Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1999, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999
Fréttir
DV
Bréfavinkonur Svava og Lilly hittast í fyrsta sinn eftir áratuga bréfaskipti:
Eins og við höf-
um alltaf þekkst
Svava Torfadóttir og Lilly Otting hafa skrifast á í áratugi. Eftir liggja bunkar
af bréfum, jólakortum og fjöiskyldumyndum, sem þær hafa sent hvor
annarri í gegnum tíðina, þótt sumt sé nú glatað. DV-mynd Hilmar Þór.
„Það er eins og við höfum alltaf
þekkst," sögðu þær Lilly Otting og
Svava Torfadóttir þegar DV hitti
þær á heimili hinnar síðamefndu.
Vissulega höfðu þær haft samband
um áratugaskeið en aldrei hist fyrr
en nú. Lilly er frá Glomfjörd í Norð-
ur-Noregi og kom hingað til lands
til þess að hitta konuna sem hún
hafði skrifast á við I tugi ára, en
Leiðrétting:
Kópavogslög-
reglan en ekki
sú reykvíska
Missagt var í DV í gær að lögregl-
an í Reykjavík hefði handtekið par
við verslunarmiðstöðina Smáratorg
með um hálft kiló af hassi. Hið rétta
er að það var lögreglan í Kópavogi
sem handtók fólkið sem var með um
1,6 kíló af hassi.
aldrei séð - og það urðu miklir fagn-
aðarfundir.
Upphafið að sambandi Svövu og
Lillyjar var á árunum 1945-1946 þeg-
ar íslenskir kennarar tóku sig til og
söfnuðu fyrir börn í Norður-Noregi
sem lent höfðu í hörmungum seinni
heimsstyrjaldarinnar. Svava er frá
Vestmannaeyjum. Þar var haldin
skemmtun í samkomuhúsinu til
styrktar norsku bömunum. Síðan
voru útbúnir pakkar og sendir til
Norður-Noregs. Lilly man enn hvað
var í hennar pakka: „Það voru kjóll
og skór, raunar háhælaðir skór,
sem ekki var hægt að nota í sveit-
inni,“ sagði hún.
Norsku bömin þökkuðu fyrir sig
og sendu heimilisfóng sín hingað til
lands, ef einhver vildi skrifast á við
þau. Þar með hófust bréfaskipti
Svövu og Lillyar, sem hafa staðið
nær óslitið fram á þennan dag. Eft-
ir stendur fjöldinn allur af bréfum,
jólakortum og fjölskyldumyndum
sem fór á milli þeirra.
Svava skrifaði á islensku og Lilly
á norsku en það háði samskiptum
þeirra ekkert. „Við skrifuðum um
heimilið, börnin, bamabömin og
fleira á þeim nótum.“
Vann drauminn
Lilly hafði lengi langað til að kom-
ast til íslands og heimsækja Svövu.
Nýlega áttu hún sjötugsafmæli og
þar að auki gullbrúðkaup. Dætur
hennar fóru að athuga hvaða mögu-
leikar væra á að láta íslandsdraum
hennar rætast. í Norsk ukeblad er
þáttur sem heitir: Vinn en dröm.
Dæturnar skrifuðu blaðinu og sögðu
frá málavöxtum. Það varð úr að Lilly
vann draum. Þá upphófst mikið
leynimakk við að koma ferðinni í
kring án þess að hún kæmist að því.
Lilly fékk ekki að vita neitt fyrr en
viku áður en hún lagði af stað hing-
að til lands. Hún hélt í fyrstu að ver-
ið væri að gabba hana en svo var
búið að búa um hnútana að Svava
skrifaði henni bréf, óskaði henni til
hamingju með afmælið og bauð hana
velkomna tO íslands. „Þá varð ég
orðlaus," sagði Lilly. Hingað fylgdi
henni blaðamaður frá Norsk
Ukeblad sem aflaði efnis í grein um
heimsókn hennar hingað.
„Það var frábært að fá tækifæri til
að hittast," sögðu vinkonurnar. „Við
náum mjög vel saman og virðumst
meira að segja eiga sömu áhugamál-
in.“
Þær hafa notað tímann tfl að
spjalla saman. Svo hafa þær ferðast
um og m.a. farið á Þingvöll, Gullfoss
og Geysi. Þær voru að koma úr
Perlunni þegar blaðamaður hitti
þær. Landið kom Lflly ekki alveg á
óvart því hún hefur horft á sjón-
varpsþætti og lesið sér til um það.
