Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Page 57
I>"V LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999
<dagsönn «
Jóhann Siguröarson og Arnar
Jónsson leika blaöamanninn og
rithöfundinn.
Abel Snorko býr einn
Hafnar eru aftur sýningar á
franska leikritinu Abel Snorko býr
einn, eftir Eric-Emmanuel Schmitt,
sem er eitt vinsælasta leikskáld
Frakka um þessar mundir.
Abel Snorko býr einn (Variations
énigmatiques) var frumsýnt á Litla
sviðinu í nóvember í fyrra og gekk
til loka leikársins fyrir fullu húsi.
Jóhann Sigurðarson og Arnar Jóns-
son fengu einróma lof fyrir leik sinn
—:—.. --------í þessu marg-
LeiKhUS slungna verki.
--------------Abel Snorko býr
einn er heimspekilegt leikrit um
ástina, þar sem gaman og alvara
fléttast listilega saman.
Leikritið fjallar um Abel Snorko,
heimsfrægan nóbelsverðlaunahafa í
bókmenntum, sem ákveður að veita
blaðamanni viðtal á eyjunni þar
sem hann býr einn, fjarri heimsins
glaumi. Fundur þessara bláókunn-
ugu manna verður upphafið að
óvæntu og mögnuðu uppgjöri.
Leikstjóri er Melkorka Tekla
Ólafsdóttir. Þýðandi er Kristján
Þórður Hrafnsson. Lýsingu hannar
Ásmundur Karlsson og höfundur
leikmyndar og búninga er Hlín
Gunnarsdóttir. Næsta sýning er
annað kvöld á Litla sviði Þjóðleik-
hússins.
John Abercrombie mætir ásamt
kvartett á Jazzhátíð.
Abercrombie í óperunni
Jazzhátíð Reykjavíkur lýkur
annað kvöld með stórtónleikum í
íslensku óperunni kl. 21. Þar leik-
ur kvartett gítarleikarans Johns
Abercrombies. Hann er einn
helsti áhrifavaldur í nútímagítar-
leik og hefur einu sinni heimsótt
ísland áður - það var árið 1980.
Nú leika með honum fiðlarinn
Mark Feldman, hammondorgel-
leikarinn Dan Wall og trommar-
inn Adam Nussbaum. Tónlist
Abercrombies er bæði ljóðræn og
ryþmísk, frjáls og bundin.
John Abercrombie sló í gegn
sem gítaristi hljómsveitar
trommarans Billy Cobhams.
Hammondoranistinn Dan Wall
hefur m.a. leikið með Lee Konitz,
Eddie Harris og Tom Harrell.
Fiölarinn Mark Feldman hefur
víða komið við. Af þeim djassleik-
urum sem hann hefur leikið með
má nefna John Zom, Joe Lovano
og Billy Hart. Hann var kosinn
næstbesti fiðlari djassins í fyrra
af lesendum bandaríska tónlistar-
tímaritsins Down beat. Trommar-
inn Adam Nussbaum er I hópi
djassins um þessar mundir. Flest-
um er heyrðu er ógleymanleg Is-
landsheimsókn hans 1983 er hann
lék með gítaristanum John
Scofield og rafbassaleikaranum
Steve Swallow í íslensku óper-
unni. Síðan hefúr hann leikið
með jafn ólíkum hljómsveitum og
þeim er Gary Burton, Michael
Brecher og Toots Thielemans
stjóma.
Hvassast og rígning á Vestfjörðum
Viðvörun: Búist er við stormi,
eða meira en 20 m/s, við Faxaflóa,
Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Strönd-
um og Norðurlandi vestra og miö-
hálendinu, norðaustanátt, 18-23 m/s,
vestan til en 10 til 15 austan til.
Rigning og skúrir verða um allt
landi og víða slydda til fjalla. Sunn-
an- og norðaustanlands lægir mjög
undir kvöld, suðaustanátt, 13-18, á
Austurlandi.
Fremur hæg suðlæg eða breytileg
átt með rigningu eða súld með köfl-
um verður á austanverðu landinu á
morgun en norðaustan 15-25 vestan-
lands, hvassast og rigning á Vest-
Veðríð í dag
fjörðum en skúrir suðvestanlands,
hiti 3 til 12 stig, svalast norðvest-
an til en hlýjast suðaustan til.
