Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Blaðsíða 30
34 FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 Afmæli_______________________ Guðrún Aðalsteinsdóttir Guðrún Aðalsteinsdótt- ir, húsmóðir og þjónustu- fulltrúi, Kópavogsbraut 82, Kópavogi, er sextug í dag. Starfsferill Guðrún ólst upp á Sel- fossi, Bessastöðum og Nesi á Seltjarnarnesi. Hún byrjaði í skóla á Álftanesi en lauk barna- skóla í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Guðrún Guðrún Aðalsteinsdóttir. Reykjavik árið 1957. Síð- ustu 27 árin hefur hún stundað verslunar- og skrifstofustörf hjá Land- flutningum/Samskipum. Fjölskylda Guðrún giftist árið 1963 Sverri Guðmundssyni, f. 27.10. 1937, verkfæra- verði hjá Heklu. Foreldr- ar hans voru Guðmund- ur Jónas Helgason verkamaður, f. 28.12. lauk prófi frá Kvennaskólanum í 1899, Görðum í Útskálasókn, d. 23.5. 1989, og Guðrún Helgadóttir, f. 18. 12. 1897, d. 5.3. 1971, húsmóðir. Þau bjuggu í Reykjavík. Börn Guðrúnar og Sverris eru Guðlaug, f. 24.7. 1958, bréfberi í Reykjavík, hún á 4 börn; Aðalsteinn Sigurvin, f. 13.10.1964, bifvélavirki í Reykjavík, á eitt barn; Guðmundur Jónas, f. 29.10.1966, trésmiður, á eitt barn. Systkini Guðrúnar eru Hólmfríð- ur Þorgerður, f. 30.12. 1940, fram- kvæmdastjóri, Kópavogi; ísfold, f. 20.3. 1946, aðstoðarmaður iðjuþjálfa, Mosfellsbæ; Þorsteinn, f. 12.3. 1948, rafvirkjameistari, Reykjavík; Helga, f. 21.9. 1950, húsmóðir og nemi, Reykjavík; Aðalsteinn, f. 8.5. 1952, hestamaður í Noregi; Birgir, f. 30.3. 1955, bóndi, Bakka á Kjalarnesi; Svanlaug, f. 3.4. 1959, bréfberi, Mos- fellsbæ. Guðrún er dóttir Aðalsteins Sig- urvins Þorgeirssonar, f. 19.1. 1916 í Önundarfirði, d. 26.2. 1987, bústjóra og dýraeftirlitsmanns, og Svanlaug- ar Þorsteinsdóttur, f. 17.1. 1919 í Reykjavík, húsmóður í Mosfellsbæ. Sigtryggur Kristmundur Jörundsson Sigtryggur Kristmundur Jörunds- son, Silfurgötu 8a, ísafirði, er ní- ræður í dag. Eiginkona hans verður 85 ára þann 19. ágúst næstkomandi. Starfsferill Sigtryggur fæddist á Flateyri við Önundarfjörð. Hann ólst upp á Flat- eyri til 5 ára aldurs, síðar i Álfadal á Ingjaldssandi við Önundaríjörð, frá 1930 hefur Sigtryggur búið á ísa- firði. Skólaganga Sigtryggs var ekki löng, einungis nokkrar vikur í bamaskóla. í fjölmennum barna- hópi var hver vinnandi hönd vel þegin og þegar upp úr fermingu r byrjaði hann að sækja sjóinn, fyrst frá Núpi í Dýrafirði. Sigtryggur stundaði sjómennsku allt fram á sjötta áratuginn. Eftir það vann hann alla almenna vinnu í landi, gekk í múrverk og smíðar, ók vörubílum, var gröfu- og kranamaður og brunavörður hjá Slökkviliði ísafjarðar um árabil. Siðast starfaði Sigtryggur hjá Hrað- frystihúsinu Norðurtanga við ýmis konar viðhald og var vaktmaður á toguram fyrirtækisins. Með fram sínum fóstu störfum stundaði Sig- tryggur ýmsa íhlaupavinnu. Hann steypti m.a. netasteina og hleðslu- steina til húsbygginga. Einnig smíð- aði hann fiskigogga og herti harð- í i fisk- Fjölskylda Sigtryggur kvæntist 1. desember 1934 Hjálmfríði Sigurást Guðmunds- dóttur, f. 19. 8. 1914, húsfreyju. For- eldrar hennar voru Guðmundur Jónsson, landpóstur í Vatnadal í Súgandafirði, f. 4.8.1872, d. 8.10. 1960, og Anna Jóns- dóttir húsfreyja, f. 13.7. 