Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1999, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 Viðskipti___________________________________________________________________________________________x>v Þetta helst: ... Viðskipti á VÞÍ 128 m.kr., aðeins með hlutabréf ... Mest með bréf Samherja, 21 m.kr. og lækkaði gengið um 11,4% ... Flugleiðir 19 m.kr. ... FBA og íslandsbanki 12 m.kr. ... Bréf FBA lækkuðu um 5,5% ... Úrvalsvísitala lækkaði um 1,12% og er nú 1.259 stig ...ÍS hækkaði mest eða 9,3% íslenska járnblendifélagið: Erfiðleikar í rekstri Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga Rekstur íslenska járnblendifé- lagsins hf. gekk erfiðlega á fyrri helmingi þessa árs. Tveir veiga- miklir þættir höfðu neikvæð áhrif á reksturinn; orkuskerðing í upphafi ársins og lágt verð á jámblendi. Orkuskerðing hófst 1. nóvember á síöastliðnu ári þegar annar af tveimur ofnum félagsins var tekinn úr rekstri en slökkt var á síðari ofn- inum í lok þess mánaðar. Fyrri ofn- inn var gangsettur 1. janúar og var hann rekinn á skertu afli þann mán- uð. Síðari ofninn var gangsettur 1. febrúar og voru báðir ofnarnir komnir í fulla framleiðslu í mars- mánuði. Framleiðslutap vegna skerðingar nam tæpum 5 þúsund tonnum á fyrri helmingi ársins. Verð á jámblendi var mjög lágt all- an fyrri helming ársins og með því lægsta sem þekkst hefur. Tap 169 milljónir Rekstrartekjur íslenska járn- blendifélagsins hf. á fyrri helmingi ársins námu 1.124 milljónum kr. samanborið við 1.890 milljónir á sama tímabili í fyrra. Tap varð af starfsemi félagsins á fyrstu sex mán- uðum ársins er nam 169 milljónum króna. Heildareignir félagsins námu 6.834 milljónum króna í lok júní og höfðu aukist úr 5.213 milljónum frá áramótum vegna fjárfestingar í nýj- um bræðsluofni. Eiginfjárhlutfall hefúr lækkað úr 74,9% í lok síðastlið- ins árs í 55,5% í lok júní. í ársbyrjun 1999 var afskriftar- hlutföllum eigna breytt til samræm- is viö afskriftarreglur Elkem ASA. Breytingin hefur í för með sér nokkra lækkun afskriftanna frá því sem verið hefur og er tap á tímabil- inu 1/1-30/6 um 48 milljónum króna lægra en verið hefði miðað við óbreytt afskriftarhlufóll. Breytingin er gerð til samræmingar við önnur fyrirtæki innan Elkem-samstæð- unnar. Nýr ofn Bygging þriðja bræðsluofnsins viö verksmiðjuna er nú að komast á lokastig en hún hófst í apríl á síð- astliðnu ári. Nýi ofninn mun fram- leiða um 42.000 tonn af kisiljámi á ári en það samsvarar 60% aukningu í framleiðslugetu. Reiknað er með að ofninn verði gangsettur í septem- ber og að hann nái fullum afköstum innan tveggja til þriggja mánaða. Báðir eldri bræðsluofnar félagsins eru nú i eölilegum rekstri og er ætl- unin að reka þá á fullum afköstum út árið. Eftirspurn eftir kísiljámi er nú allgóð og merki hafa sést um verð- hækkun í byrjun síðari helmings ársins. Verð er enn í botni í Asíu og engin hækkunarmerki sjáanleg. Stálframleiðsla heimsins er enn í öldudal en hún hefur áhrif á eftir- spurn eftir kísiljámi. Því er óvíst hvort verðhækkunin er varanleg. -bmg Davíð skelfir verð- bréfamarkaðinn Orð Davíðs Oddssonar forsætis- ráðherra fyrir skömmu um Kaup- þing virðast valda nokkrum taugatitringi á verðbréfamarkaði hérlendis. Davíð ásakaði Kaupþing um að nota aðila sem það hefði í fjárvörslu