Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999 Fréttir Ekið yfir höfðalag fólksins í tjaldi - bílför upp á mæni - níðingsverk segir eigandinn, lögfræðingur í Reykjavík „Ég fór með sambýliskonu minni, bróður hennar og eiginkonu og bömum þeirra að Hítarvatni um helgina í veiðiferð. Klukkan um ell- efu á laugardagskvöldið bragðum við okkur niður að vatninu því veö- ur hafði lægt en mjög hvasst hafði verið og erfitt að stunda veiðar. Þeg- ar við komum til baka brá okkur í brún því það var búið að aka yfir tjaldið okkar,“ sagði Þórir Hallgrímsson, lögfræðingur í Reykjavík, við DV. Þórir sagðist líta þennan at- burð mjög al- varlegum aug- um þar sem bíl hefði hreinlega verið ekið yfir tjaldið þar sem höfðalagið var. Tjaldið var stutt frá veginum sem liggur að vatninu við merkt tjaldstæði. „Ef við hefðum legið þama sof- andi værum við bara dauð. Bílnum var ekið yfir koddana okkar. Þetta er grafalvarlegt mál og níðings- verk,“ sagði Þórir sem hafði sam- band við lögregluna í Borgamesi. Þórir Hallgrímsson. Reynt var að reisa tjaldið við eftir að ekið hafði verið yfir það. Súlurnar voru hins vegar brotnar þar sem höfðalag fólksins var. Ekki er ólíklegt að bílstjórinn sem ók yfir tjaldið hafi verið ölvaður. „Það vom bílfor upp á miðjan mæni á tjaldinu," sagði Þórir. „Þetta er með ólíkindum." Við hírð- umst í tjaldinu um nóttina í rign- ingunni þrátt fyrir að tjaldsúlurnar væra brotnar og tjaldið hálffallið. Hann sagði það hafa verið mikla guðs lukku að dóttir hans, 10 ára, hefði ekki verið með í fór því þá hefðu þau að líkindum verið geng- in til náða með barninu og legið á koddunum sem keyrt var yfir. Þórir sagði að þessi atburður yrði vonandi öðram víti til varnað- ar, ekki síst um verslunarmanna- helgina. Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið era beðnir að snúa sér til lögreglunnar i Borgamesi. -Ótt Ófyrirleitnir náungar við Sportleiguna hjá BSÍ: Rukka túrista fyrir aö sofa í sýningartjöldum Ég mætti óvenjusnemma í gær- morgun og þá kom ég að þýsku pari sofandi í einu sýningartjaldanna á túninu hjá okkur,“ sagði Jón Halldór Baldvinsson, verslunarstjóri í Sport- leigunni gegnt Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík, en þar stendur fjöldi sýn- ingartjalda allan sólarhringinn. „Það er svo sem alvanalegt að fólk skríði inn í tjöldin okkar og sofi þar en þetta þýska par staðhæfði að það hefði borgað einhverjum mönnum leigu fyr- ir fjaldstæðið og tjaldið, 450 krónur á mann. Það hafa ekki verið menn á okkar vegum,“ sagði Jón Halldór sem er reyndar vanur því að þurfa að smala út úr tjöldunum á morgnana. Oft eru það þá menn sem hafa ekki komist lengra vegna ölvunar á leið sinni af öldurhúsum borgarinnar. Þá segir Jón Halldór að vinsælt sé að borða í tjöldunum þegar hvasst er. „Það er veitingasala hjá BSÍ allan sólarhringinn og þegar eitthvað er að veðri fyllast tjöldin okkar um miðjar nætur af hamborgaraætum með sósu. Jón Halldór við sýningartjaldið sem leigt var út að honum forspurðum. Umgengnin er þá ömurleg. Ferða- mönnum fé fyrir að sofa í sýningar- mennimir eru miklu snyrtilegri,“ tjöldunum. Ef fólk þurfi endilega að sagði Jón Halldór í Sportleigunni og sofa í þeim þá sé það ókeypis. -EIR varar fólk við að greiða ókunnugum Dagfari kveður Nú munu vera um sautján ár síðan Dagfari hóf göngu sína hér í þessu blaði fjórum sinnum í viku, sumar vetur, vor og haust. Aldrei hefur skort efni til að vinna úr, enda hafa þjóðfélagsþegnar af hvers konar tagi verið svo vinsamlegir að gefa Dagfara sífellt tilefni til útlegginga og útskýr- inga á hegðan þeirra og oröum. Eink- um hafa stjómmálamenn verið dug- legir að rétta fram höndina og stund- um hefur það þurft frekari túlkunar við sem frá þeim hefur komið og hef- ur Dagfari aðstoðað við þá túlkun til að almenningur gæti skilið hvað fyr- ir stjómmálamönnunum vakir. Raunar hafa miklu fleiri komið hér við sögu enda litrík flóran í þjóðfélagi endalausra illdeilna, flókinna mála- ferla, skapríkra viðmælenda og há- leitra hugsjóna. Dagfari hefur lagt út af þessum mannlegu samskiptum með því einu að segja frá þeim og ef einhverjum lesendum hefur fundist sá málatilbúnaður vera til þess fall- inn að afskræma