Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1999, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1999, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999 29 Ólafur Stephensen. Djassá Seyðisfirði Tónleikaröðin Bláa kirkjan í Seyðisfjarðarkirkju heldur áfram í kvöld með tónleikum tríós Ólafs Stephensen frá Reykjavík. Tríóið skipa þaulreyndir menn úr djass- lífl landsins: Tómas R. Einarsson, bassaleikari og tónsmiður, Guð- mundur R. Einarsson, trommu- leikari og básúnuleikari, og Ólaf- ur Stephensen djasspíanisti. Þeir eru landsþekktir fyrir skemmtilegar útfgerslur sínar á „venjulegum" djass-standördum sem þeir færa í sveiflubúning. í fréttatilkynningu segir um tríóið að það hafi „þann einstaka hæfi- leika að geta hrifið áhorfendur með sér, hvort sem þeir eru stadd- ir í Bangkok, Buenos Aires eða Nuuk á Grænlandi“! Óli Stephensen og félagar hafa leikið saman í tæplega tíu ár. Tón- listin sem þeir leika hefur verið kennd við sveifluna er réð ríkjum ---------------á djassklúbb- Tónleikar umNewYork _______________a sjotta ara- tugnum. Inn í dagskrá sína af hefðbundnum djasslögum blanda þeir félagar svo þjóðlögum, sálma- lögum og öðrum tegundum dæg- urtónlistar og færa lögin í nýjan búning eftir því sem andinn blæs þeim í brjóst. Kemur útkoman oft sjálfum þeim og áhorfendum skemmtilega á óvart. Aðgangseyrir á tónleikana er 500 krónur en ókeypis fyrir sex ára og yngri. Eins og aðrir við- burðir í tónleikaröðinni hefst gamanið klukkan 20.30 í kirkjunni á Seyðisfirði. Hamingja í Hlaðvarpanum Sveiflan verður víðar í al- gleymingi en á Seyðisfirði í vik- unni. Á morgun troða Tena Palmer og hljómsveit hennar Felicidade upp í Kaffileikhúsinu en hefur tvisvar áður fyllt Hlað- varpann út úr dyrum með fjörugri sambasveiflu. Nafn hljómsveitar- innar, Felici- dade, er portú- galskt og merkir „hamingja" og segir það nokk- uð um yfirbragð tónlistarinnar, blöndu af samba og bossa nova. Tena sjálf hefur sungið víða um heim og hlotið fjölmargar viður- kenningar fyrir en hún syngur ýmist á portúgölsku, spænsku, ítölsku eða ensku. Auk Tenu skipa hljómsveitina valinkunnir djassarar: Óskar Guðjónsson saxófónleikari, Hilmar Jensson gítarleikari, Þórður Högnason bassaleikari og Matthías M.D. Hemstock trommari. Tónlist Felicidade á einkar vel við þessa dagana þegar hitinn hef- ur öðlast sinn réttmæta og lang- þráða sess í sumri Reykvíkinga. Meðal laga á dagskránni eru hin vinsælu lög Getz og Gilberto, sem riöu ásamt öðrum baggamuninn í því að heimurinn uppgötvaði töfra suður-amerískrar tónlistar. Tónleikarnir hefjast klukkan níu en húsið opnar hálftíma fyrr. Miðasala hefst klukkan 17 á morg- un. Tena Palmer. Líf eftir verslunarmannahelgi - Taltónleikar á Ingólfstorgi og urlið á Gauknum Hljómsveitin með . að enn þá sé „líf eft- harða nafnið, url, Skeill 11113111 f ir verslunarmanna- verður með tónleika--------------------------------helgi“ með kröft- á Gauki á Stöng í kvöld og ætlar ugu „kæfurokki". með þeim að sýna tónleikagestum Líklegt er að smellurinn Song in Hljómsveitin url. A, í 36. sæti á íslenska listanum eins og er, hljómi á Gauknum og þar sem urlið er ekki nema hárs- breidd frá yfirvofandi sumarleyfl er þetta síðasti séns fyrir aðdáendur sveitarinnar að sjá hana á útopnu, í bili að minnsta kosti. Jagúar, Magga Stína og co. á Ingólfstorgi í sumar hefur símafyrirtæk- ið Tal hf. tekið sér hlé frá skærum við Landssímann síðdegis á miðvikudögum og staðið fyrir tónleikadagskrá á Ingólfstorgi í samvinnu við Rás tvö og Hitt húsið. í dag eru það Magga Stína og bik- armeistararnir ásamt svita- og fónksveitinni Jagúar sem leika listir sínar fyrir torg- fara. Tónleikarnir hefjast klukkan 18. Götuleikhús Hins hússins verður með uppákomu á svæðinu sem tengist dagskrá tónleikanna en þeir verða teknir upp og útvarpað af Rás tvö næstu helgi og aftur næsta fimmtudag. Til klukkan 18 á morgun er gert ráð fyrir hægviðri, yflrleitt léttskýj- að og hiti 15 til 20 stig en viða þoku- loft yfir nóttina, einkum við sjóinn. Veðrið í dag Á höfuðborgarsvæðinu verður hægviðri og sólbjart í dag en lág- þokublettir að næturlagi. Hiti 13 til 18 stig síðdegis en 7 til 10 stig í nótt. Næstu daga er gert ráð fyrir hægri norðlægri eða breytilegri átt á fóstu- dag og laugardag. Bjartviðri viða um lend en þó hætt við þokulofti sums staðar með ströndinni, einkum að næturlagi. Hiti 10 til 20 stig, en fer síðan kólnandi norðaustantil. Sólarlag í Reykjavík: 22.20 Sólarupprás á morgun: 4.49 Síðdegisflóð í Reykjavík: 24.52 Árdegisflóð á morgun: 0.52 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri léttskýjaó 8 Bergsstaöir léttskýjaó 9 Bolungarvík hálfskýjaö 7 Egilsstaðir 10 Kirkjubœjarkl. þokumóöa 11 Keflavíkurflv. lágþokublettir 11 Raufarhöfn alskýjaö 10 Reykjavík léttskýjaö 10 Stórhöfði þoka 10 Bergen léttskýjað 15 Helsinki léttskýjaö 19 Kaupmhöfn léttskýjaö 18 Ósló léttskýjaö 19 Stokkhólmur 22 Þórshöfn skýjaö 12 Þrándheimur skýjaö 13 Algarve skýjaó 20 Amsterdam þokuruöningur 18 Barcelona þokumóöa 24 Berlín heiöskírt 19 Chicago hálfskýjaö 22 Dublin skýjað 22 Halifax heióskírt 16 Frankfurt léttskýjaö 18 Hamborg skýjaö 18 Jan Mayen súld 6 London skýjaö 17 Lúxemborg þoka 16 Mallorca þokumóöa 21 Montreal léttskýjaó 19 Narssarssuaq alskýjaó 10 New York heiöskírt 24 Orlando þokumóöa 24 París skýjaó 17 Róm þokumóöa 20 Vín léttskýjaö 17 Washington heiðskírt 18 Winnipeg skýjaö 16 Helstu vegir um hálendið færir Helstu vegir um hálendið eru nú færir en vegur- inn í Kverkfjöll er lokaður vegna vatnaskemmda. Það skal áréttað að þótt vegir um hálendið séu sagð- ir færir er yfirleitt átt við að þeir séu færir jeppum og öðrum vel útbúnum fjallabílum. Færð á vegum Vegimir um Kjöl, Kaldadal og yfir í Landmanna- laugar frá Sigöidu eru þó færir öllum bílum. Friðgeir