Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 Kostnaður við útfarir oft óheyrilegur: Virðisauki Útfararþjón- usta undan- þegin - ekki „vörur“ Maðurinn skipti við eina af stærri útfarar- þjónustum höfuðborg- arinnar og eins og reikningurinn sýnir þarf að huga að mörgu þegar ástvinur er lagður til hinstu hvílu. Margir kjósa að fara Það er dýrt að deYÍa- Skattheimtan lætur mann skilj- þá leiðina að láta eina an'e9a 1 hiði eftir dauðann en kostnaður við útför, útfararstofu sjá um sem nanustu aðstandendur greiða í flestum tilfell- allt saman allt frá því um’ 9etur orðið mikill og hann er ekki allur undan- að hinn látni er fluttur Þe9inn virðisaukaskatti. Þegar andlát verður í fjölskyld- unni eru peningar það síðasta sem fólki þykir sæma að hugsa um. Það er þó óhjákvæmilegt þar sem meðal- kostnaður við útfór, þ.e. áður en tekið er til væntanlegrar erfi- drykkju, nemur nær 200.000 krón- um sem á fæstum heimilum eru gripnar úr digrum sjóðum. Til Hagsýni DV leitaði maður sem nýlega er orðinn ekkill. Hann tók það skýrt fram að ekki hefði hann talið eftir sér að greiða fyrir útfor ástkærrar eiginkonu sinnar og vildi ekki fyrir nokkurn mun halda því fram að kostnaðurinn væri of mikill. Ekkillinn var hins vegar furðu lost- inn yfir því að þessi óhjákvæmilegi kostn- aður skyldi ekki vera undanþeginn virðis- aukaskatti. Blaðamanni þykir ekki skrýtið að maður- inn skuli hafa haft þennan fyrirvara á vangaveltum sínum þar sem oft hvílir hula yfir kostnaðarhlið út- fara, af skiljanlegum ástæðum. af dánarstað í líkhús þar til leg- steinn er settur yfir leiðið. Innifalið er þá bæði þjónustugjöld og það sem til þarf, kista og fylgihlutir hennar, svo sem líkklæði og sæng- urfatnaður, tónlist og söngur við út- förina og bráðabirgðakross á leg- staðinn. Þegar leitað var upplýsinga hjá Skattstofunni í Reykjavík var vísað í lög um virðisaukaskatt og kom í ljós að „útfararþjónusta og prests- þjónusta hvers konar“ er undanþeg- in virðisaukaskatti. Ákvæðið tekur til líkbrennslu, greftrunar, líkflutn- Nr. 9058 REIKNINCUR r«Md ws Kimjuofirðum ML ÞlonwWvöruhdö VorO 103 KistaO 44.745 kr 111 Smg, koddi, bteja (*) 6.615 kr 112 LlkWæðl (*) 3.310 kr 120 Útfararþjóousta 43.870 kr 152 Skj#iO 3.516 kr 116 Trdkross (*) 3.840 kr Samtals: mgazjii Tónlistarfólk 46.099 kr Stefgjald 1.789 kr Umsjónarfljald * j 5.860 kr Bidmaveró 12.500 kr KkkjuvörOor VSK O; 12.226 kr TH groiðstu: 172.246 kr Reikningur ekkjumannsins sem ieitaði til DV með undrun sína. Virðisaukinn af útför eiginkon- unnar reiknaðist 12.226 krónur. mga og annarrar þjónustu í þessu sambandi. Ákvæðið tekur þó ekki til sölu á líkkistum, líkklæðum eða ann- arrar „vörusölu" vegna útfarar og eru þar m.a. nefnd- ar skreytingar í kirkju eða kirkju- garði. Tónlistin er undanþegin virðis- aukaskatti en ofan á kostnað við allan textaflutning bæt- ast 5% í gjöld sem STEF, sem er skammstöfun fyrir Samband tónskálda og eigenda flutn- ingsréttar, fær greidd. Tónlistar- flutningur kostnaðar- samur Fólki skal bent á að kynna sér þjónustu útfararstofa, sem í Reykja- vik eru orðnar allmargar, og bera saman verð á nauðsynlegri þjón- ustu. í „útfararþjónustu" sem kost- ar í kringum 40.000 krónur er greitt fyrir að flytja kistu, útvega dánar- vottorð, undirbúa lík hins látna fyr- ir kistulagningu og sjá um að skipu- leggja athöfnina með öllu sem því fylgir. Kistan sjálf getur kostað á bilinu 29.000 til 115.000. Meðalverð er 40-50.000 kr. en verðið á dýrustu kistunum fer eftir viðartegund. Að kistunni undanskilinni er það tón- listarflutningurinn sem vill verða aðstandendum kostnaðarsamastur. Þannig er verð á 8 til 11 manna kór