Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1999, Qupperneq 22
26
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999
*
Sport
i>v
Texti og myndir:
Góður árangur náðist á
meistaramótinu um síðustu helgi.
Hér er einn keppendanna að koma í
mark í hlaupi.
Sigurvegari í 80 metra grindahlaupi
14 ára stráka var Bergur Ingi Pét-
ursson, FH, en hann er ffyrir miðju á
myndinni. í öðru sæti varð Helgi
Guðmundsson, UDN, en hann er
lengst til vinstri. í þriðja sæti hafn-
aði Vilhjálmur H. Ólafsson, ÍR.
R|
Meistaramót 12-14 ára í frjálsum íþróttum var haldið í Borgarnesi:
Metin fuku
- í kúluvarpi á mótinu
DV, Borgarnesi:
Meistaramót íslands í frjálsíþrótt-
um 12-14 ára var haldið um síðustu
helgi á Skallagrímsvelli í Borgar-
nesi í bongóblíðu. Ágætisárangur
náðist enda aðstaðan á íþróttasvæð-
inu í Borgamesi til frjálsíþróttaiðk-
ana ein sú besta á landinu, ef ekki
sú besta.
Tvö met féllu á mótinu, bæði í
kúluvarpi. Guðrún Bára Sverris-
dóttir, Fjölni, setti met í stúlkna-
flokki er hún kastaði 10,60 metra og
Ásdís Hjálmsdóttir, Ármanni, setti
met í í telpnaflokki er hún kastaði
kúlunni 11,82 metra.
Fleiri stelpur
„Við eram með 305 þátttakendur
frá 19 félögum og það era fleiri
stelpur en strákar. Þetta er svipuð
þátttaka og við bjuggumst við, eöa á
bilinu 300-350. Starfsmenn era á bil-
inu 50-60. Mótshaldið gekk mjög vel
fyrir sig. Þetta era prúðir krakkar
og ganga vel um og þetta er búinnað
vera skemmtileg keppni. Árangur-
inn hefur verið mjög góður,“ sagði
Veronika Sigurvinsdóttir móts-
stjóri, en hún var sérlega ánægð
með viðhorf unga fólksins í
Borgamesi.
Mikill áhugi
„Það fer mikill tími í að halda og
undirbúa svona mót en við eram
komin í ágæta æfrngu, þetta er
þriðja meistaramótið sem við höld-
um og áhuginn á frjálsum íþróttum
er mikill hér í Borgarbyggð. Aðstað-
an er mjög góð og fólk er rosalega
ánægt sem kemur hingaö til okkar,“
sagði Veronika að lokum.
Óvænt
Guðrún Báira Sverrisdóttir úr
Fjölni í Grafarvogi stóð sig svo
sannarlega vel á meistaramótinu
í frjálsum íþróttum. Hún setti
nýtt íslandsmet í kúluvarpi
stelpna er hún kastaði kúlunni
10,60 metra en fyrra metið var
10,41 metri.
Guðrún á einnig íslandsmetið
innanhúss í kúluvarpi „Ég átti
svo sannarlega ekki von á þvi að
setja met enda var ég að kasta
rúma 10 metra fyrir mótið. Ég
æfí frjálsar íþróttir þrisvar í
viku og keppti í öllum greinum á
þessu móti nema i boðhlaupi og
hástökki," sagði Guðrún en hún
byrjaði að æfa frjálsar íþróttir
tíu ára gömul og ætlar að halda
áfram að bæta sig og hún hvetur
ungar stúlkur til að æfa frjálsar
því það er svo gaman.
Góður
efniviður
„Ég er mjög ánægður með ár-
angurinn hjá okkur,“ sagði
Haukur Sigurðsson, þjálfari Ár-
mans, á mótinu. „Flestar stelp-
umar era að bæta sig mjög mik-
ið. Ég er héma bara með stelpur
en enga stráka. Það hefur reynst
erfltt að fá stráka til að fara að
æfa frjálsar í gegnum tíðina. Það
er eins og þeir fari frekar í bolta-
íþróttimar. Ég tel að það sem
hæst beri sé metið hjá Ásdísi og
því er ekki að leyna aö allar
stúlkumar sem ég er að þjálfa
era duglegar að æfa og þess
vegna ná þær þessum góða ár-
angri. Ég er héma með tvo ís-
landsmeistara og að auki ís-
landsmeistara í boðhlaupi telpna
og einnig tvær í verðlaunasæt-
um og ég ætla að fá mun fleiri
verðlaun og er sannfærður um
að það næst,“ sagði Haukur.
„Fann mig
ágætlega"
Kristjana Elísabet Sigurðar-
dóttir, 13 ára stúlka úr HSH,
var að keppa á sínu öðra meist-
aramótsmóti í frjálsum íþróttum
og var nokkuð ánægð með ár-
angurinn.
„Ég keppti í 100 metra hlaupi
og langstökki og fann mig ágæt-
lega. Ég æfi einu sinni í viku
frjálsar íþróttir undir stjóm
þjálfara míns, Ólafar Ingu Óla-
dóttur, og í fyrra keppti ég í 60
metra hlaupi á innanhússmeist-
aramótinu. Mér fannst mjög
gaman á þessu móti. Það var gott
veður og svo er svo mikið af
krökkum sem maður hefur ekki
séð frá síðasta móti og það er
alltaf gaman að hitta kunningj-
ana eftir langan tíma,“ sagði
Kristjana.