Óli Litli drengurinn á myndinni heitir Friðgeir Óli. Hann fæddist á Landspitalanum 22. apríl klukk- Barn dagsins an 10.33 og var 51 sentímetri og tæpar 14 merkur við fæðingu. Friðgeir Óli virðist una sér vel í fangi Magnúsar Péturs, stóra bróður, sem er þriggja ára. For- eldrar heita Bjarni Gunnarsson og Sigríður Eva Friðgeirsdóttir. Frá vinstri: Will Smith, Salma Hayek, Kevin Kline. Wild Wild West Leikstjórinn Barry Sonnenfeld og leikarinn Will Smith, eitt sinn þekktur sem „ferski prinsinn frá Bel Air“ áttu mikinn smell síðasta sumar með myndinni Men in Black og róa á sömu ævintýra- og spennumiðin með nýjustu afurð- inni, Wild Wild West. Smith leikur James West, sér- stakan erindreka Bandaríkja- stjórnar (nafni hans frá Bretlandi kemur óneitanlega upp í hugann), sem sendur er ásamt félaga sín- um, Artemus Gordon (Kevin Kline), til höfuðs varmenninu Arliss Loveless,sem Kenneth Branagh leikur. Arliss þessi hyggst V//////// Kvikmyndir myrða Bandaríkjafor- seta með aðstoð risavaxins og þrælvopnaðs farartækis síns, Tar- antúlunnar. Inn í baráttuna, sem í hönd fer, blandast að sjálfsögðu feguröar- dísir. Fulltrúi hins góða i þeirri deild er hin íðilfagri og dularfulli skemmtikraftur Rita Escobar sem Salma Hayek túlkar af lítilli fyrir- höfn. Nýjustu myndirnar: Bíóhöllin: Wild WUd West Saga-bíó: The Mummy Bíóborgin: Wing Commander Háskólabíó: Notting Hill Háskólabió: Fucking Ámál Kringlubíó: Wild Wild West Laugarásbíó: Notting Hill Regnboginn: Virus Stjörnubíó: Gloria Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 Lárétt: 1 bóndabær, 5 fugl, 8 beltið, 9 óðagot, 10 aðstoð, 11 niö, 13 óhrein, 16 ótti, 19 hljóð, 20 hratt, 21 kerald, 22 ólykt. Lóðrétt: 1 þroti, 2 mánuður, 3 fimu, 4 utan, 5 bað, 6 óttast, 7 sá, 12 féllu, 14 digur, 17 lærði, 18 eyða, 19 gelt. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 óhultur, 7 þóf, 8 orms, 10 örskjót, 12 kaus, 14 óra, 15 kýrin, 17 of, 18 ást, 19 nafn, 20 au, 21 asnar. Lóðrétt: 1 óþökk, 2 hóra, 3 ufs, 4 loksins, 5 trjónan, 6 um, 9 stafn, 11 órofa, 13 urta, 16 ýsu, 18 áa. Gengið Almennt gengi LÍ 04. 08. 1999 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollnenqi Dollar 72,150 72,510 73,540 Pund 117,200 117,800 116,720 Kan. dollar 48,270 48,570 48,610 Dönsk kr. 10,4550 10,5120 10,4790 Norsk kr 9,3670 9,4180 9,3480 Sænsk kr. 8,8940 8,9430 8,8590 Fi. mark 13,0820 13,1606 13,1223 Fra. franki 11,8578 11,9290 11,8943 Belg.franki 1,9282 1,9397 1,9341 Sviss. franki 48,6200 48,8800 48,8000 Holl. gyllini 35,2958 35,5079 35,4046 Fýskt mark 39,7692 40,0082 39,8917 ít. líra 0,040170 0,04041 0,040300 Aust. sch. 5,6526 5,6866 5,6700 Port. escudo 0,3880 0,3903 0,3892 Spá. peseti 0,4675 0,4703 0,4690 Jap. yen 0,626700 0,63050 0,635000 írskt pund 98,762 99,356 99,066 SDR 98,700000 99,29000 99,800000 ECU 77,7800 78,2500 78,0200 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.