Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1999, Side 22
26
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1999
Sviðsljós
DV
Friðrik Dana-
prins ofsakátur
'Langt er síðan Friðrik Dana-
prins hefur verið jafnkátur og
hann er um
þessar mundir,
að sögn vina
hans. Ástæðan
mun vera nýja
kærastan
hans, hin gull-
fallega Bettina
0dum. Þau
áttu saman skemmtilegar stund-
ir í London um daginn þegar þau
sóttu veislu sem einn vina prins-
ins hélt. Vinurinn sá á veitinga-
hús í fjármálahverfi Lundúna og
hélt upp á eins árs afmæli stað-
arins. Þau Friðrik og Bettina
hafa þekkst í rúmt hálft ár og
segja þeir sem til þekkja að
prinsinn taki sambandið mjög
alvarlega. Hann hefur til dæmis
ekki haldið því leyndu, eins og
svo oft áður.
Camilla lætur ekki undan þrýstingi um að láta breyta sér:
Hrædd við
nýja ímvnd
Camilla Parker Bowles, ástkona
Karls Bretaprins, streitist á móti öll-
um tilraunum til að gera hana glæsi-
legra. Og til að leggja áherslu á af-
stöðu sína kom hún frá New York á
dögunu í sömu dragtinni og hún var í
er hún fór þangað. Vinir Bretaprins
segja að með þessu hafi Camilla verið
að lýsa því yfir að þrátt fyrir allt glitr-
ið í New York sé hún enn sama mann-
eskjan og þegar hún fór.
Það voru ráðgjafar Karls sem lögðu
til að Camilla breytti um ímynd.
Nokkrir ráðgjafa hans fóru meira að
segja með Camillu til New York en
það er liður í hernaðaráætlun þeirra
að koma ástkonunni meira í sviðsljós-
ið, að því er breska slúðurblaðið
Sunday Express fullyrðir.
Heimildarmaður blaðsins meðal
hirðarinnar í Bretlandi segir að það
muni hjálpa Camillu til lengdar hressi
hún svolítið upp á útlitið og verði
flottari. Það muni aðstoða hana við að
sýna almenningi að hún sé sérstök.
„Breska þjóðin vill að það sé glam-
úr og spenna í kringum konungsfjöl-
Camilla kom heim í sömu fötunum
frá New York og hún var í þegar hún
fór þangað.
skylduna. Við þurfum bara að gæta
þess að það verði ekki of mikið,“ hef-
ur Sunday Express eftir heimildar-
manni sínum.
En samkvæmt frásögn náinna vina
Camillu vill hún alls ekki láta bera sig
saman við Díönu prinsessu. Camilla
er jafnvel hrædd um að henni hafi
verið ýtt út í sviðsljósið of snemma.
Hún vill ekki koma alltof of oft fram
opinberlega of snemma.
Þegar Camilla var i New York
ræddi hún meðal annars við tísku-
kónginn Oscar de la Renta sem Jackie
Kennedy og Nancy Reagan leituðu
einnig ráða hjá. En Camilla, sem læt-
ur klippa sig hjá hárskeranum heima
í Gloucestershire og gengur helst í
hversdagsfatnaði frá Marks &
Spencer, hikaði við að skipta um allt í
klæðaskápnum.
Vinur Camillu segir hana ekki
hrifna af tilhugsuninni um að eyða
hundruðum þúsunda króna í föt. Hún
vilji helst af öllu ganga í þægilegum
klæðnaði.
Tompkinson
prestur og Kir-
wan kráareigandi
slitu sambandinu
Breski leikarinn Stephen Tomp-
kinson, sem þekktur er fyrir leik
sinn í sjónvarpsmyndaflokknum
Ballykissangel, og stallsystir hans,
Dervla Kirwan, sem lék kráareig-
andann í myndaflokknum, eru skil-
in eftir fjögurra ára ástarsamband.
„Þetta er dapurlegt," sagði um-
boðsmaður Kirwans, Phillipa Clare,
við blaðamenn. Sagði umboðsmað-
urinn að vinnutími beggja væri
langur og erfitt væri að samræma
frítímann.
Illkvitnar tungur túlka þetta
þannig að hvorugu þyki nógu vænt
um hitt til að afþakka boð um hlut-
verk. Greinilegt sé að ferillinn sé
þeim meira virði en ástarsamband-
ið sem stóð í fjögur ár.
r r r
UísqIq UísqIq UísqIq
Kynningarverð á
Tanglewood
Gítarar 3/4
8.900
Classical Frá 9.900
SöngkerFi Frá 34.900
Pokar Frá 2.500
Bassar Frá 18.900
RaFmagnsgítarar
Frá 16.900
Gítarinn
Laugavegi 45 - sími 552 2125
GSM 895 9376
Ekki amaleg hárgreiðsla sem þessi rússneska fyrirsæta sýndi í Moskvu á
dögunum. Rússneska hárgreiðslukonan Olga Búrmístrova hannaði herleg-
heitin fyrir alþjóðlega hárgreiðslukeppni í Moskvu.
Kevin finnst
að vera ber
gott
Kvikm
Vikmyndaleikai'inn Kevin
Bacon er mikill nektaráhuga-
maður, það er að segja honum
finnst fátt dásamlegra en að
sprenga nakinn um heimili sitt.
Fyrst gengur harm þó úr skugga
um að barnapían sé farin út.
„Það gerir sálinni gott að vera
nakinn," segir leikarinn í viðtali
við amerískt stæltímarit. „Fötin
eru bara eitthvað sem við felum
okkur á bak við. Ef við köstum
af okkur Guccifötunum og Levis
gallabuxunum erum við öll
eins,“ segir Bacon.
Mariah með
nýjan kærasta
Poppsöngkonan Mariah Carey
hefur fundið ástina og hamingj-
una og þá sálarró sem því fylgir.
Og, það sem meira er, stúlkan
sendir frá sér nýja plötu um
þessar mundir.
„Núna er ég í sambandi sem
færir mér mikla hamingju," seg-
ir söngkonan en þvertekur fyrir
að nafngreina nýja kærastann.
„Því minna sem ég segi um hann
þeim mun betra." Á nýju plöt-
unni reynir Mariah að segja
samhangandi sögu sem endur-
speglar hennar eigið líf.
Litli prinsinn
dafnar afar vel
Ætli það séu ekki allar göngu-
ferðimar i bamavagninum meö
mömmu og pabba? Að minnsta
kosti þrífst litli prinsinn, sonur
þeirra Alexöndru og Jóakims í
Danmörku, afskaplega vel heima
í Schackenborgarhöll á Jótlandi.
Prinsinn hefur stækkað um
nokkra sentímetra frá því hann
kom i heiminn í ágústlok og
einnig hefur hann þyngst eins og
vera ber. Litli prinsinn vaknar
alla jafha tvisvar á nóttu til að fá
að drekka. Annars segir Jóakim
að hann hafi erft rólyndislegt fas
pabba.