Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1999, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1999, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 Fréttir Fýla innan ríkisstjórnar vegna yfirlýsinga Davíös um Fjárfestingarbankann: Davið skammaði sjalf- stæðisþingmennina - sem eru einhuga eftir þinflokksfundinn Hart er deilt um söluna á Fjárfestingarbanka atvinnu- Iffsins. Yfirlýsingar Daviðs hafa varpað skugga á stjórnarsamstarfið. Sjálfstæðismennirnir Sturla Böðvarsson og Tómas Ingi Olrich voru þó vel stemmdir áður en þingflokksfundur hófst í gær. ríkisins í FBA í einu lagi gengi beinlín- Stjómarflokkamir héldu langa þing- flokksfundi í gærdag. Á dagskrá var rammi nýrra fjárlaga en samkvæmt heimildum fór talsverður tími hjá báð- um í að ræða þá kúvendingu sem orð- ið hefur hjá Davíð Oddssyni forsætis- ráðherra í afstöðu til sölu á hlut ríkis- ins í Fjárfestingarbanka atvinnulífs- ins. Svo virðist sem innan Framsókn- arflokksins taki menn kúvendingu for- sætisráðherra með meira jafhaðargeði en innan þingflokks Sjálfstæðisflokks. Innan Sjálfstæðisflokksins líta margir á orð forsætisráðherra um að tryggja dreifða eignaraðild að Fjárfest- ingarbanka atvinnulífsins með því að selja 51% bankans sem enn er í eigu ríkisins í einu lagi sem hin furðuleg- ustu öfugmæli og algjöra breytingu frá áður markaðri stefnu flokksins og rík- isstjómarinnar. Á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokks- ins kom fram óánægja hjá Davíð Odds- syni forsætisráðherra. Þingmenn sem rætt var við eftir fúndinn í gær sögðu að Davíð hefði lýst vonbrigðum með að stuðningur við hinar nýju hugmyndir hans um bankasölu væri minni en hann hafði reiknað með. Á fúndinum sagði hann þessum þingmönnum til syndanna fyrir að vera hálfvolgir í af- stöðu sinni eða beinlínis á móti sér og lýsa yfir í fjölmiðlum að sala á hlut is gegn markmiðum um sem mest dreifða eignaraðild og að þau markmið hljóti að verða betur tryggð með því að hafa svipaðan hátt á sölunni og var þegar 49% voru seld á sínum tíma. Einn þeirra þingmanna sem ósammála eru kúvendingu forsætisráðherra sagði í samtali við DV í gær að Davíð hlyti að vera sleginn einhverri blindu í málinu. Að ætla sér að stýra því hveijir eignist hlut í bank- anum og fara í ein- hvers konar mann- jöfhuð í þeim efnum, eftir því hvert álit hans sé á einstak- lingum úti í þjóðfé- laginu sé einfaldlega fáránlegt. „Hvort for- sætisráðherra telur einhveija sem fara í taugar hans óverð- uga þess að eiga hlut í banka er ekkert innlegg i pólitíská stefnumörkun," sagði þessi þingmað- ur eftir þingflokks- fundinn. Samkvæmt heimildum DV er þingflokkurinn einhuga eftir fúndinn um að fylgja stefnu Davíðs. Fýla í stjórninni Bankamálið hefur sett sitt mark á stjómarsamstarfið. Stjómmálamenn sem DV ræddi við í gær lýstu því svo að það væri augljóslega „fýla á stjómar- heimilinu". Þar talist menn ekki meira við þessa dagana en nauðsynlegt sé. Ekki vildu viðmælendur blaðsins halda að um einhverja „krísu“ væri að ræða. Menn vora hins vegar á einu máli um nauðsyn þess að formenn flokkanna, Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson, settust niður og leystu málið. Halldór hafi hingað til stjórnað fyrir hönd flokksins öllu ferli varðandi einkavæð- ingu og sölu á ríkisfyr- irtækjum. Því væri það hans en ekki Finns Ingólfssonar bankamálaráðhema að eiga fund um málið með Davíð. Því var það samróma álit framsóknarmanna á þingflokksfundinum í gær að málið væri í höndum Halldórs. Ekki er þó búist við að þeir ræði sam- an alveg á næstunni. í dag og á morgun stendur yfir fundur þingflokks og land- stjómar Framsóknarflokksins. Þar verða framsóknarráðherramir að sjálf- sögðu. Er fastlega gert ráð fyrir að ágreiningurinn í FBA-málinu verði ræddur þar. -JSS/SÁ Davíð Oddsson. Halldór Ásgrímsson. Kveikt í blaðagámi Slökkvilið var kallað í Rofabæ á tíunda tímanum í gærkvöld en þar hafði verið kveikt í blaðagámi sem stendur við verslunina Nóatún. Að sögn slökkviliðsins gekk greiðlega að slökkva eldinn. Gámurinn var fjarlægður en hann skemmdist nokkuð í brananum. -aþ Eskifjörður: Stúlka varð fyrir bíl Sex ára telpa varð fyrir bíl á Strandgötunni á Eskifirði um nón- leytið í gær. Telpan var að leik ásamt vinkonu sinni við götuna þegar óhappið varð. Þær era sagðar hafa strengt band á milli sín og verið hvor á sínum vegarhelmingnum þegar bifreiðin kom aðvifandi. Að sögn lögreglu var stúlkan flutt á Fj órðungssj úkrahús- ið í Neskaupstað þar sem gert var að meiðslum hennar. Að sögn vakt- hafandi læknis dvelur stúlkan á sjúkrahúsinu en er á batavegi. -aþ Harður árekstur varð á mótum Sægarða og Vatnagarða þegar lítill sendibíll og gámabíll rákust saman um hálftvöleyt- ið í gær. Beita þurfti tækjum slökkviliðsins til þess að ná ökumanni sendibflsins út. Hann var síðan fluttur með sjúkrabifreið á Sjúkrahús Reykjavíkur og var talið að hann hefði hlotið fótar- og hálsmeiðsl. DV-mynd S \mm Hugmyndir um gjöld á fæöubótarefni: Lyfjamáladeild hefur farið offari - segir framkvæmdastjóri Samtaka verslunarinnar „Okkur llst illa á þetta, fljótt á litið. Þama virðist lyfjamáladeild heilbrigðisráðuneytisins hafa farið offari og borið fyrir sig reglur Evr- ópusambandsins," sagði Stefán S. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunarinnar, um drög að reglugerð um ný gjöld á fæðu- bótarefni. Eins og DV greindi frá er unnið að slíkri reglugerð nú. Drögin eru til umsagnar hjá Sam- tökum verslunarinnar. Kaup- mannasamtök íslands hafa þegar mótmælt setningu reglugerðar af þessu tagi. Stefán sagði að talsmenn ráðu- neytisins hefðu vísað til gildandi reglna innan EES vegna fyrirhug- aðrar gjaldtöku. Hið rétta væri að ekki væra til samræmdar reglur um sölu og dreifingu á fæðuhótar- efnum. í drögunum segir m.a: „Kostnað- ur er hlýst vegna framkvæmdar á og eftirlits með reglugerð þessari, svo sem laun starfsfólks Lyfjaeftir- lits ríkisins og nefndar skv. 4. gr. og nauðsynlegra rannsókna, skal bor- inn uppi af umsóknar- og árgjöldum fæðubótarefna og náttúruvara, þ.m.t. náttúruefna." Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra hefur sagt við DV að enn hafi engar tölur verið nefndar hvað varðar upphæð ofangreidra gjalda. Stefán sagði að yrðu skráningar- gjöld há gæti það valdið því að ein- hverjar vörar sem nú væra fluttar inn gætu dottið út. Þá gætu slíkar gjaldtökur jafnvel stuðlað að aukn- ingu í ólöglegum innflutningi á fæðubótarefnum. „Gjaldtaka af þessu tagi leggst beint ofan á vöra- verðið og það er á endanum neyt- andinn sem borgar,“ sagði Stefán. „Þetta er einfaldlega hluti af verð- myndun vörunnar. „ -JSS Stuttar fréttir i>v Stílbrot Hjálmar Ámason al- þingismaður segir við Dag að það sé nýtt að rikisstjóm- arflokkamir beri deilumál sín á torg og ræðist við í gegnum fjölmiðla. Það sé stílbrot á stjómarsam- starfinu. Bréf FBA lækkuðu Verð hlutabréfa í Fjárfesting- arbanka atvinnulifsins lækkaði í gær um 5,45% frá því að viðskipt- um lauk fyrir helgi. Þegar við- skiptum á Verðbréfaþingi lauk í gær var gengi FBA-bréfanna komið niðm- í 2,60 en sl. fóstudag var það í 2,75. Vill ræða málið Halldór Ásgrimsson, formaður Framsóknarflokksins, vill að Al- þingi geri upp við sig hvort virkj- unarleyfi fýrir Fljótsdalsvirkjun verði afturkallað. Morgunblaðið sagði fi'á. Barn fyrir bíl Ekið var á sex ára stúlku þar sem hún var að leik meö vin- konu sinni við götu á Eskifirði í gær Stúlkan var flutt á sjúkrahús en er ekki talin alvarlega meidd. Málið er í rannsókn. Borgarstjóri vill mat Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, borgar- stjóri Reykja- víkur, sagði í gær að hún teldi að lög- formlegt um- hverfismat skyldi gert vegna Fljótsdalsvirkj- unar. Reykjavíkm'borg er stærsti hluthafinn í Landsvirkjun. Vantar heyrnartæki Nú er um 6-8 mánaða biðlisti eftir heymartækjum. Á sama tíma hefúr fjárveiting til Heym- ar- og talmeinastöðvarinnar ekki aukist sem því nemur. Stofhunin fær 55 milljónir frá ríkinu til að fjármagna heymarhjálpartæki. Það er 9 milljónum meira en í fyrra en alls ekki nægilegt, að sögn forstjóra stöðvarinnar, í Degi. Nýir sveppir Ryðsveppur á ösp skaut nýlega upp kollinum hér á landi og ann- ar sveppur fyrir fáum árum. Báð- ir sveppimir era „nýbúar“ hér- lendis. Sameining Sameining slökkviliðanna á höfuðborgarsvæðinu er hag- kvæmasti kosturinn sem Slökkvilið Hafnarfjaröar stendur frammi fyrir í dag, samkvæmt nýrri hagkvæmniathugun sem VSÓ ráðgjöf hefur gert á slökkviðliöinu fyrir Hafnarfjarð- arbæ. Morgunblaðið greinir frá. Heimskautsvernd Umhverfisráðherrar Norður- landa samþykktu eim-óma nátt- úravemdaráætlun fyrir norður- heimskautssvæðið á fundi sínum í Hótel Reynihlíð við Mývatn í gær. Morgunblaðið greindi frá. 11.900 Um 11.900 einstaklingar hafa sent land- læknisembætt- inu beiöni um úrsögn úr gagnagrunni á heilbrigðis- sviði, að sögn Matthíasar Halldórssonar aðstoö- arlandlæknis við Morgunblaðið. Vantar starfsfólk Starfsfólk vantar í 150 stöður hjá Leikskólum Reykjavikur. Leikskólinn Vesturborg hefur sent út viðvörun til foreldra um að böm verði hugsanlega send heim í næstu viku vegna skorts á starfsmönnum. -SÁ vilja út

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.