Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Qupperneq 53
LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999
61
l.
Afmæli
Ingimunda Guðrún Þorvaldsdóttir
Ingimunda Guðrún Þorvaldsdótt-
ir, fatatæknir og starfsmaður á
Sjúkrahúsi Suðurlands, Ljósheim-
um, til heimilis að Grænuvöllum 2,
Selfossi, varð sjötug í gær.
Fjölskylda
Ingimunda fæddist á Hellu við
Steingrímsfjörð en ólst upp á
Drangsnesi.
Ingimunda er tvígift. Fyrri maður
hennar var Nói Jónsson, f. .9.1. 1915,
að Árbæ í Holta- og Landsveit,
drukknaði 9.3. 1956.
Börn Ingimundu og Nóa: Þorvald-
ur, f. 7.11. 1947, tæknifræðingur í
Noregi, en kona hans er Anne
Ström, f. 25.4. 1948, og eiga þau þrjú
börn, Margréti, f. 9.5. 1971, flug-
freyju, Áma Jakob, f. 2.3. 1974,
nema, og Ragnhild, f. 4.12. 1980,
nema; Ágústa Guðlaug, f. 8.12. 1949,
d. 15.5. 1950; Jón Sólberg, f. 30.6.
1953, prentari og húsasmiðameist-
ari, en kona hans er Steinunn Geir-
mundsdóttir, f. 3.8. 1956,
lyflatæknir, og eiga þau
þrjú böm, Nóa, f. 20.3.
1977, starfsmann Mjólk-
urbús Flóamanna, og er
sambýliskona hans Jó-
hanna, f. 6.6. 1978,
starfsmaður Mjólkur-
bús Flóamanna, Ástu
Rún, f. 24.10. 1980,
nema, og Finn, f. 16.7.
1992; Hulda Björk, f.
27.2. 1956, húsmóðir, en
maður hennar er Eirík-
ur Jónsson, f. 8.10. 1953,
safnstjóri á DV, og eiga
þau tvö böm, Emelíu Guðrúnu, f.
17.7. 1976, efnafræðing og nema við
HÍ, og Hauk Brynjar, f. 22.5. 1980,
verkamann.
Seinni maður Ingimundu er Sig-
mar Karl Óskarsson, f. 1.7. 1932,
starfsmaður Hitaveitu Selfoss. Hann
er sonur Óskars Gunnlaugssonar og
Önnu G. Markúsdóttur.
Dætur Ingimundu og
Sigmars em Katrín, f.
13.10. 1958, lyfjatæknir,
en sambýlismaður
hennar er Örn Tr.
Gíslason, f. 5.9. 1961,
vélvirki, og eiga þau
þrjú börn, Sigmar Öm,
f. 9.10. 1981, starfsmann
hjá Plúton, Berglindi, f.
16.10. 1987, og Gísla, f.
27.6. 1989; Sólveig, f.
13.1. 1961, sjúkraliði og
nemi, en sambýlismað-
ur hennar er Kristján
Már Gunnarsson, f.
3.10. 1959, skrifstofustjóri, og eiga
þau þrjú börn, Andra Má, f. 6.1.1987,
Karenu, f. 13.6.1989, og Anítu, f. 19.5.
1992; Anna Snædís, f. 12.2. 1962,
myndlistamaður og kennari, en
maður hennar er Snorri Þórisson, f.
7.2.1959, framkvæmdastjóri, og eiga
eina dóttur, Önnu Sólveigu, f. 20.5.
1995.
Ingimunda átti tvö systkini en
þau eru bæði látin. Bróðir hennar,
Jakob, f. 24.6. 1931, d. 30.5. 1985,
ókvæntur og barnlaus. Systir Ingi-
mundu, Hulda, dó ung.
Ingimunda er dóttir Þorvalds
Gestssonar, bónda á Hellu í Stein-
grímsfirði og síðar á Drangsnesi, og
Sólveigar Jónsdóttur.
Þorvaldur var sonur Gests, b. á
Hafnarhólmi á Selströnd, Kristjáns-
sonar, vinnumanns á Kleifum á Sel-
strönd, Jóhannessonar. Móðir Gests
var Margrét Pálsdóttir, b. í Reykjar-
vík, Jónssonar.
Móðir Þorvalds var Guörún Árna-
dóttir, Hafnarhólmi, b. í Hafnar-
hólmi, Jónssonar, b. á Fitjum,
Hannessonar. Móðir Árna var Guð-
rún Jónsdóttir. Móðir Guðrúnar
Ámadóttur var Hildur Guðbrands-
dóttir.
Munda tekur á móti gestum á
heimili sínu að Grænuvöllum 2,
laugardaginn 11.9. frá klukkan 15.
Ingimunda Guðrún
Þorvaldsdóttir.
Stefán Vilhjálmsson
Stefán Vilhjálmsson, deildarstjóri
matvæla- og gæðaeftirlits, Kjötiðn-
aðarsviðs KEA, Þómnnarstræti 103,
Akureyri, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Stefán fæddist að Brekku í Mjóa-
flrði og ólst þar upp. Hann lauk
landsprófi frá Alþýðuskólaum á Eið-
um 1964, stúdentspróf frá MA 1968,
B.Sc. Honours-prófi í matvælafræði
og lífefnafræði frá Háskólanum í
Leeds í Englandi 1972 og stundaði
nám við matvæladeild Nottingham
háskóla 1973-75.
