Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1999, Blaðsíða 32
að.umna
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Eskifjörður:
Rússamálið
í rannsókn
Mál skipstjórans á rússneska tog-
veiði- og nótaskipinu Murman-2
sem fært var til hafnar á Eskifirði í
fyrrakvöld er enn til rannsóknar, en
reiknað er með að tekin verði
ákvörðun um framhald málsins að
rannsókn lokinni í dag.
Skipið var tekið að síldveiðum í
Berufjarðarál og gaf skipstjórinn
fúslega upp til Landhelgisgæslunn-
ar ólöglega staðsetningu sína við
veiðarnar. Murman-2 er nýlegt skip
í eigu Norðmanna a.m.k. að hluta
og í áhöfn þess eru 6 Norðmenn og
9 Rússar. Skipið hafði fengið um 150
tonn af síld þegar varðskipið Týr
kom að því og flutti til hafnar.
-gk
Átökin í Framsókn:
Kom mér
á óvart
- segir borgarfulltrúi
„Það kom mér á óvart að menn
færu að kljást á þessum aðaifundi,"
sagði Alfreð Þorsteinsson, borgar-
fulltrúi R-lista,
um átökin sem
urðu á aðalfundi
Framsóknarfé-
lags Reykjavíkur
um helgina, þeg-
ar Óskar Bergs-
son, fráfarandi
stjórnarmaður,
bar upp van-
trauststillögu á
stjóm félagsins.
Alfreð kvaðst hafa verið erlendis
þegar fundurinn var haldinn. „Ég
tel að nú sé sá tími að menn ættu að
standa saman og forðast átök. Það
er affararsælla að menn vinni að
sínum málum innhyrðis og reyni að
ná árangri með þeim hætti.“
Aðspurður um hvort klofningur
væri uppi í félaginu, kvað Alfreð
svo ekki vera. Hins vegar væri aug-
ljóst að deilur væru í gangi. Ólíklegt
væri að um víðtækan klofning væri
að ræða. Menn þyrftu að setjast nið-
ur og leysa málin.
Sjá nánar bls. 2 -JSS
Lokahóf KSÍ:
Slagsmál
Lögreglan í Reykjavík staðfesti í
samtali við DV að hún hefði verið
kölluð nokkrum sinnum út vegna
slagsmála og ölvunar á lokahófi KSÍ
sem fram fór síðastliðið laugardags-
kvöld. Ekki náðist í Eggert Magnús-
son, formann KSÍ, því hann er erlend-
is en Birkir Sveinsson hjá KSÍ hafði
ekki heyrt af málinu og taldi því að
'Ot ekki hefði verið um stórvægileg atvik
að ræða. -GLM
Alfreð Þor-
steinsson.
Rússneski togarinn Murman-2 og varðskipið Týr í höfn. Skipið verður á Eskifirði meðan rannsókn stendur yfir.
DV-mynd Emil
Kaupmannahafnarfanginn í stóra fíkniefnamálinu:
Seldi dóp eins
og pakkaferðir
- veitti alhliða þjónustu
Herbjörn Sigmarsson, einn níu-
menninganna sem nú sitja í gæslu-
varðhaldi í stóra fikniefnamálinu,
rak dópþjónustu í Kaupmannahöfn
og veitti aðhliða þjónustu í þeim
efnum líkt og ferðaskrifstofur gera
þegar þær selja pakkaferðir til sól-
arlanda. Herbjörn, sem var búsettur
í Danmörku þar til hann var hand-
tekinn fyrir skemmstu, hafði yflr-
ráð og stjórnaði smyglleiðinni sem
byggði á aðgengi að gámum Sam-
skipa í Kaupmannahöfn og Reykja-
vík. Stöðu sína byggði Herbjörn á
tveimur starfsmönnum í gámadeild
Samskipa og aðrir komust ekki að.
„Ef einhver ætlaði að kaupa dóp
erlendis og smygla til landsins var
vitað að hægt var að snúa sér beint
til Bjössa og fá afnot af dópleiðinni
en þá þurfti líka að kaupa dópið hjá
Dópheildsali fluttur heim ásamt
félaga sínum.