til að kaupa hlutabréf í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og grípa síðan tækifærið og selja bréfin og hirða sjálft hagnaðinn. Talið er að gengishagnaður Kaup- þings vegna sölunnar sé á bilinu 1,5-1,9 milljarðar króna en þessar tölur hafa ekki fengist staðfestar. Sigurður Einarsson, forstjóri Kaup- þings, sagði um helgina að þessar ásakanir væm tilhæfulausar og ekki nokkur fótur fyrir þeim. Á sama hátt hefur Davíð Oddsson ver- ið ófáanlegur til að skýra orð sín frekar og segja hvað hann hafi fyrir sér í þessum efnum. Enginn vill tjá sig Svo virðist sem forráðamenn annarra fjármálafyrirtækja séu hræddir við segja sitt álit á orðum Davíðs því enginn af þeim Qöl- mörgu sem DV ræddi við treysti sér til að tjá sig um málið. Almennt eru menn þó sammála um að nauð- synlegt sé að Davið skýri orð sín betur til að hið sanna í málinu komi í ljós. Þaö vekur óneitanlega athygli að forsvarsmenn annarra fjármála- stofnana forðast aö tjá sig um þessi ummæli. Af orðum þeirra flestra virðist þó ljóst að þeir skilja ekki hvað vakir fyrir forsætisráðherra með ummælum hans undanfarið. Það getur verið ástæðan fyrir því að menn forðist að ræða orð Davíðs. Fjármálaeftirlitið hvorki játar því né neitar að þetta mál sé til rann- sóknar. Það er hins vegar almenn starfsregla að svara þannig og Páll Pálsson, forstöðumaður Fjármálaeft- irlitsins, sagði að hann gæti ekkert sagt um þetta mál. Hann vildi held- ur ekki segja neitt almennt um þær reglur sem gilda vegna þess að þau ummæli yrðu sett í beint samhengi við þetta mál. -bmg Nóatún kaupir Nýkaupsverslanir Nóatún hefur keypt tvær Ný- kaupsverslanir, í Grafarvogi og Hólagarði. Að sögn Matthíasar Sig- urðssonar, framkvæmdastjóra Nóa- túns, mun Nóatún opna í Hólagarði fljótlega eftir mánaöamótin en í febrúar í Grafarvogi. „Við eignuð- Skipamiðlunin Bátar & Kvóti Sími': 568 3330 hlt|».//w ww.vorte.v.is/-skip/ umst þessar verslanir fyrir um tveimur mánuðum eftir að Baugur keypti 10-11 og þurfti í kjölfarið að selja verslanir. Samkeppnin á mat- vörumarkaði er mjög hörð en við erum sátt við okkar hlut. Þessi kaup styrkja okkar samkeppnis- stöðu enda höfum við lengi haft auga á Grafarvoginum. Þar er ætl- unin að opna glæsilega Nóatúns- verslun með góðu úrvali í febrúar," segir Matthías. Aðspurður um hvort kjúklingasala væri að ná sér á strik sagði Matthías að svo væri þó svo aö hún hefði minnkað veru- lega eftir að kjúklingamálið kom upp fyrir skömmu. -bmg HAFRÓ mældi 1,8 milljarða tonna af kolmunna í sumar. Tap hjá Loðnuvinnslunni í fyrsta skipti: Vonir bundnar við kolmunnaveiðar Loðnuvinnslan hf. tók á móti um 60.000 tonnum af hráefni fyrstu sex mánuði ársins sem er liðlega 9.000 tonnum meiri afli miðað við sama tíma á síðasta ári. Heildarfram- leiðsla afurða er um 18.000 tonn. Þetta er fjórða starfsár Loðnu- vinnslunnar og i fyrsta skipti sem félagið sýnir halla á rekstri sínum. Aðalástæðan er hið mikla verðfall sem varð á mjöli og lýsi í vetur, sem er eitt mesta hrun sem orðið hefur á mjöl- og lýsismörkuðum. Þetta leiddi til þess að hráefnisverð á vetrarvertíð í fallandi markaði varð of hátt miðað við söluverð af- urðanna. Þrátt fyrir aukið hráefhi eru tekjur félagsins 222 milljónum lægri en á sama tíma 1998. Kolmunnaveiðar bjartar Loönuvinnslan keypti á síðast- liönu