frá 33.000 krónum til 37.000 króna en við bætist orgelleikur við kistu- lagningu og útför, a.m.k. 12.000 krónur. Ef leikinn er einleikur kost- ar það minnst tíu þúsund krónur og einsöngur annað eins. Tónlist kringum útfór getur, að sögn eins útfararstjórans, kostað á bilinu 45.000 til 70.000 krónur. Ofan á það bætast STEF-gjöld. Ekki við hæfi að vera hagsýnn? Einn útfararstjórinn sem DV ræddi við um kostnað sagði að fólk væri almennt mjög undrandi á gjöldum sem bætast við útfarar- kostnaðinn, svo sem virðisauka- skattur og STEF-gjöld, en málin eru hins vegar svo viðkvæm og allar að- stæður þannig að ekki fer hátt um kostnaðinn. Hinir lauslegu útreikningar sem hér birtast taka ekki mið af erfi- drykkju sem einnig vill verða fólki kostnaðarsöm. Oft er öllum kirkju- gestum boðið til drykkjunnar sem í flestum tilvikum er haldin i sal safnaðarheimilis, hótels eða hús- næði sem sérstaklega er leigt út fyr- ir veisluhöld og auk veitinga getur upphæðin numið hundruðum þús- unda. Málin eru viðkvæm og fólk er i sorg og má með sanni segja að við allar aðstæður aðrar sem skapast á lífsleiðinni telji fólk betur við hæfi að vera hagsýnt. Staðreyndin er hins vegar sú að útfararkostnaður getur gengið mjög nærri fólki sem ekki hefur úr miklu að spila og því er nauðsynlegt að hafa augun opin fyrir smáatriðum og hringja til dæmis í nokkrar útfararstofur til þess að gera verðsamanburð. Engin skömm er að slíku. Útförin getur verið mjög falleg og virðuleg þó óskráðar reglur um að „hvergi eigi að vera til sparað" séu virtar að vettugi. -þhs Verðbréfá upp- og niðurleið - síöastliðna 30 daga - SamvlnnusJ. íslands Frumherjl Skagstrend- ingur Heimild: Viðskiptavefurinn á Vísi islenskar Loðnuvinnslan Krossanes Sjávarafurðir Vidskiptamagn hlutabréfa gefur góða vfsbendingu Skeljungur Básafell Mestu viðskipti - síðastliðna 30 daga - hlutabréfa- verð farið hækkandi og við- skipti auk- ist. Til að Tölurí milljónum króna Hraðfrystih. Þórshafnar -14% Samvlnnuferðlr Landsýn -M Töluverðar breytingar hafa átt sér stað á hlutabréfamarkaði á skömmum tíma. Eftir töluverðar lækkanir, sem hófust í apríl, hefur o> ts k> W 'M N) O) H- 00 CO b) (J1 I Ae' ^ ^ mynda var júlí næststærsti viðskiptamán- uður með hlutabréf frá upphafi. Síðastliðna 30 daga hafa veruleg- ar hækkanir orðið á hlutabréfum en um leið hafa fáein fyrirtæki lækkað mikið. Góðar fréttir um af- komu þeirra félaga hafa fyrst og fremst áhrif á hækkun en ástæða hækkana á bréfum Skagstrendings er kaup Útgerðafélags Akureyrar á meirihluta í félaginu. Einnig vek- ur hækkun á bréfum í Básafelli nokkra athygli því mjög illa hefur gengið hjá því félagi undanfarið. Hins vegar hefur nýr maður keypt stóran hluta í félaginu og þau um- skipti vekja vonir markaðsaðila um að betri tíð sé í vændum. Eftirsóttustu bréfin Ef mestu viðskipti eru notuð ■ sem mælikvarði á eftirspurn eftir bréfum þá er ljóst að Samherji, Flugleiðir og Eimskip séu eftirsótt- ustu bréfin í dag. Góðar fréttir af þessum fyrirtækjum síðustu vikur hafa hækkað gengi þeirra og mikil viðskipti hafa átt sér stað. Enn fremur er mikil hreyfing á bréfum FBA og SÍF. Stálsmiðjan gæti verið vænlegur kostur nú þegar félagið verður sameinað Slippstöðinni. Bréfin hafa lækkað mikið á árinu og vel er hægt að hugsa sér að þau séu í lágmarki núna og fari hækkandi. Hins vegar er starfsvettvangur fé- lagsins áhættusamur. Almennt má segja að bréf sem mikil viðskipti eru með séu áhættuminni fjárfesting en þau bréf sem lítil hreyfing er á. Því get- ur verið skynsamlegt að fjárfesta í stórum félögum frekar en þeim minni. -bmg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.