Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Side 33
lyV FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999
37
Sólveig Eggerz Pétursdóttir við
eitt verka sinna.
Myndir í
ævintýrastíl
Sólveig Eggerz Pétursdóttir,
Hrafnistu, Hafharfirði, hefur opn-
að sýningu á vatnslitamyndum og
olíumyndum, sem unnar eru á
rekavið, í Þrastarlundi. Að sögn
Sólveigar eru myndirnar unnar í
ævintýrastil. Sýningin stendur út
ágústmánuð.
Bússa
í Sjóminjasafninu á Eyrar-
bakka stendur yfir sýning á ljós-
myndum Völu Dóru. Nefnist sýn-
ingin Bússa. Þar eru til sýnis 10
svart-hvítar manna- og landslags-
myndir sem teknar eru á og við
Eyrarbakka. Uppsetning sýning-
arinnar er óhefðbundin þar sem
m.a. er notast við þrihymingsmót
úr tré sem er hluti af siglingar-
merki í fullri stærð og á þann hátt
--------------blandar safn-
Sýningar ið sér 1
~ mgu Volu
Dóru. Með ljósmyndasýningunni
minnir safnið á sjálft sig og um-
hverfið. Orðið Bússa, sem sýning-
in dregur nafn sitt af, merkir t.d
stórt skip, skúta, feitlagin kona
og/eða klofhátt stígvél.
Vala Dóra fæddist árið 1974 og
ólst upp á Eyrarbakka. Hún út-
skrifaðist frá ljósmyndaskólanum
Stevenson College í Edinborg en
einnig sótti hún námskeið i Dan-
mörku. Hún hefur haldið nokkrar
einka- og samsýningar síðan 1996,
m.a. í Traverse Theatre í Edin-
borg, North Ayrshire Museum,
Saltcoats á Skotlandi og í Aka-
demie-Gallerie í Múnchen. Bússa
er þó ekki fyrsta sýning Völu
Dóru á Eyrarbakka en hún hélt
einkasýningu í félagsheimilinu
Stað í maí árið 1997.
Sólheimar verða vettvangur heilsu-
daga um helgina.
Heilsubótardagar
Hinir árlegu heilsubótardagar á
Sólheimum í Grímsnesi, sem þau
hjónin Sigrún Olsen og Þórir Barð-
dal standa fyrir, verða 7.-11. ágúst.
Á heilsubótardögum kemur fólk til
að slaka á, borða hollan og góðan
mat, fara í sund, gönguferðir og
endurnærast á llkama og sál. Upp-
lýsingar er.u gefnar í síma 566 8003.
Landsmót Votta Jehóva
Árlegt landsmót Votta Jehóva
verður haldið í íþróttahúsinu í
Digranesi í Kópavogi dagana 6.-8.
________________ágúst. Ein-
Samkomur
Spádómsorð
Guðs og verður fjallað ítarlega um
ýmsa spádóma Biblíunnar sem hafa
bein áhrif á mannkynið nú og í ná-
inni framtíð. Flutt verða þrjátíu er-
indi ásamt umræðum, viðtölum og
sýnikennslu með dæmum. Einnig
verður flutt biblíuleikrit.
Norrænu bændasamtökin
Aðalfundur Norrænu bændasam-
takanna stendur nú yfir og lýkur í
kvöld. Fundurinn er haldinn á Ak-
ureyri. Auk þess sem á fundinum
eru ýmis innri mál samtakanna til
umræðu er sérstakur dagskrárliður
um stöðu kvenna í landbúnaði.
Guitar Islandico á heitum fimmtudegi í Deiglunni:
Órafmagnaður gítardjass
Tríóið Guitar Islandico leikur á
sjötta Tuborg-djassinum á heitum
fimmtudegi í Deiglunni á Akureyri
í kvöld kl. 21.30. Tríóið var stofnað
síðsumars 1998 og hefúr leikið á
nokkrum tónleikum og fengið afar
góðar móttökur. Tríóið hefur fram
að þessu nær eingöngu leikið tónlist
undir áhrifum frá Django Rein-
hardt, Chick Corea, Duke Ellington
og fleirum ásamt frumsömdu efni.
En um þessar mundir er það að út-
setja og æfa gamlar íslenskar meló-
díur sem á að leika inn
á geislaplötu. í tríóinu
eru Bjöm Thoroddsen
og Gunnar Þórðarson á
kassagítara ásamt Jóni Rafnssyni á
kontrabassa.
