Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Qupperneq 20
i 24 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 :i f Á > Vegna sögunnar og Mörgum finnst frímerki dagsins í Ragnheiður Viggósdóttir safnar kortum: Of fáir kortasafnarar á íslandi „Frímerki eru góð og holl tómstundaiðja sem er þroskandi og menntandi." DV-mynd E.ÓI. Magni Magnússon frímerkjasali: Geta valdið milliríkjadeilum Frímerki. íslensk spil. Púslu- spil. íslensk mynt. Gömul ís- lensk póstkort. Landakort frá 17. öld. Þetta er sá heimur sem Magni Magnússon hefur lifað og hrærst í undanfama áratugi en hann rekur verslunina Hjá Magna. Hann var sjö ára þegar hann % byrjaöi að safna frímerkjum. „Þá 'gaf föðurbróðir minn mér Flikk- flakk þvottaefnapakka sem í voru frímerki. Það kveikti í mér en í gegnum frímerkin fékk ég áhuga á landafræði. Þegar ég komst á kyn- þroskaaldurinn og fór að hugsa um konur lá söfnunin niðri um tima.“ Magni hefur verslað með frí- ^‘merki síðan 1964. „Ég fann það fljót- lega út að maður getur ekki bæði safnað og rekið verslun þar sem seld eru frímerki." Hann er því hættur að safna sjálfur. „Frímerkin segja okkur söguna og frímerkin hafa meira að segja valdið millirikjadeilum. Það gerðist í Suður-Ameríku en mynd af landa- mærum á viðkomandi frímerkjum var skökk. Það skapaði voðalegar deilur. Nýlega gerðist það að Banda- ríkjamenn urðu að eyðileggja eitt hundrað milljónir frímerkja vegna þess að rangar upplýsingar voru á merkinu." Magni segir að frímerki séu fróð- leikur og að þau geti verið mikil landkynning. „Þau eru góð og holl tómstundaiðja sem er þroskandi og menntandi." Hann segir að söfnunarárátta sé í öllum. „Menn hafa þessa bakteríu í sér.“ -SJ Ég safna íslenskum póstkort- um frá fyrri hluta aldarinn- ar, eða frá því þau.byrjuðu að koma út um aldamótin, til 1950,“ segir Ragnheiður Viggós- dóttir. Um 20 ár eru síðan hún byrjaði að safna kortum. „Þótt þessu hafi fylgt dálítil vinna og nokkur kostnaður þá finnst mér þetta hafa verið eingöngu frábær skemmtun og talsverður fróðleik- ur. Myndir segja ýmsar sögur og leiða mann út á þá braut að fara að rannsaka betur og skyggnast á bak við það sem liggur í augum uppi.“ Kortin hefur Ragnheiður fengið víða. Flest eru frá Hjá Magna. „Margir fleiri hafa selt mér kort og talsvert hefur mér verið gefið, bæði af kunnug- um og ókunnugum. Svo hef ég ver- ið á stórum kortamörkuðum er- lendis en ég safna líka dönskum og vissum gerðum af þýskum og frönskum kortum. Það er auk þess frábær skemmtun að koma á slíka markaði þar sem aflir eru á sama áhugasviði." Raghheiður segir að kortasöfnun sé vin- sæl tómstundaiðja í útlöndum. „Hér á landi erum við hins vegar allt of fá í þessu." Hún hefur unn- ið að skrásetningu ís lenskra póstkorta frá timabilinu sem um get- an og þau sem hún getur heimfært á ákveðna útgefendur. í allt eru kortin um 2700. „Skrá þessa hef ég unnið út frá eigin safni. Auk þess hafa Þjóðminjasafnið, Háskóla- bókasafnið og Árbæjarsafn leyft mér að fara í gegnum það sem þar er til og er ég þeim öllum mjög þakklát fyrir þá aðstoð og tiltrú sem ég naut.“ Ragnheiður segist hafa hugsað sér að gefa skrána út í snotru hefti með nokkrum myndum, aðallega með kortasafnara framtíðarinnar í huga. „Þar sem kostnaður við svona útgáfu yrði líklega nokkuð mikUI og sölumöguleikar litlir hef ég ekki látið til skarar skríða." -SJ „Þótt þessu hafi fylgt dálítil vinna og nokkur kostnaður þá finnst mér þetta hafa verið eingöngu frábær skemmtun og talsverður fróðleikur." DV-mynd Teitur fróðleiks dag og póstkort úti í búð ekki ýkja merkileg. Frtmerki og póst- kort liðinna ára geta hins vegar verið dýrgripir. Sigurður Pátursson, formaður Landssambands íslenskra frímerkjasafnara: Með myndum af málverkum É Sjaldgæfur hlutur í höndum Sigurðar: Bréfspjald frá 1897. Um er að ræða kort sem sent var frá Reykjavík og var stimplað með kórónustimpli frá Auðkúlu. DV-mynd Hilmar Þór g fékk berkla þegar ég var Þegar ég kom heim var móðir tveggja ára og var á spítala mín alltaf að flnna eitthvað fyrir þangað til ég var sex ára. mig að gera. Henni datt m.a. í huga að leiða mig inn í frímerkja- heiminn." Síðan eru liðin 49 ár. Eitt óif fyrstu frímerkjunum sem Sigurður Pétursson eignaðist var eins eyris frímerki með mynd af Jóni Sigurðssyni. Það var gefið Út 1911. „Fyrst og fremst hef ég safnað frímerkjum mér til ánægju. Ein- hver fróðleikur er í kringum hvert þeirra. Fólk sem hefur gaman af að dunda er að raða frí- merkjunum fram og til baka. Hjá mér hefur þetta þróast þannig að ég á ágæt söfn sem ég hef sýnt á sýningum." Nýlega fékk hann verðlaun á alþjóðlegri sýningu í París. „Það er líka góður félags- skapur í kringum frímerkin." Hann safnar aðallega íslensk- um frímerkjum. „Flestir safnarar hafa sem aðalsöfnunarsvið landið sem þeir búa í. En auðvitað á ég frímerki víða að úr heiminum. Ég safna til dæmis sérstaklega frímerkjum með myndum af mál- verkum eftir þekkta málara." Sig- urður segir að útlendir safnarar llti íslensk frímerki nokkuð já- kvæðum augum. „Þau þykja fal- leg. Auk þess eru þau gefin út í minna upplagi en flest önnur frí- merki.“ Þegar vinnudegi lýkur finnst Sigurði gott að setjast niður með safnið, slappa af og láta hugann reika. Hann safnar fleiru. „Ég safna til dæmis vindlamerkjum og rak- vélarblöðiun." -SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.