Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 Fréttir Minnisvarði um Sigvalda Kaldalóns afhjúpaður: Tónverk hans bera miklum listamanni fagurt vitni DV, Hólmavík: „Hann var hér ekki bara læknir. Hann var tónskáld héraðsins og sat eins og steinninn ber vott um við sitt hljóðfæri. Hann var vel látinn í héraðinu og hann var mikill mann- vinur. Þegar upp er staðið, þrátt fyrir alla þá tæknivímu sem yfir gengur, þá er það eina sem gefur líf- inu gildi að vera vinur mannsins, finna til með honum og skilja hann.“ Þetta voru orð séra Baldurs Vil- helmssonar, í Vatnsfirði 31. júlí, viö aíhjúpun minnisvarða um eitt ást- sælasta tónskáld okkar íslendinga, Sigvalda Stefánsson, sem á læknis- árum sínum vestra tók sér nafnið Kaldalóns. Minnisvarðinn er blá- grýtissteinn, listavel unninn af myndlistarmanninum Páli Guð- mundssyni á Húsafelli. Hann stend- ur á Seleyri við Kaldalón við ísa- fjarðardjúp, en sá staður er skammt frá Ármúla, sem var heimili fjöl- skyldu tónskáldsins meðan hann var starfandi læknir þessa erfiða læknishéraðs í rúman áratug, á öðrum og þriðja áratug þessarar aldar. Af Seleyri sést vel til jökulsins og lónsins kalda og fer vel á því. Á læknisárum sínum í Armúla samdi Sigvaldi mörg af sínum merkustu tónverkum sem um aldir munu Minnisvarðinn var afhjúpaður af Ester Kaldalóns, barnabarni tónskáidsins, til hægri, og Birnu Hreiðarsdóttur, stað- arhaldara í Ármúla. DV-mynd Guðfinnur geyma nafn hans og bera miklum þeirra eru hreinar perlur. Nægir sú ágæt ein“ og „Ég lít í anda liðna listamanni fagurt vitni. Mörg þar að nefna sálminn „Nóttin var tíð“ við ljóð skáldkonunnar Höllu Eyjólfsdóttur á Laugabóli, sem var sveitungi hans á þeim árum en samstarf þeirra bar góðan ávöxt. Að margra mati stendur það nokk- uð upp úr í annars fjölskrúðugri flóru sönglaga okkar þjóðar. Vel hefur verið vandað til alls undirbúnings þessa atburðar, sem hófst með stuttri en afar hlýlegri minningardagskrá i Hólmavíkur- kirkju fyrr um daginn þar sem flutt voru nokkur laga tónskáldsins og lífs- og starfssaga hans að nokkru rakin. Það verður ætíð talið afkom- endum tónskáldsins, og annarra þeirra sem að þessu stóðu, til mik- ils sóma hversu vel var að öllu leyti vandað til þessarar athafnar því gott skipulag og þó miklu fremur mikill hlýleiki og fegurð var yfir öllu allt til loka hennar. Byggð þessari hefur og með fram- taki þessa fólks verið sýnd mikil virðing með því að velja minis- varða um eitt fremsta tónskáld þjóðarinnar hér stað. Það munu Vestfirðingar virða og ætíð geta þakkað. Meðal gesta við afhjúpun minnisvarðans var forseti Alþingis, Halldór Blöndal, sem flutti góða ræðu. Hinum mikla fjölda gesta var f svo í hátíðarlok veittar rausnarleg- ar veitingar sem næst fyrrum heim- kynnum tónskáldsins í Ármúla. -GF Met í sementinu DV, Akranesi: Sala á sementi í júní, hjá Sem- entsverksmiðjunni hf. á Akranesi, var langt yfir áætlun eða rúmlega 15.700 tonn. Það er mesta sala í þeim mánuði síðan 1988. Salan fyrri hluta júlí var um 8.000 tonn og ef fer fram sem horfir má gera ráð fyrir að sal- an verði sú mesta í þeim mánuði síðan 1989. Síðari hluta júnímánaðar var söluáætlun ársins endurskoðuð á ný og nú eru menn að gera því skóna að sementssalan á árinu geti orðið tæplega 130.000 tonn. Vegna þess er talið nauðsynlegt að flytja inn 4.000-5.000 tonn af gjalli frá Englandi í byrjun ágúst, ef ekki á að koma til vandræða með af- greiðslu sements í haust. -DVÓ Sala á sementi frá Sementsverksmiðjunni er langt yfir áætlun. Það var fimmti dagurinn á Austurlandi með sólskini og hita upp undir 30 stig í góðu skjóli. Fréttamaður hitti þenn- an föngulega hóp á tjaldstæðinu á Egllsstöðum 3. ágúst. Þetta eru sjö systkini með maka og fimm börn og búa á hinum ýmsu stöðum á landinu en ættuð frá Hellissandi. Þar býr líka einn bróðirinn, Ægir Þórðarson, fyrrverandi fréttaritari DV, lengst tii hægri. DV-mynd Sigrún Um 60 manns skráðu sig til herþjónustunnar. DV-mynd Júlía Græni herinn á Höfn Græni herinn tók rösklega til starfa á Höfn og gróðursetti tré og þökulagði við gangbraut meðfram Víkurbraut og einnig var byrjað að rífa gamalt fjárhús sem stendur inn- an við bæinn. Um 60 manns skráðu sig til herþjónustunnar en mættu ekki allir þegar til kom.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.