Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1999, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1999, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999 7 dv ________________Viðskipti Þetta helst: Viðskipti á VÞÍ, aðeins 269 m.kr. ••• Mest með hlutabréf, 241 m.kr. ••• Langmest með bréf Össuar hf., 125 m.kr. ••• Bréf Össurar skráð í gær og hækkuðu mikið. ••• Hraðfrystihús Eskifjarðar hækkaði um 8,3% ••• Flugleiðir lækkuðu um 2,3% ••• Úrvalsvísitala lækkaði um 0,55% Stefja og Teymi hefja samstarf - þráðlaus fjarskiptakerfi fyrir fyrirtæki Stefja og Teymi eru að hefja samstarf um að bjóða fyrirtækjum lausnir fyrir þráðlaus viðskipti. Innlend hlutabréf of dýr? Á heimasíðu VÍB kemur fram að það sem af er þessu ári hefur hluta- bréfavísitala aðallista Verðbréfa- þingsins hækkað um rúmlega 30%. Sérfræðingar VÍB telja að markað- urinn sé dýr og að fjárfestar eigi að fara sér varlega í kaupum um þess- ar mundir. Athyglisvert er að inn- lendi markaðurinn hækkar með vaxandi verðbólgustigi og hækk- andi vöxtum en þetta er einmitt það ástand sem Bandaríkjamarkaður hefur staðið frammi fyrir á undan- fórnum mánuðum. Aftur á móti hefur hlutabréfamarkaður í Banda- ríkjunum verið að lækka á undan- fórnum mánuðum, vegna vaxandi verðbólgu og hættu á vaxtahækk- unum Kaupþing meö 13% í Össuri Félög og sjóð- ir tengd og í vörslu Kaup- þings hf. eiga samtals a.m.k. 13,3% í Össuri hf. Eftir sem áður er Össur Kristinsson stofn- andi fyrirtækisins langstærsti eig- andi með 49,74%. Böm hans Bjami og Lilja Össurarbörn eiga bæði 3,87% og aðrir minna. BA kaupir Airbus Breska flugfélagið British Airways tilkynnti í gær að það ætlaði að kaupa 24 Airbus Industrie-þotur. Þetta er nokkurt áfall fyrir helsta keppinaut Airbus sem er Boeing. Söluverð þessara véla er um einn milljarður dollara eða sem svarar 72 milljörðum ís- lenskra króna. Rússar vilja sættir Vladimír Putin, forsætisráð- herra Rússlands, sagði í gær að Rússar væra tilbúnir að ganga til samstarfs við Alþjóða gjaldeyris- sjóðinn svo framarlega sem sjóð- urinn skipti sér ekki af innan- ríkismálum landsins. Sjóðurinn setti fram ýmis skilyrði þess að Rússland fengi 640 milljón dollara lán en margar þessara krafna vilja Rússar ekki fallast á. Samstarfið felur í sér að fyrirtæk- in munu vinna í sameiningu að kynningu lausna fyrir fyrirtæki sem vilja nota þráðlaus handtæki, eins og GSM- síma og hand- tölvur sem byggja á Palm OS, Windows CE og Symbians EPOC stýrikerfi, við vinnu sína og þurfa að kom- ast að miðlægum gögnum eða fá send gögn til sín. Einnig munu fyrirtækin ein- beita sér að þeirri þróun sem er að verða við samnýtingu þráð- lausra síma og Netsins með til- komu verkfæra og tækni eins og WAP. Mikill vöxtur í dag er mikill vöxtur í notkun þessara handtækja og reikna menn með því að GSM-símar í heiminum verði um einn milljarður árið 2003. Handtækin og fjarskiptakerfin, eins og GSM-fjarskiptakerfið, eru að verða hæfari að meðhöndla alls kyns gögn þannig að GSM-notend- ur geta brátt haft aðgang að pósti, dagbók, símaskrá, pantað vöru eða haft aðgang að öðrum gögnum sem liggja á Innráneti fyrirtækja. Teymi og Stefja munu einnig bjóða upp á þróun lausna sem og staðlaðar lausnir fyrir Palm OS, Windows CE og Symbianís EPOC stýrikerfi sem byggja á Oracle8i Lite. Þessar lausnir geta bæði unn- ið staðbundið og samhæfst miðlæg- um Oracle-gagnagrunni fyrirtækis- ins eða unnið beint á veflausnum fyrirtækisins. Fyrirtækin sjá fyrir sér mikla þörf hjá stærri fyrirtækjum og stofnunum eins og spítölum, trygg- ingar-, framleiðslu-, verktaka-, sölu- og dreifmgarfyrirtækjum þar sem fólk er á ferðinni allan daginn og þarf að hafa aðgang að gögnum og vinna náið með upplýsingakerf- um fyrirtækisins. Gengi DeCODE lækkar Gengi hlutabréfa DeCode Genetics Inc., móðurfélags Is- lenskrar erfðagrein- ingar, hefur