Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1999, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999
27
Gwyneth hafn-
aði laununum
Gwyneth Paltrow, leikkonan
fjölhæfa, er kannski í uppáhaldi
hjá mörgum sem mega sín i glys-
borginni Hollywood. Til eru þó
þeir sem ekki vilja greiða henni
jafnhá laun og stúlkum á borð við
Drew Barrymore og Cameron Di-
az, þótt þær séu ekkert skárri
leikkonur. Þannig var með fram-
leiðendur kvikmyndarinnar um
Englana hans Kalla. Til stóð að fá
Gwyneth til að leika þriðja engil-
inn en henni var boðið minna en
hinum og sagði því bara nei takk.
Jordan og Ford
eru glæsilegastir
Michael Jordan og Harrison
Ford eru glæsilegustu karlmenn-
irnir vestanhafs. Og jafnvel þótt
víðar væri leitað. Þetta eru niður-
stöður skoðanakönnunar sem
bandaríska karlablaðið Playboy
gerði meðal lesenda sinna.
Körlunum þótti Jordan glæsileg-
astur en konurnar voru hrifnari
af Harrison Ford. Þær höfðu þó
auga fyrh Jordan því hann lenti í
öðru sæti á lista kvennanna. Að-
eins einn stjómmálamaður komst
á listann, Bill Clinton. Hann lenti
í öðru sæti á karlalistanum.
Pitt vingast við
breska sígauna
Stórleikarinn Brad Pitt velur
ekki vini sína út ættbókum há-
aðalsins. Pitt hefur til dæmis
tengst breskum sígauna sterkum
böndum. Sígauninn heitir Bobby
Fi-ankham og stundar ólöglega
hnefaleika þar sem menn berjast
berhentir. Svo góðir vinir em
þeir Brad og Bobby að leikarinn
kom alla leið frá Los Angeles til
Englands í veislu hjá sígaunun-
um. Þar borðaði Brad sígauna-
kássu sem í eru villikanína, lauk-
ur og kartöflur.
DV
arslysinu í París, var einmitt sonur
eiganda Harrods.
Ekki nóg með það, heldur birtist
Díana spákonunni einnig þegar hún
var í fríi í Ástralíu.
„Hún hefur meira að segja haft
samband við Karl ríkisarfa og sagst
hafa skilaboð til hans frá Díönu,“
segir innanbúðarmaður í bresku
hirðinni við breska blaðið Sunday
Mirror.
Hazel hitti Fergie í nóvember síð-
astliðnum til að ræða skilaboðin frá
Díönu við hana. Fergie vildi ekki
gera spákonunni lífið leitt þar sem
hún, spákonan, átti eitthvað bágt
um þær mundir. Hazel túlkaði þá
umhyggju Hazel sem nokkurs konar
samþykki fyrir allri vitleysunni.
Sem það alls ekki var.
Fergie er nefnilega sjálf löngu
hætt að leita til spákvenna til að for-
vitnast um framtíðina.
Kata Zeta ætti að
hlusta á Rachel
Velska þokkadísin Catherine
Zeta Jones ætti kannski að hlusta
á fyrirsætuna Rachel Himter áður
en hún gengur upp að altarinu með
hinum hrukkótta Michael Douglas.
Rachel var sem kunnugt er gift
hrukkupopparanum Rod Stewart.
í nýju tímaritsviðtali segir
Rachel að allt hafi verið í finasta
lagi með kynlif þeirra hjóna,
reyndar hafi Rod verið svo góður
að ungir menn komast ekki í hálf-
kvisti við hann. Það sem Rachel
fannst hins vegar erfiðast og það
sem hún fríkaði loks út á var að
vakna með gamla hrukkusekkinn
sér við hlið.
Claudia sýnir
fyrir lúsarlaun
Þýska ofúrfyrirsætan Claudia
Schiffer lét sér nægja lágmarks-
lúsarlaun þegar hún tók þátt í
sýningu fyrir franska tískuhúsið
Bcilmain um helgina. Claudia
fékk ekki nema fimmtíu þúsund
fyrir en hefði að öllu jöfhu átt að
geta farið fram á tíu sinnum
meira. En Claudia er vel stæð og
gamall vinur hennar, GiUes Du-
four, er helsti hönnuðurinn hjá **
Balmain. Dufour þessi vann áður
hjá Karli Lagerfeld þegar hann
var með Chanel en þar varð
Claudia einmitt fræg.
Annars er liðið eitt ár síðan
Claudia lýsti því yfir í Mílanó að
hún ætlaði aðeins að sýna fyrir
góða vini sína í framtíðinni en
þess í stað einbeita sér að kvik-
myndaleik.
Hvort eitthvert samhengi er á
milli þeirrar yfirlýsingar og ásta-
mála fyrirsætunnar skal ósagt lát-
ið. Eitt er þó víst að hún hefur *
sagt upp kærasta sínum til nokk-
urra ára, sykursæta töframannin-
um David Copperfield. Því var
löngmn haldið fram að það sam-
band væri bara í plati.
