Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1999, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999
5
Egill Vilhjálmsson ehf
Smiðjuvegi • Kópavogi.
Fréttir
Veiöar íslendinga í Barentshafi:
Rússar sitja enn á veiðileyfunum
DV, Akureyri:
„Ég hef ekki vitneskju um að
leyfin séu komin hingað,“ sagði
Amór Halldórsson, lögfræðingur í
sjávarútvegsráðuneytinu, í gær, en
bæði þar og annars staðar em
menn orðnir langeygðir eftir því
að rússnesk yfirvöld gefi grænt
ljós á veiðar íslenskra skipa innan
rússnesku lögsögunnar í Barents-
hafi.
Rússneski sjávarútvegsráðherr-
ann sagði þó, þegar hann var
staddur hér á landi fyrir helgina,
að íslendingum væri ekkert að
vanbúnaði að hefja veiðarnar en
annað hefur sem sagt komið á dag-
inn. Vitað er að urgur er meðal sjó-
manna íslensku skipanna sem em
í norsku lögsögunni í Barentshafi
vegna þess að mörg skipanna þar
eru búin með þann kvóta sem þau
mega veiða þar og bíða menn þess
eins að komast inn i rússnesku lög-
söguna og hefja þar veiðar.
Samkvæmt samningi þjóðanna
frá í maí mega íslendingar veiða
4.500 tonn af þorski í lögsögu Rúss-
lands, eða jafnmikið og Noregs-
megin. Engin vandamál hafa kom-
ið upp vegna veiðanna í norsku
lögsögunni en af þeim 4.500 tonn-
um sem veiða má í rússnesku lög-
sögunni þurfa 1.669 tonn að fara á
markað og verða seld þaðan. Ekki
liggur enn fyrir hvemig sá „mark-
aður“ á að virka, og virðist reynd-
ar sem seinagangur í kerfinu við-
gangist hér á landi, líkt og í Rúss-
landi.
í gær voru 13 íslenskir togarar í
norsku lögsögunni í Barentshafi.
Mörg skipanna em búin eða að
verða búin með kvóta sinn þar,
þrátt fyrir að veiði hafi verið
dræm. Heyrst hefur um mun betri
veiði Rússlandsmegin á hafsvæð-
inu og það eykur á eftirvæntingu
manna með að komast þangað fyrr
en síðar.
-gk
Val Kilmer kemur ekki.
Engin Marsmynd
á íslandi:
Of grænt fyrir
Val Kilmer
Hætt hefur verið við kvikmynda-
tökur hér á landi vegna bandarískr-
ar stórmyndar sem átti að gerast á
reikistjörnunni Mars. Starfsmenn
kvikmyndafyrirtækisins Pegasus,
sem hafði milligöngu um fram-
kvæmdir, líta svo á að málið sé úr
sögunni. Skýringin er sú að banda-
rísku kvikmyndaframleiðendunum
þótti ísland of grænt til að reynast
trúverðugt sem landslag á Mars. Er
nú leitað að tökustöðum fyrir kvik-
myndina víða um heim en niður-
staða ófenginn.
Bandaríski leikarinn Val Kilmer
mun leika aðalhlutverkið í Mars-
myndinni og var því væntanlegur
til íslands þeirra erinda. Ekkert
verður af komu hans né heldur
starfi 120 manna sem hefðu tengst
gerð kvikmyndarinnar hér á landi.
-EIR
Mercedes Benz 500 SE '91, grár,
ek. 125 þús. km. Vel útbúinn bíll.
Verð 1.980 þús.
Cherokee Limited '95,
silver smoke, ek. 53 þús. km.
Verð 2.300 þús.
Cherokee Laredo '95,
vínrauður, ek. 75 þús. km.
Verð 2.100 þús.
Toyota Corolla sedan Terra ‘99,
vél 1,3, 5 g„ blár, ek. 17 þús. km.
Verð 1.170 þús.
Borggrtúni 28, sími 562 2901 og 562 2900,
□odge Ram 1500 4x4 '97,
8 cyl., ssk., 5-6 manna, rauður,
ek. 58 þús. km.
Verð 2.200 þús.
Dodge Caravan '96,
7 manna, hvítur, ek. 50 þús. km.
Verð 1.780 þús.
Dodge Stratus '98,
ssk., ek. 39 þús. km, rauður, m/öllu.
Verð 1.750 þús.
Toyota Touring GLi 4x4 '92,
ek. 119 þús. km.
Verð 780 þús.
Suzuki Sidekick JXi '96,
silver smoke, ek. 41 þús. km, 5 g„
Verð 1.320 þús.
Chevrolet Silverado 1500,4x4 '96,
grænn, ssk„ 6,5 dísilvél, ek. 56 þús.
km. Verö 2.600 þús.
Varmaskiptar
fyrir heimili og iðnoð
Einstök varmanýting
Hagstætt verd
Tæknileg róðgjöf um val
Útleiga á alls konar
leiktækjum
f bamaafmæli
- götupartí
— ættarmát
o.fl.
Herkúles
Sími 568-2644
GSM 891-9344
Kona á níræðisaldri við Miklubraut:
Kemst ekki yfir
nautagirðingu
- og missir af strætó
Ford 150 4x4 '97, 3 d„ 8 cyl„ ssk„
5-6 manna, rauður, ek. 49 þús. km.
Verð 2.100 þús.
Jeep Wrangler '92,
rauður, m/high out-put vél, 4,0, ek.
96 þús. km, 5 g.
Verð 1.150 þús.
„Þessi nautagirðing sem umferð-
aröryggisnefnd Reykjavíkur er búin
að setja upp á Mikubrautinni er
ekki gerð fyrir okkur íbúana. Girð-
ingin er sett upp fyrir ökuníðingana
sem £ika hér um í spreng eins og
þeir séu að gera í buxumar, enda
nýbúnir að stoppa við Lönguhlíð og
verða að stoppa aftur á Kringlumýr-
arbraut," sagði Sigríður Guðmunds-
dóttir, 82 ára gamall íbúi í Stigahlíð
10 sem kemst ekki lengur yfir
Miklubrautina gegnt heimili sínu
til að taka strætisvagn handan göt-
unnar. „Þarna var gangstígur áður
og borgaryfirvöld hefðu auðveldlega
getað sett hlið á nautagirðinguna
þarna en gerðu það ekki. Það hefur
aldrei verið nokkur vandi að kom-
ast yfir Miklubrautina á þessum
stað fyrir fólk með fulla sjón og
heyrn. Núna verð ég að ganga alla
leið niður að gatnamótum Löngu-
hlíðar til að ná strætisvagni og það
getur reynst mér erfitt. Ég geng við
staf og var reyndar að hugsa um að
fá mér göngugrind," sagði Sigríður
sem hefúr hringt um alit borgarkef-
ið að undanfómu til að fá skýringu
á þessari nýju nautagirðingu eins
og hún kýs að kalla öryggisgrind-
verkið á umferðareyjunni á Miklu-
brautinni: „Maður fær engin svör,
bara kjaftæði. Þessi girðing er sett
upp fyrir ökumenn sem ekki má
teQa í ofsaakstri út og suður,“ sagði
Sigriður. -EIR
DV-mynd
Sigríður Guðmundsdóttir við nautagirðinguna á Miklubraut.