Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1999, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 Foreldrar utan af landi keyptu íbúð fyrir börn í námi í stað þess að leigja: Spara minnst 25 þús und krónur á mánuði Margir sem koma í skóla til Reykjavíkur utan af landi standa í þeim sporum að þurfa að leigja íbúð. Margir bregða á það ráð að kaupa íbúð handa börnunum sín- um til þess að vera í. Margir utan af landi hugsa greiðslur inn á íbúð í Reykjavik sem greiðslur á lífeyrissjóð. Samkvæmt saman- tekt DV, sem sýnd er hér, er mun ódýrara fyrir fólk utan af landi að kaupa sér íbúð og borga inn á hana heldur en að leigja. Foreldr- ar sem eiga tvo drengi sögðu DV hvernig þeirra dæmi væri en ijóst þykir að mun fleiri eru í þeirra sporum. „Það var aldrei nokkur spurn- ing í okkar huga að það kæmi mun betur út að kaupa íbúð fyrir strákana í stað þess að leigja. Við keyptum ibúðina í fyrra og síðan hefur staðan á leigu- markaðnum versnað til muna. Þótt við hefðum tekið lán fyrir nær öllu kaupverðinu er heildar- greiðslubyrði um 39 þúsund krónur á mán- uði að viðbættum 6 þús- und krónum í hússjóð og um 2.500 krónum í fasteignagjöld. Leiga fyrir sams konar íbúð er um 60 þúsund krón- ur svo við erum að spara að minnsta kosti 25 þúsund krónur á mánuði. Og þá er ekki tekið tillit til vaxta- bóta,“ segir faðir utan af landi sem ekki vildi láta nafns síns getið. Hann á tvo syni sem Dæmi um tvo bræður sem keyptu íbúð í bænum 60 fm íbúft í blokk nálægt framhaldsskóla. Verö í júlí 1998 4.600.000 kr. Nær allt kaupverö lánaö. Greiöslubyröi á mán. 39.000 kr. HússjóÖur 6.000 kr. S mánuði Samtals útgjöld 45.000 kr. Fullar vaxtabætur 9.000 kr. á mánuöi Leiga á sambærilegri íbúö 60.000 kr. á mánuöi stunda nám í framhalds- skóla í Reykjavík. íbúðin, 60 fermetra, 2ja herbergja blokkaríbúð í næsta ná- grenni framhaldsskóla, var keypt á nafni annars sonar- ins á 4,6 milljónir. Mikil eftirspurn er eftir húsnæði á leigumarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu og leiguverð mjög hátt. Við- mælandi DV segist I raun vera mjög heppinn að hafa tekið þessa ákvörðun, bæði vegna þess að íbúðaverð hef- ur hækkað mikið á einu ári og mikil spenna ríkir á leigumarkaði. Hann segir að með íbúðakaupunum sparist ekki einungis beinharðir peningar heldur aukist allt öryggi til muna þar sem ekki er hætta á að legiusamningi verði sagt upp. Að auki geti for- eldramir gist í íbúðinni á ferð í bænum og fjölskyldan svo nýtt húsnæðið á ferð í höfúðborginni á sumrin í stað þess að greiða fyrir hótelgistingu. Þessu til viðbótar nefnir hann ferðakostnað í og úr skóla dag hvem en íbúðin er í næsta nágrenni við stóran fram- haldsskóla. Það sem gerir reikningsdæmið enn áhugaverðara er að æskuvin- ur bræðranna úr sama kaupstað dvelur einnig í íbúðinni og hefur greitt fyrir það um 8000 krónur á mánuði. Þegar allt er lagt saman verður nettógreiðslubyrðin rétt rúmar 30 þúsund krónur á mán- uði. Hér er ekki tekið tillit til við- halds. -EIS Internetið gegn afbrotum Hægt er að merkja bæði hjól og bfla með límmiðum merktum Crime-On- Line til að fæla þjófa frá og líka að aðrir geti látið vita ef týndir hlutir finnast. og hafa viðtökur verið ágætar. Bæði fyrirtæki og einstaklingar hafa sýnt áhuga á þesssu. Samband íslénskra tryggingafélaga borgar Crime-On- Line og er þetta endurgjaldslaust fyrir íslendinga. Mikið er lagt upp úr því að ef þetta á að ganga vel þurfi lögreglan að koma að þessu og viðbrögð hafa verið mjög jákvæð hjá henni. Ríkislögreglustjóri hefur kynnt þetta vel, sérstaklega gagn- vart lögregluembættum um allt land. Ef verkefnið skilar árangri og lækkar bótagreiðslur tryggingafé- laga mun það endurspeglast í ið- gjöldum. Sum félög hafa markað þá stefnu að eigin áhætta vátrygging- artaka í tjónum verði lægri ef þeir skrá muni sína í kerfið,“ segir Sig- mar Ármannsson, framkvæmda- stjóri Sambands íslenskra trygg- ingafélaga. Sigmar Ármannsson. Samband islenskra tryggingafé- laga hefur nýlega gert samning við fyrirtæki á Netinu um ókeypis að- gang almennings að skráningar- kerfi sem heitir Crime-On-Line. Kerfið er hugsað þannig að ef hlutir hverfa, týnast eða er stolið geti fólk sem hefur merkt þá áður með lím- miðum og skráð þá fundið þá á Netinu. Lögregla og fleiri geta líka athugaö hvort hlutir sem finnast séu skráðir og þá er auðveldara að skila þeim til réttra eigenda. Þeir sem ekki hafa Netið geta gert skrá um hluti hjá sér og fengið tryggingafélögin til þess að skrá þá. Markmiðið er aö allir geti notað þennan banka því hann á að geta fækkað þjófnuðum og komið í veg fyrir sölu þýfis. Sem dæmi má nefna að hér á landi eru fjölmargir reiðhjólaþjófnaðir á ári hverju. Lög- reglan mun eiga auðveldara með að koma hjólum tO skila ef þau eru skráð og einnig fólk sem finnur hjól á viðavangi ef eigandinn finnst hvergi. í dag skrá mjög margir reiðhjóla- salar ný hjól í grunninn. Þegar hjól- ið er selt er það fært beint inn á nafn eigandans. Þegar einhver fer inn á Netið og athugar einhvem hlut sem þegar er skráður er net- fang skoðarans sent til eigandans. Ef um er að ræða þjófa hjálpar það eigandanum að ná hlutum sem hef- ur verið rænt. Einnig munu ýmsir viðgerðaraðilar athuga hluti sem koma til viðgerðar til þess að kanna hvort þeim hafi verið stolið. Unnt verður að fá sérstaka miða til þess að líma á þá muni sem skráðir eru inn í kerfið. Hægt verð- ur að fá stærri límmiða til þess að líma innan á glugga á bílum. Mið- ana má fá hjá tryggingafélögum sem eru aðilar að Sambandi ís- lenskra tryggingafélaga. Löng reynsla er fyrir því að þjófar forðast að brjótast inn í húsnæði eða bif- reið þar sem sést að verðmætir hlutir eru merktir og skráðir. Að skrá eigur með þessum hætti rýrir verðmæti stolins vamings. „Þetta verkefni fór á stað í byrjun júní. Mikil undirbúningsvinna hef- ur verið lögð í samninga við eigend- ur Crime-On-Line og ríkislögreglu- stjóra. Þegar er byrjað að skrá -EIS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.