkonu og
bömum þeirra að Hítarvatni um
helgina í veiðiferð. Klukkan um ell-
efu á laugardagskvöldið bragðum
við okkur niður að vatninu því veö-
ur hafði lægt en mjög hvasst hafði
verið og erfitt að stunda veiðar. Þeg-
ar við komum til baka brá okkur í
brún því það var búið að aka yfir
tjaldið okkar,“
sagði Þórir
Hallgrímsson,
lögfræðingur í
Reykjavík, við
DV.
Þórir sagðist
líta þennan at-
burð mjög al-
varlegum aug-
um þar sem bíl
hefði hreinlega
verið ekið yfir
tjaldið þar sem
höfðalagið var. Tjaldið var stutt frá
veginum sem liggur að vatninu við
merkt tjaldstæði.
„Ef við hefðum legið þama sof-
andi værum við bara dauð. Bílnum
var ekið yfir koddana okkar. Þetta
er grafalvarlegt mál og níðings-
verk,“ sagði Þórir sem hafði sam-
band við lögregluna í Borgamesi.
Þórir
Hallgrímsson.
Reynt var að reisa tjaldið við eftir að ekið hafði verið yfir það. Súlurnar
voru hins vegar brotnar þar sem höfðalag fólksins var.
Ekki er ólíklegt að bílstjórinn sem
ók yfir tjaldið hafi verið ölvaður.
„Það vom bílfor upp á miðjan
mæni á tjaldinu," sagði Þórir.
„Þetta er með ólíkindum." Við hírð-
umst í tjaldinu um nóttina í rign-
ingunni þrátt fyrir að tjaldsúlurnar
væra brotnar og tjaldið hálffallið.
Hann sagði það hafa verið mikla
guðs lukku að dóttir hans, 10 ára,
hefði ekki verið með í fór því þá
hefðu þau að líkindum verið geng-
in til náða með barninu og legið á
koddunum sem keyrt var yfir.
Þórir sagði að þessi atburður
yrði vonandi öðram víti til varnað-
ar, ekki síst um verslunarmanna-
helgina.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
um málið era beðnir að snúa sér til
lögreglunnar i Borgamesi. -Ótt
Ófyrirleitnir náungar við Sportleiguna hjá BSÍ:
Rukka túrista fyrir aö
sofa í sýningartjöldum
Ég mætti óvenjusnemma í gær-
morgun og þá kom ég að þýsku pari
sofandi í einu sýningartjaldanna á
túninu hjá okkur,“ sagði Jón Halldór
Baldvinsson, verslunarstjóri í Sport-
leigunni gegnt Umferðarmiðstöðinni í
Reykjavík, en þar stendur fjöldi sýn-
ingartjalda allan sólarhringinn. „Það
er svo sem alvanalegt að fólk skríði
inn í tjöldin okkar og sofi þar en þetta
þýska par staðhæfði að það hefði
borgað einhverjum mönnum leigu fyr-
ir fjaldstæðið og tjaldið, 450 krónur á
mann. Það hafa ekki verið menn á
okkar vegum,“ sagði Jón Halldór sem
er reyndar vanur því að þurfa að
smala út úr tjöldunum á morgnana.
Oft eru það þá menn sem hafa ekki
komist lengra vegna ölvunar á leið
sinni af öldurhúsum borgarinnar. Þá
segir Jón Halldór að vinsælt sé að
borða í tjöldunum þegar hvasst er.
„Það er veitingasala hjá BSÍ allan
sólarhringinn og þegar eitthvað er að
veðri fyllast tjöldin okkar um miðjar
nætur af hamborgaraætum með sósu.
Jón Halldór við sýningartjaldið sem leigt var út að honum forspurðum.
Umgengnin er þá ömurleg. Ferða- mönnum fé fyrir að sofa í sýningar-
mennimir eru miklu snyrtilegri,“ tjöldunum. Ef fólk þurfi endilega að
sagði Jón Halldór í Sportleigunni og sofa í þeim þá sé það ókeypis. -EIR
varar fólk við að greiða ókunnugum
Dagfari kveður
Nú munu vera um sautján ár síðan
Dagfari hóf göngu sína hér í þessu
blaði fjórum sinnum í viku, sumar
vetur, vor og haust. Aldrei hefur
skort efni til að vinna úr, enda hafa
þjóðfélagsþegnar af hvers konar tagi
verið svo vinsamlegir að gefa Dagfara
sífellt tilefni til útlegginga og útskýr-
inga á hegðan þeirra og oröum. Eink-
um hafa stjómmálamenn verið dug-
legir að rétta fram höndina og stund-
um hefur það þurft frekari túlkunar
við sem frá þeim hefur komið og hef-
ur Dagfari aðstoðað við þá túlkun til
að almenningur gæti skilið hvað fyr-
ir stjómmálamönnunum vakir.
Raunar hafa miklu fleiri komið hér
við sögu enda litrík flóran í þjóðfélagi
endalausra illdeilna, flókinna mála-
ferla, skapríkra viðmælenda og há-
leitra hugsjóna. Dagfari hefur lagt út
af þessum mannlegu samskiptum
með því einu að segja frá þeim og ef
einhverjum lesendum hefur fundist
sá málatilbúnaður vera til þess fall-
inn að afskræma viðmælendur, mál-
flutning eða athafiiir þeirra i þeim til-
gangi að stílfæra framlög þeirra sem hlut eiga að
máli þá er sá granur á misskilningi byggður.
