Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1999, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999
11
Fréttir
Gífurlegar kalskemmdir á Skjaldfönn:
80 prósent túna ónýt
- var ekki einu sinni svo djöfullegt á kalárinu eftir 1964, segir Indriði Aðalsteinsson bóndi
Gífurlegar kalskemmdir eru á
túnum Indriða Aðalsteinssonar,
Skjaldfannarbónda við ísafjarðar-
djúp. Ljóst er að tjónið er mikið og
rækta verður túnin upp að nýju,.
„Að mati ráðunauta eru 80%
túna stórskemmd eða ónýt hjá mér
og á Laugalandi," sagði Indriði.
„Síðan er það svipað yfir í Laugar-
dal, við vestanvert Djúp, eftir þeim
upplýsingum sem ég hef frá Sigurði
Jarlssyni. Það munu vera um 80%
túna ónýt á Laugabóli og Hrafna-
björgum en minna á Birnustöðum.
Þetta er miklu meira en maður
hefur komist í kynni við áður.
Meira að segja á harðinda- og
kalárinu eftir 1964 var þetta ekki
svona djöfullegt.
Það gerði afskaplega mikla
bleytuhríð á gamlársdag inni í döl-
unum en við sjóinn rigndi. Síðan
rann þetta állt í svell og það fór ekki
að leysa af túnum fyrr en síðast í
apríl. 'Þetta kæfði gjörsamlega gras-
rótina. Það var ekki eins slæmt á
túnum næst sjónum."
- Hvað gera bændur þá?
Jakkafatahnapp-
ar úr skíragulli
Gullhnappana á jakkafötum há-
tíðabúnings íslenskra karla, sem
Magnús Steinþórsson gullsmiður
klæddist í Viðey á laugardaginn,
þegar þau gengu í hjónaband, hann
og Margrét Ragnarsdóttir, smíðaði
Sveinn Ottó Sigurðsson, gullsmiður
hjá ísspori. Hann segir að þetta hafi
verið skemmtilegt verk en ekki
kannski mjög frábruðið því sem
gullsmiðir gera dagsdaglega.
Óvenjulegt sé þó að smíða 14 karata
gullhnappa í jakkaföt, eins og hann
gerði fyrir sinn gamla kollega.
Sveinn Ottó segir að það hafi tek-
ið rúma 15 tima að grafa stansinn
fyrir tölumar í stál og annað eins
vann hann við að fullgera gulltölurn-
ar með íslenska skjaldarmerkinu.
í 22 tölur fóru 90 grömm af
málmi. Yfirleitt er blandan helming-
ur kopar og silfur en Magnús vildi
60 prósent silfur og 40 prósent brons
til að hnappamir yrðu gulari. Gull-
klumpurinn sem fór í tölurnar var
24 karata en var blandað niður í 14
karöt eins og títt er í skartgripa-
gerð. -JBP
É i
l':?
Svelnn Ottó fékk óvenjulegt verkefni, að búa til 22 hnappa úr 14 karata gulli
í hátíðaklæði brúðguma. Myndin var tekin í Viðey á laugardag þegar Magn-
ús Steinþórsson og Margrét Ragnarsdóttir voru gefin saman.
DV-mynd Ingólfur
Enn seyðfirskur
söngvari í
fremstu röð
DV, Seyðisfiröi:
Hvert sæti var skipað þegar
söngvaramir Helga Kolbeinsdóttir
sópran og unnusti hennar Loftur
Erlingsson baríton sungu á tónleik-
um í Seyðisfjarðarkirkju viö undir-
leik Ólafs Vignis Albertssonar.
Helga er Seyðfirðingur, lauk
söngnámi í fyrrravor frá Söngskól-
anum í Reykjavík og hefur veriö
mjög virk í söngstarfi og tekið þátt í
allmörgum óperusýningum. Loftur
er Ámesingur og nam i söngskólan-
um og auk þess erlendis, nú síðast
hjá National Opera Studio í London.
Undirleikarinn Ólafur Vignir Al-
bertsson er flestum kunnur. Hann
er virtur og kunnur listamaður og
mjög eftirsóttur undirleikari með
söngvumm.
Fyrri hluti söngskrárinnar var
mjög þjóðleg tónlist eftir Jómnni
Viðar og Jón Ásgeirsson við úrval
söngljóða, bæði fornra og annarra
frá síðari timum. Seinni hluti söng-
skrárinnar voru svo atriði iir óper-
unni Porgy og Bess eftir Gershwin.
Flytjendum var ákai’t fagnað og
greinilega kunnu tónleikagestir vel
að meta ágæta frammistöðu lista-
mannanna - og sennilega finnst
Seyðfirðingum nokkurs um vert að
einn úr þeirra hópi skuli enn þá
sækja inn i framvarðasveit tónlist-
armanna okkar. -JJ
Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn.
„Ég reikna með að heyja að strönd en það er lán í óláni að þar
stærstum hluta úti á Snæfjalla- skortir ekki tún til að heyja á. Þau
era þó sinuskemmd og hafa ekki
nærri það fóðurgildi sem túnin hér
höfðu - en allt er hey í harðindum.
Ég á von á því að ná öllu því fóðri
sem ég þarf á að halda ef ágústmán-
uður verður góður. Við eigum svo
von á að fá flutningsstyrk til að
sækja hey á fjarlæg tún.
