Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Side 18
18
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999
Fréttir
Minnisvarði um Sigvalda Kaldalóns afhjúpaður:
Tónverk hans bera miklum
listamanni fagurt vitni
DV, Hólmavík:
„Hann var hér ekki bara læknir.
Hann var tónskáld héraðsins og sat
eins og steinninn ber vott um við
sitt hljóðfæri. Hann var vel látinn í
héraðinu og hann var mikill mann-
vinur. Þegar upp er staðið, þrátt
fyrir alla þá tæknivímu sem yfir
gengur, þá er það eina sem gefur líf-
inu gildi að vera vinur mannsins,
finna til með honum og skilja
hann.“
Þetta voru orð séra Baldurs Vil-
helmssonar, í Vatnsfirði 31. júlí, viö
aíhjúpun minnisvarða um eitt ást-
sælasta tónskáld okkar íslendinga,
Sigvalda Stefánsson, sem á læknis-
árum sínum vestra tók sér nafnið
Kaldalóns. Minnisvarðinn er blá-
grýtissteinn, listavel unninn af
myndlistarmanninum Páli Guð-
mundssyni á Húsafelli. Hann stend-
ur á Seleyri við Kaldalón við ísa-
fjarðardjúp, en sá staður er skammt
frá Ármúla, sem var heimili fjöl-
skyldu tónskáldsins meðan hann
var starfandi læknir þessa erfiða
læknishéraðs í rúman áratug, á
öðrum og þriðja áratug þessarar
aldar.
Af Seleyri sést vel til jökulsins
og lónsins kalda og fer vel á því. Á
læknisárum sínum í Armúla samdi
Sigvaldi mörg af sínum merkustu
tónverkum sem um aldir munu
Minnisvarðinn var afhjúpaður af Ester Kaldalóns, barnabarni tónskáidsins, til hægri, og Birnu Hreiðarsdóttur, stað-
arhaldara í Ármúla. DV-mynd Guðfinnur
geyma nafn hans og bera miklum þeirra eru hreinar perlur. Nægir sú ágæt ein“ og „Ég lít í anda liðna
listamanni fagurt vitni. Mörg þar að nefna sálminn „Nóttin var tíð“ við ljóð skáldkonunnar Höllu
Eyjólfsdóttur á Laugabóli, sem var
sveitungi hans á þeim árum en
samstarf þeirra bar góðan ávöxt.
Að margra mati stendur það nokk-
uð upp úr í annars fjölskrúðugri
flóru sönglaga okkar þjóðar.
Vel hefur verið vandað til alls
undirbúnings þessa atburðar, sem
hófst með stuttri en afar hlýlegri
minningardagskrá i Hólmavíkur-
kirkju fyrr um daginn þar sem flutt
voru nokkur laga tónskáldsins og
lífs- og starfssaga hans að nokkru
rakin. Það verður ætíð talið afkom-
endum tónskáldsins, og annarra
þeirra sem að þessu stóðu, til mik-
ils sóma hversu vel var að öllu leyti
vandað til þessarar athafnar því
gott skipulag og þó miklu fremur
mikill hlýleiki og fegurð var yfir
öllu allt til loka hennar.
Byggð þessari hefur og með fram-
taki þessa fólks verið sýnd mikil
virðing með því að velja minis-
varða um eitt fremsta tónskáld
þjóðarinnar hér stað. Það munu
Vestfirðingar virða og ætíð geta
þakkað. Meðal gesta við afhjúpun
minnisvarðans var forseti Alþingis,
Halldór Blöndal, sem flutti góða
ræðu. Hinum mikla fjölda gesta var f
svo í hátíðarlok veittar rausnarleg-
ar veitingar sem næst fyrrum heim-
kynnum tónskáldsins í Ármúla.
-GF
Met í sementinu
DV, Akranesi:
Sala á sementi í júní, hjá Sem-
entsverksmiðjunni hf. á Akranesi,
var langt yfir áætlun eða rúmlega
15.700 tonn. Það er mesta sala í þeim
mánuði síðan 1988. Salan fyrri hluta
júlí var um 8.000 tonn og ef fer fram
sem horfir má gera ráð fyrir að sal-
an verði sú mesta í þeim mánuði
síðan 1989.
Síðari hluta júnímánaðar var
söluáætlun ársins endurskoðuð á
ný og nú eru menn að gera því
skóna að sementssalan á árinu geti
orðið tæplega 130.000 tonn.
Vegna þess er talið nauðsynlegt
að flytja inn 4.000-5.000 tonn af gjalli
frá Englandi í byrjun ágúst, ef ekki
á að koma til vandræða með af-
greiðslu sements í haust.
-DVÓ
Sala á sementi frá Sementsverksmiðjunni er langt yfir áætlun.
Það var fimmti dagurinn á Austurlandi með sólskini og hita upp undir 30 stig í góðu skjóli. Fréttamaður hitti þenn-
an föngulega hóp á tjaldstæðinu á Egllsstöðum 3. ágúst. Þetta eru sjö systkini með maka og fimm börn og búa á
hinum ýmsu stöðum á landinu en ættuð frá Hellissandi. Þar býr líka einn bróðirinn, Ægir Þórðarson, fyrrverandi
fréttaritari DV, lengst tii hægri. DV-mynd Sigrún
Um 60 manns skráðu sig til herþjónustunnar. DV-mynd Júlía
Græni herinn á Höfn
Græni herinn tók rösklega til
starfa á Höfn og gróðursetti tré og
þökulagði við gangbraut meðfram
Víkurbraut og einnig var byrjað að
rífa gamalt fjárhús sem stendur inn-
an við bæinn. Um 60 manns skráðu
sig til herþjónustunnar en mættu
ekki allir þegar til kom.