Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1999, Blaðsíða 17
BSand í poka Knattspymumaðurinn Ronaldo er ekki á leiðinni frá Inter Mílano. Ron- aldo lék með liði sinu um helgina í ítölsku knattspyrnunni. Honum var skipt útaf i lokin og fékk frábærar viðtökur er hann fór af velli. „Þessir stuðningsmenn eru einstakir í hetrn- inum. Eg vil segja við þá að ég er ekki á fórum frá Inter og mun ekki yflrgefa félagið fyr en meistaratitill er í höfn,“ sagði Ronaldo í gær. Bland i poka Unnið er að stækkun á Old Traf- ford, heimavelli Manchester United. Eftir stækkunina mun völlur félags- ins rúma 67.400 áhorfendur í sæti en i dag tekur völlurinn 55.000 áhorf- endur í sæti. Forráðamenn United sögðu í gær að framkvæmdin miðaði vel áfram og að völlurinn yrði tilbú- inn í ágúst á næsta ári, ári á undan áæflun. Samassi Abou hefur verið lánaður frá West Ham til Walsall i einn mán- uð. Abou er sóknarmaöur og Sigurð- ur Ragnar Eyjólfsson þurfti að vikja fyrir honum úr leikmannahópi Walsall þegar liðið lék við Stockport um helgina. Ron Noades, framkvæmdastjóra Brentford, hefur tekist að fá leik liðs- ins við Colchester i ensku C-deildinni um næstu helgi frestað. Noades gat ekki hugsað sér að leika án Her- manns Hreiðars- sonar, sem verður með íslenska lands- liðinu i París, svo hann dreif í gegn fyrirhugaðan samn- ing við norður-írsk- an 21-árs landsliðs- mann. Þar með er Brentford með þrjá landsliðsmenn flar- verandi um helgina og á því rétt á frestun. Steve Staunton hjá Liverpool fer ekki i bann þrátt fyrir rauða spjaldið sem hann fékk gegn Aston Villa á laugardag. Dómarinn viðurkenndi að hafa gert mistök eftir aö hann skoð- aði umrætt atvik af myndbandi enda sést þar augljóslega að Staunton braut ekkert af sér. Hamarsmenn urðu fyrstu nýliðar úr- valsdeildarinnar i körfubolta síðan Keflavík fyrir 17 árum til að vinna sinn fyrsta leik í úrvalsdeild. Síðan Keflvíkingar byrjuðu sina for 1 úr- valsdeildinni með 4 sigrum í röð hafa átta félög ekki náð að sigra i fyrsta leik sinn í úrvalsdeild. Keflvíkingar settu nýtt félagsmet í úrvalsdeildinni er þeir unnu sinn 19. heimasigur í röð í deildinni á Skalla- grími sl. fimmtudag og þeir bættu þeim 20. við gegn Þór sl. sunnudag. Keflvikingar töpuðu síðast heima í deildinni fyrir Haukum 6. nóvember 1997. Keflvfkingar bættu ennfremur við fuilkominn árangur gegn Borg- nesingum en þeir hafa unnið alla 8 heimaleiki sina gegn „Sköllunum" í úrvalsdeild. -SK/VS/ÓÓJ Þrír á leið til AIK AIK, efsta lið sænsku A-deildarinnar í knattspyrnu, hefur boðið þremur ungum leikmönnum til sín um næstu helgi. Það eru Veigar Páll Gunnarsson úr Stjöm- unni og KR-ingamir Egill Atlason og Tryggvi Bjarnason. Svíarnir hafa fylgst vel með öllum þremur, og sáu t.d. Tryggva á Norðurlandamóti drengjalandsliða i sumar, Þremenningarnir fara á föstudag og verða i £jóra daga í Stokkhólmi. -VS Serena Will- iams er hins vegar í efsta sætinu þegar tekjur tenniskvenna á leiktímabil- inu eru skoð- aðar. Hún hefur þénað litlar 180 milljónir króna. í öðru sæti er Martina Hing- is með 175 milljónir, Lindsay Daven- port er í þriðja sæti með 137 milljón- ir, Venus Williams fjórða með 128 milljónir og í fimmta sætinu er þýska stúlkan Steffi Graf með 84 milljónir. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER 1999 ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER 1999 Bobby Robson, framkvæmdastjóri Newcastle í ensku knattspyrnunni, hefur verið á höttunum eftir sterkum sóknarmanni en ekkert orðið ágengt. í síðustu viku fór Robson fram á að fá Ronaldo lánaöan í mánuð frá Inter en þeirri beiðni var hafnað sam- stundis. Tiger Woods er enn i efsta sæti á listanum yfir bestu kylfinga heims. Woods er með 17,04 stig en landi hans, David Duval, er í öðru sæti með 14,56 stig. Colin Montgomerie er í þriðja sæti meö 9,78 stig. Spænski kylfingurinn Sergio Garcia er kominn á listann yfir bestu kylfínga heims í fyrsta skipti. Garcia, sem er aðeins 19 ára gamall, þykir besta efni sem komið hefur fram í golfinu um áraraðir. Garcia er í 17. sæti listans og þess verður örugglega langt að bíða að hann falli af listan- um. Af tuttugu efstu mönnum á list- anum eiga Bandaríkjamenn tólf. Svissneska stúlkan Martina Hingis heldur toppsætinu á heimslistanum í tennis kvenna þrátt fyrir að hafa tap- að á stórmótinu i Þýskalandi um liðna helgi. Lindsay Davenport er í öðru sæti og síðan koma systurnar Venus og Serena Williams. Nýi kærastinn hennar Steffi Graf Bandaríkjamaðurinn Andre Agassi, er tekjuhæsti tennisleikarinn i kariailokki en í budduna hans hafa safnast 187 milljónir króna það sem af er árinu. Bretinn Greg Rusedski er annar með 130 milljónir, Yevgeny Kafelnikov frá Rússlandi er þriðji meö 125 milljónir, Brasilíumaðurinn Gustavo Kuerten með 104 milljónir er í ijórða sæti og fimmti er Pete Sampras frá Bandaríkjunum með 84 milljónir króna. Andre Agassi er í efsta sæti á heims- listanum í tennis karla. Yevgeny Kafelnikov er annar, Pete Sampras þriðji, Todd Martin fjórði og Gusta- vo Kuerten fimmti. Ljóst er að Þjóðverjinn Michael Schumacher mun ekki aka meira á þessu tímabili i Formula 1 kappakstr- inum. Tvær keppnir eru eftir, i Jap- an og Malasiu, og Schumacher lýsti þvi yfir í gær að hann væri ekki bú- inn að jafna sig af meiðslunum og því ekki tilbúinn í slaginn. Sjö stuðningsmenn gríska knatt- spyrnuliðsins PAOK Saloniki létust og 26 meiddust er langferðabifreiö lenti í mjög hörðum árekstri um sið- ustu helgi. Rútan var að flytja stuðn- ingsmenn liðsins til síns heima eftir útileik gegn Panathinaikos. Þrir af hinum slösuðu eru enn í lífs- hættu. Lögreglan rannsakar málið en getum hefur verið leitt að því að öku- maður rútunnar hafi ekki haft tilskil- in réttindi. Fréttir birtast ekki reglulega frá knattspyrnu í Lettlandi. Um helgina gerðist það hins vegar að Skonto Riga sigraði andstæðing sinn með tólf mörkum gegn engu. Lið Skonto Riga datt á dögunum út úr UEFA- keppninni. Illa fór fyrir Schumacher er hann ók bíl sínum útaf á æfingu sl. sunnudag. Schumacher slapp þó við meiðsli en bíll hans eyði- lagðist. Sport 1. deild kvenna 1 handknattleik: Stjarnan-ÍR 20.00 Fram-Víkingur . . 20.00 FH-Valur 20.00 Grótta/KR-KA . . . 20.00 Haukar-ÍBV 20.00 Fréttir bornar til baka í gær báru forráðamenn Stoke til baka fréttir íslenskra sjónvarps- stöðva um að íslendingamir hefðu þegar náð samningum um kaupin á félaginu. Stjómarformaðurinn, Jez Moxey, sagði að enn væri verið að tala við fleiri áhugasama kaupend- ur en þá íslensku. -ÍBE/VS Sport Haraldur bestur Haraldur Ingólfsson skor- aði 2 mörk fyrir Elfsborg í gær og lagði upp tvö. Haraldur Ingólfsson skoraði 2 mörk fyrir Elfsborg í sænsku A-deildinni í knattspymu í gær þegar liðið sigraði Malmö, 5-2. Haraldur skoraði þriðja og fimmta markið og kom það síð- ara úr vítaspymu. Auk þess lagði Haraldur upp tvö mörk og var maður leiksins. Sverrir