Svona kal er þó gífurlega dýrt,
það þarf að rífa upp tún og endur-
vinna þau. Þegar svona mikið kal er
þá þarf að bíða með að sá grasfræi í
að minnsta kosti eitt ár því jarðveg-
urinn þarf að brotna niður. Æski-
legt er að sá bara grænfóðri næsta
sumar. Þessi jarðendurrækt kostar
auðvitað mikið og við berum sjálfir
skaðann af því. Bjargráðasjóður hef-
ur þó lofað að koma til aðstoðar þar
sem tún eru mikið kalin, eða yfir
30% eins og víða á Norðurlandi.
Manni er sagt að verulegir fjármun-
ir séu til ráðstöfunar til að draga úr
þessu höggi,“ sagði Indriði Aðal-
steinsson sem hyggst vera með um
300 fjár á fóðmm í vetur. -HKr.
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, simi
567-1800 ^
Löggild bflasala
VW Golf GL '95,1,4, grænn, 5 g., ek. 48
þús. km, 5 d. V. 890 þús. Einnig VW Golf
CL 1400 '94, 5 g.,3 d., ek. 90 þús., vínr.,
fallegur bfll. V. 690 þús.
Suzuki Sidekick '96, 5 g., ek. aðeins 34
þús. km, brúnsans., V. 1.390 þús.
Tveir góðir: M. Benz 260E '89, ssk., ek.
256 þús. km, rafdr. rúður, samlæs., toppl.,
leöur, álf., ABS o.fl. V. aðeins 1.190 þús.
Einnig: M. Benz 230 E '88, ssk., rafdr.
rúður, samlæs., gott bílalán geturfylgt, ca.
480 þús. V. 980 þús.
Ath. skipti á 7 manna bíl.
leðurinnr., þjófav., bílalán ca. 2.000 þús.
V. 2.850 þús. Virkilega vel búinn bíll
Ford Explorer Eddie Bauer '95, ek. 94
þús. km, ssk., leðurinnr., einn með öllu.
V. 2.600 þús.
Sumartilboð: BMW 318i station '91,5 g.,
ek. 114 þús. km, sóllúga o.fl. V. 930 þús.
Tilboðsverð: 790 þús.
M. Benz 500 SE '91, grár, ek. 124 þús.
km, toppl., rafdr. rúður, samlæs., álf., o.fl.
Ótrúlega gott eintak. V. 1.890 þús. Einnig:
M. Benz 560 SEL '89, einn m/öllu og þá
meina ég öllu. V. 1.750 þús. Ýmis skipti.
Opel Astra 1,7, dísil, '96, grænsans., 5 g.,
ek. 72 þús. km, álf., rafdr. rúður. V. 990 þús.
Tilboð 890 þús. Gott bílalán.
Dodge Caravan SE '95, blásans., ssk., ek.
aðeins 48 þús. km, 3,3, V-6. Gott ástand.
V. 1.890. Tilboð 1.780 þús.
1 ' í
:9h
Honda Prelude EXSi '95, grænn, 5 g., ek. 50
þús. km, rafdr. rúður, samlæs.,þjófavörn, cd,
leðurs., álf. o.fl. Tilboð 1.890 þús.
MMC 3000 GT '92, grænsans., ek. 140
þús. km, 5 g., rafdr. rúður, álfelgur o.fl.
Sérstakt tilboðsverð 1.550 þús.
Verðsprengja 1.450 þús.
MMC Lancer EXE STW '91, grár, 5 g., ek.
144 þús. km, rafdr. rúður, samlæs., geis-
lasp. V. 590 þús. Tilboð 490 þús.
Einnig: Nissan Sunny 4x4 station '92,
grár, 5 g., ek. 116 þús. km. V. 720 þús. Ath.
Visa/Euro-lán.
Cadillac Allanté '92, blæja og hardtop,
einn með öllu. V. 2.890 þús.
VW Polo 1,4i '99, silfurl., 5 g., ek. 3 þús.
km. Nýr bíll. V. 1.190 þús.
Toyota Corolla XLi HB '96, rauður, ssk.,
ek. 36 þús. km. V. 990 þús.
Tilboð.Einnig:Toyota Corolla XLi Special
series'95, silfurl., 5 g., ek. 60 þús. km. V.
930 þús.
Toyota Corolla Touring '92, blár, 5 g., ek. 119
þús. km. V. 850 þús. Einnig Touring '91, svar-
tur, 5 g., ek. 173 þús. km. V. 690 þús.
Cherokee Grand LTD '98, grænsans., ssk.,
ek. 9 þús. km. V.Í'4,3 millj. Einnig: Grand
LTD '93, svartur.'ssk., ek. 95 þús. km. V.
1.990 þús. og Laredo '95, vínr., ssk., ek. 75
þús. km. V. 2.490 þús.
Renault 19 RN '95, silfurl., 5 g., ek. 102 þús.
km. V. 750 þús. Tilboð 690 þús.
Daihatsu Terios '98, 5 g., ek. 31 þús. km,
rafdr. rúður, samlæs., álfelgur, cd o.fl.
V. 1.420 þús.
Nissan Micra LX '96, 5 g., ek. 76 þús. km.
Verð 720 þús. (Bílalán getur fylgt.)
Daewoo Lanos Hurricane, árg. '99, ek. 3
þús. km. Álfelgur, topplúga og allt rafdr.
V. 1.390 þús.
(Bílalán 1.180 þús.)
Hyundai H-100 dísil '97, raður, 5 g., ek. 54
þús. km, skáður 6 manna, bílalán.
V. 1.250 þús.