Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1999, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999 7 dv__________________________________________________________________________________Viðskipti Þetta helst: ••• Viðskipti á VÞÍ 540 mkr. ••• Mest með húsbréf, 436 mkr. ••• Hlutabréf 104 mkr. ••• Mest með SÍF, 20 mkr. og hækkuðu bréfin um 1,45% ••• íslandsbanki hækkaði um 3,13% í 14 mkr. við- skiptum ••• Búnaðarbanki lækkaði um 1,75% ••• Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,215% og er nú 1.377,9 stig ••• Jarðboranir lækkuðu um 3% ••• Samvinnusjóðurinn hefur hækkað um 53% sl. 30 daga Fjárlagafrumvarp og þjóðhagsáætlun: Mikill afgangur en minni hagvöxtur Magnbreytingar þjóöhagsstærðar samkvæmt spá 2,5 2,7 2,4 2,5 2,5 2,6 2 2,1 2,0 1,5 : 1 ! | J ~J 0,5 f | í J ' VLF Þjóðar- Einka- Samneysla Fjármuna- Útflutningur Innflutningur Heimild: ÞjMhagsstofnun útgjöld neysla myndun í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2000, sem lagt var fram síðastliðinn föstudag, kom fram að áætlaður rekstarafgangur ríkissjóðs verði um 15 milljarðar króna. Ríkisútgjöld sem hlutfall af landsframleiðslu munu dragast nokkuð saman, úr 29,2% í 27,7%. Áætlaðar tekjur rík- issjóðs eru 205 milljarðar króna en ríkisútgjöld um 190 milljarðar. Hreinn lánsfjárjöfnuður ríkissjóðs á næsta ári er áætlaður tæpir 24 millj- arðar króna. Áætlað er að greiddar verði niður innlendar skuldir fyrir samtals 22,5 milljarða króna. Sam- kvæmt yfirliti yfir skuldir ríkis- sjóðs er gert ráð fyrir að erlendar skuldir minnki um 7 milljarða. Þessi forsenda er að öllum líkindum háð verðbólgu og gengisþróun ís- lensku krónunnar þar sem upp- greiðslur erlendra lána veikja gengi krónunnar og setja aukinn þrýsting á verðlag. Einnig setur gjaldeyris- forðinn uppgreiðslu lána skorður. Á næsta ári er gert ráð fyrir að skuld- ir ríkisins lækki um 22 milljarða. Minni hagvöxtur í forsendum fiárlagafrumvarpsins er aðeins gert ráð fyrir 2,7% hag- vexti. Geir H. Haarde sagði hins vegar að hann tryði því að raun- verulegur hagvöxtur yrði meiri. Þessi spá er jafnframt mun lægri en spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem hljóðar upp á 4,7%. í þjóðhagsáætl- un segir að í ljósi aðhaldssamrar efnahagsstefnu séu horfur á mun hægari vexti þjóðarútgjalda á næsta ári. Jafnframt er því spáð að út- flutningur aukist minna en á þessu ári. Fyrir vikið verður hagvöxtur umtalsvert minni, eða 2,7%, borið saman við 5,8% á þessu ári sam- kvæmt áætlun. Næstu árin þar á eftir er spáð nokkru minni vexti, eða um 2% að jafnaði árin 2001-2004. Þess her þó að geta að hér er ekki tekið tillit til nýrra stóriðju- samninga, einfaldlega vegna þess að ekki er búið að taka ákvörðun þess efnis. Samkvæmt þessum forsendum áætlar Þjóðhagsstofnun að nokkuð muni draga úr þenslu í þjóðarbú- skapnum og verðbólga muni hjaðna á ný. Þannig er gert ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 2,5% frá upphafi til loka næsta árs, sam- anborið við 5% á þessu ári. Það fel- ur í sér að hækkunin milli áranna 1999 og 2000 verði nálægt 4% en hún var 3,2% milli áranna 1998 og 1999. í þjóðhagsáætlun er gert ráð fyrir að almennar launabreytingar lagi sig að hægari vexti í þjóðarbúskapnum. Á næsta ári er gert ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann aukist um 1-1,5% eftir mjög mikinn vöxt undanfarin ár. Mikilvægt framlag Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar- innar er mikilvægt framlag til að sporna við of mikilli þenslu í hag- kerfinu en að margra mati hefði