lækkað að undanförnu. Fram kemur í Hálf- fimm fréttum Bún- aðarbankans á föstudaginn að gengi bréfa félags- ins er nú um 25-26. Hæst fór gengi bréf- anna um síðustu mánaðamót þar sem mikil viðskipti vom á 28-30. Búnaðarbankinn bendir á að þá hafi markaðsverð- mæti DeCode verið yfir 60 milljarð- ar króna og þar með hafi það verið tvöfalt verðmætara en verðmætasta félagið á Verðbréfaþingi íslands, Eimskip hf. Búnaðarbankinn segir að mikill spenningur sé meðal fjárfesta eftir skráningu DeCode á erlendan mark- að og yrði þá félagið fyrst allra ís- lenskra félaga til að ná skráningu. Markaðsaðstæður era nú góðar á líftækni- markaði og hafa félög sem eru sambærileg við DeCode hækkað allverulega síðustu mánuði. Lækkun sú sem sést hefur á gengi DeCode síðustu daga endurspeglar þó áhættuna sem samfara bréfunum er og ekki er óalgengt að sjá 5-15% sveiflu innan dags í verðmæti erfða- tæknifyrirtækja. Það sem helst veldur þó lækkun síðustu daga er sú töf sem orðið hefur á veitingu rekstrarleyfis fyrir gagnagrunn og neikvæð utandagskrárumræða stjómarandstöðunnar um gagna- grunninn. Jafnframt hafa margir spákaupmenn keypt hlutabréf í DeCode fyrir lánsfé og hafa litlar taugar í að sitja af sér sveiflur og kjósa því að selja bréf sín og sætta sig við þann hagnað sem þeir hafa náð. Viðskiptablaðið Kári Stefánsson. ff—t X 1 *x , **x Fiæðslumiðstoð Re^gavíkur Laus störf í Grunn- skólum Reykjavíkur Starfsmenn óskast til ýmissa starfa í Grunnskólum Reykjavíkur. Meginmarkmið með störfunum: Að taka þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans þar sem áhersla er lögð á vellíðan nemenda. Starfsfólk til að annast nemendur í leik og starfi, við gangavörslu, þrif o.fl. Árbæjarskóli, sími 567 2555, 100% starf. Starfsfólk til að annast nemendur í leik og starfi, skóladagvist o.fl., Árbæjarskóli, sími 567 2555, 50% starf. Umsjónarmaður skóladagvistar, Árbæjarskóli, sími 567 2555, 100% starf. Kennarar Stærðfræði í unglingadeild, Árbæjarskóli, sími 567 2555, 1/1 staða. Enska í unglingadeild, Hlíðaskóli, sími 552 5080, 2/3 staða. Borgaskóli, sími 577 2900 75% starf Starfsmaður til að annast nemendur í leik og starfi, skóladagvist o.fl. Fellaskóli, sími 557 3800 100% starf Hlíða- og Vesturhlíðarskóli, skóladagvist, sími 562 50717 Starfsmaður í mötuneyti kennara og nemenda 100% starf Melaskóli Starfsfólk til að annast nemendur í leik og starfi, við gangavörslu, þrif o.fl. Starfsmaður til að annast nemendur í leik og starfi.skóladagvist o.fl. Starfsmaður sem fylgir einstökum (eða fáum) nemendum inni í tímum og úti; vinnur undir stjórn kennara. Melaskóli, símar 551 0625 og 551 3004 í Melaskóla er um að ræða hlutastörf, en mögulegt er að sameina tvö störf í eitt. Starfsfólk til að annast nemendur í leik og starfi, við gangavörslu, þrif o.fl. Vesturbæjarskóli, sími 562 2296 100% störf Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðarskólastjórar. Umsóknir ber að senda í skólana. Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög. FO-2600 • Innbyggður sími ■ Prentar á A4 pappír • Sjálfvirkur deilir fax/sími • Símsvara tengimöguleiki • Laserprentun • 512 kb minni • 20 blaða frumritamatari • 100 biaða FO-4500 • Prentar á A4 pappír • Laserprentun • 1 mb í minni (ca 50 síður) • 50 blaða frumritamatari • 650 blaða pappfrsgeymsla I ! pappirsbakki F-3600M Faxtæki, sími, Windows- prentari, skanni, tölvufax og Ijósriti í einu tæki Sjálfvirkur deilir fax/sími Laserprentun Prentar á A4 pappír 30 blaða frumritamatari 100 blaða pappírsbakki UX-370 •Innbyggður sími • Sjálfvirkur deilir fax/sími • Símsvara tengimöguleiki • Hitafilmu prentun • Prentar á A4 pappír • 10 blaða frumritamatari • 60 blaða pappírsbakki W Betri faxtæki eru r vandfundin! BRÆÐURNIR Lágmúla 8 • Sími: 530 2800 • Fax: 530 2810 Umboösmenn um land allt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.