Bjöm Thoroddsen gltarleikari hef-
ur verið leiðandi í íslensku djasslífi
síðan í lok 8. áratugarins. Hann hef-
ur leikið inn á sex einleiksplötur og
á síðasta ári kom út með
honum geislaplata ásamt
Philip Catherine, Jakob
Fischer og Daugh Raney
sem gestum. Björn hefur leikið með
mörgum erlendum tónlistarmönn-
um, meðal annars Niels Henning-Ör-
sted Pedersen.
Gunnar Þórðarson gítarleikari
hefur verið í fremstu röð ís-
lenskra tónlistarmanna í hart-
nær 40 ár. Hann hefur nú hin
síðustu ár farið meira og meira
í útsetningar og samið tónlist
fyrir sjónvarp, kvikmyndir,
leikhús og sinfóniuhljómsveit.
Jón Rafnsson kontrabassaleik-
ari er klassískt menntaður
bassaleikari með rætur í popp-
og rokktónlist, hefur spilað með
fjölda erlendra tónlistarmanna
og flestum af leiðandi djasstón-
listarmönnum á íslandi í dag.
Hann hefur um árabil starfaö
sem tónlistarkennari við Tón-
listarskólann á Akureyri en
flutti á síðasta ári til Reykjavík-
ur. Aðgangur er ókeypis á tón-
leikana.
Gítardjass verður í hávegum hafður í Deiglunni í kvöld.
Skemmtanir
Hlýjast inn til landsins
í dag er gert ráð fyrir hægviðri,
yfirleitt léttskýjað og hiti 15 til 20
stig.
Veðrið í dag
Næstu daga er gert ráö fyrir
hægri norðlægri eða breytilegri átt
á fóstudag og laugardag. Bjartviðri
víða um lend en þó hætt við þoku-
lofti sums staðar með ströndinni,
einkum að næturlagi. Hiti 10 til 20
stig en fer síðan kólnandi norðaust-
antil.
Sólarlag í Reykjavík: 22.16
Sólarupprás á morgun: 4.52
Síðdegisflóð í Reykjavík: 13.33
Árdegisflóð á morgun: 2.07
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri þoka í grennd 9
Bergsstaðir alskýjaó 9
Bolungarvík alskýjaó 8
Egilsstaðir 8
Kirkjubœjarkl. þoka 9
Keflavíkurjlv. þokuruöningur 10
Raufarhöfn skýjaö 8
Reykjavík léttskýjaö 11
Stórhöfói þoka 9
Bergen léttskýjaö 16
Helsinki skýjaö 18
Kaupmhöfn léttskýjaö 20
Ósló skýjaö 16
Stokkhólmur 21
Þórshöfn súld á síö.kls. 9
Þrándheimur alskýjaó 12
Algarve heiðskírt 19
Amsterdam þrumuv. á s.kls. 19
Barcelona þokumóöa 24
Berlín léttskýjaó 19
Chicago léttskýjaö 21
Dublin rigning 16
Halifax léttskýjaö 16
Frankfurt skúr 19
Hamborg léttskýjaö 19
Jan Mayen skýjaó 5
London mistur 18
Lúxemborg þokumóöa 19
Mallorca þokumóöa 23
Montreal 18
Narssarssuaq rigning 18
New York léttskýjaö 24
Orlando skýjaö 23
París skýjaö 19
Róm
Vín skýjaó 19
Washington léttskýjaö 23
Winnipeg heiðskírt 15
Helstu vegir um
hálendið færir
Helstu vegir um hálendið eru nú færir en vegur-
inn í Kverkfjöll er lokaður vegna vatnaskemmda.
Það skal áréttað að þótt vegir um hálendið séu sagð-
ir færir er yfirleitt átt við að þeir séu færir jeppum
og öðrum vel útbúnum fjallabílum.
Færð á vegum
Vegirnir um Kjöl, Kaldadal og yfir í Landmanna-
laugar frá Sigöldu eru þó færir öllum bílum.
4^ Skafrenningur
m Steinkast
E2 Hálka
Ófært
Ástand vega
0 Vegavinna-aögát s Öxulþungatakmarkanir
m Þungfært (£) Fært fjallabílum
Karen Ivanovic
Litla telpan sem hvílir
í fangi bróður síns og
fengið hefur nafnið
Karen Ivanovic fæddist á
fæðingardeild Landspítal-
Barn dagsins
ans 9. júlí síðastliðinn.
