Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1999, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999
Fréttir
Nýtt „Flókamál“ 1 uppsiglingu í Háteigskirkju:
Organistinn rekinn
- sagt upp í tölvupósti
Pavel Manásek, organista
í Háteigskirkju í fjölda ára,
hefur verið sagt upp störf-
um. Pavel er Tékki og hefur
dvalið í heimalandi sínu frá
áramótum, þar sem hann
hefur verið við framhalds-
nám, en hugðist mæta til
organistastarfa sinna í Há-
teigskirkju innan fárra
mánaða. Gert er ráð fyrir að
staðgengill hans, Bretinn
Douglas Brotchie, verði ráð-
inn í hans stað, en Dogulas
er vinsæll undirleikari og
hefur meðal annars unnið
mikið með Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur.
Vilhjálmur Siggeirsson,
formaður sóknarnefndar í
Háteigssókn, kannaðist ekki
við að hafa rekið organist-
ann en organistaskipti væru
Háteigskirkja: vett-
vangur organista-
deilna.
hugsanleg: „Við erum
með kór- og tónlistar-
starfið í kirkjunni í
endurskoðun og verð-
um að fá starfsfrið við
það,“ sagði sóknar-
nefndarformaðurinn,
en séra Tómas Sveins-
son sóknarprestur
vissi hins vegar að
búið væri að reka org-
anistann. „Við ætlum
að leggja meiri
áherslu á almennan
söng og kórstarf og
verðum því að breyta
til.“
- Var Tékkinn ekki
nógu góður í það?
„Það eru áhöld um
það,“ sagði séra Tómas
Sveinsson.
Töluverður kurr er i
Pavel Manásek organisti.
Háteigssókn vegna brottreksturs
organistans og skiptast sóknarbörn
í tvær fylkingar eins og forðum í
Langholtssókn þegar séra Flóki
deildi við organistann þar. Enda
hafa sóknarbörn á orði að upp sé að
koma nýtt „FlókamáT' í Háteigs-
sókn. Pavel Manásek hefur verið
búsettur hér á landi í tæpan áratug
og er íslenskur ríkisborgari. Hann
hefur sem fyrr greindi verið í árs-
leyfi við nám i Tékklandi og fékk
uppsögn sína senda þangað í tölvu-
pósti en þar stóð m.a.: „Með vísan
til 11. greinar ráðningarsamnings
þins er þér hér með sagt upp störf-
um sem organisti og kórstjóri Há-
teigssóknar með þriggja mánaða
fyrirvara... Ráðningu þinni lýkur
um næstu áramót. Ekki er óskað
eftir vinnuframlagi þínu í uppsagn-
arfrestinum."
-EIR
Stefnuræða forsætisráðherra:
Undirliggjandi verðbólga
„Innlendir og erlendir sérfræð-
ingar í efnahagsmálum og hagstjórn
velkjast ekki í vafa. Þeirra sam-
dóma álit er að þar hafi ráðið mestu
þær markaðsumbætur og það efna-
hagslega aðhald sem hefur ríkt,“
sagði Davíð Oddsson forsætisráð-
herra í stefnuræðu sinni á Alþingi í
gærkvöld um orsakir góðærisins.
„Samkeppni hefur verið efld um
leið og leikreglur efnahagslífsins
hafa verið gerðar skýrari og einfald-
ari og losað hefur verið um þau helj-
artök sem ríkisvaldið hafði áður,“
sagði Davíð.
Margrét Frímannsdóttir, talsmaður
Samfylkingarinnar, sagði stefnu-
ræðu forsætisráðherra rýra.
Davíð sagði undirliggjandi verð-
bólgu vera í efnahagskerfinu en
hluti vandans væri ekki á
áhrifasviði ríkisstjórnarinnar. „Við
þekkjum öll miklar bensín- og olíu-
verðshækkanir. Þeirra rót er ekki i
Davíð Oddsson forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína á Alþingi í gærkvöld.
okkar kerfl. Við sjáum að fákeppni
og uppkaup á matvælamarkaði hafa
leitt til hærra vöruverðs en nokkrar
skynsamlegar skýringar eru á. Við
sjáum að lóðaskortur hefur ýtt und-
ir hækkun á fasteignaverði. Að mati
Fjármálaeftirlitsins hafa hin ís-
lensku tryggingafélög gengið lengra
í hækkunum sínum en full rök eru
fyrir," sagði hann.
Davíð sagði þó rót hinnar eigin-
legu verðþenslu vera of mikinn
hraða á efnahagslíflnu. „Svarið er
því að hægja dálítið á án þess að
klossbremsað sé,“ sagði hann.
