Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1999, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1999, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓU BJÖRN KÁRASON Aöstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingan 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plðtugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuöi 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblaö 230 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viömælendum fýrir viötöl viö þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim. Röng hugsun Hugmynd forsætisráöherra um aö breyta lögum til aö tryggja dreifða eignaraðild að flármálastoöiunum er góðra gjalda verö en byggist á misskilningi á eöb fijálsra við- skipta. Rómantískar hugmyndir um að hægt sé að vemda milli- stéttina, sjálfstæða atvinnurekandann, handverksmanninn, kaupmanninn á hominu, og aðrar svokallaðar félagslegar ástæður hvetja til óeðlilegrar íhlutunar hins opinbera. Þær opna möguleika á því að ríkisvaldið grípi inn í eðlilega starfsemi markaðarins og ganga þvert á þær hugsjónir sem forsætisráðherra stendur fyrir. Útilokað er að setja ákveðnar reglur um æskilega stærð fyrirtækja þar sem hún ræðst af tækni og efiiahagslegum aðstæðum sem em sífelldum breytingum undirorpnar. Með sama hætti er óframkvæmanlegt að tryggja ákveðna dreif- ingu á eignarhaldi hlutafélaga á opnum hlutabréfamarkaði. Allar slíkar tilraunir munu leiða til þess að spamaður al- mennings, sem bundinn er í hlutabréfum, er að hluta gerð- ur upptækur - þjóðnýttur - og hlutabréfamarkaðurinn sjálf- ur verður ekki nema nafiiið eitt. Möguleikar fyrirtækja til að afla áhættufiár til rekstrar verða stórkostlega skertir og það aftur mun draga úr möguleikum þeirra til framþróun- ar. Starfsmenn, hluthafar og almenningur er hlunnfarinn. Lög um dreifða eignaraðild að fyrirtækjum er því sett til höfuðs almannahagsmunum til lengri tíma. Því verður ekki trúað að ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sé tilbúin að greiða slikt verð fyrir fallega rómantíska hug- sjón. Einkavæðing fjármálakerfisins er eitt mesta heillaspor er tekið hefúr verið hér á landi undanfama áratugi. Með því að losa dauðatak ríkisvaldsins og stjómmálamanna á fjármálakerfinu er mdd leiðin til aukinnar samkeppni, hag- ræðingar og lægri vaxta. Markmiðið er því að losa ríkið út úr rekstri sem það á ekki að hafa með höndum - ekki síst rekstri sem er í beinni og óbeinni samkeppni við einkafyrirtæki. Dreifð eignarað- ild að einkavæddum ríkisfyrirtækjum kann að vera mark- mið til skamms tíma en gengur ekki upp þegar litið er til framtíðar. Raunar getur of mikil dreifing á hlutabréfaeign komið í veg fyrir að kjölfestufjárfestar fáist til að leggja fé í fyrrum ríkisfyrirtæki og fyrirtækin verða þar með munað- arlaus. Hagsmunir almennings eru ekki fólgnir í því að leggja sparifé í munaðarlaus fyrirtæki þar sem enginn á verulegra fiárhagslegra hagsmuna að gæta. Hitt er svo annað að gagnrýna má þá aðila sem stóðu að kaupum á stórum hlut í Ejárfestingarbanka atvinnulífsins í gegnum erlent eignarhaldsfyrirtæki. Hvemig staðið var að málum er gott dæmi um klaufaskap í því sem fagmenn kalla almannatengsl. Hins vegar er vandséð að þar hafi menn gerst sekir um annað en dómgreindar- eða hugsunar- leysi. Viðbrögð Verðbréfaþings við fréttum um hlutabréfa- kaupin vekja hins vegar nokkra undrun enda fúllur vafi á því að starfsmenn þingsins hafi lagaheimild til að stöðva viðskipti eftir að flöggunarskyldu hefúr verið sinnt. í þessu sambandi er vert að benda á að fjöldi eignarhaldsfélaga hef- ur á undanfömum árum keypt stóra hluti í ýmsum fyrir- tækjum sem skráð em á