Við fæðingu var hún 3825
grömm og 52 sentímetrar.
Foreldrar hennar eru
Brynja Daria Ivonvic og
Andrés Loran Ivanovic
og er hún þeirra annað
barn.
Ron Livingston lelkur forritarann
sem fær hugljómun við dáleiðslu.
Skrifstofublók
Office Space, sem Regnboginn
sýnir, er gamanmynd. í henni seg- *
ir af Peter Gibbons (Ron
Livingstone) sem vinnur sem for-
ritari 1 stóru tölvufyrirtæki. Hon-
um hundleiðist rútinustarfið sitt
og er alltaf að hugsa um að hætta.
Eftir að hafa verið dáleiddur tek-
ur hann ákvörðun um að láta
reka sig úr vinnunni. Til að svo
geti orðið leggst hann í kæruleysi,
hættir að mæta klukkan átta á
morgana, mætir stundum ekki
fyrr en um hádegi og stundum alls
ekki. Þegar yfirmaður hans ætlar
að setja ofan í við hann svar-
ar hann fullum
hálsi. Á hvaða /////////
Kvikmyndir ^
_________________
vinnustað ' sem er,
nema í tölvufyrirtæki,
mundi þessi aðferð ganga upp, en
í tölvugeiranum gilda önnur hug-
tök og í stað þess að vera rekinn
er hann hækkaður í tign. Æðstu
yfirmenn fyrirtækisins sjá i hon-
um mann sem er á hraðferð í líf-
inu og má ekkert vera að því að
hlusta á aðfinnslur annarra.
Nýjar myndir í kvikmynda-
húsum:
Bíóhöllin: Wild Wild West
Saga-Bíó: The Mummy
Bíóborgin: Matrix
Háskólabíó: Notting Hiil
Háskólabíó: Fucking Ámál
Kringlubíó: Wing Commander
Laugarásbíó: Austin Powers
Regnboginn: Virus
Stjörnubíó: Gloria
Krossgátan
1 2 3 4 5 6 7
8 9
10 11
12 13 14
15 16 17
18 18 20 21
22
Lárétt: 1 hundur, 8 góð, 9 hvíldi, 10
strax, 11 hæfan, 12 spil, 13 ramma,
15 stólpi, 17 samtök, 18 oddi, 20
mynteiningu, 22 fræg.
Lóðrétt: 1 gæfa, 2 mánuður, 3 ham-
ingja, 4 ákafur, 5 krotar, 6 hreyfist,
7 mjúk, 12 kvenmannsnafn, 14
kássa, 16 hagnað, 17 elskar, 19
málmur, 21 ofn.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 býli, 5 lóu, 8 ólina, 9 an, 10
lið, 11 nudd, 13 gruggug, 16 angist,
19 gaul, 20 ótt, 21 áma, 22 daun. Lóð-^*
rétt: 1 bólga, 2 ýlir, 3 liðugu, 4 inn,
5 laug, 6 óa, 7 und, 12 duttu, 14 gild,
17 nam, 18 sóa, 19 gá.
Gengið
Almennt gengi Ll 05. 08. 1999 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollqengi
Dollar 72,280 72,640 73,540
Pund 116,750 117,350 116,720
Kan. dollar 48,410 48,710 48,610
Dönsk kr. 10,4580 10,5160 10,4790
Norsk kr 9,3640 9,4150 9,3480
Sænsk kr. 8,8710 8,9200 8,8590
Fi. mark 13,0830 13,1616 13,1223
Fra. franki 11,8587 11,9300 11,8943 tv
Belg. franki 1,9283 1,9399 1,9341
Sviss. franki 48,6600 48,9300 48,8000
Holl. gyllini 35,2986 35,5107 35,4046
Þýskt mark 39,7723 40,0113 39,8917
it lira 0,040170 0,04042 0,040300
Aust. sch. 5,6531 5,6870 5,6700
Port. escudo 0,3880 0,3903 0,3892
Spá. peseti 0,4675 0,4703 0,4690
Jap. yen 0,630500 0,63430 0,635000
irskt pund 98,770 99,363 99,066
SDR 98,830000 99,42000 99,800000
ECU 77,7900 78,2600 78,0200 *
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270