Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Side 23
LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999 23 emmur Vala og Þóra fyrir utan galleríið, sem einnig er vinnustofa þeirra sjálfra. DV-mynd ÞÖK Nýtt gallerí við Hlemm, gallerí@hlemmur.is: Hvítir hestar, vindmyllur og stökkmýs í mannheimum - á fyrstu sýningu eigendanna í nýja rýminu í útlöndum eru torgin oft miðstöö gróskumikils menningar- og mann- lífs og mikið lagt í að þau séu sem allra glæsilegust á að líta. Sums staðar gildir þetta einnig hér á ís- landi en íslensku torgin gegna frek- ar hversdagslegra hlutverki, flest þeirra litið annað en grasi vaxin hringtorg og önnur strætóstopp og samastaður róna eins og Hlemm- torg. Fæstir hafa hingað til hugsað um menningu og Hlemm í sömu andránni en brátt gæti orðið breyt- ing þar á. Tvær ungar listakonur, þær Valgerður Guðlaugsdóttir og Þóra Þórisdóttir, hafa nú tekið sig til og flikkað upp á ásýnd og ímynd Hlemmsins með nýju og framsæknu galleríi er þær nefna gall- erí@hlemmur.is. Vala og Þóra halda fyrstu sýninguna í nýja galleríinu sínu, sem tekur mið af tuttugustu öldinni og nýjustu tækni: „Starfsemin verður á Netinu líka en við eigum lénið „hlemmur.is". Við erum með stafræna mynd- bandsupptökuvél sem við ætlum að nota til þess að koma því sem fram fer hjá okkur hratt og örugglega til skila á netsíðuna okkar. Einnig höf- um við hugsað okkur að á netsíð- unni verði sérsýningar þannig að þar má finna fleira en það sem í boði verður í galleríinu sjálfu," seg- ir Vala. Netgallerí hafa verið að spretta upp í Bandaríkjunum síðustu ár og ganga vel: „Þetta er mjög áhugaverður kost- ur sem býöur upp á mikla mögu- leika og okkur fannst tilvalið að vera með sem hluta af starfseminni. Þetta þekkist hér lika, t.d. er Hann- es á Mokka með art.is og fleiri gall- erí eru með netsíöur." Öll áttu hvítan hest... Stúlkurnar sýna sín í hvoru lagi, annars vegar sýning Völu „Hugará- stand“ og hins vegar „Heimilissam- stæða“ Þóru. Vala segir sína sýn- ingu m.a. fjalla um æskuhetjur sín- ar: „Frá því ég var barn hef ég haft mikið dálæti á Lukku-Láka, Linu langsokk og Don Quixote. Þau áttu öll hvítan hest og þess vegna bjó ég til stóran hvitan rugguhest sem stendur í miðju rýminu og er þungamiðja sýningarinnar, samein- ingartákn hetjanna minna." Hvað með vindmyllumar? „Þær sjást einnig. Ég lét búa til stóra lensu og brenndi svo litlar vindmyllur þar á.“ Svona eins og í villta vestrinu, þegar bandíttamir gerðu skorur á byssuskeftin fyrir hvert dráp. En er það ekki svolítið misvísandi? Don Quixote gekk nú ekki vel í barátt- unni við vindmyllumar...? „Nei, honum gekk víst brösulega en kannski er þetta svona mín við- leitni til þess að leggja honum lið, ég veit það ekki. í tengslum við hvíta hestinn er svo myndband af mér þar sem ég sit uppi á honum og fróa mér...“ Hvað vakir fyrir þér með því? „Með þvi er ég að reyna að kom- ast í nánara samband við ídolin mín, a.m.k. í huganum, og láta mér líða vel í návist þeirra." Samanber nafnið á sýningunni. Var ekki svolítið erfitt skref að gera svona „tabú“ fyrir opnum tjöldum? „Ég er ekki feimin að eðlisfari en ég vona að fólk taki þessu af opnum hug. Svo er ég nú ekki fyrst til að gera þetta. Egill Sæbjömsson gerði þetta á sýningu á Kjarvalsstöðum í fyrra.“ Stökkmýs og menn Hvað er fleira á sýningunni þinni? „Hitt og þetta. Ég vinn í hinum ýmsu miðlum og geri það sem hug- urinn leiðir mig hverju sinni. Þama era Ijósmyndir, höggmyndir og margt fleira." Hvað með þig, Þóra? „Ég sýnir Heimilissamstæðu sem er sérsmíðuð fyrir dóttur mína. Þar er ég búin að innrétta fimm íbúðir fyrir stökkmýsnar hennar. Þetta snýst um heimilishald og skipulag, mýsnar hafa allt sem til þarf og ég er að skoða hvernig þeim gengur að lifa við sömu aðstæður og fólk, nota klósett, sofa í uppbúnum rúmum og svo framvegis. Éiginlega er ég aö bera saman heimilishaldið hjá mús- um annars vegar og heimilishaldið hjá sjálfri mér hins vegar.“ Og hverju kemst þú að? „Þetta tvennt er mjög svipað,“ segir Þóra og hlær. „Mýsnar eyði- leggja allt og sóða út. Maður þarf sí- fellt að vera að þrifa og eina ráðið út úr óreiðunni er að skipuleggja betur. Þetta er fyrsta skrefið hjá mér. Áður en ég tek til við að skipu- leggja mitt eigið heimili þá reyni ég við mýsnar. Þannig lagað séð er þetta eilífðarverkefni." Lágmarksstaðall á snyrtimennskunni Hvað með sjálfa þig? Ertu sóði? „Mig langar rosalega til að hafa hreint og fint í kringum mig en stundum hef ég einfaldlega ekki tíma til að halda í við ryk og skít og viðhalda svona lágmarksstaðli á snyrtimennskunni. Það veltur á gerð og þróun þjóðfélagsins hverju sinni hver þessi lágmarksstaðall er og í dag er hann mjög hár á Islandi og ekkert nema gott um það að segja. Eina leiðin fyrir mig til þess að fýlgja þessum staðli er að vera dugleg við að skipuleggja, setja regl- ur og þess háttar. Ég vona að verk- in min geti hjálpað mér til þess.“ Samsýning stúlknanna stendur yfir til 26. september og er opið alla daga, nema mánudaga, frá klukkan 14 til 18. Eftir það era fleiri sýning- ar yngri listamanna skipulagðar en helsta markmiðið með gall- eri@hlemmur.is er einmitt að kynna þá. Bladberar óskast í eftirtaldar götur: Dunhagi Fornhagi Einholt Hjarðarhagi Meðalholt Stangarholt Faxafen Fákafen Rauðarárstígur Skeifan Þverholt Aragata Eggertsgata ^ Upplýsingar veitir afgreiðsla DV í síma 550 5000 www.visir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR r ' ;' fást | ort! Derhúfur, könnur, fánar, jakkar o.fl. Öll helstu liðin og ökumennirnir Ferrari, McLaren, Jordan, Williams o.fl. Schumacher, Hakkinen, Irvine. VINTERSPORT Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.