Sverrisson var besti maður Malmö en hEtnn skoraði fyrra mark liðsins. Haraldur og Sverrir léku allan leikinn en Ólafur Örn Bjamason lék ekki fyrir Malmö. Örgryte er úr leik í barátt- unni um titilinn eftir tap gegn Frölunda, 2-1. Brynjar Bjöm Gunnarsson lék allan tímann fyrir Örgryte og stóð sig vel Gautaborg tapaði fyrir Norrköping, 2-3. Þórður Þórð- arsson var á varamannabekkn- um hjá Norrköping. Hammarby sigraði Djurgar- den, 2-1 og Helsingborg lagði Kalmar, 3-0. AIK er efst með 46 stig, Hels- ingborg 45, Halmstad 43, Ör- gryte 38, Gautaborg 38. Neðst er Djurgarden 19, Malmö 22, Hammarby 23 og Elfsborg 26. - Þrjár umferðir em eftir af deildarkeppninni. -EH/GH DV DV Serena Williams, 18 ára, með sigurlaunin í Munchen. Systir hennar, Venus 19 ára, tapaði fyrir Serenu í úrslitaleik stærsta tennismíts ársins og vakti árangur systranna mikla athygli og hrifningu áhorfenda. Reuter Olympiakos er eitt liða með fullt hús stiga, 9, eftir þrjár umferðir í grísku A-deildinni í knattspymu. Panat- hinaikos er næst með 7 eftir 1-1 jafh- tefli viö PAOK á sunnudag en Helgi Sigurósson lék ekki með Panathinai- kos. Arnar Grétarsson var ekki með AEK sem vann Ethnikos Asteras úti, 3-1, og er í 9. sæti með 4 stig. Kristó- fer Sigurgeirsson og félagar í Et- hnikos Pireus töpuðu, 4-1, fyrir Agios Nikolaos og eru neöstir i B-deildinni með eitt stig. AGF tapaöi enn í dönsku A-deildinni á sunnudag, nú 3-0 fyrir Bröndby. Ólafur H. Kristjánsson og Tómas Ingi Tómasson léku báðir allan leik- inn með AGF sem er næstneðst með 6 stig en Esbjerg er með 4. Efst er Her- fólge með 22 stig, AB er með 21 og Bröndby 19. Jón Þorgrimur Stefánsson hefur sagt upp samningi sínum við knatt- spymudeild Vals í kjölfar þess að Hlíðarendaliðið féll á dögunum úr efstu deild f fyrsta skipti. Jón hefur leikið með Val undanfarin tvö ár. John Blackley, aðstoðarþjálfari Dimdee United í Skoflandi, sagði í gær að Siguröur Jónsson þyrfti al- gera hvíld um einhvem tima og hann færi ekki í neina aðgerö vegna bein- brotsins sem hann varð fyrir. „Sigurð- ur spilar allavega ekki næsta deilda- leik en við vitum ekki hve lengi hann verður frá,“ var haft eftir Blackley á fréttavefnum Teamtalk. Eittar Valbergsson úr Þór á Akur- eyri var í aðalhlutverki á mynd úr leik Þórs við Keflavík í úrvals- deildinni í körfu- bolta sem birtist í DV í gær, ekki Hermann Her- mannsson eins og mishermt var í myndatextanum. Björn Ingi Jóhannsson er eigandi og ökumaður rauðu torfæragrindarinn- ar sem birt var mynd af I DV á fóstu- dag, ekki Benedikt Óskar Ásgeirs- son eins og sagt var í myndatexta. Kristinn Jakobsson hefur íjórum sinnum verið kjörinn besti dómari úr- valsdeildarinnar í knattspymu, ekki þrisvar eins og sagt var f gær. íris B. Eysteinsdóttir lék síðasta hálf- tímann með Aston Villa þegar liðið tapaði, 5-0, fyrir Tranmere í ensku A- deildinni í kvennaknattspymu á sunnudaginn. Max Trúfan leikur ekki með Aftur- eldingu í handboltanmn í vetur. Hann stundar nám í Þýsklandi og leikur samhliða því með varaliði Wuppertal. Hinn efnilegi Hjalti Pálmason úr Vikingi handarbrotnaði á dögunum og verður frá æfingum og keppni fram yfir áramót. Southampton og Derby skildu jöfn, 3-3, i ensku knattspymunni í gærkvöld. Marian Pahars, Matthew Oakley og Stuart Ripley skomðu fyrir fýrir Southampton en þeir Rory Delap, Jakob Laursen og Mikkel Beck mörk Derby. Enn og aftur er Frakkinn Patrick Vieira búinn að koma sér í vandræði en