Sannleikurinn er sá að alvaran í þjóðfélaginu er
oftast miklu fyndnari heldur en það grín sem gert
er að þeim sem taka sjálfa sig hátíðlega.
Satíran verður aldrei eins skemmtileg og raun-
veraleikinn og spéspegillinn sýnir aldrei annað
en það sem stendur fyrir framan hann. Spegill
skops og skens gerir það eitt að leyfa þeim ein-
staMingi sem stendur fyrir framan spegilinn að
sjá sjálfan sig í réttu ljósi og leyfa öðr-
um að taka þátt í þeim gamanleik.
Enda má fullyrða að Dagfari hafi
verið sárameinlaus í skrifúm sínum
og sjaldan eða aldrei fengið ákúrur
eða ákærur um meiðyrði eða æra-
spjöll. Dagfari hefur einasta verið
hluti af fréttadeild DV þar sem nauð-
synlegt hefur verið talið að útskýra
fréttaefni á annan og einfaldari hátt
heldur en unnt er aö gera í viðtölum
og frásögnum af fréttunum sjálfum.
Þetta hefur hjálpað mörgum mann-
inum til að koma boðskap sínum á
framfæri á skiljanlegan máta og enn
fremur hefur það létt lesendum róð-
urinn til að greina kjamann frá hism-
inu.
Nú hefur verið horfið frá þessari
fréttaskýringu blaðsins. Þar ræður
aukin hagræðing og sparnaður, enda
skilja lesendur blaðsins vonandi að
grínaktug skrif verða að mæta af-
gangi þegar alvaran blasir við. Það
getur verið dýrt að vera fyndinn á
kostnað þeirrar alvöra sem gefur til-
efni til fyndninnar, sérstaklega þegar
lesendur skilja ekki fyndnina í alvöranni.
DV og Dagfari hafa átt samleið í sautján ár. Nú
er þeirri sambúð lokið. Dagfari þakkar fyrir sig.
Dagfari
Legið í Finni
Mikið er spáð í það hver verði
formaður nýrra samtaka atvinnu-
rekenda. Enn er leitað logandi
ljósi að mögulegum leiðtoga en
ófáir hafa afþakkaö boð um að
setjast í hásætið.
Samsæri og plott
lifa góðu lífi bak
við tjöldin. Sand-
kom hefur fregn-
að að nú sé legið í
Finni Geirssyni,
forstjóra Nóa-Sír-
íusar, að taka
starfið að sér og
svars beðið með
eftirvæntingu. í þessu sam-
bandi er rétt að geta efasemda og
þess viðhorfs sem mun vera ofar-
lega í hugum margra atvinnurek-
enda að stofnun nýju samtakanna
sé ári of snemma á ferðinni. Betra
hefði verið að keyra í gegnum
kjarasamningaviðræður næsta
árs með gömlu naglana í brúnni.
Er þá óttast að óreyndari menn
veiti harðjöxlum verkalýðsforyst-
unnar ekki nægilegt viðnám...
r
I hverjum koppi
Talið er að feðgarnir Ásgeir
Guðbjartsson og Guðbjartur
Ásgeirsson, skipstjóri á þýska
togaranum Guðbjörgu, áður ÍS 46,
ætli sér að stofna til útgerðar.
Guðbjartur er sagð-
ur vansæll undir
útgerð hinna her-
skáu Samherja-
manna og gamli
sægreifinn mun
ekki par ánægður
með þá niður-
stöðu að senda
hið stolta fley
Guðbjörgu úr
landi. Þaö kemur því ekki á óvart
að ekki kemur sá togari til ísa-
fjarðar að feðgamir mæti ekki til
að skoða. Um helgina sást til
þeirra um borð í „tappatogaran-
um“ Lómi BA ...
Alftafell
Ekkert bólar enn á þeirri lög-
reglurannsókn sem Svanur Guð-
mundsson, forstjóri Básafells,
boðaði að yrði vegna fundargerð-
ar félagsins sem DV birti. Svanur
er þó ekki iðjulaus
því hann stendur í
stórhreingeming-
um hjá Básafelli
og rekur þá sem
hann telur að
standi í vegi fyrir
áformum um
betri rekstur.
Gárungar vestra
segja að stutt sé í
nafnbreytingu hjá félaginu sem
verði nefnt eftir Svani og heiti þá
Álftafell...
Skammfylking?
Þaö era erfið efth'köstin af fæð-
ingu Samfylkingarinnar og ekki
sér fyrir endann á því ævintýri.
Samkvæmt nýjustu skoðanakönn-
unum er gjömingurinn ekki væn-
legur til langlífis þó
Ágúst Einarsson
og fleiri þungavigt-
armenn þar á bæ
blási í lúðra og
boði stofnun
stjómmálaflokks
hið fyrsta. Þrálát
leiðtogavand-
ræði standa
Fylkingunni fyrir þrifúm og
óljóst hver verður ofan á: Ingi-
björg Sólrún, Jón Baldvin , sem
margir kratar rennar enn hýra
auga til, eða jafnvel einhver allt
annar. Andstæðingar fagna því
auðvitað þegar hver Samfylkingar-
höndin virðist upp á móti annarri.
í herbúðum andstæðinganna þykir
mönnum réttneftii Fylkingarinnar
og það sem skráð verði í annála
vera Skammfylkingin...
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkom @ff. is