Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1999, Blaðsíða 20
<32
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1999
Fréttir
Rúnturinn á Akranesi:
Hjónabandsmiðlun
Skagamanna
- grípa hvert tækifæri til aö fá stelpu á rúntinn
DV, Akranesi:
Akurnesingar tala gjarnan um að
einangrun Reykjavíkur hafl verið
rofin þegar Hvalfjarðargöng voru
opnuð þann 11. júlí í fyrra. Það er
skemmtilegt samfélag á Skaganum
þar sem bæjarbragurinn hefur feng-
ið að þróast í nokkuð lokuðu um-
hverfi þar sem enginn er óvelkom-
inn. Allir þekkja alla eins og gengur
og gerist í ekki stærra samfélagi en
það hefur í fór með sér að allir taka
þátt í sorg og gleði náungans. Aldrei
,hefur örlað á firringu eða afskipta-
leysi um hag náungans eins og svo
oft einkennir stærri samfélög. Sum-
um þykir jafnvel nóg um umhyggju
fyrir lífi, heilsu, gleði og sorg ná-
ungans.
Umhverfið mótar manninn að
miklu leyti. Nálægðin við sjóinn og
baráttan við hann og stoltið hefur
skapað ótrúlegan sigurvilja, hvort
sem er í íþróttum, kapphlaupi um
lífsgæði eða einfaldlega að láta rödd
sina heyrast í samfélaginu á íslandi.
Mikil samstaða einkennir bæjar-
y braginn sem eflaust á sér rætur í
íþróttaáhuga bæjarbúa og velgengni
íþróttamanna frá Akranesi. Sú vel-
gengni er ekki eingöngu í knatt-
spymu því mjög góður árangur hef-
ur náöst hjá íþróttamönnum í
sundi, frjálsum íþróttum og golfi.
Þegar íþróttir ber á góma á Akra-
nesi gleyma Skagamenn sér algjör-
lega og margir kunna utan að
hvemig knattspyrnuliðið var skip-
að á ákveðnum tímum þegar ein-
hverjir af hinum fjölmörgu sigrum
unnust. Margir undrast hvemig lít-
ið bæjarfélag getur alið af sér slíkan
hóp af frábæm íþróttafólki. Skýr-
ingin er að hluta sú að aðstaða til
íþróttaiðkana er einhver sú besta á
landinu.
Þungar drunur og umferðar-
niður
Eitt er það sem einkennir bæjar-
braginn og gestir taka mjög vel eft-
ir en Akumesingar líta á sem hvim-
leiðan þátt í bæjarlífinu og það er
rúnturinn. Snemma kvölds, og þá
skiptir ekki máli hvenær vikunnar
DV-myndir DVÓ
borga en ef það er farið út á land þá
skiptist kostnaðurinn á milli farþeg-
anna. Þeir sögðu að það væri mis-
jafnt hvað það kostaði að rúnta
svona alla helgina, það væri frá
1000-1500 krónur og miklu meira
hjá sumum.
Þeir sögðu að það kæmi oft fyrir
að fólk kynntist á rúntinum og það
væri hverju orði sannara að rúntur-
inn væri besta hjónabandsmiðlun
Skagamanna og nærsveitunga. Þeg-
ar kærustupar er saman og hefur
ekkert að gera og ætlar út þá fer það
ekki upp í skógrækt eða eitthvað
annað heldur á rúntinn og ekkert
annað.
„Ef við sjáum fallega stelpu eða
stelpur þá bjóðum við henni eða
þeim ekki strax á rúntinn heldur
byrjum við að horfa, fómm hægt í
þetta og bjóðum svo á rúntinn. En ef
maður er með stelpu þá sleppir
maður því. Maður grípur hvert
tækifæri til að fá stelpu á rúntinn.
Það er mikið um aö stelpumar séu
tvær eða þrjár saman í þeirri von að
einhver stoppi til aö bjóða þeim á
rúntinn og það em dæmi um að við
það skapist nánari kynni,“ segja fé-
lagamir.
Þeir félagar máttu ekki vera að
því að tala við DV lengur þvi að
Gunnar Erlingsson ásamt vinkonu
sinni kom aðvífandi á bíl,
Volkswagen Golf, sem hann keypti
þennan dag og auðvitað þurftu þeir
að kíkja á nýja bílinn á rúntinum og
ekki var verra að blæjan var tekin
niður því veðrið var gott.
-DVÓ
það er, hópast bílstjórar á götur
bæjarins og aka fram og aftur aðal-
götumar, að því er virðist til að sjá
fólkið í hinum bílunum. Rúnturinn
hefst við Pósthúsið ofarlega á
Kirkjubraut og ekið er sem leið ligg-
ur niður Kirkjubraut og beygt inn á
Skólabraut og ekið hana á enda þar
til komið er að mótum Vesturgötu
og Skólabrautar. Þar er tekin U-
beygja og ekið til baka. Þurfi bil-
stjóri að spjalla við annan bílstjóra
sem á móti kemur er bílrúðan ein-
faldlega skrúfuð niöur og svo er
spjallað saman. Skiptir þá engu
máli hversu margir bíða fyrir aftan.
Enginn flautar eða er óþolinmóður.
Vonlítið er að komast inn á
Kirkjubraut eða Skólabraut eftir að
rúnturinn er hafinn á kvöldin því
enginn vill missa sitt pláss í rööinni
sem hlykkjast um göturnar. Mest er
það auðvitað ungt fólk sem ekur
rúntinn og er vísast að hann er
besta hjónabandsmiðlun Skaga-
manna. Þó niður sé af umferðinni
er hávaði frá hljómflutningstækjum
Rúnturinn hefst við Pósthúsið, ofarlega á Kirkjubraut.
Þurfi bílstjóri að spjalla við annan bílstjóra sem á móti kemur er bílrúðan einfaldlega skrúfuð niður.
mun meiri og
þungar drunur í
bassa tækjanna
með dynjandi
tölvutónlist er
gjarnan það sem
heyrist mest frá
rúntinum.
Ekið fyrir
1500 krónur
eða meira
Fullorðið fólk
sést einnig á
rúntinum og
nærsveitarmenn
skreppa gjarnan
niðrn- á Skaga til
að aka rúntinn.
Rúnturinn er
gjaman alla
nóttina og fram
undir morgun
og jafnvel eftir
að þeir sem
ganga rúntinn
eru farnir heim.
Þegar DV bar að
garði um síð-
ustu helgi voru margir komnir á
rúntinn, þar á meðal voru þeir Lár-
us Sveinsson og Stefán Orri Sverris-
son og fleiri og fleiri. í spjalli við
DV sögðu þeir að þeir væru á rúnt-
inum eins og fleiri til þess að drepa
tímann og sjá aðra. Þeir sögðu það
vera þannig að kostnaðurinn við
keyrsluna skiptist ekki á milli
þeirra sem eru í bílnum heldur
væri það venjan að láta bílstjórann
«3*
Ijunnar Egilsson á nýja Volkswagen Golf-bílnum með vinkonunni.
Lárus Sveinsson og Stefán Orri Sverrisson ætluðu að fá stelpu á rúntinn.