hann á nú yfir höfði sér leikbann eftir að hafa misst sjórn á skapi sínu á sunnudaginn var. Stjóri Stoke City: Sinni mínu starfi • Alls staðar þar sem minnst er á enska C-deildarliðið Stoke City í enskum fjölmiðlum þessa dagana er fjallað um hugsanleg kaup íslenskra fjárfesta á meirihluta í félaginu. Framkvæmdastjóri Stoke, Gary Megson, sagði á laugardag við blað- ið „Sport First“ að hann sinnti starfl sínu með sama móti þrátt fyr- ir háar raddir um nýja eigendur. Blaðið sagði ennfremur að íslend- ingarnir myndu ráða Guðjón Þórð- arson sem nýjan framkvæmdar- stjóra ef af kaupunum yrði og því væri starf Megson í hættu þrátt fyr- ir góðan árangur að undanförnu. Enska blaðið „Sunday Express" sagði að markaskorari Stoke City, Paul Connor hafi verið „ís“-kaldur er hann skoraöi úrslitamarkið um helgina gegn Scunthorpe. Einnig segir að liðið hafi náð að hrista af sér allt umtal um málið og náð að einbeita sér að leiknum og unnið þar með fyrsta heimaleikinn í heil- an mánuð. Blaðið „News Of The World“ sagði að starf Megson væri nú í mikilli hættu vegna hugsan- legri yfirtöku íslenskra fjárfesta á liðinu. KR-ingar til Ayr? - markverðirnir og Þórhallur í sigtinu Skoska knattspymufélagið Ayr United hefur enn á ný falast eftir markvörðum KR-inga og vill fá Kristján Finnbogason eða Gunn- leif Gunnleifsson til liðs við sig sem fyrst. Kristján lék með Ayr síðari hluta tímabilsins 1997-98 og stóð sig vel, og Skotarnir hafa síðan haft áhuga á að fá hann aftur. í sumar reyndu þeir fyrst að fá Kristján til sín og síðan Gunnleif, þar sem liðið bráðvantaði mark- vörð. Úr varð að Thomas Gill, markvörður Duisburg í Þýska- landi, kom til félagsins, en nú mun vera komin upp gagnkvæm óá- nægja milli hans og stjórnar- manna Ayr. Þá hefur Ayr sýnt áhuga á þriðja KR-ingnum, miðjumannin- um Þórhalli Hinrikssyni. Ennfremur er frágengið að Sig- urður Örn Jónsson leiki í vetur með Bayer Uerdingen í þýsku C- deildinni á leigusamningi frá KR og líklegt er að Bjami Þorsteins- son fari líka þangað. -VS Sigursælar systur Systurnar Serena og Venus Willi- ams vöktu mikla athygli á stærsta tennismóti ársins í Þýskcdandi um síðustu helgi. Þær systur komust alla leið í úr- slit og á leið sinni þangað afgreiddu þær tvær af sterkustu tenniskonum heimsins. Serena sigraði Lindsay Daven- port í undanúrslitum og Venus tryggði sér sigur gegn Martinu Hingis frá Sviss. Úrslitaleikur systranna var skemmtilegur en honum lauk með sigri Serenu, 6-1, 3-6 og 6-3. „Þegar ég er að leika eins og ég get best er erfitt fyrir andstæðinga mína að sigra mig,“ sagði Serena eftir að sigurinn var í höfn en fyrir hann fékk hún 63 milljónir króna. „Reyndar erum við mjög erfiðir andstæðingar þegar við erum í okk- ar besta formi. Við eigum oft eftir að leika saman á næstu árum og sigra til skiptis. Vonandi mun það verða til þess að auka áhuga al- mennings enn frekar á tennis kvenna,“ sagði Serena ennfremur. Venus var glöð yfir árangri þeirra systra þrátt fyrir tap í úrslta- leiknum: „Þetta er það sem við höf- um alltaf þráð, að leika til úrslita á stórmóti. Því miður tapaði ég að þessu sinni en það kemur að því að ég sigra,“ sagði Venus. Það vakti athygli eftir mótið í Þýskalandi að þær systur gerðu sér ekki glaðan dag eftir mótið eins og margir keppendur og tóku ekki þátt í októberhátíð Þjóðverja þar sem bjór er í aðalhlutverki. „Við eum reglusamar og drekk- um ekki bjór. Við erum bandarískir ríkisborgarar