Sólarlag í Reykjavík: 20.10
Sólarupprás á morgun: 06.40
Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.26
Árdegisflóð á morgim: 07.47
Veðrið kl. 12 á hádegi í gær:
Akureyri Bergsíaðir rigning 5
Bolungaruík rigning 3
Egilsstaðir 6
Kirkjubœjarkl. rigning 10
Keflavíkurflv. rigning 4
Raufarhöfn alskýjað 5
Reykjavík rigning 5
Stórhöföi rigning og súld 9
Bergen skýjað 16
Helsinki skýjaó 21
Kaupmhöfn léttskýjað 19
Ósló skýjað 18
Stokkhólmur 21
Þórshöfn rigning 12
Þrándheimur hálfskýjað 16
Algarve heiðskírt 21
Amsterdam Barcelona þokumóða 21
Berlín skýjaó 29
Chicago hálfskýjað 9
Dublin léttskýjað 18
Halifax þokumóða 21
Frankfurt léttskýjað 28
Hamborg léttskýjað 23
Jan Mayen súld 7
London skýjað 21
Lúxemborg léttskýjað 26
Mallorca léttskýjað 30
Montreal þoka 19
Narssarssuaq heióskírt 1
New York þokumóða 22
Orlando þokumóða 23
París. léttskýjaö 26
Róm léttskýjað 29
Vin léttskýjað 26
Washington þokumóöa 19
Winnipeg aiskýjað 9
Etta, Stórsveitin og Mingus
Einn af hápunktum Jazzhátíðar
Reykjavíkur verða tónleikar með
gospel- og jazzsöngkonunni Ettu
Cameron ásamt Stórsveit Reykja-
víkur undir stjóm Sæbjamar Jóns-
sonar á Hótel Sögu í kvöld ki. 21.
Þetta er I fjórða skipti sem Etta
heimsækir ísland. Hún kom hingað
fyrst árið 1985 ásamt tríói Niels-
Hennings 0rsted Pedersens og söng
djass og blús í Háskólabíói. 1994 og
1998 sótti hún einnig ísland heim og
söng magnaða negrasálma með kór
Bústaðarkirkju og fyllti kirkjuna í
fjórgang.
Etta er fædd á Bahamaeyjum en
varð fræg sem djasssöngkona eftir
að fjölskyldan flutti tfl Bandaríkj-
anna. Síðustu tuttugu árin hefúr
hún búið í Kaupmannahöfn og
ferðast þaðan um víða veröld til að
halda tónleika. Hún er talin ein
fremsta djass-, blús- og gospelsöng-
kona heims um þessar mundir og
á hundrað ára afmæli Dukes E0-
ingtons í april sl. var hún valin tO
að syngja helgisöngva hans í
beinni útsendingu evrópsku út-
varpsstöðvanna.
Mingus Mingus Mingus
Mingus Mingus Mingus er yfir-
skrift tónleika sem era helgaðir
tónlist eins af höfuðtónskáldum
djassins, bassasnillingsins Charles
Mingusar. Tvö tríó leika á tónleik-
unum skipuð blásurunum Jóeli
Pálssyni og Sigurði Flosasyni,
bassaleikumnum Tómasi R. Ein-
arssyni og Þórði Högnasyni og
trommurunum Birgi Baldurssyni
og Matthíasi M.D. Hemstock. Tríó-
in munu leika sitt á hvað og bæði í
einu svo þetta verða bæði óvenju-
legir og spennandi tónleikar.
Groove Orcestra í Kaffileikhúsinu
Groove Orcestra, sem heldur tón-
leika í Kaffileikhúsinu í kvöld kl.
21, er hljómsveit sem Óskar Guð-
jónsson saxófónleikari er í forystu
fyrir. Með Óskari leikui- einvalalið;
rafbassaleikarinn Jóhann Ás-
mundsson úr Mezzoforte, kontra-
bassaleikarinn Þórður Högnason
sem ferðaðist í sumar um þvert og
endOangt ísland með Óskari og Ein-
ari Vali Scheving. Trommarar eru
Matthías M.D. Hemstock og Birgir
Baldursson.
Myndgátan
Skjólborð
Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki.
C
Vox Feminae syngur á Húsavík í
kvöld.