Stefán hefur starfað við matvæla-
iðnað KEA á Akureyri frá námslok-
um, við gæðastjórnun, vöruþróun
og skyld verkefni.
Stefán var löngum stundakennari
við framhaldsskólana á Akureyri
þennan aldarfjórðung eða svo og nú
síðast einnig við matvælafram-
leiðslubraut HA. Hann er yfir-
kjötmats- og gæmmatsmaður á
Norðurlandi frá 1979, sá siðasti með
því starfsheiti, enn starfandi við yf-
irkjötmat.
Stefán hefur komið við sögu í
Neytendasamtökunum, setið í stjóm
Neytendafélags Akureyrar og ná-
grennis í nokkur ár frá upphafi 1979,
sat í stjórn Starfsmannafélags KEA
og var formaður þess um sinn, sat í
stjórn Bridgefélags Akureyrar og
var formaður þess um skeið og aftur
nú um stundir, sat í stjórn KEA sem
varamaður í nokkur ár, og er félagi
í Hagsmunasamtökum hagyrðinga,
(Haha).
Fjölskylda
Stefán kvæntist 3.1. 1976 Helgu
Frímannsdóttur, f. 9.6. 1947, for-
stöðumanni Sambýlis aldraðra á Ak-
ureyri. Hún er dóttir Frímanns
Pálmasonar, bónda í Garðshomi á
Þelamörk, og Guðfinnu Bjamadótt-
ur húsfreyju sem bæði eru látin.
Synir Stefáns og Helgu eru Frí-
mann, f. 18.12.1976, nemi við HÍ; Vil-
hjálmur, f. 31.10. 1978, nemi við Há-
skólann í Skövde í Svíþjóð.
Systkini Stefáns eru Hjálmar, f.
25.9. 1937, fiskifræðingur í Reykja-
vík; Páll, f. 23.5. 1940, skipstjóri á
Seyðisfirði; Sigfús Mar, f. 28.11.1944,
útvegsbóndi á Brekku; Anna, f. 7.3.
1954, kennari á Selfossi.
Foreldrar Stefáns em Vilhjálmur
Hjálmarsson, f. 20.9. 1914, rithöfund-
ur og fyrrv. ráðherra á
Brekku í Mjóafirði, og
k.h., Margrét Þorkels-
dóttir, f. 15.2. 1914, hús-
freyja.
Ætt
Vilhjálmur er sonur
Hjálmars, útvegsb. á
Brekku, Vilhjálmsson-
ar, b. á Brekku, Hjálm-
arssonar, hreppstjóra á
Brekku, Hermannsson-
ar, í Firði, Jónssonar
pamffls. Móðir Hjálmars
hreppstjóra var Sigríður Salómons-
dóttir frá Vík í Lóni. Móðir Vil-
hjálms var María frá Jórvík í Breið-
dal, dóttir Jóns Jónssonar í Flögu í
Breiðdal og Margrétar Jónsdóttur
frá Krossi Jenssonar. Móðir Hjálm-
ars var Helga Halldórsdóttir Her-
manns í Firði.
Móðir Vilhjálms var Stefanía,
systir Bjargar, móður Árna, út-
vegsb. á Hánefsstöðum, foður
Tómasar, fyrrv. seðlabankastjóra.
Stefanía var dóttir Sigurðar, b. á Há-
nefsstöðum, Stefánssonar, b. í
Stakkahlíð, bróður Gunnars, afa
Gunnars Gunnarssonar skálds. Stef-
án var sonur Gunnars,
b. á Hallgilsstöðum á
Langanesi Skíða-Gunn-
arssonar Þorsteinsson-
ar. Móðir Sigurðar var
Þorbjörg Þórðardóttir,
ættfóður Kjarnaættar
Pálssonar.
Móðir Stefaniu var Sig-
ríður Vilhjálmsdóttir, b.
á Brekku, Vilhjálmsson-
ar, og Guðrúnar Kon-
ráðsdóttur.
Margrét er dóttir
Þorkels Björnssonar,
verkamanns á Seyðisfirði, og Helgu
Ólafsdóttur húsmóður.
Afmælisbarnið tekur á móti gest-
um í Húsi aldraðra, Lundargötu 7,
laugard. 11.9. og hefst kl. 20.00. Þá
verða fram bornar léttar veitingar
með þjóðlegu ívafi. Vonast er til að
gestir skemmti hver öðrum með
ræðuhöldum, kveðskaparmálum,
spjalli, söng og hljóðfæraslætti.
Veislustjóri verður Hjálmar Vil-
hjálmsson og tónlistarstjóri Ólafur
Héðinsson.
Að hæfilegum tíma liðnum verða
borð upp tekin og stiginn dans.
Balli lýkur eftir efnum og ástæð-
Stefán Vilhjálmsson.