Stefnir á
sjöþraut
„Metið kom svo sannarlega á
óvart,“ sagði Ásdís Hjálmsdóttir,
14 ára úr Ármanni, sem setti
glæsilegt íslandsmet í kúluvarpi
stúlkna þegar að hún kastaöi
kúlunni 11,82 metra en eldra
metið var 11,52. Ásdís á einnig
íslandsmetið í kringlukasti með
600 gramma kringlu sem er
38,72.
„Ég var alltaf fljótust að
hlaupa í leikfiminni í skólanum
og að stökkva og leikfimikennar-
inn minn bað mig um að koma
og æfa, sem ég og gerði fyrir
tveimur áram. Ég myndi ráð-
leggja ungum stúlkum að æfa
frjálsar því það er svo gaman. Ég
stefni á það í framtíðinni að fara
yfir í sjöþraut," sagði Kristín
sem er mjög góð í flestum grein-
um frjálsra íþrótta.
Úrslit
á meistaramóti 12-14 ára í frjáls-
um iþróttum.
Besti árangur i hverjum flokki:
12 ára strákar:
Ámi G. Sigurbjömsson, UMSS, fyrir
langstökk, 5,01 m.
Piltar 13 ára:
Bjarki Páll Eysteinsson, Breiöabliki,
fyrir 800 m hlaup á 2.23,37 min.
Piltar 14 ára:
Guðni Þór Magnússon, ÚÍA, fyrir 800
m hlaup á 2.12,24 mín.
Stelpur 12 ára:
Guðrún Bára Sverrisdóttir, Fjölni,
fyrir kúluvarp, 10,60 m.
Telpur 13 ára:
Olga Sigþórsdóttir, UFA, fyrir lang-
stökk 5,02 m.
Telpur 14 ára:
Ásdis Hjálmsdóttir, Ármanni, fyrir
kúfuvarp, 11,82 m.
Sigurvegarar í hverjum flokki:
12 ára strákar:
60 m hlaup: Amór Jónsson, Breiða-
bliki.
800 m hlaup: Helgi Mar Finnbogason,
Fjölni.
4x100 m boóhlaup: Sveit Breiðabliks.
Langstökk: Ámi G. Sigurbjömsson.
Hástökk: Sigvaldi Viðarsson, HSK.
Kúluvarp: Ólafur Thoroddsen, Fjölni.
Spjótkast: Kristján Guðmundsson,
UMSB.
Piltar 13 ára:
100 m hlaup: Óli Tómas Freysson,
FH.
800 m hlaup: Bjarki P. Eysteinsson,
Breiðabliki.
80 m hlaup: Bjarki P. Eysteinsson,
Breiðabliki.
80 m grindahlaup: Óli T. Freysson,
FH.
4x100 m boðhlaup: Sveit Breiðabliks.
Langstökk: Bjarki P. Eysteinsson,
Breiðabliki.
Hástökk: Snorri P. Guðbjörnsson,
UMSE.
Kúluvarp: Bogi P. Eiríksson, HSK.
Spjótkast: Amar M. Þórisson, FH.
Piltar 14 ára:
100 m hlaup: Sigurkarl Gústafsson,
UMSB.
800 m hlaup: Guðni Þ. Magnússon,
UÍA.
80 m grindahlaup: Bergur I. Péturs-
son.
Langstökk: Jónas Þrastarson,
Hrafnaflóka.
Hástökk: Jónas Þrastarson,
Hrafnaflóka.
Kúluvarp: ívar Úlfarsson, HSK.
Spjótkast: Fannar Gíslason, FH.
12 ára stelpur:
60 m hlaup: Inga B. Friðjónsdóttir,
UMSS.
800 m hlaup: Inga B. Friöjónsdóttir,
UMSS.
4x100 m boóhlaup: Sveit Fjölnis.
Langstökk: Inga B. Friöjónsdóttir,
UMSS.
Hástökk: Inga B. Friðjónsdóttir,
UMSS.
Kúluvarp: Guðrún B. Sverrisdóttir,
Fjölni.
Spjótkast: Gígja Hólmgeirsdóttir, Ár-
manni.
13 ára telpur:
100 m hlaup: Sigurbjörg Ólafsdóttir,
USAH.
800 m hlaup: Sigurbjörg Ólafsdóttir,
USAH.
80 m grindahlaup: Sigurbjörg Ólafs-
dóttir, USAH.
4x100 m boðhlaup: Sveit Ármanns.
Langstökk: Olga Sigurþórsdóttir,
UFA.
Hástökk: Olga Sigurþórsdóttir, UFA.
Kúluvarp: Sunna K. Jónsdóttir, UÍA.
Spjótkast: Elfa B. Jónsdóttir, UFA.
14 ára stúlkur:
100 m hlaup: Kristin Hauksdóttir,
UFA.
800 m hlaup: Rakel Ingólfsdóttir.
80 m grindahlaup: Kristín B. Ólafs-
dóttir, Fjölni.
4x100 m boðhlaup: Sveit UFA.
Langstökk: Kristín Hauksdóttir, UFA.
Hástökk: Ingibjörg R. Egilsdóttir, ÍR.
Kúluvarp: Ásdís Hjálmsdóttir, Ár-
manni.
X