og megum ekki drekka bjór fyrr en við verðum 21 árs,“ sagði Serena Williams. -SK Vieira enn í vanda - hrækti framan í Ruddock og áreitti löggu Frakkinn Patrick Vieira, miðvallarleikmað- ur Arsenal, hefur enn eina ferðina ratað í vandræði í kjölfar ósæmi- legrar hegðunar. Vieira var rekinn útaf á 84. mínútu í leik West Ham og Arsenal sl. sunnudag. Neil Ruddock, varnarmaður West Ham, reyndi að róa Frakkann en fékk ekki blíðar mót- tökur hjá þeim franska: „Ég reyndi að róa hann niður en þá gerði hann sér lítið fyrir og hrækti framan i mig. Öllu ömur- legri verður framkoma íþróttamanns ekki og Vieira á skilið að fara í langt bann. Ég hef lent í hinu og þessu sjálfur á mínum ferli og kannski ekki verið sá prúðasti en ég hef aldrei vogað mér að hrækja á andstæðing minn,“ sagði Ruddock í gær. Patrick Vieira er ekki ókunnugur rauðu spjöld- unum. Síðan landi hans, Arsene Wenger tók við stöðu framkvæmdastjóra, hefur Vieira fengið 24 rauð spjöld á þremur leik- tímabilum. Vieira fékk að líta gula spjaldið 30 sinn- um á fyrstu 30 mánuðum sínum hjá Arsenal. Hefur hann verið klaufalegur og óheppinn í brotum með afbrigðum. Þá hefur það ekki hjálpað til að Vieira hefur átt afar erfitt með að hemja skap sitt þrátt fyrir að Wenger hafi hald- ið yfir honum margar ræðurnar og sektað hann fyrir ósæmilega hegðun. Auk þess að hrækja í andlit Ruddocks sl. sunnudag er Vieira sak- aður um að hafa látið reiði sína bitna á lög- regluþjóni í göngum á leið sinni til búningsherberg- is. BBC-útvarpsstöðin greindi frá þessu. Ef satt er, er það í annað skipti sem Vieirá er áskaður um slíkt athæfi. Það gerðist einnig eftir að Vieira var rekinn í bað í sögulegum leik gegn Sheffield Wed- nesday í fyrra. Talið er fullvíst að enska knattspyrnusam- bandið muni ákæra Vieira og þá mun fortíðin varla koma honum til bjargar. -SK Knattspyrna: Lillestrom vill kaupa Indriða - norska liðið hefur gert tilboð í KR-inginn unga Það stefnir í að enn einn íslend- ingurinn gangi í herbúðir norska A- deildarliðsins Lilleström. Félagið hefur gert tilboð í varnar- manninn Indriða Sigurðsson hjá KR og er fastlega búist við því að hann skrifi undir þriggja ára samn- ing við liðið á næstu dögum. Indriði, sem verður 18 ára gamall í næstu viku, hefur verið undir smásjá erlendra félaga um hokkurt skeið enda einn af efnilegultu knattspymumönnum landsins. Indriði hefur leikið með <öllum yngri landsliðunum og var'með í lð af 18 leikjum KR-inga í úrvalgdeild- inni í sumar en hann vakti fyrst at- hygli á síðustu leiktíð þegar hþnn,16 ára gamall, spilaði 9 leiki meþ KR- liðinu. v ' Eins og DV hefur skýrt frá, mun Grétar Hjartarson ganga frá fjög- urra ára samningi við Lilleström í vikunni en fyrir hjá félaginu eru landsliðsmennimir Rúnar Kristins- son og Heiðar Helguson. -GH Indriði Sigurðsson. Marel farinn til Stabæk Marel J. Baldvinsson, hinn ungi og stórefnilegi sóknar- maður úr Breiðabliki, hélt utan til Noregs í morgun en A- deildarliðið Stabæk, lið Péturs Marteinssonar landsliðs- manns, bauð honum að koma út til æfinga. Marel missti af lokaksprettinum í úrvalsdeildinni í sumar vegna meiðsla í hné en er allur að koma til. Hann verður hjá Stabæk í tvær vikur og eftir það kemur i ljós hvort honum veðmr boðinn samningur við félagið. Marel lék 10 leiki með Blikum í úrvalsdeildinni í sumar og skoraði 3 mörk. -GH Alex Ferguson, stjóri Manchester United: Spyrjum aö leikslokum Hroðaleg niðurlæging