Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1999, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1999, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999 33 Myndasögur Skrambinn! Albert faerði húsið _mitt ofan á beinin min sem Vj ég gróf. Eg stóðst það ekki. Hvutti. Fréttir Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, er óhress með skipun nefndar um orkumál. Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra segir nefndina vera verkefnis- stjórn. Hörð gagnrýni á skipun nefndar um orkunýtingu: Misskilning- ur hjá Kristjáni Þór - segir Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra hefur skipað í samstarfí við Siv Friðleifsdóttur umhverfisráð- herra 15 manna nefnd sem gera á rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma til langs tíma. Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, hefur harðlega gagnrýnt samsetningu nefndarinn- ar þar sem hún sé skipuð 14 aðilum af höfuðborgarsvæðinu og aðeins einum af landsbyggðinni. „Þetta er byggt á miklum mis- skilningi hjá Kristjáni," sagði Finn- ur Ingólfsson í samtali við DV. í gær. „Þetta er ekki nefnd sem slík heldur verkefnisstjórn sem stýrir fjórum faghópum þar sem aðalstarf- ið er unnið. Hennar hlutverk er að leggja mat á alla virkjunarkosti með tilliti til umhverfisverndar og nýt- ingar. Síðan eru starfandi fjórir fag- hópar um orkunýtmgu, minjavernd, náttúruvemd, auk hóps um byggða- mál og atvinnuþróun. í þessum fag- hópum er fólk úr öllum geirum, svo sem umhverfisverndarsamtökum, atvinnulífi, sveitarstjórnum og þar fram eftir götunum. Það er alls ekki rétt að stilla þessu upp sem höfuðborgarsvæði gegn landsbyggðinni. Verkefnis- stjómin er bara til að stýra verkefn- inu sem slíku en vinnan fer fram í faghópunum sem eru samsettir af fólki úr ólíkum áttum, alls staðar af landinu,“ segir Finnur Ingólfsson. -HKr. Hér er unnið af miklu kappi við gerð grjótgarðsins í Siglufirði og vélskóflan teflir á tæpasta vaðið við vinnu sína. DV-mynd Örn Þórarinsson. Unnið við grjótgarð í Siglufirði: Vörn fýrir bryggju SR-mjöls Þessa dagana stendur yfir vinna við gerð grjótgarðs við Siglufjarðar- höfn. Honum er meðal annars ætlað að verja löndunarbryggju SR-Mjöls, bæði að varna því að sandur berist aö bryggjunni og auka öryggi skipa sem liggja við bryggjuna. Grjótgarð- urinn er um 130 metrar að lengd og kemur í framhaldi af svokölluðum öldubrjót. Þarna er um talsvert mikið mannvirki að ræða og full- byggður stendur hann um 3 metra upp úr sjó miðað við meðalsjávar- hæð. I garðinn er áætlað að fari 35 þúsund rúmmetrar af efni. Aö sögn Sigurðar Hlöðverssonar, bæjartæknifræðings á Siglufirði, er áætlaður kostnaður við verkið 26 milljónir króna. Það nýtur hefð- bundins framlags frá Siglingamála- stofnun. Verkinu átti að ljúka um næstu mánaðamót en útlit er fyrir að því seinki lítillega. Verktaki er Suðurverk ehf. á Hvolsvelli. -ÖÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.