Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1999, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999 15 DV Tíska ‘52 Allra veðra von Ofurfyrirsætan Claudia Schiffer átti hugi og hjörtu aðdáenda þegar hún sýndi þennan stórglæsilega tvískipta kjól frá tískuhúsi Pierre Balmain í París um helgina. Claudia hefur ekki tekið þátt í tískusýning- um um langt skeið. Um síðustu helgi var mikið um að vera í tískuheimi Parísarborgar. Þar kynntu hönnuðir sumartískuna fyrir árið 2000 og voru sýningarnar gjarna kynntar sem síð- ustu tískusýningar árþúsundsins. Gríðarleg spenna var fyrir sýningu hins víðfræga tískuhúss Yves Saint Laurent enda vissu menn lítt hvers væri að vænta frá hinum frumlega hönnuði, Alber Elbaz. Tískuhönnuðurinn Stella Cadente þótti stela senunni í París um helgina. Hún þykir með alfrumlegustu hönnuðun- um í París og hér að ofan sést sumarspariklæðnaður eins og Stella Cadente sér sumarið 2000 fyrir sér. Snákaskinn, regnkápur, karlmannlegar buxnadragtir og siffonsloppar báru vissu- lega merki Yves Saint Laurent en fatnaður- inn telst þó öllu nýtískulegri en venja er frá tiskuhúsinu. Elbciz vakti viðbrögð en áhorfendur voru á báðum áttum um hvað þeim ætti að finn- ast um sýninguna. Kaupendur voru hins vegar ekki í vafa; þeir voru stórhrifnir og það dugar sjálfsagt Elbaz til að halda starf- inu í eitt ár í viðbót. Eins og sést hér á síðunni er allra veðra von í Parísartískunni næsta sumar. Kven- leikinn er allsráðandi hjá sumum hönnuð- um þótt aðrir boði fatnað i hermannastíl. Svartir og dökkir tónar virðast meira áber- andi í París en var í London á dögimum. Þá virðist bleiki liturinn, sem var vinsæll í sumar, ætla að halda velli um sinn. Silfurlitað plast með blómamynstri er efniviður sumarkjóls sem kemur frá tískuhúsi Yves Saint Laurent. Kjóllinn er verk bandarísk-ísraelska hönnuðarins, Albers Elbaz, sem hefur unnið hjá tískuhúsinu síðast- liðin tvö ár. Að sögn munu kaupend- ur hafa tekið sumartísku Elbaz fagn- andi en sama verður ekki sagt um marga áhorfendur í París, sem vissu ekki hvernig þeir áttu að bregðast við frumlegum fatnaði hönnuðarins. Svartir litir eru áberandi í sumarlínu Yves Saint Laurent fyrir næsta sum- ar, þrátt fyrir að tísku- hönnuðir á Bretlandi hafi nýlega reynt að kveða svarta litinn niður. Eins og glæsilegt bikinið hér að ofan gefur tll kynna verða sundfötin næsta sumar í dökkum litum og ekki þykir verra að hafa belti á bux- unum. Hermannaföt að hætti glæsikvenna gæti Thierry Mugler hafa verið að hugsa þegar hann hannaði þetta dress. Skjólgóður klæðnaður í heildina en svo má auðvitað fara úr jakkanum ef hitnar i kolunum. Tiskuhönnuðurinn Alber El- baz er alltaf frumlegur í hönn- un sinni en þennan klæðnað, stuttan samfesting með skósíðri blæju, sýndi hann í París um helgina undir merkjum sumartískunnar fyrir ár- ið 2000. _ Bermúdabuxur, pils og blómajakki er klassísk dragt að mati franska tískuhönnuðarins Thierry Mugler fyrir næsta sumar. Sumartísku Muglers var einkar vel tekið af áhorfendum og gagn- rýnendum í París um helgina. Bieiki liturinn heldur greinilega velli og verður áfram vinsæll næsta sum- ar. Ermalaus blússa og skærgrænar stuttbuxur frá Pierre Balmain.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.