þessa aðhalds þurft að gæta í síð- asta frumvarpi. Nýja frumvarpið á enn eftir að ganga í gegnum af- greiðslu Alþingis og er ljóst að mik- ill þrýstingur verður á gjaldahlið- ina, enda einsdæmi að fiárlagafrum- varp sé lagt fram með svo miklum afgangi. Það er því mjög mikilvægt að Alþingi gæti aðhalds í fiárlagaaf- greiðslunni ef markmið um „mjúka lendingu" í hagkerfinu eiga að nást fram. Byggt á fréttabréfum Kaup- þings, F&M og FBA. Hagnaður United 3,8 milljarðar Breska knattspyrnufélagið Manchester United náði frábærum árangri á knattspyrnuvellinum á síðasta ári því rekstrarárangur fé- lagins á síðasta reikningsári var einnig mjög góður. Velta félagsins var um 13 milljarðar íslenskra króna og hagnaðurinn um 3,8 millj- arðar. Þetta kom fram á Viðskipta- vefnum á Vísi.is í gær. Ársreikningur Manchester United verður kynntur á næstu dög- um en félagið tilkynnti nú um helg- ina að velta félagsins á liðnu rekstr- arári hefði slegið öll fyrri met en heildarveltan var 110,7 milljónir punda, eða um 13 milljarðar ís- lenskra króna. Afkoma félagsins batnaði að sama skapi, hagnaður- inn jókst um 20% frá fyrra ári og nam alls 32,3 milljónum punda eða um 3,8 milljörðum króna. Markaðsvirði Össurar 5,4 milljarðar Ýmis verðbréfafyrirtæki bjóða nú þeim sem skráðu sig fyrir hlut í Össuri hf. að kaupa greidda greiðsluseðla þeirra. Þetta kom fram á Viðskiptavefnum á Vísi.is. Eftir því sem Viðskiptablaðið kemst næst bjóða Landsbréf hf. hæst í greiðsluseðlana, eða gengið 31,10. Miðað við gengið 31,10 er markað- virði Össurar liðlega 5,4 milljarðar en miðað við útboðsgengið var markaðsvirði félagsins tæplega 4,2 milljarðar króna. Hraöfrystihúsið-Gunnvör: Þorsteinn Vilhelmsson stjórnarformaður - ný stjórn og framkvæmdastjóri hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru Á hluthafafundi Hraðfrystihúss- ins-Gunnvarar hf., sem haldinn var á laugardaginn, var samþykkt að ráða Einar Val Kristjánsson framkvæmdastjóra félagsins. Þá var kosin ný stjórn og var Þor- steinn Vilhelmsson kosinn for- maður stjórnar. Á stjórnarfundi sem haldinn var í kjölfar hluthafafundarins skipti stjórnin með sér verkum. Formaður var kjörinn Þorsteinn Vilhehnsson og til vara Kristján G Jóhannsson. Á sama stjórnarfundi óskaði Konráð Jakobsson fram- kvæmdastjóri eftir þvi að láta af starfi framkvæmdastjóra en Kon- ráð varð sem kunnugt er sjötugur fyrr á árinu og hefur gegnt starf- inu í 22 ár eða frá árinu 1977. Voru honum þökkuð vel unnin störf í þágu félagsins. Konráð mun fyrst um sinn sinna sérstökum verkefnum innan félagsins. Krist- ján G. Jóhannsson sem var fram- kvæmdastjóri Gunnvarar hf. frá árinu 1984 tekur nú sæti í stjórn félagsins og gegnir stöðu varafor- manns. Þorsteinn Vilhelmsson. Einar Valur framkvæmda- stjóri Stjóm félagsins ákvað að ráða Einar Val Kristjánsson, fyrrum stjómarformann félagsins, í starf framkvæmdastjóra og tekur hann strax til starfa. Einnig var ákveðið að strax yrði hafist handa við end- urskipurlagningu á stjómskipulagi og rekstri fyrirtækisins þar sem fyr- irtækið hefur vaxið mjög ört á síð- astliðnum tveimur árum. Stefnt er að því að þeirri vinnu verði lokið fyrir næstu áramót. í dag starfrækir félagið fullkomna rækjuverksmiðju í Súðavík, bolfisk- vinnsu í Hnífsdal, auk þess sem fé- lagið gerir út alls sjö fiskiskip sem stendur. Góð kvótastaða Kvótastaða fyrirtækisins er einnig mjög góð, þó sérstaklega í þorski þar sem fyrirtækið fékk út- hlutað rúmlega sex þúsund tonna þorskkvóta á yfirstandandi fisk- veiðiári, auk þess sem fyrirtækið hefur