viðmælendur, mál- flutning eða athafiiir þeirra i þeim til- gangi að stílfæra framlög þeirra sem hlut eiga að máli þá er sá granur á misskilningi byggður. Sannleikurinn er sá að alvaran í þjóðfélaginu er oftast miklu fyndnari heldur en það grín sem gert er að þeim sem taka sjálfa sig hátíðlega. Satíran verður aldrei eins skemmtileg og raun- veraleikinn og spéspegillinn sýnir aldrei annað en það sem stendur fyrir framan hann. Spegill skops og skens gerir það eitt að leyfa þeim ein- staMingi sem stendur fyrir framan spegilinn að sjá sjálfan sig í réttu ljósi og leyfa öðr- um að taka þátt í þeim gamanleik. Enda má fullyrða að Dagfari hafi verið sárameinlaus í skrifúm sínum og sjaldan eða aldrei fengið ákúrur eða ákærur um meiðyrði eða æra- spjöll. Dagfari hefur einasta verið hluti af fréttadeild DV þar sem nauð- synlegt hefur verið talið að útskýra fréttaefni á annan og einfaldari hátt heldur en unnt er aö gera í viðtölum og frásögnum af fréttunum sjálfum. Þetta hefur hjálpað mörgum mann- inum til að koma boðskap sínum á framfæri á skiljanlegan máta og enn fremur hefur það létt lesendum róð- urinn til að greina kjamann frá hism- inu. Nú hefur verið horfið frá þessari fréttaskýringu blaðsins. Þar ræður aukin hagræðing og sparnaður, enda skilja lesendur blaðsins vonandi að grínaktug skrif verða að mæta af- gangi þegar alvaran blasir við. Það getur verið dýrt að vera fyndinn á kostnað þeirrar alvöra sem gefur til- efni til fyndninnar, sérstaklega þegar lesendur skilja ekki fyndnina í alvöranni. DV og Dagfari hafa átt samleið í sautján ár. Nú er þeirri sambúð lokið. Dagfari þakkar fyrir sig. Dagfari Legið í Finni Mikið er spáð í það hver verði formaður nýrra samtaka atvinnu- rekenda. Enn er leitað logandi ljósi að mögulegum leiðtoga en ófáir hafa afþakkaö boð um að setjast í hásætið. Samsæri og plott lifa góðu lífi bak við tjöldin. Sand- kom hefur fregn- að að nú sé legið í Finni Geirssyni, forstjóra Nóa-Sír- íusar, að taka starfið að sér og svars beðið með eftirvæntingu. í þessu sam- bandi er rétt að geta efasemda og þess viðhorfs sem mun vera ofar- lega í hugum margra atvinnurek- enda að stofnun nýju samtakanna sé ári of snemma á ferðinni. Betra hefði verið að keyra í gegnum kjarasamningaviðræður næsta árs með gömlu naglana í brúnni. Er þá óttast að óreyndari menn veiti harðjöxlum verkalýðsforyst- unnar ekki nægilegt viðnám... r I hverjum koppi Talið er að feðgarnir Ásgeir Guðbjartsson og Guðbjartur Ásgeirsson, skipstjóri á þýska togaranum Guðbjörgu, áður ÍS 46, ætli sér að stofna til útgerðar. Guðbjartur er sagð- ur vansæll undir útgerð hinna her- skáu Samherja- manna og gamli sægreifinn mun ekki par ánægður með þá niður- stöðu að senda hið stolta fley Guðbjörgu úr landi. Þaö kemur því ekki á óvart að ekki kemur sá togari til ísa- fjarðar að feðgamir mæti ekki til að skoða. Um helgina sást til þeirra um borð í „tappatogaran- um“ Lómi BA ... Alftafell Ekkert bólar enn á þeirri lög- reglurannsókn sem Svanur Guð- mundsson, forstjóri Básafells, boðaði að yrði vegna fundargerð- ar félagsins sem DV birti. Svanur er þó ekki iðjulaus því hann stendur í stórhreingeming- um hjá Básafelli og rekur þá sem hann telur að standi í vegi fyrir áformum um betri rekstur. Gárungar vestra segja að stutt sé í nafnbreytingu hjá félaginu sem verði nefnt eftir Svani og heiti þá Álftafell... Skammfylking? Þaö era erfið efth'köstin af fæð- ingu Samfylkingarinnar og ekki sér fyrir endann á því ævintýri. Samkvæmt nýjustu skoðanakönn- unum er gjömingurinn ekki væn- legur til langlífis þó Ágúst Einarsson og fleiri þungavigt- armenn þar á bæ blási í lúðra og boði stofnun stjómmálaflokks hið fyrsta. Þrálát leiðtogavand- ræði standa Fylkingunni fyrir þrifúm og óljóst hver verður ofan á: Ingi- björg Sólrún, Jón Baldvin , sem margir kratar rennar enn hýra auga til, eða jafnvel einhver allt annar. Andstæðingar fagna því auðvitað þegar hver Samfylkingar- höndin virðist upp á móti annarri. í herbúðum andstæðinganna þykir mönnum réttneftii Fylkingarinnar og það sem skráð verði í annála vera Skammfylkingin... Umsjón: Haukur L. Hauksson Netfang: sandkom @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.