1871, d. 12.12. 1944. Guð- mundur og Anna fluttu til ísafjarðar 1918 og bjuggu þar til æviloka. Börn Sigtryggs og Hjálmfríðar eru Guðjón Gísli Ebbi, skipstjóri í Reykjavík, f. 22.9. 1935. Kona hans er Halldóra Þorláksdóttir, starfsstúlka og húsfreyja, f. 12.9. 1936. Eiga þau 5 börn, 11 bama- böm, eitt barnabarnabarn; Guðmundur Annas, stýri- maður, f. 24.12. 1937, d. 10.3. 1961; Alda Erla, hjúkrunarfræðingur á ísafirði, f. 24.6. 1939. Maður hennar er Birgir Hermannsson, skipstjóri, f. 22.9. 1939. Þau eiga 4 böm og 5 barnabörn; Jörundur Sigurgeir, skipstjóri á ísafirði, f. 29.6. 1942. Kona hans er Helga Sigurgeirsdótt- ir, hjúkmnarfræðingur, f. 18.2.1940. Þau eiga 4 börn og 10 barnabörn; Anna Guðrún, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 5.9. 1944. Maður henn- ar er Ámi Sigurbjörnsson, deildar- stjóri, f. 9.4.1941. Þau eiga 4 böm og 5 bamaböm; Tryggvi Marías, kenn- ari á ísafirði, f. 9.3. 1946. Kona hans er Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir, námsráðgjafi, f. 20.1. 1948. Þau eiga 4 börn, 6 barnabörn; Hólmfríður, starfsstúlka og húsfreyja, f. 26.10. 1947. Maður hennar er Ámi Gunnar Sigurjónsson, smiður, f. 21.4. 1945. Þau eiga 4 börn og 5 barnabörn; Árni, smiður í Hafnarfirði, f. 9.12. 1949. Kona hans er Guðbjörg Skúla- dóttir, starfsstúlka, f. 17.6. 1956. Þau eiga 3 börn; Jón Bjöm, tannlæknir í Keflavík, f. 15.11.1954. Kona hans er Magdalena Sirrý Hafn- fjörð Þórisdóttir, kenn- ari, f. 14.4.1955. Þau eiga 2 börn; Hreiðar, kennari i Reykjavík, f. 6.7. 1956. Kona háns er Sigurrós Erlingdóttir, kennari, f. 19.6. 1956. Þau eiga 3 börn; Katrín, húsfreyja á ísafirði, f. 11.8. 1959. Maður hennar er Stein- grímur Jónsson, bifvéla- virki og bóndi, f. 14.11. 1960. Þau eiga 3 börn; Systkini Sigtryggs: Guð- jón, f. 15.1. 1894, d. 22.9. 1921, sjómaður, Ingjalds- sandi; Ebenezer, f. 30.7. 1895, d. 11. 11. 1913 sjómaður, Ingjaldssandi; Ingibjörg, f. 30.9. 1896, d. 6.12. 1984, húsfreyja, Reykjavík; Rakel Katrin, dó ung; Rakel Katrín Jóna, f. 17.9. 1900, d. 6.5. 1956, húsfreyja; Gísli Guðbjartur, f. 8.9. 1901, d. 22.9. 1921, sjómaður, Ingjaldssandi; Sigurjón Árni, f. 14.10. 1903, vélsmiður í Reykjavík; Gratíana Sigríður, f. 29. 6. 1905, d. 28.4. 1972, húsfreyja á Húsavík; Ágúst Guðmundur, f. 6.11. 1906, d. 19.5.1964, verkamaður á ísa- firði; Jóhann Guðbjartur, f. 20.5. 1908, d. 26.4. 1995, verkamaður í Hafnarfirði; Hannes Hjalti, f. 24.3. 1912, d. 11.7. 1979, skósmiður í Reykjavík; Guðrún Ebba, f. 6.10. 1914, húsfreyja í Kópavogi; Gunnar, f. 10.11. 1915, d. 25.12. 1992, verka- maður á Akranesi; Sigurður Páll, f. 5.12. 1918, d. 23.12. 1992, skósmiður í Reykjavík. Foreldrar Sigtryggs voru Jörund- ur Kristófer Ebenezerson, f. 1.12. 1862, d. 13.8. 1936 og Sigríður Árna- dóttir, f. 13.8. 1874, d. 18.2. 1963. Sigtryggur Kristmundur Jörundsson. Smáauglýsingadeild DV er opin: • virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22 Tekið er á móti smáauglýsingum til kl. 22 til birtingar nœsta dag Ath. Smáauglýsing í Helgarblað DV þarf þó að berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag a\\t mil/i hirmnx Smáauglýsingar 550 5000 Ætt Jörundur var fæddur í Furufirði á Ströndum. Foreldrar hans voru Guðrún Jörundsdóttir, f. 1831, d. 8. 