Manchester United gagnvart Chelsea hefur vakið mikla athygli víða um heim. Langt er síðan lærisveinar Alex Fergu- sons hafa fengið slíka út- reið sem á sunnudag. Þrátt fyrir af- spyrnuslakan leik United er Ferguson ekki svartsýnn á framhaldið: „Lið Chelsea er mikil ógnun og liðið er mjög sterkt eins og ég hef áður sagt. Liðið er meira en líklegt til að vinna enska meistaratitilinn. Við verðum að bíta í þetta súra epli að hafa tapað 5-0 en ég minni menn á að spurt er að leikslok- um. Síðast þegar við töp- uðum 5-0, gegn New- castle 1995, töpuðum við ekki leik aftur fyrr en mörgum mánuðum síðar og unnum meistaratitil- inn. Vitaskuld var erfitt að kyngja tapinu gegn Chelsea en viö verðum að taka því að við vorum yfirspilaðir. En stundum verða lið að fá slíkt kjaftshögg sem þetta til að komast niður á jörö- ina og finna beinu braut- ina á ný,“ sagði Sir Alex Ferguson í gær. Gianluca Vialli, stjóri Chelsea, var rólegur eftir sigurinn gegn United og varaði sína menn við of mikilli bjartsýni: „Leikur minna manna var nánast óaðfinnanleg- ur. Það er hins vegar langur vegur frá þvi að þetta sé búið og við ör- yggir með titilinn. Það er gríðarlegur fjöldi leikja eftir en ég get ekki neit- að því að lið mitt lítur vel í dag og ég er bjart- sýnn á framhaldið ef liðið heldur áfram að leika jafnvel og gegn United,“ sagði Vialli. Ljóst er að Chelsea er líklegt til stórræða á yfirstandandi leiktíð enda aragrúi snjallra leikmanna hjá félaginu. -SK íris valin í landsliðið íris Sæmundsdóttir úr ÍBV er í landsliðshópnum í knattspyrnu kvenna í fyrsta skipti en Þórður Lárusson tilkynnti í gær 16 manna hóp fyrir Evrópuleikinn gegn Þjóðverjum í Oldenburg þann 14. október. í liðið vantar Ásthildi Helga- dóttur sem kemst ekki frá Bandaríkjunum en að öðru leyti veröur ísland með svipaðan hóp og í síðustu leikjum. Hann er þannig skipaður: Þóra B. Helgadóttir, Breiðabl. .. 6/0 Sigríður F. Pálsdóttir, KR......21/0 Margrét Ólafsdóttir, Breiðabl. . . 35/7 Auður Skúladóttir, Stjörnunni . 33/0 Sigrún Óttarsdóttir, Breiðabl. .. 31/3 Katrín Jónsdóttir, Kolbotn .... 31/2 Guölaug Jónsdóttir, KR ..........26/1 Guörún Jóna Kristjánd., KR . . . 24/3 Erla Hendriksdóttir, Fredriksb. 20/0 Ásgerður H. Ingibergsd., Val .. 18/0 Rósa J. Steinþórsdóttir, Val ... 10/0 Edda Garðarsdóttir, KR ............7/0 Helena Ólafsdóttir, KR ............7/0 Rakel Ögmundsdóttir, Breiðabl. 2/1 Guðrún S. Gunnarsdóttir, KR . . 0/0 íris Sæmundsdóttir, ÍBV...........0/0 ísland er með fjögur stig eftir tvo leiki í keppninni en ljóst er að þýska liðið er það sterkasta í riðlinum, enda núverandi Evr- ópumeistari. -VS United vill fækka liðum í 16 Forráðamenn Manchester United vilja fækka liðum í ensku A-deildinni 116 úr 20. Einn af forráðamönnum United, Peter Kenyon, tilkynnti þetta í gær. Þessi yfirlýsing United fær væntanlega hlýjar mótttökur hjá UEFA, Knatt- spyrnusambandi Evrópu, sem lengi hefur barist fyrir því að fækka liðum i efstu deildum víðs vegar í álfunni. -SK Kristján til Austurríkis Kristján Brooks, knattspymumaður úr Keflavík, er á fórum til Admira Wacker í Austurríki um næstu helgi en félagið hefur sýnt mikinn áhuga á að fá hann til liðs við sig. Kristján fór til liðsins í stuttan tíma í sum- ar og þá var ákveðið að framhald yrði á málinu. Kristján spilaði mjög vel með Keflavík í sumar og skoraði 10 mörk í úrvalsdeildinni. -vs í kvöld --’v?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.