Forsætisráðherra sagð útboðsfyr-
irkomulag við sölu á hlut ríkisins í
Fjárfestingarbankanum hafa fallið í
góðan jarðveg. „Það er gegnsætt og
skýrt og leysti farsællega þann
vanda sem upp var kominn."
Spilavíti
Stjórnarandstaðan gagnrýndi inni-
hald stefnuræðu forsætisráðherra
harðlega, m.a. fyrir að minnast ekki á
kjör hinna verst settu en vitna aðeins
í meðaltöl um hag fólks þegar ljóst
væri að sumir hefðu fengið miklu
minna en aðrir í sinn hlut af góðær-
inu. „í stefnuræðunni bólaði ekki á
neinum vilja til að taka á þessari
óréttlátu tekjuskiptingu," sagði Mar-
grét Frímannsdóttir, talsmaður Sam-
fylkingarinnar.
Bæði Margrét og Sighvatur Björg-
vinsson, þingmaður Samfylkingarinn-
ar, ræddu söluna á Fjárfestingarbank-
anum og töldu brýnt að settar væru
skýrar reglur um viðskipti með slík
bréf en að stjómvöld ættu ekki að
skera úr um hverjir ættu að vera -
eða ekki að vera - eigendur bréfanna.
Ögmundur Jónasson, þingmað-
ur VG, gagnrýndi markaðsstefnu
ríkisstjórnarinnar harðlega og
sagði m.a. að íslendingum liði
eins og í spilavíti.
Sverrir Hermannsson, formað-
ur Frjálslynda flokksins, sagðist
telja hroflvekju fram undan í
þjóðarbúskapnum.
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, lýsti því yfir í
gær að hann hygðist, leggja fram
tillögu um að Alþingi tæki af-
stöðu til framhalds á framkvæmd-
um við Fljótsdalsvirkjun. Finnur
sagði fimm meginástæður vera
fyrir velsæld íslendinga, m.a.
raunsæja stefnu ríkisstjórnarinn-
ar og skynsamlega kjarasamn-
inga.
-GAR
Vantrauststillagan kom Finni Ingólfssyni ekki á óvart:
Þekki manninn og vinnubrögðin
„Þessi framganga Óskars kem-
ur mér ekki á óvart, ég þekki
manninn og vinnubrögðin," sagði
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra um vantrauststillögu þá
sem Óskar Bergson flutti á for-
ystu Frámsóknarfélags Reykja-
víkur um helgina. Óskar hefur
sagt sig úr stjórn félagsins. Tiflag-
an var fellt með fimm atkvæða
mun. Aðalsteinn Magnússon for-
maður stjórnarinnar sagði við
DV, að hann myndi sitja út tíma-
bilið, en ekki gefa kost á sér aftur
nema vera viss um að hann nyti
meiri stuðnings en þessi niður-
staða sýndi.
Finnur sagði að oft hefðu verið
dálitlar væringar innan flokksins
í Reykjavík. Hann teldi samt að
það væri frið-
vænlegra í hon-
um nú heldur en
oft áður.
„Það kom fram
á þessum fundi,
að kjörnir full-
trúar, þ.e. þing-
menn og borgar-
fulltrúar flokks-
ins væru ekki í
nógu miklu lif-
andi sambandi
við hinn almenna flokksmann,"
sagði Finnur. „í hópi þessara
kjörnu fufltrúa er Óskar Bergs-
son, sem er varaborgarfulltrúi.
Tillagan um vantraust á Aðal-
stein kemur að mörgu leyti, að
því er mér finnst, úr hörðustu átt.
Aðalsteinn hefur verið duglegur í
starfi. Á ári kosninga hlýtur starf-
ið fyrst og fremst að snúast um
þær. Kosningastarfið hjá okkur
var mjög öflugt, þó svo árangur-
inn hafi ekki verið eins og við
helst vildum að hann yrði. Ég
man hins vegar ekki eftir að hafa
séð Óskar Bergsson einn einasta
klukkutíma í kosningabaráttunni
hjá okkur, þrátt fyrir að vera
stjórnarmaður I Framsóknarfé-
lagi Reykjavíkur. Hann ber fram
vantraust á mann sem hann er
búinn að sitja með í ár í um-
ræddri stjórn."
Aðspurður um hvort Óskar
hefði komið aftan að félögum sín-
um í framsóknarfélaginu með til-
lögunni, sagði Finnur að hann
hefði gert það. Fundurinn hafi
ekki verið fjölmennur. Óskar hafi
safnað sinu fólki til hans, en ekki
hefi tekist betur til en svo að til-
lagan hafi verið felld.
