Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1999, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1999, Side 9
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 9 Utlönd Noregur í morgun: Fundu flak þýskrar flugvélar Björgunarsveitir í Noregi fundu í morgun flak þýskrar einshreyfils- flugvélar af Cessna-gerð. Vélin hafði hrapað niður í fjallshlíð á Hrein- dýraeyju, - norðaustur af Hammer- fest í Norður-Noregi. Talið er að þýskur flugmaður vélarinnar og far- þegi hans hafi týnt lífi í slysinu. „Flakið fannst skömmu eftir dög- un. Bæði flugmaðurinn og farþeg- inn eru líklega látnir," sagði Bjöm- ar Hansen frá björgunarmiðstöð- inni í Bodö við Reuters-fréttastof- una. Þoka var á slysstaðnum í gær. Flugvélin var á leið frá Tromsö til Honningsvág. Bretland: Filippus prins móðgar Indverja Filippus prins og hertoga af Ed- inborg tókst að gera af sér enn eitt asnastrikið í vikunni þegar hann missti út úr sér lítilsvirð- andi brandara um Indverja. í kjöl- farið neyddist breska konung- dæmið til að bera fram opinbera afsökunarbeiðni en ummælin vöktu engu að síður mikla reiði í garð Filippusar meðal almenn- ings í Bretlandi og fram komu vangaveltur um hlutverk og jafn- vel tilvistarrétt konungdæmisins. Prinsinn var í opinberri heim- sókn í hátæknifyrirtæki nálægt Edinborg þegar hann kom auga á illa tengda rafmagnstöflu og sá ástæðu til að opna munninn. „Þetta lítur út eins og Indverji hafl verið að verki,“ sagði prins- inn lausmáli við framkvæmda- stjóra fyrirtækisins og fjandinn varð laus. Breskir fjölmiðlar grilluðu prinsinn fyrir lausmælgi sína í vikunni og mæltust til þess að hann drægi sig í hlé frá opinberu llfl og léti nægja skot- og fiskveið- ar og annað hefð- og testósterón- bundið karlasport þar sem við- horf hans ættu betur heima. í áranna rás hefur Filippusi m.a. tekist að móðga heyrnar- lausa, Ungverja, Kínverja og Skota - og nú síðast Indverja. Tilræöismaöurinn í félagsmiðstöð gyðinga í LA gaf sig fram: ítalski stórtenórinn Luciano Pavarotti faðmar hér sópransöngkonuna Carmelu Remigio að loknum kvöldtónleikum í Búkarest f tilefni af síðasta aimyrkva aldlarinnar. Um hundrað þúsund manns sóttu tónleikana. Indversk dagblöð í morgun: Hvetja til viðræðna við Pakistanstjórn Indversk dagblöð hvöttu til þess í morgun að stjómvöld á Indlandi og í Pakistan sýndu stillingu og ræddu saman til að draga úr vaxandi spennu milli rikjanna frá því Ind- verjar skutu niður pakistanska eft- irlitsflugvél á þriðjudag. „Enn ein vopnuð átök milli þjóð- anna þjónar hagsmunum hvorugr- ar,“ segir í blaðinu Economic Times. Pakistanar skutu á indverskar orrustuflugvélar við umdeilt landamærasvæði en þvertóku fyrir að hafa skotið á indverskar þyrlur á svipuðum slóðum. Þyrluraar voru á leið frá því að flytja fréttamenn að flaki pakistönsku flugvélarinnar. Ekki er lengra síðan en í siðasta mánuði að löndin tvö sem bæði eru kjamorkuveldi, voru að því komin að heyja fjórða stríð sitt. Deilumar þá, eins og oft áður, snerust um yf- irráð yfir Kasmírhéraði. Lét sig dreyma u m að fara á skotfyllirí Maðurinn sem grunaður er um skotárásina í félagsmiðstöð gyðinga í Los Angeles í fyrradag var sann- færður kynþáttahatari sem lét sig dreyma um að fara á byssufyllirí og skjóta á allt sem fyrir væri, að því er fram kemur í dómskjölum vestra. Hinn 37 ára gamli Buford O’Neal Furrow gaf sig fram við lögreglu í Las Vegas í gær og Vcir fluttur aftur til Los Angeles þar sem hann verð- ur ákærður. Á flóttanum drap Fur- row bréfbera sem var af fil- ippseysku bergi brotinn. Furrow var handtekinn í október í fyrra eftir að hann reyndi að skrá sig inn á geðsjúkrahús nærri Seattle og ógnaði siðan starfsfólkinu með hnífi. „Mér finnst stundum eins og ég Buford O’Neal Furrow, sem grunaður er um skotárásina í Los Angeles í fyrradag, gaf sig fram við lögreglu í Las Vegas í gær. gæti farið yfir um og drepið fólk,“ sagði Furrow við lögregluþjóninn sem handtók hann þá. Starfsfólki sjúkrahússins hafði hann sagt að hann hefði íhugað að skjóta fólk í nærliggjandi verslanamiðstöð. Að sögn félaga Furrows er hann skap- ofsamaður sem á erfitt með að hemja sig. Hann var dæmdur í fangelsi fyr- ir uppákomuna á sjúkrahúsinu. Furrow er félagi í kynþáttahat- arasamtökunum Þjóð Aría og hann gekk aö eiga ekkju stofnanda Regl- unnar, ofbeldissamtaka nýnasista. í sendibifreið Furrows fundust ógrynni vopna og alls kyns bækling- ar með kynþáttahatursáróðri. Lög- reglan í Los Angeles er sannfærð um að Furrow hafl haft stóraðgerð- ir í hyggju. Enn meiri verðlækkun Rýmingarsölu okkar lýkur á sunnudaginn r 10 8 R ú " - ! e y k j a v í k d Fatnaður á alla fjölskylduna Opiö: Mánud-fimmtud. 10 - 18 Pöstudnon ÍO - 19 Laue8rd&eð 10 ■ 18 Sunnudaoa Dnmupeysur I DOO Dömudra.gtir i 990 Dömukíjóiar I 4-90 Vattvesti a stulkur 890 og buxur 790 Skuggalegir fimmtudagar á Skuggabarnum frá 22-01 2 fyrir 1 af öllu til miðnættis + Miller og skot! 22 ára aldurstakmark, frítt inn. P.s.: Diskótekið er opið!!! SINCE 1931

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.