Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1999, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1999, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1999 11 Fréttir www.ormsson.is • Þráðlaus símtæki með titrarahringingu, og tengingu við heyrnartól • Símstöðvar sem tryggja //1 samskipti komandi kynslóða, frá einum stærsta framleiðanda símkerfa í heiminum HATRA N&RTEL • Mikið úrval ISDN símstöðva • Allt frá 4 upp í 12.000 innanhússnúmer • Netkerfistengingar mögulegar milli allra Matra Norte! símstöðva • Sami hugbúnaður í öllum símstöðvunum • Fjölbreyttir möguleikar t.d. beint innval, talhólf, sjálfvirk svörun, tölvutengingar, þráðlausar lausnir o.fl. COMMUNICATIONS -samskiptaleið komandi kynslóða mmm . BRÆÐURNIR (©IOBMSS3M Láamúla 8 • Sími: 530 2800 • Fax: 530 2810 Lágmúla 8 • Sími: 530 2800 • Fax: 530 2810 Tígri á Krakkavef Vísis. Krakkavefur Vísis: Tvö þúsund kort hafa verið send á mánuði - gleðjið með korti Rúmur mánuður er síðan Krakkavefur Vísis var opnaður. Aðsóknin hefur verið mjög góð og hafa 25.000 heimsóknir verið á þessu tímabili. Á vefnum býðst krökkum meðal annars að senda vinum sínum kveðju í formi póst- korts. Hægt er að velja milli mis- munandi korta og þar á meðal er afmæliskort þar sem aldur viðtak- anda er sett á kortið. Fyrir stuttu var tvöþúsundasta kortið sent og því er um að gera að gleðja vini sína og ættingja og senda þeim kveðju í formi korts á Netinu. Krakkavefur Vísis er i sam- starfl við Krakkaklúbb DV en hann hefur verið starfræktur frá því árið 1992. Meðlimir Krakka- klúbbsins eru um 12.000 talsins og nýtur hann alltaf jafn mikilla vin- sælda. Fyrir þá sem ekki hafa kynnt sér klúbbinn á vefnum er bent á að fara inn á Vísi.is og sjá hvað í boði er. Ýmsa vefi er þar að fmna og má þar nefna upp- skriftavef, fókusvef, íþróttavef, viðskiptavef og smáauglýsinga- vef. -hól Falsaði sig inn á klámvefinn DV, Akureyri: Ungur karlmaður á Kópaskeri hefur verið dæmdur í Héraðs- dómi Norðurlands eystra fyrir að hafa látið skuldfæra á greiðslu- kort annars manns peninga til að komast inn á klámvef á Netinu. Maðurinn lét skuldfæra hjá bandaríska fyrirtækinu IceTec Design á VISA-reikning annars manns í tvígang peningaupphæð til að fá aðgang að klámvefnum og nam upphæðin samtals tæplega 10 þúsund krónum. Dómurinn komst að þeim niðurstöðu að fresta ákvörðun um refsingu og falli hún niður haldi maðurinn al- mennt skilorð í tvö ár. Maðurinn var dæmdur til greiðslu alls sak- arkostnaðar, m.a. 20 þúsund króna launa skipaðs verjanda síns. -gk Stefnt að því að háhyrningurinn komist „í gönguferðir“ eftir áramótin: Keikó-girðing fer upp fyrir jólin - gríðarstórt mannvirki sem Netagerðin Ingólfur ætlar að ljúka fyrir 3. desember Milljónaframkvæmdir eru hafnar hjá Netagerðinni Ingólfi í Eyjum við að útbúa 290 metra langa netgirðingu með 34 ankerum sem stefnt er að að setja á upp í desem- ber fyrir Keikó í Klettsvík. Girðingin verður mest 15 metra „djúp“ og á henni verða tæplega 200 pylsubelg- ir sem hver um sig er hálfur annar metri á lengd. Teinn- inn sem verður í ofanverðu netinu á að þola 100 tonna slitþunga enda veitir víst ekki af þegar vindstigin upp á gamla mátann verða 12-14 í svæsnustu austanáttunum i Vestmannaeyjum. Þegar girðingin verður komin upp mun Keikó geta farið í „göngutúra". Þannig munu þjálfarar fylgja hon- um eftir á bát. Á næst ári er síðan fyrirhugað að reyna í áfongum að sleppa Keikó jafnvel alveg út í frelsið. Þá verður gert hlið á netið sem nú er verið að gera. Birkir Agnarsson, fram- kvæmdastjóri Netagerðar- innar Ingólfs, segir að gam- an hafi verið að vinna með Ocean Future-samtökuniun. „Þetta eru fagmenn sem eru búnir að þaulkanna allt,“ sagði Birkir. Hann vildi ekki ekki gefa upp það verkið. Engilbert Halldórsson netagerðarmeistari (í rauðum galla) og Rúnar Þór Birgisson netagerðarsveinn voru í óðaönn á Naust- hamarsbryggju að vinna við netgirðinguna handa Keikó sem á að vera tilbúin 3. desember. Þá er gert ráð fyrir að ferlíkið verði sett upp úti í Klettsvík. DV-mynd beg verð sem fyrirtækið bauð. Ingólfur Hallur Hallsson hjá Ocean Fut- setningu girðingarinnar hjá yfir- átti lægra tilboð en Hampiðjan í ure sagði við DV að verið væri að völdum í Reykjavík og Vestmanna- sækja um viðeigandi leyfi fyrir upp- eyjum. -Ótt Útuegum nýja og notaða bíla á mjög góðu uerði B í L A R Grand Cherokee LTD, árg.1997. Einn með öllu, þaklúga, 6 og 8 cyl. Jeep Grand Cherokee LTD, árg. 1999. 4,7 I vél, V-8, þaklúga. Nýr Dodge Ram, árg. 2000, commings turbo dísil 2500 4x4, SLT Laramie QUAD - CAB, 4 dyra með öllu, leður/rafdrifin sæti, ABS- öll hjól, CD, 6 hátalarar, fjarstýrðar samlæsingar, stærri dekk.dráttarbeisli, þokuljós o.fl. EV-Egill Vilhjálmsson ehf. Smiöjuvegi 1 sími 564-5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.