yfir að ráða tæplega átta pró- sentum grálúðukvótans og tæplega sex prósentum steinbítskvótans, en samtals eru úthlutaðar aflaheimild- ir fyrirtækisins innan og utan fisk- veiðilögsögunnar 14.138 tonn sem í þorskígildum talið eru tæplega 12.500 tonn. -bmg Búnaðarbanki stærri en íslandsbanki Á föstudaginn hækkaði gengi hlutabréfa í Búnaðarbanka íslands en á sama tima hélst gengi hluta- bréfa í íslandsbanka óbreytt. Er nú svo komið að í fyrsta skipti er markaðsverðmæti Búnaðarbankans meira en markaðsverðmæti íslands- banka. Viðskiptavefurinn á Vísi.is greindi frá. Hlutabréf í Búnaðarbankanum hækkuðu á fóstudaginn um 1,8% og var lokagengi þeirra 4,58. Gengi hlutabréfa í íslandsbanka breyttist ekki og var lokagengi þeirra 4,80. í síðustu viku hækkaði gengi Búnað- arbankans alls um 6,3% en á sama tíma lækkaði gengi íslandsbanka um 2,4%. Verðbreytingarnar síðustu daga og hækkun hlutabréfa Búnaðar- bankans á fóstudaginn hefur leitt til þess að nú er markaðsverðmæti Búnaðarbankans í fyrsta sinn meira en markaðsverðmæti íslandsbanka. Markaðsverðmæti Búnaðarbankans m.v. lokagengi vikunnar er 18.778 milljónir króna en markaðsverð- mæti íslandsbanka m.v. lokagengi vikunnar er 18.618 milljónir króna. Agúst Einarsson lætur af störfum Ágúst Ein- arsson hefur ákveðið að láta af störfum sem framkvæmda- stjóri Stál- smiðjunnar. Ákvörðunin byggist á sam- runaferli Stál- smiðjunnar hf. og Slippstöðv- arinnar hf. Ný stjórn hins sameinaða félags mun ráða nýj- an framkvæmdastjóra. Ágúst mun starfa áfram að ýmsum verkefnum fyrir hið sameinaða félag, meðal annars stofnun Dráttarbrauta Reykjavíkur ehf., sem annast mun rekstur dráttar- brautanna við Mýrargötu. Ákveðið hefur verið að stjórnar- formaður Stálsmiðjunnar, Val- geir Hallvarðsson, stjómi félag- inu meðan á samrunaferli stend- ur. Hagtölur mánaðarins hætta Seðlabanki íslands mun á næstu mánuðum koma nýrri skipan á útgáfu rita bankans. Síðasta tölublað Hagtalna mán- aðarins, sem bankinn hefur gefið út 1 aldarfiórðung, kom út á fóstudaginn en í næsta mánuði kemur út nýtt ársfiórðungsrit bankans. Tilgangur ofangreindra breyt- inga er að skapa öflugri vettvang fyrir Seðlabankann til þess að gera grein fyrir stefnu sinni og miðla upplýsingum til almenn- ings. Breytingarnar munu gera bankanum kleift að koma til móts við kröfur um gagnsæ vinnubrögð við mótun peninga- stefnunnar og tímanlega miðlun upplýsinga. RHÍ semur við Streng Fyrir skömmu var undirritað- ur samningur milli Strengs hf. og Reiknistofnunar Háskóla ís- lands um Informix-hugbúnað. Fram kemur í frétt frá Streng að samningurinn geri ráð fyrir að Háskólinn kaupi leyfi til að nota allan Informix-hugbúnað ótak- markað, jafnt til kennslu eða stjórnunar. Aukinn vöxtur Hagtölur víða frá Evrópu gefa nú til kynna að hagvöxtur sé á uppleið og á meiri hraða en áður. Þessar fregnir hafa gefið hugsanlegri vaxtahækkun í Evr- ópu byr undir báða vængi. Með- al jákvæðra fregna eru minnk- andi atvinnuleysi víðast hvar í álfunni og aukin eftirspurn eftir vinnuafli. Obreyttir vextir Talið er líklegt að vöxtum verði ekki breytt í Bandaríkjun- um á vaxtafundi sem haldinn verður í dag. Nú þegar hefur Seðlabanki Bandaríkjanna hækkað vexti um 0,5% á þessu ári og því eru flestir á þeirri skoðun að vextir verði óbreyttir. Mótrökin gætu verið þau að at- vinnuleysi sé enn að minnka og geti gefið vísbendingu um að hagkerfið sé enn á hraðri upp- leið. Skipamiðlunin Bátar & Kvóti Sími: 568 3330 http://www.vortex.is/~skip/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.