ári flottrollsskipið Hoffell SU 80. Skipið náði góðum árangri í veiðum á norsk-islensku síldinni, er það tók kvótann sinn, 3.900 tonn, allan í flottroll. Skipið hefur í ann- an tíma í sumar stundað veiðar á kolmunna og aflað um 8500 tonn. Vegna kaupanna á Hoffelli var hlutafé aukið um 70 mifljónir króna að nafnverði og selt á genginu 2,0. Miklar vonir eru bundnar við veið- ar á kolmunna og ekki síst eftir leiðangur Hafró í sumar, þar sem leiðangursmenn mældu 1,8 miUj- arða tonna af kolmunna. Þrátt fyrir að haUi félagsins sé 53,9 miUjónir fyrstu sex mánuðina 1999 er eiginfjárstaða fyrirtækisins sterk. Bókfært eigiö fé er 691,7 miUjónir, sem er 44% af niðurstöðu efnahagsreiknings. Verð á lýsi hefur lítið breyst, en mjölverð virðist eitthvað vera aö styrkjast og líkur á að botninum hafi veriö náö. -bmg Hluthafafundur FBA Hluthafafundur í Fjárfesting- arbanka atvinnulifsins verður haldinn á Grand Hótel þann 31. ágúst næstkomandi. Fundarefn- ið er breytingar í stjóm félagsins eða afturköUun á umboði núver- andi stjómar. Þar munu for- svarsmenn ORCA væntanlega taka sæti í stjórn FBA Stálsmiðjan sendir afkomuviðvörun Samkvæmt fyrstu tölum úr 6 mánaða uppgjöri Stálsmiðjunnar er ljóst að ríflega 2% tap af veltu verður á reglulegri starfsemi fé- lagsins. Enn fremur varð tap á sölu hlutabréfa í Landssmiðj- unni hf. um 13 miUjónir. HeUd- artap Stálsmiðjunnar hf. verður kringum 22 milljónir króna. Afkomuviðvörun frá Samherja? Að flestra mati var afkoma Samherja mun lakari en vonir markaðarins stóðu tU en aðeins varð 152 mflljóna hagnaður af rekstri félags- ins. í Morgun- punktum Kaupþings er þeirri spurn- ingu velt upp hvort ekki hefði verið rétt af for- svarsmönnum Samherja að senda frá sér afkomuviðvörun þegar ljóst var að afkoman yrði töluvert lakari en í fyrra. Gengi á bréfum Samherja féU verulega í gær, eða um 11,4%, enda voru væntingar manna miklar um af- komu félagsins. Vaxtahækkun örugg Nú er talið nánast öruggt að Greenspan og félagar muni hækka stýrivexti sína í dag. Reuter gerði könnun meðal 30 sérfræðinga og töldu 29 þeirra að vextir yrðu hækkaðir um 0,25 punkta. Nokkur ró er nú á mörk- uðum vestanhafs og víðar og svo virðist sem markaðurinn sé að bíða endanlegrar vaxtaákvörð- unar. Hagvöxtur 0,5% í Bretlandi Á öörum ársfjórðungi þessa árs var 0,5% hagvöxtur í Bret- landi. Þetta jafngUdir 1,2% hag- vexti á ári. Þessi mæling er í samræmi við spár þó svo að framlegð einstakra liða, t.d. þjón- ustu, hafi minnkað. 3% vöxtur í Þýskalandi Gerhard Schröder, kánslari Þýskalands, sagði að möguleiki væri á 3% hagvexti á næsta ári. Hann sagði að á seinni hluta næsta árs ætti mesti vöxturinn að koma fram, m.a. vegna skattalækk- ana á launafólk. Hann bætti við að tekjur launafólks hefðu hækk- aö um 3,5% á síöasta ári. Á heljarþröm Efnahagur Júgóslavíu er á heljarþröm. Hópur hagfræðinga, sem hefur aðsetur í London, sagði að hagvöxtur í Júgóslavíu mundi minnka um 40% á þessu ári. Talið er að kostnaður við að endurbyggja það sem skemmt var í loftárásum NATO sé 4.700 miUjarðar íslenskra króna. Þar með ætti Júgóslavía að vera fá- tækari en fátækasta land Evr- ópu, Albanía. Engan skal því imdra að almenningur í Júgóslavíu vUji breytt stjórnar- fyrirkomulag. -bmg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.