Verðbréfaþingi íslands. Um eign- arhald margra þessara eignarhaldsfélaga er lítið sem ekk- ert vitað. íslendingar em enn að læra nýja siði sem fylgja auknu frelsi og á skólabekk hafa menn leyfi til að misstíga sig svo lengi sem lært er af mistökunum. Óli Bjöm Kárason Jónas ritstjóri Kristjánsson sýn- ir mér þann óverðskuldaða heiður að geta mín í leiðara sínum ný- lega. Sá böggull fylgir þó skamm- rifi að tilefhið er heldur leiðinlegt og það sem verra er - ritstjórinn skrifar pistil sinn í geð- vonskukasti. Hlutverk Jónasar ritstjóra er að flytja fréttir, viðra skoðanir og birta myndir til þess að blað hans seljist og skili gróða. Satt best að segja hefur Jónasi tekist nokkuð vel til - því DV virðist skila bara fjári góðum hagnaði. Um aðferðir til að selja blað má lengi deila. Ekki er ég alltaf sammála upp- sláttaraðferð DV eða fréttamati. Kapphlaupið um að verða fyrstur með fréttir getur orðið grátbros- legt í augum lesenda. Eitt tel ég þó alla sanngjama blaðamenn verða að láta ráða skrifum sínum: Hvaða áhrif hefur fréttin? Á stundum hef- „Segja má að eftirlitsaðilinn hafi hrætt Irftóruna úr fólki með dramatískum lýsingum. Kjúklingasala dottin niður og annað tekur við.“ - Frá kjúklinga- búinu Reykjagarði á Ásmundarstöðum. Heggursá er hlífa skyldi brögðin hafa heldur ekki látið á sér standa. Segja má að eftirlitsaðilinn hafi hrætt líftóruna úr fólki með drama- tískum lýsingum. Kjúklingasala dott- in niður og annað tekur við. Það merkilega er hins vegar að eins og ís- lendingar hafa verið iðnir við að eta kjúklinga þá ætti drjúgur hluti þjóð- arinnar að vera dauður af völdum þessa á allra síðustu misserum. Og þá Kjallarinn Hjálmar Arnason alþm. og áhugamaður um matargerð „Þaö merkilega er hins vegar að eins og íslendingar hafa verið iðnir við að eta kjúklinga þá ætti drjúgur hluti þjóðarinnar að vera dauður af völdum þessa á allra síðustu misserum. Og þá með fullri vitund hinna heilbrigðu eft- irlitsaðila. “ ur það gleymst, t.d. við myndbirt- ingu af hörmulegum slysum. Þannig finnst mér DV hafa gleymt ábyrgð sinni í svokölluðu kjúklingamáli. Matargerð hættuleg? Auðvitað er það hrein della hjá Jónasi ritstjóra að undirritaður taki afstöðu í málinu vegna meints framboðs í næstu kosningum. Harm veit auðvitað hetur. Málið snýst hvorki um framboðsraunir, persónulega hagsmuni eða annað í þeim dúr. Þetta mál er alvarlegra en svo að ritstjórar, embættis- menn eða aðrir geti opinberlega um það fjallað í hálfkæringi eða geðvonsku. Og auðvitað er engum sama um íslenska neytendur. Hvaða endemis rugl er þetta, rit- stjóri minn góður? Kjami málsins er einfaldur: Allur matur hefúr í sér einhverja gerla eða efhi sem geta valdið einhverri röskun á heilsu. Hver hefur ekki fengið „skot“ af kræk- lingum, góðri lambasteik, nauta- kjöti eða jafhvel grænmeti? Rétt- lætir það „dauðadóm“? Kjami málsins er auðvitað sá að við alla matargerð ber að gæta fyllsta hreinlætis. Og nú má spyija hvort grill-stemningin á sumrin sé sniðin að öllum hreinlætis- reglum. Svari hver fyrir sig. Sjálf- m- viðurkenni ég að í hita leiksins kunni grænmeti og kjöt aö snert- ast. Ekki er ég viss um að alltaf sé allt gegnsteikt o.s.frv. En mitt fólk hefur bara tekið þetta sem hluta af grillinu. Og lifum við öll enn. Og era kjúklingar oft á grilli okkar. Samkvæmt lýsingum heilbrigð- isfúlltrúa í DV þá ætti stór hluti fjölskyldu minnar og vinahópur að vera dauður. Hann fullyrðir að kjúklingaát sé á við rússneska rúllettu en dauðalíkur í þeim hæpna leik em afar háar. Við- með fúllri vitund hinna heilbrigðu eftirlitsaðila. Veldur hver á heldur Auðvitað er þetta aöför opinbers aðila að fyrirtæki og heilli bú- grein. En aðförin