5. 1890, ættuð frá Bolungarvík og Norðurfirði á Ströndum og Ebenez- er Sigurðsson frá Furufirði, f. 9.8. 1837, d. 5.8. 1912. Ekki er vitað með vissu um foreldra Guðrúnar en menn halda að þeir hafi verið ann- aðhvort Jörundur Guðmundsson, kallaður Grallara-Jörundur og Her- dís Eggertsdóttir frá Stóru-Árvík eða Jörandur Ásbjörnsson Norður- firði og Herborg Ásgrímssdóttir frá Bolungarvík, Ströndum. Foreldrar Ebenezers voru Sigurður Alexíus- son (selskytta) frá Furafirði og Dröngum og Guðrún Ebenezersdótt- ir frá Barðsvík. Sigriður var fædd að Læk í Aðal- vík. Foreldrar hennar vora Katrín Gísladóttir, f. 25.9.1849, d. 17.7. 1882, frá Þverdal í Aðalvík og Ami Sig- urðsson, f. 26.9.1843, d. 25.1.1937, frá Læk í Aðalvík. Katrín var fyrri kona Áma og bjuggu þau á Læk og í Þverdal. Síðar bjó Árni í Skáladal í Aðalvík með seinni konu sinni Herborgu Ebenezersdóttur (systur Jörundar, föður afmælisbarnsins). Foreldrar Árna voru Sigurður Sigurðsson, f. 23.3.1823, d. 22.1.1906, frá Sléttu og Ingibjörg Jónsdóttir frá Horni. Foreldrar Katrínar vora Gísli Halldórsson í Þverdal og KetO- ríður Bjarnadóttir frá Görðum. Sigtryggur og Hjálmfríður héldu upp á afmæli sín með börnum sín- um og fjölskyldu á ísafirði um versl- unarmannahelgina ída Sigurðardóttir ída :3igurðardóttir, Böðvarsgötu 19, Borgarnesi, er 65 ára í dag. Eig- inmaður hennar er Jón Þ. Björns- son. Afmælisbarnið verður að heim- an í dag. Henni þætti vænt um að systkinaböm hennar og fjölskyldur þeirra tækju daginn snemma og litu við á Böðvarsgötu 19 á leið á ættar- mót í Hvítársíðu þann 14. ágúst nk. DV Til hamingju með afmælið 5. ágúst 85 ára Stefán Guðmundsson, Hlíðarvegi 45, Siglufirði. 75 ára Gunnar R. Gunnarsson, Litlagerði 8, Reykjavík. Ingólfur Ámason, Byggðavegi 132, Akureyri. 70 ára Sigríður Guðlaugsdóttir, Álfaheiði 42, Kópavogi. Sigurborg * Sigurbjömsdóttir, Tjarnarbraut 9, Egilsstöðum. Sigurður Kristjónsson, Munaðarhóli 10, Hellissandi. 60 ára Adolf Haraldsson, írabakka 18, Reykjavík. Anna M. Þorsteinsdóttir, Safamýri 93, Reykjavík. Áslaug Þorsteinsdóttir, Frostafold 28, Reykjavík. Guðbrandur Valtýsson, Hlíðarvegi 84, Njarðvik. Guðrún Jóhanna Jóhannsdóttir, Grýtubakka 22, Reykjavik. 50 ára Aldís Sigurðardóttir, Lækjarbergi 58, Hafnarfirði. Benedikt Steinþórsson, Svínafelli 3, Bölta, Fagurhólsmýri. Brynjólfur Sigurðsson, Noröurtúni 6, Bessastaðahreppi. Chunmao Li, Skólavörðustíg 16, Reykjavík. Guðrún Helga Pálsdóttir, Framnesvegi 62, Reykjavík. Kristín Árnadóttir, Nesvegi 47, Reykjavík. Magnea Erla Ottesen, Smáratúni 2, Keflavík. Sigurbjörg Ólafsdóttir, Lágmóa 6, Njarðvík. Trausti Aðalsteinn Egilsson, Borgarholtsbraut 58, Kópavogi. Örn Agnarsson, Melhæð 5, Garðabæ. 40 ára Anna Jóna Jóhannsdóttir, Lönguhlíð 9, Reykjavík. Ermelinda Fjóla Jónsson, Leifsgötu 32, Reykjavík. Guðrún Edda Jóhannsdóttir, Norðurvöllum 48, Keflavík. Haukur Ingvaldsson, Vallarási 4, Reykjavík. Jón Sigurjónsson, Vegghömrum 34, Reykjavík. Margrét Jónsdóttir, Hávegi 37, Siglufirði. Rúnar Jóhann Guðmundsson, Álfatúni 33, Kópavogi. Skúli Thor Svendsen, Bræðraborgarstíg 9, Reykjavík. Sölvi Bragason, Hlíðarhjalla 69, Kópavogi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.