„Ég held að það sé af og frá að
við, ráðherrar flokksins, höfum
lítið sem ekkert samband við
hinn almenna flokksmann. Þeim
framsóknarmönnum sem vilja
hefur verið boðið upp á að taka
þátt i miklu nefndarstarfi innan
flokksins á mínum vegum. Þar
hafa enn getað skráð sig til þátt-
töku í stefnumótunarstarfi og
málefnastarfi í málaflokkum sem
undir mig heyra. Óskar Bergsson
hefur ekki tilkynnt þátttöku."
Sjá einnig bls.13
-JSS
Finnur Ingólfs-
son.
Stuttar fréttir i>v
Hillary til Keiko
Stefnt er að því að Hillary Clint-
on, forsetafrú Bandaríkjanna, sem
verður á íslandi
frá föstudegi tfl
sunnudags, fari
til Vestmanna-
eyja, fari þar í
skoðunarferðir
og kynni sér
Keiko-verkefnið.
Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins hafa hóp-
ar aðstoðarmanna forsetafrúarinn-
ar farið til Vestmannaeyja nýlega
að undirbúa heimsóknina. Auk
Eyjaferðar er m.a. stefnt að því að
frú Clinton fari til Þingvalla og hitti
þar Davíð Oddsson forsætisráð-
herra. Mbl. sagði frá.
Snjóleysisstyrkur
Sökum snjóleysis í Kerlingar-
fjöllum, sem leiddi til tekjutaps
Skíðaskólans, er áætlað fyrir 3ja
milljóna framlagi honum til
styrktar í óskiptum lið mennta-
málaráðuneytisins í nýju fjárlaga-
frumvarpi. Þessar 3 milljónir
kæmu til viðbótar 12,5 milljóna
framlagi sem skólinn fékk á árun-
um 1997 og 1998 og lagt er til að
hann fái enn 2,4 milljónir í fjárlög-
um ársins 2001. Dagur sagði frá.
íslensk miðlun
á Húsavík?
íslensk miðlun á í viðræðum
við Húsavíkurbæ, Húnaþing
vestra og Blönduósbæ um að setja
á laggirnar staifsstöðvar á Húsa-
vík, á Blönduósi og Hvamms-
tanga. Fyrirtækið rekur þegar
starfsstöð á Raufarhöfn og innan
skamms verður opnuð stöð í
Ólafsfirði. RÚV sagði frá.
Alger flatneskja
„Ég held að þetta sé flatasta
stefnuræða forsætisráðherra sem
ég hef lesið og
hef ég þó lesið
þær æði marg-
ar. Hún er svo
flöt að hún ætti
betur við í
Hollandi. Þarna
er um að ræða
sama góðæris-
vaðalinn sem við höfum svó oft
heyrt. Ræðan jaðrar við að vera
sjálfshól á köflum," segir Stein-
gímur J. Sigfússon í Degi.
Aukin verkefni
Verkefni stóru sjúkrahúsanna
tveggja í Reykjavík hafa aukist tals-
vert á þessu ári og segir Magnús
Pétursson, forstjóri sjúkrahúsanna
í Reykjavík, að í því felist aukinn
kostnaður. Segir hann að um þús-
und fleiri sjúklingar hafi komið á
vefrænar deildir Landspítala á fyrri
hluta þessa árs en sömu mánuði í
fyrra. Mbl. sagði frá.
Stærstu göngin
Vatni var hleypt á aðrennslis-
skurð Sultartangavirkjunar um
helgina, en gert er ráð fyrir að að-
rennslisgöngin fyllist í kvöld.
Þjórsá er þar með veitt um stærstu
göng landsins. RÚV sagði frá.
Beðið um skýrslu
Þingflokkur Samfylkingarinnar
hefur lagt fram á Alþingi beiðni um
skýrslu frá viðskiptaráðherra um
úttekt á stjórnunar- og eignatengsl-
um milli fyrirtækja sem starfa á ís-
lenskum rnarkaði. Dagur sagði frá.
Skuldalækkun fátækra
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra segir að íslensk stjórnvöld
verði að gera
upp við sig I
livort þau vilja
taka þátt í að 1
lækka skuldir gr
fátækustu þjóða pL
heims. Um H JjÉ
þessa alþjóð- Æ
legu skulda- ■BK. -1 mtt
lækkun var rætt á ársfundi Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins, sem var
haldinn í síðustu viku, en þar
komu saman fjármálaráðherrar
flestra ríkja og þróunarmálaráð-
herrar, ásamt helstu flármálasér-
fræðingum. Mbl. segir frá.
-GAR