Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1999, Síða 19
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
23
Fréttir
Getum ekki keppt
við bátasmíði í Kína
- segir Matthías Einarsson, hjá Skipasmíðastöð ísaQarðar
DV, Vestfjörðum:
Ólafsvík:
Metafli á sjóstangamóti
„Við skiluðum af okkur tveim-
ur bátum í fyrra og svo erum við
með eina nýsmíði núna sem verð-
ur afhent í haust. ÞesSi bátur
verður líkastur því að vera
fjölveiðiskip. Frá 1996 höfum við
smiðað fjóra nýja báta, auk þess
sem við höfum verið með ýmis
viðhaldsverkefni í bátum og skip-
um,“ segir Matthías Einarsson,
framkvæmdastjóri Skipasmíða-
stöðvarinnar á ísafirði.
Skipasmíðastöðin er nú með í
smíðum 30 tonna bát fyrir Þiljur
ehf. á Bíldudal en ekki er vitað
um nein stærri verkefni framund-
an eftir að þeirri smíði líkur. Um
nokkurra ára skeið hefur verið
mikill samdráttur í skipasmíða-
iðnaði hér á landi og hafa ísfirð-
ingar ekki farið varhluta af þeim
samdrætti. Skipasmíðar hafa ver-
ið snar þáttur í atvinnulífi ísfirð-
inga alla þessa öld en nú er enn og
aftur óvissa fýrir dyrum.
„Við vorum að vona að við hefð-
um smíði smærri bátanna fyrir
okkur hér í landinu en nú er kom-
in hörð samkeppni frá útlöndum.
Nú er verið að smíða a.m.k. níu
slíka báta í Kína og við getum
ekki keppt við vinnuaflið þar.
Verðið sem verið er bjóða í bátana
þaðan er mjög lágt og dugar varla
fyrir almennilegum búnaði í þessa
báta hér. Það er spuming hvaða
sillu maður getur fundið til að
vinna á núna, þegar dregst saman
í þessari smíði. Við erum með í
huga að fara út í endubætur á
dráttarbrautinni og getum eftir
það tekið upp stærri skip en áður
var, allt að 500 tonnum að stærð,
og ættum með því að auka mögu-
leika okkar í viðhaldsverkefnum.“
Matthías segir að verið sé að
leita eftir nýjum hugmyndum um
verkefni til að geta skaffað starfs-
fólkinu áframhaldandi störf hjá
fyrirtækinu. Um tuttugu manns
hafa vinnu við skipasmíðastöðina,
auk þess sem mikill fjöldi iðnaðar-
manna á ísafirði kemur að verk-
Matthías Einarsson, framkvæmdastjóri
ásamt Einar Gunnari syni sínum.
efni við bátssmíði.
„Ef við hefðum eitthvað í hendi
með verkefni værum við fleiri
hérna en það er ekki hægt að bæta
við fólki þegar verkefnastaðan er
ótrygg. Þá má ekki gleyma því að
fjöldi manna kemur frá þjónustu-
fyrirtækjum í bænum að þessu
verkefni. Það þarf að leggja raf-
i Skipasmíðastöðvarinnar á ísafirði,
DV-mynd Guðm. Sig.
magn, smíða innréttingar, mála
og margt fleira. Ætli það séu ekki
um 40 manns sem koma að svona
nýsmíði, þannig að þetta hleypir
lífi í iðnaðarmannastéttina héma.
Skipasmíðastöðin er nokkuð stór
þáttur i atvinnulífinu hérna,“ seg-
ir Matthías.
-GS
Bílvelta á Siglufjarðarvegi
DV, Fljótum:
Bíll fór út af Siglufjarðarvegi,
skammt frá bænum Lambanesi i
Fljótum, nú í vikimni. Hann var af
geröinni Mitsubishi Galant. Fór
hann heila veltu og endaði á hjól-
unum um 10 metrum neðan vegar-
ins. Bíllinn er ónýtur enda hnull-
ungar á leið hans niður brekku.
Ökumaður, sem var einn í bíln-
um, slapp hins vegar ómeiddur og
má það telja mildi miðað viö útlit
bílsins. -ÖÞ Bíllinn illa leikinn eftir veltuna.