„En það var samt eins og ævintýri
að koma hingað," sagði þessi hressa
kona sem hélt í gær áleiðis til síns
heima í Glomfjord. -JSS
Stjórnmálamaður árþúsundsins:
Jón Sigurðsson valinn
Jón Sigurðs-
son (1811-1879)
var valinn stjórn-
málamaður ár-
þúsundsins í
kosningu hér á
Vísi.is sem lauk
á miðnætti. Hann
hlaut 39% at-
kvæða. Jón Bald-
vin Hannibals-
son (1939) kom
næstur á eftir honum með 30,9%
atkvæða. 1 þriðja sæti lenti sitj-
andi forsætisráðherra, Davíð
Oddsson (1948), með 13% atkvæða.
Kosning þessi er liður í uppgjöri
íslandssögunnar sem heitir ís-
Jón
Sigurðsson.
lands 1000 ár. Það
eru DV, Bylgjan,
SS og Vísir.is
sem að baki því
standa. Ingibjörg
Sólrún Gísladótt-
ir (1954) borgar-
stjóri var eina
konan í hópi
þeirra sem hlutu
flestar tilnefning-
ar, en hún hlaut
10,5% atkvæða. Ólafúr Thors
(1892-1964) hlaut 6% atkvæða og
Jón Þorláksson (1877-1935) 1%.
Þátttakendur í kosningunni vora
1778.
Jón Baldvin
Hannibalsson.
A5 niðurlotum komin
Dagfari heyrði frétt á dög-
unum þess efhis að þjóðin
væri að fitna.
íslendingar væru að verða
svínfeitir. í óefni stefndi ef
ekkert yrði að gert. Þetta
ætti ekki síst við um unga ís-
lendinga, kynslóðina sem
erfa á landið. Þetta er að
söhnu dapurleg staða eftir
líkamsræktaræði síðustu
ára þar sem fitukeppunum
hefur verið sagt stríð á hend-
ur í sérútbúnum púlsölum
og heilsulindum. Eða allt
mjöl- og fjörefnaátið.
Það er deginum ljósara að
íslendingar verða að fara að
hugsa sín mál. Ef marka má
fyrrnefndar fréttir verða
þeir brátt að niðurlotum
komnir vegna fitu. Er þá illa
komið fyrir afkomendum
Gunnars á Hlíðarenda og
fleiri kappa sem stukku hæð
sína og brugðu níðþungum
vopnum eins og ekkert væri.
En það eru ekki allir sem vilja tileinka sér
þann lífsstíl að vera sífellt að puða, hoppa og hía
heldur vilja sumir kúra heima í sófa og taka það
rólega að loknum vinnudegi. Slappa af. Þeir fara
ekki nema tilneyddir í stöku göngutúra. Þessir
ágætu íslendingar, sem eru reyndar einnig undan
glæstum fomköppum eins og puðararnir, eiga
ekki önnur ráð, vilji þeir ekki drepast úr offitu-
sjúkdómum, en að segja offitunni stríð á hendur
meö því að borða hollari mat. Borða meira græn-
meti og ávexti í samræmi við
manneldismarkmið.
En grænmetið er svo dýrt
að hagsýnar húsmæður
kaupa heldur feitt kjet. Þetta
er ójafn leikur. Svo ójafn að
meira að segja puðararnir
eiga í vök að verjast. Offitan
og óttinn við fitukeppina á
sér öflugan bandamann í of-
urtollunum. Þarna er hrein-
lega við ofurefli að etja og
vart á færi annarra en kappa
eins og Gunnars á Hlíðar-
enda að ráða niðurlögum
þessa skrímslis sem virðist
hafa það að markmiði að
drepa íslendinga, ef ekki íjár-
hagslega þá í bókstaflegri
merkingu.