Vox Feminae á
norðurslóðum
Þessa dagana er kvennakórinn
Vox Feminae í tónleikaferð um
Norðurland. í dag heldur kórinn
tónleika í Húsavíkurkirkju kl. 14.
Á dagskrá eru íslensk og erlend
lög auk kirkjulegra verka eftir
Brahms, Bach, Rheinberger og
Þorkel Sigurbjömsson. Á morgun
mun kórinn síðan syngja við
messu i Glerárkirkju, Akureyri.
Stjórnandi kórsins er Margrét
Pálmadóttir og undirleikari er Úl-
rik Ólason.
Vox Feminae var stofnaður
haustið 1993 af nokkmm konum
úr Kvennakór Reykjavíkur undir
stjórn Margrétar Pálmadóttur.
Markmiðið með stofnun kórsins
var að syngja eldri tónlist, and-
lega og veraldlega. Kórinn hefur
haldið marga tónleika hér á landi
sem og á erlendri grundu. Mar-
grét Pálmadóttir hefur verið aðal-
stjórnandi frá upphafi.
Píanótónleikar í Salnum
Annað kvöld kl. 20.30 heldur
franski píanóleikarinn Désiré
N’Kaoua tónleika í Salnum í Tón-
listarhúsi Kópavogs. Þess er nú
minnst víða um heim að 150 ár
eru liðin frá andláti Fredericks
Chopin og af því tilefni leikur
N’Kaoua efnisskrá tileinkaða
minningu þessa mikla tónskálds.
Désiré N’Kaoua fæddist í Con-
stantine í Alsír. Strax í bemsku
komu óvenjulegir tónlistarhæfi-
leikar hans í ljós og innan við tví-
tugt hafði hann unnið til fyrstu
verðlauna i alþjóðlegum keppnum
í píanóleik. Á þessum aldri varð
N’Kaoua einleikari með Fílharm-
oníuhljómsveit Berlínar, en 27
ára gamall hlaut hann hin viður-
kenndu og fágætu fyrstu verðlaun
í alþjóðakeppninni í Genf. N’Ka-
oua hlaut einnig gullverðlaun í al-
þjóðakeppni Vercelli og fyrstu
verðlaun í keppni Alfredo Casella
í Sienna.
Tónleikar
Framúrskarandi árangur N’Ka-
oua í píanóleik hefur gert hann að
eftirsóttum einleikara með virt-
um hljómsveitum svo sem Fíl-
harmóníuhljómsveitum Berlínar,
Varsjár, Prag, Búdapest, Aþenu
og Sviss. N’Kaoua hefur einnig
leikið einleik með Kammerhljóm-
sveit Berlínar, Radio France Fíl-
harmoníusveitinni, ítölsku út-
varpshljómsveitinni og kammer-
sveit Lausanne o.fl.
Á efnisskrá Désiré N’Kaoua á
sunnudagskvöldið kemur eru tvö
næturljóö op. 27, tvær pólónesur
op. 26, sónata op. 35 í b-moll og all-
ar ballötur Chopins: nr. 1 op. 23 í
g-moll, nr. 2 op. 38 í F-dúr, nr. 3
op. 47 í As-dúr og að lokum nr. 4
op. 52 í g-moll.
%
Gengið
Almennt gengi LÍ10. 09. 1999 kl. 9.15
Eininn___________Kaup Sala Tollgengi
Dollar 72,290 72,650 73,680
116,520 117,110 117,050
Kan. dollar 48,600 48,900 49,480
Dönsk kr. 10,3340 10,3910 10,3640
Norsk kr 9,3400 9,3910 9,2800
Sænsk kr. 8,9210 8,9700 8,8410
Fi. mark 12,9244 13,0021 12,9603
Fra. franki 11,7149 11,7853 11,7475
Belg. franki 1,9049 1,9164 1,9102
Sviss. franki 48,0600 48,3300 48,0900
Holl. gyllini 34,8707 35,0802 34,9676
Þýskt mark 39,2902 39,5263 39,3993
[t lira 0,039690 0,03993 0,039790
Aust sch. 5,5845 5,6181 5,6000
Port. escudo 0,3833 0,3856 0,3844
Spá. peseti 0,4618 0,4646 0,4631
Jap. yen 0,650900 0,65480 0,663600
írskt pund 97,572 98,159 97,844
SDR 99,030000 99,63000 100,360000
ECU 77,0600
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270