Fergie er ekki par hrifin af stað-
hæfingum frægrar breskrar spá-
konu í nýrri bók. Spákonan segist
þar hafa fengið skilaboð frá Díönu
heitinni prinsessu handan grafar.
Hertogaynjan af Jórvík segir full-
yrðingarnar ósmekklegar í hæsta
máta.
Spákonan Hazel Courteney, sem
er 43 ára og skrifar dálka í hið virta
breska dagblað The Times, segir að
Díana hafi vitrast sér fyrst i stór-
versluninni Harrods í apríl 1998.
Hazel var þá á leiðinni í brauðdeild-
ina að kaupa franskt smjördeigs-
horn handa bílstjóranum sínum.
Sem hún strunsaði þarna um búð-
ina vissi hún ekki fyrr til en það
væri sem rafstraumur færi um
hana og Díana talaði til hennar.
Fyrir þá sem búnir eru að gleyma,
er rétt að rifja hér upp að ástmaður
Díönu, sem lést með henni í umferð-
Fergie er stórhneyksluð á spákonu
einni sem þykist hafa fengið skila-
boð að handan frá Díönu heitinni
prinsessu.
Lara Flynn lætur allt flakka:
Nicholson er geggj-
aður og yndislegur
Lara Flynn Boyle er alveg með
eitt á hreinu:
„Hann er galinn. Hann er yndis-
legur. Það er ekki hægt annað en að
elska hann.“
Hún á að sjálfsögðu við nýjasta
elskhugann sinn, stórleikarann
Jack Nicholson sem er litlum 33 ár-
um eldri. Hún er 29 en hann 62.
Slefberar í Hollywood velta því
nú mjög fyrir sér hvort Löru muni
takast það sem engri stúlku hefur
lánast til þessa, nefnilega að temja
villidýrið Jack. Skötuhjúin sýndu
sig fyrst saman opinberlega við
Emmy-verðlaunaafhendinguna í
september og lét Jack þá eins og ást-
sjúkur skóladrengur.
í viðtali við norska blaðið VG
lýsti Lara Flynn Boyle því yfir að
hún hefði ekki áhuga á að eignast
böm. Jack getur þvi verið alveg ró-
legur hvað það varðar.
„Ég er ekki nógu fórnfús til að
vera mamma," segir Lara. Hún seg-
ist þó hafa gaman af bömum.
Little Cacsars-húfur
Pétur I. Haraldsson nr. 15249
Fjóla H. Bjömsdóttir nr. 6394
Silja Embla nr. 15976
Þorsteinn Páll nr. 10842
Guðjón Þorsteinnsson nr. 14415
Freydís J. Guðjónsdóttir nr. 8754
Haíþór Sigurðsson nr. 10067
Sunna B. Ragnarsdóttir nr. 7491
Sigrún Sigurðardóttir nr. 12562
Ágústa Ó. Guðnadóttir nr. 13879
10 Little Caesars-brúður
Steinar Ingi nr. 14762
Amdís Hanna nr. 2497
Heba Dögg nr. 13507
Tinna Torfadóttir nr. 15133
Tinna L. Sigutjónsd. nr. 13765
Bogi A. Sigurðarson nr. 12996
Gísli R. Einarsson nr. 12892
Hildur Ása nr. 14718
Haraldur Haraldsson nr. 11764
Hafþór Frímannsson nr, 10077
Krakkaklúbbur DV og Little Caesars þakka öilum sem voru
með kærlega fyrir þátttökuna.Vinningshafar fá vinningana
senda í pósti næstu daga.
Fyrirsæta þessi vakti mikla athygii á sýningu Balmain tískuhússins í París
um helgina. Einkum voru það fjaðraskúfarnir sem stúlkan hafði framan á sér
sem þótti athyglisverður. Silkiblússan og pilsið stóðu þó líka fyrir sínu.
MBB
25 Littte Caesars-pitsur
Ágústa í. Heigadóttir
Ástgcir R. Sigmarsson
Sylvía Björgvinsdóttir
Ragnar Ingi
Aníta Ósk
Sunna R. Garðarsdóttir
Signður Marta
Birgir Steinn
Thelma D. Þórarinsd.
Bima K. Hilmarsdóttir
Aníta B. Friðriksdóttir
Laufey S. Lárusdóttir
Guðmundur Björgvins.
Anna R. Jóhannsdóttir
Sólný S. Jóhannsdóttir
Eydís Elmarsdóttir
Hrannar Eysteinsson
Sigrún Jóna
Ágúst K. Nielsen
Atli Þ. Erlingsson
Friðgerður Auðunsd.
Ingvar Öm
Haíþór Tryggvason
Kári Steinn
Auður Ákadóttir
nr. 12232
nr. 1092
nr. 12360
nr. 8597.
nr. 310595
nr. 11669
nr. 6426
nr. 14397
nr. 13374
nr. 14514
nr. 12246
nr. 14712
nr. 5553
nr. 9550
nr. 15330
nr. 11245
nr. 6278
nr. 12946
nr. 12895
nr. 231298
nr. 2519
nr. 2354
nr. 5637
nr. 10845
nr. 1119710
58
Fræg spákona reitir Fergie til reiði:
Þykist hafa fengið
skilaboð frá Díönu