Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Síða 19
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999
k
DV
Fréttir
Pöbbinn á Flateyri:
Séra Gunnar
blessaði staðinn
DV, Flateyri:
„Ég vil þakka fyrir að við skulum
geta komið hér saman í þessum fal-
lega garði, við þetta sögufræga hús,
sem svo margar góðar minningar og
dýrmætar eru bundnar við,“ sagði
séra Gunnar Bjömsson, sóknar-
prestur Flateyringa, þegar hann hóf
útimessu í garði Veitingahússins
Vagnsins á Flateyri.
Sá frægi pöbb, Vagninn, er mið-
stöð mannlífs á Flateyri og hefur
þar oft verið tjaldað frægum stjöm-
um skemmtanalífsins. Enda staður-
inn fengið á sig það orð að þar sé
kraumandi mannlífspottur. En
aldrei áður hefúr verið haldin guðs-
þjónusta á Vagninum og segjast þau
hjón Þórður Jónsson og Lára
Thorarenssen, sem eiga og reka
Vagninn, ekki vita til þess að áður
hafi verið haldin guðsþjónusta á
pöbb hérlendis. Sr. Gunnar bað
staðnum blessunar um alla framtíð.
„Það hefur verið messað í kirkj-
unni á sunnudögum og átti að ger-
ast að þessu sinni líka en þá fæddist
þessi hugmynd að breyta til í tilefni
af verslunarmannahelginni. Vegna
þess hversu þau heiðurshjón sem
reka Vagninn era búin að koma
þessu í gott horf, með þennan fal-
lega garð þar sem era borð og stól-
ar, var hægt að halda helgistund
hérna. Þá var það ekki síst að Vagn-
inn bauð upp á rausnarlegt messu-
kaffi á eftir. Það tókst ákaflega vel
til og var aðsókn mjög góð,“ sagði
séra Gunnar. -GS
Séra Gunnar Björnsson, sóknarprestur f Önundarfirði, flytur messu í garði
Vagnsins á Flateyri. DV-mynd Guðm. Sig.
Eyj aíj ar ðar s væöiö:
Verðkönnuní
matvöruverslunum
DV, Dalvík:
Samkvæmt verðkönnun, sem
Neytendasamtökin gerðu i sjö mat-
vöraverslunum á Eyjafjarðarsvæð-
inu 29. júni sl. í samvinnu við
verkalýðsfélögin á svæðinu, stendur
vöraverð 1 Svarfdælabúð í stað mið-
að við sambærilega könnun sem
gerð var í mars sl. Á tímabilinu hef-
ur verðið lækkað mest í Hagkaupi,
eða um 1,5%, sem þýðir að matar-
karfa sem kostaði kr. 10.000 kostar
nú kr. 9.850.
KEA-Nettó er sem fyrr með
lægsta verðið en þar á eftir koma
KEA, Hrísalundi, og Hagkaup. Verð
í KEA-Nettó hefur hins vegar hækk-
að um 2,8% sem þýðir að matark-
arfa sem kostaði kr. 10.000 í mars
kostar nú kr. 10.280. Ný verslun hef-
ur hafið starfsemi á Akureyri frá
síðustu könnun en það er Hraðkaup
í Kaupangi og er hún með fiórða
lægsta verðið í könnuninni. Þar á
eftir koma svo KEA, Sunnuhlíð,
Svarfdælabúð og loks KEA, Hrisey,
en þar hefur vöraverð hækkað um
1,3% á tímabilinu.
Á Akureyri var verðkönnunin
gerð í 5 verslunum: KEA-Nettó,
Hagkaupi, KEA, Hrísalundi, Hrað-
kaupum, Kaupangi og KEA, Sunnu-
hlíð. Á Dalvík í Svarfdælabúð og hjá
KEA í Hrísey. Könnunin var gerð
samtímis 1 öllum verslununum og
var hún framkvæmd þannig að
skrifað var niður verð í hillum og
einnig fengið verð á kassa. Aðeins
vora teknar þær vörur sem vora í
könnuninni 3. mars sl., alls 97 vöra-
flokkar. Tekið skal fram að um
beinan verðsamanburð er að ræða
en ekki er lagt mat á þjónustustig
sem er mismunandi. -HÍÁ
92 tonna byggðakvóti til Grímseyjar:
Skipt á milli bátanna í plássinu
Þorlákur Sigurðsson, oddviti í
Grímsey, var ekkert búinn að fá í
hendumar þegar DV talaði við
hann um byggðakvótaúthlutun
Byggðastofhunar. „Ég hef heyrt það
að Byggðastofnun hafi úthlutað okk-
ur 92 tonnum en ég er ekki kominn
með neitt í hendur um það. Ég hef
því ekkert um þetta annað en það
sem verið hefur í fréttum. Það
stendur ekkert annað til en aö þess-
um kvóta verði skipt á milli bátana
á staðnum. Þetta er kvóti sem ein-
göngu er hugsaður til vinnslu í
plássinu, eða það era forsendurnar
fyrir úthlutuninni, skilst mér.
Kvótastaðan er góð hjá sumum,
sæmileg hjá öðram en það verður
að segjast eins og er að það era til
bátar sem era með lítinn kvóta. Svo
eru menn núna að kaupa bát með
veiðileyfi en hafa hins vegar engar
heimildir.
Það hefur gefið sæmilega hjá bát-
unum og fiskiríið verið aldeilis
óvenjugott. Þeir fóra síðast fram af
Kolbeinsey og þar var mokfiskur og
góður fiskur. Það sem unnið er hér
fer í salt en annað fer í land á mark-
að.“ -HKr.
23
Heildarverðmæti vinninga er
700.000 kr.
29" 100 riða sjónvarp
Heppinn áskrifandi fær SONY
heimabíó frá Japis sem er:
og auk þess:
14" sambyggt sjónvarp og vídeó, ferðageislaspilara fyrir öll börn
og unglinga á heimilinu sem eru yngri en 18 ára.
Dregið 20. ágúst
Vikulega verður dreginn
út áskrifandi sem fær
kr. 30.000 í vöruúttekt að
eigin vali í Útilífi.
6 hátalarar
UTILIF
JAPISS SONY