DV-mynd Örn
DV, Ólafsvík:
„Mótið tókst með miklum ágæt-
um. Alls var róið á 17 bátum og
voru þeir frá Rifi og Ólafsvík en
þaðan var farið á miðin. Gott veður
var báða dagana. Afli var mjög góð-
ur, eða alls 20.782 kg, og er það
mesti afli sem veiðst hefur á móti
hjá Sjósnæ. Einnig er það mesti afli
á sjóstangamóti frá upphafi. Þetta
mót var það 8. í röðinni af opnum
mótum á landinu í ár en alls eru
þau tiu þar sem keppt er um ís-
landsmeistaratitil í karla- og
kvennaflokki," sagði Lárus Einars-
son, formaður Sjósnæs. Helgina
16.-17. júlí hélt Sjóstangafélag Snæ-
fellsness - Sjósnær - sitt árlega
sjóstangamót. Þátttakendur voru 56
viða að af landinu.
Róbert Óskarsson er skipstjóri
og eigandi aflahæsta bátsins, Jó-
hönnu, en þar var meðalafli á stöng
725 kg. Aflahæsta konan var Krist-
ín Þorgeirsdóttir frá Sjósigl, með
458 kg, og aflahæsti karl var Har-
aldur Ólafsson frá Sjóak, 825 kg.
Guðmundur Ólafsson frá Sjó veiddi
stærsta fiskinn - þorsk sem vó 17,7
kg.
í sveitakeppni karla sigraði
sveit Þorsteins Jóhannessonar. í
henni voru 3 keppendur frá Siglu-
firði og einn frá Akranesi og
veiddu 2139 kg. Sveit Guöúnar
Áhöfnin á Glað nýkomin í land. Frá
vinstri Ólafur H. Ólafsson skipstjóri,
Sólveig Guðlaugsdóttir, Sjósnæ,
Sigríður Kjartansdóttir, Sjóís, og
Bjarni Kjærnested, Sjó.
DV-mynd Pétur
Gísladóttur var hæst kvennasveita,
með 1480 kg. Hana skipuðu þrjár
aflakonur frá Sjósnæ og ein frá
Akranesi.
Lárus sagði að alls hefðu veiðst 6
tegundir af fiski, þar af aðeins 2
marhnútar. Þorskurinn vó alls um
15 tonn og ufsinn 4,7 tonn og aðrar
tegundir minna. Það er alltaf líf og
fjör í Ólafsvík þegar þessi mót eru
haldin hjá Sjósnæ. Fjöldi fólks
kemur í bæinn og mikið er um að
vera. Útvarpsstöðin Sjósnær var í
gangi með upplýsingar til kepp-
enda, einnig tónlist og viðtöl. Mikil
grillveisla var fyrir keppendur er
þeir komu að landi fyrri daginn. Á
laugardagskvöldið var veglegt loka-
hóf á Klifi þar sem verðlaun voru
veitt fyrir hinar ýmsu keppnis-
greinar. Lárus formaður sagði að á
næsta ári yrði vel haldið upp á tíu
ára afmælismótið hjá Sjósnæ.
-PSJ
utsaian er enn i fi i!ii im nsnni 1 UliUííi MdíiUi r
' c M rv, 1 í iVfAm VTPArtT í UaIUÍO OlíUvii —•
vinkona min mæiti i vinnuna i dag í O
alklæðnaðí, “Stretch’ oo
|/ám i ióinl nn ivwUu, i\jui uy
hún fékk fyrir sam- 70
tals kr. 5090.-, þrjar cmðrf Ita/pnfliIói irí Dfiíwil iv V v!l! HIYUi ; (D
,, ii iika
hvíta 100% bóm-
uliarskyrtu á kær-
Amma minvar íika
stórhrifin af stórum
rúmqóðum nærfatna
sem hún fékk á sig.
Mamma sýndi mér
líka nýjustu
sænqurqiafirnar
! A D
— \ ~ k.
hancfavinkonubörnunum Faxafeni 8
sínum, ferlega dúlluleg föt á gjafverði, nema
hvað. Næsta bað sem maður veit af er að
atí og Droöir mmn mættir meó boxer Drækur
í öllum litum oa vínnuskyrtur, svei.m
heíd að ég skeíli mér bara á
í Oxford Street. Viltu með?
0pið:laugard.10-18 sunnud.12-17
mánud.-ffímmtud.10-18 föstud-19
hpírl 5n ph qI/pTIí mÁr haríi á cnnnuHaninn
Í ivlU Uv vU wiivlil i 1 Ivi Udi U U v?L!f li lUl\wÍOv|ff 11 I
•4