stendur á brauð- fótum. Það hefur nefhilega ekkert óyggjandi komið ffarn um að Ás- mundarstaðabúið sé sýkt eða hættulegt. Héraðsdýralæknir, yfir- dýralæknir og landlæknir hafa staðfest það álit. Allir kjúklinga- framleiðendur era meö stöðugt eft- irlit í framleiðslu sinni til að fyrir- byggja slys. Líklega er engin kjötframleiðsla undir jafh ströngu eft- irliti. Ekkert hefur verið sannað eða óyggjandi sýnt fram á hvaðan kamfýló-bakterían kemur. Getur hún komið úr vatnsbóli? Er hún í öðru kjöti en kjúklingum eða jafnvel í grænmeti? Um þetta er ekkert vitað. En menn verða hins vegar að komast til botns í því máli. Sá botn verð- ur aldrei fúndinn á síð- um fjölmiðla. Hann finnst við vísindalega rannsókn, yfirveguð vinnubrögð og heið- arleg. Það er háalvarlegt mál ef eftirlitsgeir- inn slær sleggju- dóma sem skaða at- vinnulífið - hvort heldur er heilu bú- greinamar eða ein- stök fyrirtæki. Eftir- litið á að vera virkt og virt. Það verður að byggja á fagleg- um vinnubrögðum þannig að markmið þess náist, þ.e. að veita fyrirtækjum nauð- synlegt aðhald til vemdar neyt- endum. Allt fúsk á þessu sviði sem öðrum gerir eftirlitið óvand- að og marklaust. Uppákoman um kjúklingana er dæmi um fúsk. Gífuryrði án tilefh- is hafa valdið augljósum skaða fyr- ir alla aðila, búgreinina sjálfa, ein- stök fyrirtæki hennar, eftirlitið og grillstemninguna. DV heldúr hins vegar áffarn að seljast og Jónas ritstjóri getur unaö glaður við sitt. Hjálmar Árnason Skoðanir annarra Reykjavík og flugvöllurinn „Núorðið berum við mátulega virðingu fyrir borg- arstjómendum sem af fúrðulegri þröngsýni létu mið- bæinn i Reykjavík drabbast niður. ... Ef ég man rétt mun flugvöllurinn koma til kasta þingmanna á næst- unni. Og líklega verðum við Reykvíkingar að setja traust okkar á þingmenn; að þeir hafi vit fyrir borgar- stjómiimi. Ingibjörgu Sólrúnu þykir illt að fá kannski ekki flugvöllinn sinn nýja, hún bíður í ofvæni eftir því að vörubílalestimar fari að keyra grjót og möl ofan í nýjar flugbrautir. En forsætisráðherra varar við stór- framkvæmdum. Við hljótum að taka mark á oröum hans. Eins og stendur er endurbygging Reykjavikur- flugvallar því ekki ernasta skipulagslegt ragl heldur líka þjóðhagsleg vá.“ Egili Helgason í Mbl-grein 10. ágúst Áfengi og feimnisleg viðhorf „íslensk stjómvöld hafa einkennilega feimnisleg viðhorf til áfengis. Það er eins og drykkju eigi helst að fela í heimahúsum eða vandlega lokuðum veitingahús- um.... Enn á ný era íslensk stjómvöld að gera sig að athlægi með afskiptasemi sem á engan rétt á sér. í stað þess að fjargviðrast yfir þvi að fólk skuli sjást úti við með bjórglas ættu þau að gera harðari atlögu að dópsölum sem ganga svo til óáreittir um stræti og torg. Það era þeir sem bera með sér bölið, ekki veit- ingahúsaeigendur sem leyfa okkur að njóta bjórsins i góða veðrinu." Kolbrún Bergþórsdóttir í pistli sínum, „Áfengisfas- ismi", í Degi 10. ágúst Gamaldags fyrirkomulag „Flestir þeir sem þurfa að leita aðstoðar heilbrigðis- kerfisins hafa góða reynslu af samskiptum við lækna, hjúkrunarfræðinga og annað starfsfólk en verri af hinu ytra skipulagi kerfisins. Þannig er það fyrir- komulag alþekkt að sjúklingum er bent á símatíma sem getur verið hálftími á hveijum degi og þann hálf- tíma hringir fiöldi fólks í viðkomandi lækni, sem þá er að sjálfsögðu nánast alltaf á tali.... Þessar biðraðir er hins vegar enn að finna á símalinum heilsugæzlu- stöðva og sérfræðinga. Þær er líka að finna á biðstof- um þessara aðila, þar sem tímaskipulagið í heilbrigð- isþjónustunni virðist ekki vera upp á það bezta.“ Úr forystugrein Mbl. 10. ágúst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.