Hörður Haraldsson
Hörður Haraldsson,
fyrrv. kennari, Ásvalla-
götu 46, Reykjavík, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Hörður fæddist í
Vestmannaeyjum og
ólst þar upp. Hann
lauk gagnfræðaprófi í
Vestmannaeyjum 1946,
landsprófi við Héraðs-
skólann á Laugavatni
1947, stúdentsprófi við
MR 1951, teiknikenn-
Hörður Haraldsson.
araprófi frá Handíða- og
myndlistaskóla íslands
1954 og viðskiptafræði-
prófi frá HÍ 1955.
Hörður kenndi við Sam-
vinnuskólann að Bifröst
1957-94.
Hörður æfði íþróttir á
sínum yngri árum,
keppti í hlaupum í mörg
ár frá 1949, varð
nokkrum sinnum ís-
landsmeistari í sprett-
hlaupum og keppti á
Ólympíuleikunum í
Helsingfors 1952.
Hörður hefur haldið þrjár mynd-
listarsýningar í Borgarnesi og
Reykjavík og tekið þátt í samsýn-
ingum í Reykjavík og Vestmanna-
eyjum. Hann teiknaði skopmynda-
bók Samvinnuskólans, Ecce Homo, í
þrjátíu og sjö ár.
Fjölskylda
Bræður Harðar eru Eiríkur Har-
aldsson, f. 12.3. 1931, kennari við
MR; Ágúst Pétur Haraldsson, f.
13.10. 1935, véltæknifræðingur.
Foreldrar Harðar voru Haraldur
Eiríksson, f. 21.6. 1896, d. 7.4. 1986,
rafvirkjameistari í Vestmannaeyj-
um og síðustu árin í Reykjavík, og
Solveig Soffia Jesdóttir, f. 12.10.
1897, d. 7.2. 1984, hjúkrunarkona.
Ætt
Haraldur var sonur Eiríks Hjálm-
arssonar, kennara og verslunar-
manns á Vegamótum í Eyjum, og
Sigurbjargar Rannveigar Péturs-
dóttur húsmóður. Solveig Soffia var
dóttir Jes Anders Gíslasonar, pr. og
kennara á Hóli í Eyjum, og k.h.,
Ágústu Eymundsdótur.
Tll hamingju
með afmælið
12. september
85 ára
Guðrún Einarsdóttir,
Kleppsvegi 2, Reykjavík.
Lovísa Júlíusdóttir,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði.
Sigríður Þorbjörnsdóttir,
Faxabraut 13, Keflavík.
80 ára
Jón Stefánsson,
Hlíð, Hornafirði.
75 ára
Jón Berþórsson,
fyrrv. framkvæmdastjóri
Nýju sendibílastöövarinnar,
Kóngbakka 10, Reykjavík.
Ásbjörn Sveinbjörnsson,
Breiðuvík 18, Reykjavík.
Guðmundur B. Ólafsson,
Lálandi 6, Reykjavík.
70 ára
Haukur Berg Bergvinsson,
Huldubraut 27, Kópavogi.
Jóna Þorfinnsdóttir,
Skeljagranda 5, Reykjavík.
Pálína Hermannsdóttir,
Hvassaleiti 111, Reykjavík.
60 ára
Emelía Sigurðardóttir,
Fjarðargötu 40, Þingeyri.
50 ára
Anna Sigríður
Jóhannsdóttir,
Hverhamri, Hveragerði.
Jóhann Petersen,
Breiðvangi 18, Hafnarfirði.
Pálína Stefánsdóttir,
Stórhóli 9, Húsavík.
Ragnheiður Ragnarsdóttir,
Drápuhlíð 17, Reykjavik.
Sigrún Þorvarðardóttir,
Sjávarflöt 4, Stykkishólmi.
Steinunn Bárðardóttir,
Rauöási 1, Reykjavík.
Svanfríður Jónsdóttir,
Hléskógum 21, Egilsstöðum.
Þorgerður Tryggvadóttir,
Bræðratungu 12, Kópavogi.
40 ára
Valur Þór
Hilmarsson
umhverfisfræðingur,
Oddeyrargötu 15,
Akureyri.
Eiginkona hans er
Hrafnhildur Vilbertsdóttir
föröunarmeistari.
Árni Þór Ámason,
Vatnsnesvegi 32, Keflavík.
Elva Ragnarsdóttir,
Hrauntúni 53,
Vestmannaeyjum.
Guðbjörg Jóna Pálsdóttir,
Mávahlíð 48, Reykjavík.
Helga Nína Svavarsdóttir,
Flétturima 26, Reykjavík.
John Haraldur Frantz,
Hlégerði 8, Kópavogi.
Kristrún Inga Geirsdóttir,
Norðurgötu 58, Akureyri.
Lilja Bolladóttir,
Dalhúsum 90, Reykjavík.
Ólafur Freyr Gíslason,
Gyðufelli 14, Reykjavík.
Þóra Katrín Halldórsdóttir,
Miðgarði 2, Austur-Héraöi.
Þjónustusíml 55D 5DDD
■ ■* „ ■
NYR HEIMUR A NETINU
i
c
c
r
i