Nútímamenn vildu gjam-
an geta reitt sig á fomar hetj-
ur en eiga ekki í önnur hús
að venda en læknana. En
læknamir, sem boða græn-
metis- og ávaxtaát, era ekki
hótinu betur settir. Bandalag
offitu og ofurtolla á sér nefnilega traustan bak-
hjarl í ráðherra sem kennir sig við sjálfan Gunn-
ar á Hlíðarenda þegar vel liggur á honum. Er
nema von að þjóðin sé aö niðurlotum komin?
sandkorn
Á „tölvunámskeiði"
í Degi mátti á dögunum lesa að fá-
mennt en góðmennt væri í Ráðhús-
inu. Blaðið leitaði skýringa á fámenn-
inu á þessum fjölmenna vinnustað og
ræddi í því sambandi við Helga Pét-
ursson borgarfullrúa.
Svaraði Helgi því til
fjöldi starfsmanna
hefði brugðið sér út
fyrir bæinn, nánar
tiltekið i Reykholt, á
tölvunámskeið. Þar
sem tölvunámskeið
eru nú einu sinni
fastm- liður í end-
urmenntun fólks á
skrifstofum var svar Helga tekið
gott og gilt. Síðan hefur hins vegar
komist upp um strákinn Tuma, eins
og reyndar alltaf gerist. Hið rétta er
að starfsfólk Ráðhússins var á sál-
fræðinámskeiði. Þvi er spurt hvort
Helgi hafi ekki haft hugmynd um
hvað mannskapurinn var að gera í
sveitinni eða bara verið svona feim-
inn við að segja eins og var ...
Tárið
Hinn yfirvegaði landbúnaðarráð-
herra, Guðni Ágústsson, hefur eins
og aðrir landsmenn fylgst grannt með
ferseta íslands og ástarmálum hans. I
síðustu viku var Guöni í viötali við
DV. Þetta var skömmu
eftir að Gunnar V.
Andrésson, Ijós-
myndari DV, tók
frægar myndir af for-
setanum þar sem
tárvot Doritt
Moussaieff hlúði
að honum axlar-
brotnum. Eftir við-
talið var landbúnaðar-
ráðherra spurður hvort ekki mætti
taka af honum ljósmynd sem fylgja
myndi frétt um samþjöppun í græn-
metisgeira. Þá svaraði Guðni með al-
vöruþunga: „Mér væri einstakur
heiður að þvi ef Gunnar V. Andrés-
son fengist til að mynda mig. Hann er
maðurinn sem myndaði tárið ...“
Mætið bara
Það þykir heldur klént þegar sjón-
varpsstöðvarnar okkar eru með beina
útsendingu frá íþróttaviðbmrðum og
verða síðan að hætta útsendingu áður
en þeim viðburði er lokið. Þetta henti
þá á Sýn um síðustu
helgi. Þá var stöðin
með margauglýsta út-
sendingu frá kapp-
reiðum Fáks. Komið
var að síðustu
keppnisgreininni,
úrslitum í 800
metra hlaupi, þegar
Snorri Sturluson
íþróttafréttamaður til-
kynnti að nú væri komið að ensku
knattspymunni. Snorri bað þá sem
hefðu áhuga á að sjá 800 mefra hlaup-
ið vinsamlega að mæta bara á keppn-
isstað, þótt ekki væru nema örfáar
mínútur þar til hlaupið átti að hefjast.
Á Sýn tóku hins vegar við auglýsing-
ar í 15 mínútur, eða þar til enska
knattspyman hófst...
Hring eftir hring
Guðmundur Ámi Stefánsson hef-
ur blásið lífi í vefsíðu sína á ný eftir
kyrrstöðu í sumar. Þar gerir hann
kosningaloforð Framsóknar um millj-
arð til baráttunnar gegn fikniefna-
vandanum að umræðu-
efni. Guðmundur segir
umræðu síðustu
vikna hafa leitt í ljós
að djúpt sé á þessum
Qármunum. í stað
þess að drífa í mál-
inu hafi verið gripið
til þess ráðs að
setja í málið nefnd
til að fara yfir það og skoða.
minnið svíkur ekki Sandkornsritara
hafa nefndir þegar starfað vegna máls-
ins og eðlilegt að spurt sé af hverju
farinn sé enn einn hringurinn. Eitt-
hvað virðist þetta hástemmda loforð
ætla að þvælast fyrir Framsókn ...
Umsjón Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is