DV-mynd Pjetur
Bjössa. Það má segja að hann hafl
bæði verið heildsali og flutninga-
miðlari í þessum efnum,“ sagði
heimildarmaður DV í undirheimum
Reykjavíkur sem þar er öllum hnút-
um kunnugur. „Við erum aðeins að
byrja að sjá toppinn á þeim ísjaka
sem þama hefur hefur verið á floti
lengi.“
Starfsmenn flkniefnalögreglunn-
ar hafa nú hneppt níu menn í
gæsluvarðhald í tengslum við málið
og yfirheyrt stóran skara neytenda
til að reyna að gera sér grein fyrir
umfangi smyglsins á dópleiðinni
Kaupmannahöfn - Reykjavík sem
Herbjörn Sigmarsson sat einn að.
Þegar klippt var á þá leið þrengdist
mjög um á íslenskum fíkniefna-
markaði og hafa menn leitað nýrra
leiða fram hjá eftirliti yfirvalda. Nú
í fyrrakvöld var rétt rúmlega tvítug-
ur maður handtekinn i Leifsstöð
með tvö kíló af hassi límd við lík-
ama sinn - hass sem átti að fara á
sveltan fíkniefnamarkað í Reykja-
vík. -EIR
Veðrið á morgun:
Úrkomulít-
iö norðan-
lands
Á morgun verður sunnan og
suðvestan 8-13 m/s og rigning eða
skúrir, en úrkomulítið noðan-
lands.
Hiti fimm til ellefu stig.
Veörið í dag er á bls. 37.
Helgi Hjörvar:
Ræöum til-
lögu Ólafs
„Við munum ræða tillögu Ólafs og
orðalag hennar á morgun. Ég hef ekki
' séð tillöguna og treysti mér því ekki
til að tjá mig sér-
staklega um
hana,“ sagði Helgi
Hjörvar. forseti
bogarstjórnar, við
DV í morgun.
Ólafur F. Magn-
ússon, Sjálfstæðis-
flokki, mun leggja
tillögu fyrir borg-
arstjórnarfund á
fimmtudag um að
Fljótsdalsvirkjun fari í umhverfismat.
Óvíst er um fylgi við tillöguna en
skoðanir í málinu ganga þvert á
flokkslínur. Nokkur eftirvænting rík-
ir um afstöðu Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra eftir ummæli
hennar við Eyjabakka í sumar þess
efnis að Fljótsdalsvirkjun færi í um-
hverfismat. Ekki náðist í borgarstjóra
í morgun.
-hlh
Klippa þurfti ökumann út úr bifreið
sinni eftir árekstur á mótum Lista-
brautar og Efstaleitis í gærkvöld.
DV-mynd S
Höfuðborgarsvæðið:
6 fluttir á
slysadeild
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu
tók sinn toll í gærkvöld, en alls voru
6 manns fluttir á slysadeild eftir
fjögur umferðaróhöpp.
Bílvelta varð nærri Olís-bensín-
stöðinni í Mjódd og þaðan voru fjór-
ir fluttir á slysadeildina en ekki
taldir alvarlega slasaðir; bíllinn var
fluttur í burtu með krana. Önnur
bílvelta varð á Nýbýlavegi í Kópa-
vogi en þar urðu ekki meiðsli.
Árekstur varð á Listabraut og var
annar ökmnaðurinn fluttur á slysa-
deild með áverka á fæti og handlegg
og hann kvartaði um eymsli á hálsi
og höfði. Skömmu síðar varð annar
árekstur á mótum Efstaleitis og
Listabrautar og þar varð að klippa
annan ökumanninn út úr bifreið
sinni og var hann fluttur meðvit-
undarlaus á slysadeild. Meiðsli
hans eru þó ekki talin alvarleg. -gk
MERKILEGA MERKIVELIN
bfother pt-1
(slenskir stafir
5 leturstærðir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm
Prentar í tvær
Verð kr. 6.603
Nýbýlavegi 14 Siml 554 4443